Morgunblaðið - 25.02.1989, Síða 15
]
þátt í þessu starfi í Iðnó lagði ég
til hliðar skáldsögu sem ég var að
vinna að og nú tek ég til við hana
aftur, auk þess sem ég ætla að
koma ljóðum og tónlist fyrir böm
á hljómplötu á næstunni."
-Er nóg að gert fyrir böm í leik-
húsum?
„Mér finnst sem á síðustu ámm
hafi aukist viðleitni leikhúsanna til
að sinna bömum," svaraði Olga
Guðrún. „Starfið hefur verið blóm-
legt í vetur, til dæmis hafa verið
sett upp tvö bamaleikrit í Þjóðleik-
húsinu. í Hafnarfirði og Kópavogi
hafa einnig verið sýnd bamaleik-
rit, svo aðeins sé fátt eitt nefnt.
Það þarf hins vegar að efla sam-
starf leikhúsanna og skólanna.
Böm sem læra að njóta leikhúss
ung halda því áfram. Það eflir leik-
húsin og er menningarauki fyrir
bömin sjálf. Æskilegast væri ef
leiksmiðja fyrir böm starfaði og
vonandi rætist það þegar Borgar-
leikhúsið verður tekið í notkun.
Bömin verða að fá að taka þátt í
starfinu, en ekki bara sitja á áhorf-
endabekknum og svara leikendum
á réttum stöðum. Það er aldrei nóg
að gert í þessum málum, sérstak-
lega nú þegar sjónvarps- og mynd-
bandssýkin er að heltaka bömin,"
sagði Olga Guðrún Ámadóttir.
I Ferðinni á heimsenda skipta
tvær telpur, þær Ólöf Söebeck og
Margrét Guðmundsdóttir, með sér
hlutverki álfapinsessunnar. Aðrir
leikarar em Kjartan Bjargmunds-
son, Valgerður Dan, Margrét
Ámadóttir, sem jafnframt er að-
stoðarleikstjóri, Edda Björgvins-
dóttir, Ása Hlín Svavarsdóttir,
Stefán Sturla Siguijónsson, Ólöf
Sverrisdóttir, Rósa Guðný Þórs-
dóttir og Amheiður Ingimundar-
dóttir, sem einnig leikur á klari-
nett. Leikstjóri er Ásdís Skúladótt-
ir.
RSv
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1989
Reyjjum, Mosfellsbæ:
Skólahljómsveít Mos-
fellsbæjar 25 ára
^ Reylgum, Mosfellsbæ.
ARIÐ 1989 er að mörgu leyti tímamótaár hjá okkur hér í Mos-
fellsbæ og má m.a. nefha það að skólahljómsveitin hefur starfað
reglulega í 25 ár og stjórnandi hennar hefir verið frá upphafi
Birgir Sveinsson skólastjóri bamaskólans á Varmá. Þá má einnig
nefna að Varmárlaug var vígð til almennrar notkunar 17. júni
1964 og við það tækifæri var lúðrasveitin þar í fyrsta skipti til
þess að sjá um það ómissandi og nauðsynlega að leika á horn sín
fyrir áheyrendur. Við þetta tækifæri var einnig sá merki áfangi að
i fyrsta skipti héldu Mosfellingar sina þjóðhátið þann 17. júni á
skólasvæðinu við Varmárlaug og með góðri þátttöku ibúa efri
hreppanna Kjalarness og Kjósarhrepps og hefir þessi venja hald-
ist síðan.
í tílefni af þessum áföngum er
ákveðið að þetta ár verði haldið
hátíðlegt í tilefni af þessum tíma-
mótum og settar verði upp ýmis-
konar uppákomur á næstu vikum
og mánuðum. Byijað verður með
stórhljómleika í íþróttahúsinu á
Varmá þann 4. mars næstkomandi
að frumkvæði skólahljómsveitar-
innar sem er nú orðið öflugt félag
með miklum stuðningi foreldra og
þá aðallega þeirra bama og ungl-
inga sem spila með eða hafa áður
verið með. Þetta félag nýtur svo
forystu sijómandans og einnig og
ekki sSður Lámsar Sveinssonar
trompetleikara sem er bróðir
stofnandans.
Upphaflega hófst þetta framtak
með lúðrasveit Birgis Sveinssonar
með góðum stuðningi þáverandi
hreppsnefndar en seinna fluttist
Lárus í byggðarlagið og kenndi
og þjálfaði hópinn með Birgi.
Nokkrum árum eftir tilkomu Tón-
listarskólans á Brúarlandi sem
stofnaður var 1966 gerðist homa-
flokkurinn deild í skólastarfinu og
þeir bræður urðu báðir fastir kenn-
arar við þann skóla á hálfum laun-
um. Saga þessarar hljómsveitar
er orðin löng og merkileg enda
hefir sveitin ferðast og haldið
hljómleika vftt og breytt um landið
og einnig til útlanda. í fyrra fór
sveitin til ítalfu og Austurríkis við
miklar vinsældir og viðurkenning-
ar færustu manna þar. Þá var
Lárus á fomum slóðum meðal vina
því hann stundaði tónlistamám í
Vín um sex ára skeið. Þessi saga
verður rakin við annað tækifæri
af einhveijum vel kunnugum og
má þá ekki gleyma því að áhrif
sveitarinnar hefir gætt bæði f
hljómsveitum og tónlistarskólum
þar sem gamlir nemendur héðan
hafa verið góðir liðsmenn.
Hljómleikamir þann 4. mars nk.
verða í íþróttahúsinu og með þátt-
töku allra kóra í Mosfellsbæ. Þar
verður karlakórinn Stefnir, Kirkju-
kórinn í Lágafellskirkju, Mosfells-
kórinn, Álafosskórinn og Reykja-
lundarkórinn en þeir fjórir síðast-
töldu em allt blandaðir kórar.
15
Morgunblaðid/Jón M. Guðmundsson
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar er 25 ára um þessar mundir og í til-
efni af því eru ýmsar uppákomur á næstu vikum og mánuðum.
Byrjað verður með stórhljómleikum í íþróttahúsinu á Varmá þann
4. mars nk.
Kóramir hafa æft hver í sinu lagi
lögin á dagskránni og síðan sam-
æfingar á sunnudögum. Úr efnis-
skránni má nefna t.d. Fangakórinn
úr Nabucco, eftir Verdi og Land-
kennong eftir Grieg o.fl. Á hljóm-
leikum þessum koma þvf saman
fast að 100 blásarar og hljóð-
færaleikarar og væntanlega 150
til 160 söngvarar og flytja ýmis
verk sameiginlega.
Þá má einnig nefna að hljóm-
sveit Tónlistarskólans í Stykkis-
hólmi kemur og verður með á þess-
um hljómleikum og hátíðahöldum
en sfjómandi og skólastjóri þar
er Daði Þór Einarsson einn af fyrr-
verandi meðlimum skólahljóm-
sveitarinnar hér. Þau em orðin
mörg heimilin sem hafa átt bömin
sín undir handleiðslu þeirra
bræðra Lámsar og Birgis og nú
er tækifæri alls þessa fólks að sfna
viðurkenningu sína í verki með því
að gleðjast með glöðum á þessum
tímamótum og stuðla með því að
eflingu menningar í sveitarfélag-
inu.
Eins og áður er getið er þetta
byijun á afmælisárinu okkar og
ýmis fleiri atriði em áformuð og
í því sambandi heimsóknir annarra
kóra seinna í vor. Þá má einnig
nefna það hér að Karlakómum
Stefni hefir verið boðið að sjmgja
á 50 ára afmælishátíð vinabæj-
anna sem haldin verður í Thisted
í Danmörku f sumar og kemur þar
fram fyrir hönd bæjarfélagsins og
samstarfs norrænna félaga. Kór-
inn á að sjmgja við opnunarhátf-
ðina en þar verða væntanlega
mættir forysta sveitarfélaganna f
Danmörku og ef tíl vill frá íslandi
en Danadrotting er heiðursgestur
þessarar samkomu.
- Fréttaritari.
Myndskreytt
Egils saga
BÓKAKLÚBBUR Almenna
bókafélagsins hefúr gefið út
Egils sögu Skalla-Grímssonar,
myndskreytta af Einari Hákon-
arsyni. Umsjónarmaður útgáf-
unnar er Eirikur Hreinn Finn-
bogason.
í fréttatilkynningu frá bóka-
klúbbnum segir „Kjami Egils sögu
er vfkingurinn, bóndinn og skáldið,
Egill Skalla-Grímsson. Verk eða
öllu heldur stórvirki þessa gamla
en þó síunga ásatrúarmanns eru
víst flestum íslendingum kunn, en
hinu ættum við þó að átta okkur
á að þessi karl er ef til vill ein
fyrsta verulega flókna persónan
sem lýst er í gjörvöllum heims-
bókmenntunum.
Á jrfirborðinu gífurleg harka,
kraftur og eigingimi, undir niðri
sjóðandi tilfinningar og þær eru
svo magnaðar að þær bera stund-
um þennan þróttmikla mann ofur-
liði. Úr slíkri samsetningu hefði
þó ekki orðið annað en fáránleiki
og ósigrar ef ekki hefði fylgt mik-
ið mannvit, orðsnilld og óvenjulegt
hugmjmdaflug.
Þessi útgáfa bókarinnar er
myndskreytt af Einari Hákonar-
sjmi. Mjmdir hans eru vissulega
merkilegt framlag til mjmdskreyt-
inga Islendingasagnanna. Þær
leggja ekki aðaláherslu á atburði
og afhafnir eins og algengast hef-
ur verið f slíkum myndum, heldur
skapgerð og tilfinningar - að því
er Egil snertir hið margbrotna og
flókna líf. Þyrfti engum að koma
á óvart þótt þessar myndir ættu
eftir að hafa sín áhrif á mynd-
skreytingu íslendingasagna yfir-
leitt."
Bókin er 248 bls. að stærð. Setn-
ingu, fílmuvinnu, prentun og bók-
band annaðist P*rentsmiðjand Oddi
hf.
NYR OG BETRI
MERCURY MEÐ DRIFIA ÖLLUM
FRAMDRIF: VERÐ FRA 1.199 ÞUS. KR.
ALDRIF: VERÐ FRÁ 1.359 ÞÚS. KR.
*
I '■‘■’vsWkV' “v
Hönnun og tækni sem er öðrum til
fyrirmyndar. Mercury Topaz er ekta
amerískur lúxusbíll, með sjálfskipt-
ingu, vökvastýri og framdrifi, eða
drifi á öllum hjólum.
I FRAMTIÐ VIÐ SKEIFUNA SIMAR: 689633 & 685100