Morgunblaðið - 25.02.1989, Side 33
ína, eins og hún var jafnan köll-
uð, var víða í vinnumennsku bæði
meðan hún dvaldi hér fyrir norðan,
og eins eftir að hún kom suður.
Hjá mér og Ástu konu minni,
dvaldi hún í mörg ár. Þá var lítið
um nútímaþægindi, vatn og raf-
magn af skomum skammti, og fátt
um vélar til að létta heyskap og
önnur útiverk.
Hjá okkur tók ína þátt í öllum
störfum úti sem inni af þeirri
skyldurækni sem henni var í blóð
borin. Hún var ekki mikilvirk, en
hugsaði heldur ekki um þann tíma,
sem tók hana að ljúka því verki sem
henni var falið, heldur leysti það
vel af hendi. Hún var sérlega nýtin
á allt, hvort sem það var matarkyns
eða annað. Ekkert mátti fara for-
görðum, og því hélt hún til hinstu
stundar.
ína var stálminnug, hún mundi
vel liðna atburði. Ég minnist þess,
að eftir að hún flutti suður, og kom
í heimsókn til okkar, rifjuðum við
upp nöfn kúa í fjósinu frá tíma
hennar hér. Hún mundi hvað kým-
ar hétu, hvenær þær hefðu borið,
hvemig kálfurinn var á litirin, hvort
hann var naut eða kvíga, og hvort
honum var slátrað eða settur á.
Skólaganga ínu var stutt, eins
og þá tíðkaðist. Hún var samt
víðlesin, og skrifaði vel læsilega
hönd. í Ársriti Húnvetningaféiags-
ins í Reykjavík 1981 og 1982 hafa
birst tvær ferðasögur eftir hana frá
árunum 1920 og 1921.
Önnur er um ferð frá Grímstungu
í Vatnsdal að Sauðanesi, 45 km
leið í marsmánuði. Gekk hún á ein-
um degi þessa leið íklædd peysuföt-
um og á skinnskóm, og síðari hluta
leiðarinnar í vondu veðri.
í hinni seinni segir frá þegar hún
sótti geitur fram að Stóradal og rak
til Blönduóss í dimmviðri og þoku-
sudda, blaut og hrakin. Launin vom
75 aurar, sem þótti þá mikill pen-
ingur, og hún lagði inn á bók.
Þessar sögur lýsa vel þeim erfið-
Birtíng af-
mælis- ogminn-
ingargreina
Morgimblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjóm blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafiiarstræti
85, Akureyri.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
OFf f p/j'rfrpHI ?? fl'UntnHAT'Hf J HTaAJPK'inHOM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25 EEBRÚAR 1989
Minning:
Hólmfríður Svein-
björnsdóttír frá
Hrollaugsstöðum
leikum sem fólk þurfti að beijast
við, og það þó ekki nema fyrir 60
árum síðan.
ína var ekki allra, en hún var
góður vinur vina sinna og tryggða-
rtröll. Ég man, að eitt sinn er kona
mín var ekki heima, og ína sá um
heimilið, bar gesti að garði. Einn
þeirra óð inn í stofu, sem var ný-
lega teppalögð, á óhreinum skóm.
ína tók til við að þrífa óhreinindin
með tusku. Þegar gesturinn varð
var við mistök sín vildi hann gera
gott úr þessu, og tók utan um Inu.
En ína snerist ill við og sló hann á
vangann með votri tuskunni. Trú-
mennska hennar til þeirra sem hún
var hjá var einstök, og náði til allr-
ar fjölskyldunnar.
Eftir að ína flutti suður, kom hún
á hveiju sumri hingað norður, að
heimsækja frændfólk og vini, að
undanskildum sl. tveimur árum,
sem hún treysti sér ekki.
Hún var búin að sækja um dvöl
á Hnitbjörgum, dvalarheimili aldr-
aðra á Blönduósi, og vonaðist til
að geta eytt þar síðustu elliárunum.
Nú verður hún jarðsett á Blönduósi
í dag 25. febrúar.
Á síðastliðnum jólum fengum við
á Torfalæk jólakort og bréf frá ínu.
Þar var að finna sama hlýhug og
sömu tryggð sem einkenndi allar
hennar jólakveðjur.
Blessuð sé minning hennar.
Torfí Jónsson
Um héraðsbrest ei getur, þó hrökkvi sprek
í tvennt,
er hriðarbylur geisar, það liggur gleymt
og fennt.
Og eins er lítill tregi og engin sorg á ferðum
þó ekkja falli í valinn með sjötíu ár á herðum.
(G.F.)
Það varð enginn héraðsbrestur
fímmtudaginn 16. febrúar sl. er hún
Hólmfríður Sveinbjömsdóttir kvaddi
þennan heim. Vissulega er tregi á
ferð, en engin sorg því árin hennar
Hólmfríðar voru orðin 99 og tæpum
fimm mánuðum betur.
Hún var fædd að Hólsgerði í Kinn
26. september 1889, dóttir hjónanna
Sveinbjöms Gunnlaugssonar og
Helgu Sörensdóttur. Helga náði
háum aldri og er hún lést árið 1961
var hún elst allra íslendinga, tæplega
102 ára að aldri.
Hólmfríður barst ung austur um
sveitir í atvinnuleit og ílentist loks
austur á Langanesi og giftist þar 22.
maí 1911 Magnúsi Guðbrandssyni
frá Hrollaugsstöðum.
Á þessum ámm lá jarðnæði ekki
á lausu, hver þúfa var setin og ekki
var heldur hægt að flytja á mölina,
hlutskipti þeirra vom því eilífir bú-
ferlaflutningar af einu kotinu á ann-
að, en árið 1937 flytjast þau að Hrol-
laugsstöðum.
Búskaparsaga Magnúsar þar varð
sorglega stutt því að hann lést að-
eins fáum mánuðum eftir að þau
fluttu þangað. Þau eignuðust einn
son, Vilhjálm, árið 1917 og hóf hann
nú búskap á Hrollaugsstöðum með
móður sinni. Nokkmm ámm síðar
kom þangað Guðrún Þórðardóttir frá
ísafirði, hún varð eiginkona Vil-
hjálms, og nú fóm bamabömin að
bætast í hópinn en þau urðu níu.
Upp frá því helgaði Hólmfríður þess-
um stað og þessari fjölskyldu líf sitt
og starf, þau vom henni allt.
Árið 1961 fluttist hún til Þórs-
hafnar ásamt elsta bamabami sínu,
þá komin á áttræðisaldur, fjölskyldan
EiríkurBriem verk-
fræðingur—Minning
Fæddur 3. nóvember 1915
Dáinn 17. febrúar 1989
Með Eiríki Briem er faliinn í valinn
maður, sem verður öllum, sem hon-
um kynntust ógleymanlegur fyrir
marga hluta sakir, maður sem skilur
eftir sig mörg og djúp spor í sögu
okkar lands og í hugum þess fólks,
sem varð þess láns aðnjótandi að
kynnast honum.
Með nokkmm fátæklegum orðum
langar undirritaðan til þess að greina
frá einum þætti minna kynna af
honum, þætti sem mér finnst lýsa
manninum vel, og stjómandanum
Eiríki Briem sömuleiðis.
Okkar fyrstu kynni urðu þegar ég
^em ungur maður fór að vinna hjá
Rafmagnsveitum ríkisins við virkjan-
ir á Vestfjörðum og síðan rafveitu-
rekstur þar. Þá lærði ég að meta og
virða stjómsemi hans og mikla
reynslu á sínu fagsviði þó að störf
hans síðar beindust meira og meira
að hreinni stjómun og skipulagningu
á langtum stærra sviði, þ.e. upp-
byggingu Landsvirkjunar og fram-
kvæmda á hennar vegum.
Árið 1969 lágu leiðir saman að
nýju, þá með þeim hætti að skyndi-
lega varð að fá mann til stjómunar-
starfa við vélar og rafbúnað í Búr-
fellsvirkjun, sem þá var í byggingu.
Eiríki var í lófa lagið að gera kröfu
um mann — útlending — sem til
verksins hefði tilskylda reynslu. Á
þessum tíma vom nánast engir ís-
lendingar í ábyrgðarstörfum við
þennan hiuta virkjunarframkvæmd-
anna. Eiríkur gekk tvímælalaust
fram fyrir skjölduþegar hann í þessu
tilfelli ákvað að Islendingar skyldu
koma meira inn í þessi störf. Undir-
ritaður var svo lánsamur að vera
með í þessu verki, og njóta þar með
að nýju reynslu Eiríks og þess að
taka þátt í að gera öll störf í virkjun-
arframkvæmdum að störfum fyrir
íslendinga, sem Eirikur sá fyrir að
var sjálfsagður hlutur.
Það er alltaf létt að gera eins og
áður hefur verið gert, en erfitt að
vera brautryðjandi eins og Eiríkur
var í þessum þætti verkfram-
kvæmdasögu á landi hér. Þætti, sem
sýndi að Eiríkur lét ekki nægja að
tala um það sem rétt og gott væri
að gera, heldur fylgdi þvi eftir í verki.
Jafnframt þvi að ég færi þér Maja
Greta og sonunum Haraldi og Eiríki
innilegustu samúðaróskir, þakka ég
að hafa fengið að kynnast Eiríki og
fengið að njóta um skeið af hans
miklu reynslu og þekkingu.
Egill Skúli Ingibergsson
ss
33
fluttist skömmu síðar til Húsavíkur
og fóru Hrollaugsstaðir þá í eyði.
Eftir að hún kom til Þórshafnar
rak hún smábúskap um nokkurra ára
skeið, en svo voru það pijónamir sem
setið var við svotil til hinstu stund-
ar. Voru það ófáir sokkar og vettling-
ar sem frá henni komu enda stækk-
aði nú fjölskyldan óðum, og heimili
hélt hún og sá um húshald þar til
að hún fór á sjúkrahúsið á Húsavík
fyrir rúmum tveimur árum.
Hólmfríður leit Hrollaugsstaði
aldrei augum eftir að hún flutti það-
an 1961, og það var hennar gæfa,
því auðvitað hefur jörðin látið undan
tímans tönn eins og önnur eyðibýli
þessa lands, en svo lengi sem hugsun
hennar var óbrengluð var allt í henn-
ar huga eins og þegar hún flutti burt.
Segja má að æviskeið Hólmfríðar
spanni yfír allt breytingatímabil
íslensks þjóðlífs. Hún fæddist í torf-
baðstofu þar sem læknisáhöld voru
aðeins tækin í tösku ljósmóðurinnar
og laugarvatnið borið fram í hrein-
ustu skálinni á bænum, og hún lést
í nútíma sjúkrahúsi þar sem rafeinda
og tölvutækni skipa öndvegi.
Hún var ein af þessum hljóðlátu
hetjum sem vann störf sín í kyrrþey
og spurði ekki um daglaun að kvöldi,
um eigin þarfír var ekki hugsað, hún
gekk oft síðust til hvflu á kvöldin,
en var þó gjaman fyrst á fótum á
morgnana.
Hún var amman sem strauk tárin
af votum vanga, hún var amman sem
pijónaði sokka og vettlinga á kalda
fætur og loppnar hendur, hún var
amman sem stakk kökubita í lítinn
munn og ef bömin eignuðust eitthvað
sem þeim þótti meira um vert en
annað var amma beðin að geyma
það.
Þau kveðja nú ömmu sína með
orðum Valdemars Briem:
Far þú í friði,
friður guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Starfsfólki Sjúkrahúss Húsavík-
ur skulu færðar alúðarþakkir fyrir
góða hjúkran og aðhlynningu. Þar
leið henni vel.
Skúli Geirsson
NU ER AÐ HROKKVA
EÐA STÖKKVA
PS. Þú getur notaö sömu tölurnar, viku eftir viku
- meö því aö kaupa tveggja, fimm, eöa tíu vikna miða
Sími 685111. Upplýsíngasímsvari 681511
SAMEINAÐA/SÍA
Hver fæ :r mi lliónir
í kvöldi ■ j