Morgunblaðið - 25.02.1989, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1989
Varnir Finnlands og
varðstaða Norðurlanda
Helsinki. Frá Tom Kankkonen, fréttaritara Morgunblaðsins.
FYRIR nokkrum árum g-erðist það í London að æðsti maður
finnska hersins var spurður að því, hve margar sovéskar herdeild-
ir væru í Finnlandi. Spurningin lýsir ískyggilegri vanþekkingu á
málefinum Finnlands. Enn ógnvænlegra er þó, að sá sem spurði
var sjálfur hermálaráðherra Breta. Svarið var að engir sovéskir
hermenn væru í Finnlandi.
1 Vestur-Evrópu er þekking á
Finnlandi allt of lítil og engin að
því er varðar öryggis- og vamar-
mál landsins. Þetta kemur, meðal
annars, fram I bókinni Cold Will,
The Defence of Finland (Einbeittur
vilji, vamir Finnlands) eftir Tomas
Ries, en hann starfar nú við Rann-
sóknastofnun norska hersins. í bók
sinni fer hann ofan f saumana á
sögu landvama í Finnlandi í heims-
stjnjöldinni sfðari og lýsir jafnframt
stöðu mála nú.
„Fjölmargir háttsettir stjóm-
málamenn og herforingjar á Vest-
urlöndum halda, að Finnar hafi
alls engar landvamir, sagði Ries í
samtali við fréttaritara Morgun-
blaðsins í Helsinki. Lýsing Ries á
stöðu mála nú er f andstöðu við
þessa almennu trú. Hann telur að
finnski landherinn muni halda
áfram að eflast þar til hann verði
orðinn sá sterkasti á öllum Norður-
löndum. Hann hefur einnig skoðun
á þvf, hvers vegna margir í ríkjum
Atlantshafsbandalagsins (NATO)
geri sér svo ranga mynd af Finn-
landi.
Að sögn Ries hafa Finnar lagt
alla áherslu á utanrfkisstefnu sína
þegar þeir gera grein fyrir öiyggis-
málum ríkisins, þeir hafa lítt eða
ekki haldið vamarmálum á loft.
Eftir heimsstyijöldina sfðari hafa
þeir sem móta utanríkisstefnu
landsins, þ.e. forseti og utanrfkis-
ráðherra, ásamt öðmm háttsettum
stjómmálamönnum. farið heldur
fáum orðum um vamarmál Finn-
lands. Vamimar hafa verið til stað-
ar án þess að fjasað hafi verið um
þær. A Vesturlöndum hefur því
orðið til sú skoðun, að Finnar eigi
sjálfstæði sitt aðeins góðmennsku
Sovétmanna að þakka. Engum
dettur í hug að Finnar muni sjálfir
geta varið hendur slnar. Allan
þennan tfma hafa þeir þó haft eig-
in landvamir og frá því um 1970
hefur stöðugt verið unnið að því
að endurbæta þær og styrkja. Að
vissu leyti geta Finnar kennt sjálf-
um sér um þennan misskilning á
stöðu landsins og um ásakanir um
„Finlandiseringu".
Ries gerir á sláandi hátt grein
fyrir afleiðingum þessa misskiln-
ings. Hann segir. „Á meðan sú
skoðun er rfkjandi innan NATO að
Finnar séu ófærir um að veija sig
kann það að gerast, komi til átaka,
að NATO ráðist inn í Finnland.
Af þessum sökum eru réttar upp-
lýsingar sérlega mikilvægar.“
Ries segir, að hvorki Finnland
né nokkurt annað Norðurlandanna
megi draga úr vopnabúnaði sínum.
Hann telur tvær höfuðástæður fyr-
ir nauðsyn sterkra vama f Finn-
landi; annars vegar hlutleysi lands-
ins og hins vegar samning Finna
og Sovétmanna um vináttu, sam-
vinnu og gagnkvæma aðstoð land-
anna. Samkvæmt samningi þessum
heita Finnar því að land þeirra
verði aldrei nýtt til árása á
Sovétríkin. Ries hefur sennilega
rétt fyrir sér þegar hann segir
mikilvægt að Finnland geti upp-
fyllt þessar skyldur sfnar án þeirrar
aðstoðar Sovétmanna sem -kveðið
er á um í samningum. Einnig er
þar tekið fram að komi til átaka
milli risaveldanna eigi Finnland
rétt til hlutleysis.
Ries telur, að Finnar þurfí áfram
á sterkum vömum að halda til að
tiyggja hlutleysi sitt. Hann segir
að hin Norðurlöndin verði að var-
ast samdrátt í vopnabúnaði, þar
sem áhugi stórveldanna á svæðinu
fari vaxandi. Áhugi Bandaríkja-
manna á nyrstu hlutum Norður-
landa aukist í réttu hlutfalli við
uppbyggingu herstöðva Sovét-
manna á Kóla-skaga.
Þrátt fyrir slökunar og afvopn-
unarstefnu Evrópumanna nú á
síðustu árum, er Ries allt annað
en bjartsýnn á framhaldið. Hann
hefur enga trú á skjótum jákvæð-
um áhrifum þróunarinnar f Mið-
Evrópu. Með aukinni samstöðu
Evrópuríkja kunni skil milli Vest-
ur-Evrópu og Bandaríkjanna að
skerpast. Þá geti dregið úr áhuga
Bandaríkjanna á því að veija Vest-
ur-Evrópu með kjamorkuvopnum.
Hann vekur ennfremur athygli á
því að ómögulegt sé að segja fyrir
um þróun mála í Austur-Evrópu.
Ries telur tvo þætti hafa valdið
mestu um að það hve jengi friður
hefur haldist í Evrópu: í fyrsta lagi
tilvist hemaðarblokkanna tveggja
(NATO og Varsjárbandalagsins)
og í öðru lagi fælingarmátt Iq'am-
orkuvopna. Hann telur, að nú sé
að draga úr áhrifum beggja þess-
ara þátta.
Nýjasta eldhúsið
á markaðnum heitir
Sönderborg!
Eldhúshomið hf. opnar í dag verslun með Sönderborg
eidhúsinnréttingar, baðinnréttingar og fataskápa. Auk þess verður
boðið upp á parket fra ýmsum þekktum framleiðendum.
Sönderborg eldhúsið er nú loksins komið til íslands. Þetta eldhús er ekki fjöldaframlcitt,
heldur er sérhver innrétting sérsmíðuð úr stöðluðum einingum
eftir þörfúm hvers og eins.
Þetta gefúr Sönderborg eldhúsinu það yfirbragð sem allir sækjast eftir.
í Sönderborg eldhúsinu er hugsað fyrir öllum nútíma þægindum,
sem gera hverja stund í eldhúsinu ánægjulega.
Hjá Sönderborg er stöðugt verið að þróa nýjungar, sem auka enn á ánægjuna.
Með Sönderborg eldhúsinu eignast þú góða innréttingu, sem þjónar þörfum heimilisins
betur en hefðbundið eldhús.
Sönderborg eldhúsið, — gerir meira.
Verið velkomin á sýninguna um hclgina. Opið laugardag frá kl. 10-17 og sunnudag frá kl. 13-17.
Bldhúshorniö hf.
S0NDERBORG1
K0KKENET
Reuter
Samkomulagi mótmælt
Ung fómarlömb stórslyssins i Bhopal á Indlandi mótmæla sam-
komulagi indversku sfjómarinnar og Union Carbide fyrir utan
þinghúsið í Nýju Delhí. í samkomulaginu felst að Union Carbide
greiðir 470 miljjónir Bandaríkjadollara, jafinvirði 24,1 miljjarði
ísl. króna, f skaðabætur vegna hörmunganna sem gasleki úr verk-
smiðju fyrirtœkisins olli. í fyrradag greindi iðnaðarráðherra Ind-
lands, Vengela Rao, firá því að fómarlömb slyssins myndu £á
mánaðarlegar greiðslur af Qárhæðinni til æviloka. 3.400 manns
létust í slysinu sem varð í desembermánuði 1984 og mörg hundr-
uð þúsund manns kveðast hafa orðið fyrir heilsufjóni.
Áhrif áfengis:
Jaftivel hófdrykkja
getur skaðað fóstur
New York Times.
KANNANIR vísindamanna hafa áður gefið til kynna að fóstur
vanfærra kvenna geti orðið fyrir varanlegum skaða á andlegu
atgervi ef verðandi móðir drekkur mikið á meðgöngutímanum.
Nýleg könnun sérfræðinga í Seattle i Bandaríkjunum bendir til
þess að hófdrykkja geti einnig skaðað fóstrið.
Fýlgst var með tæplega 500 öðrum mánuði meðgöngutímans
konum og þroska bama þeirra. í
ljós kom að afkvæmi kvenna sem
drukku hóflega að eigin áliti, þ.e.
sem svarar til frá einu upp í þrjú
hanastél, þijú glös af léttvíni eða
þijá bjóra á dag, urðu fyrir mælan-
legum skaða. Jafnvel þótt konan
hætti alveg að drekka á fyrsta eða
voru áhrifín á bamið mælanleg.
Sérfræðingamir tóku tillit til
ólíkra aðstæðna, s.s. menntunar-
stigs og tekna foreldranna. Einnig
var komið í veg fyrir að áhrif frá
öðmm fíkniefnum, á borð við
nikótín og koffín, hefðu áhrif á
niðurstöðumar. Fjögurra ára böm
Af Bræðraborgarstígnum í
Brautarholt 24
Nvtt símanúmer 627044
f
---MERKING HF„ UMFERÐARMERKI,—
-----SKILTI OG AUGLÝSINGAR---
Einkaumboð fyrir dönsku Sönderborg innréttingarnar á íslandi.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 84090.