Morgunblaðið - 25.02.1989, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1989
13
hafa látið glepjast til óhappaverks
hafi Sverrir verið of stórlyndur til
að snúa við, viðurkenna mistök sín
og bæta fyrir þau. Það hefði þó
gert hann mann að meiri. En hann
kaus heldur að ösla beint af augum
dýpra og dýpra út í ófæruna, þar
til hann sá þann kost vænstan að
vaða til næsta lands og bjarga sér
á þurrt í Landsbankanum, sem von-
andi reynist honum ekki flæðisker.
Þar hefir hann svo verið síðan að
vinda vosklæðin og í harla þungu
skapi.
Það hefir svo bitnað nokkuð á
okkur sumum, sem reynt höfum að
andæfa honum og viljað beijast
fyrir þeim málstað, sem samviska
okkar segir okkur, að sé réttur.
Við hirðum aldrei, þótt lagadoktor-
ar kalli okkur karakterheimska fyr-
ir vikið. Bankastjórinn hefir einnig
valið okkur nöfn, sem siðað fólk
tekur sér ógjarna í munn, til þess
að klekkja á okkur. Mikils þykir
honum nú við þurfa, er við skulum
engu fyrr týna en mannorðinu, ef
hann fengi ráðið og einhver tæki
mark á orðum hans. En orðbragðið
svertir hann sjálfan, ekki okkur.
I Tekkóslóvakíu voru menn barð-
ir um daginn fyrir að syngja þjóð-
sönginn á almannafæri. A íslandi
eru menn lagðir S einelti fyrir að
draga upp þjóðfánann, þegar þeir
fagna sigri góðs og réttláts mál-
staðar.
Við, sem höfum látið okkur
nokkru varða „fræðslustjóramálið"
af því að það snýst í okkar augum
framar öðru um sanngimi, jafnrétti
og mannhelgi, höfum sýnt Sverri
Hermannssyni og fylgjurum hans
harla mikið langlundargeð um sinn
og látið gjamm þeirra og hjáróma
spangól upp í tunglið sem vind um
eyru þjóta. En síendurtekin barsmíð
á mannorði fyrrverandi yfirmanns
okkar, Sturlu Kristjánssonar, er
farin að ganga fram af okkur. Öllu
lengur er ekki hægt „að misnota
‘þolinmæði vora".
Höfundur er skólastjóri Gagn-
fræðaskóla Akureyrar.
REBROFF
ásamt Balalaika hljómsveit
á Hótel íslandi 9. og 12. mars.
í Sjallanum, Akureyri, 10. og
11. mars.
And The Medicin Show
á Hótel íslandi 30. og 31.
mars og 1. apríl
Forsala aðgöngumiða og borðapantanir daglega
ccoADmy Sjfniíúut
77500
(96) 22970
/ FMtOUiKM-—
yni í unwnnn
EŒEjmr Sl
687111 77 ««■«
83715
Poi taplöntur
Erum að taka upp nýja
sendingu af spennandi
pottaplöntum.
Mikið úrval.
VORLAUKAR,
RÓSIR OG FRÆ
Dalíur, begóníur, gloxíníur,
animónur, amaryllis,
gladíólur, o.fl. o.fl.
Eigum einnig mikið úrval af
fræi og rósum.
Gróðurhúsinu v/Sigtún
Sími: 68 90 70