Morgunblaðið - 25.02.1989, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1989
11
— Það var árið 1934 þegar ég
var enn í 5. bekk Menntaskólans !
Reykjavík en í nóvember það ár kom
- út ljóðabók Tómasar, Fagra veröld.
Ég hreifst mjög af ljóðum Tómasar
og á menntaskólaárunum samdi ég
mörg lög við texta eftir Tómas og
fleiri rómantísk skáld. Mér finnst
liggja mér næst að semja í þessum
rómantíska stíl og þannig hef ég
notað texta eftir Jón Helgason, Öm
Amarson, Þorstein Erlingsson og
föður minn Þorstein Gíslason og er
nafn plötunnar, Ljósið loftin fyllir
einmitt úr kvæði eftir hann.
Það var Jón Þórarinsson sem út-
setti lög Gylfa og setti þau á tón-
leikaskrá Fóstbræðra en Jón hafði
þá lengi fylgst með lagasmíð Gylfa.
Lögin voru fyrst notuð á tónleikum
Fóstbræðra árið 1968 og oft síðan.
Fálkinn hefur áður gefið úr þtjár
hljómplötur með lögum Gylfa. Hin
fyrsta, Við sundin blá, kom út árið
1974 og söng þá Róbert Amfínnsson
lögin sem öll vora við texta Tómasar
Guðmundssonar. Róbert söng einnig
öll lögin á annarri plötunni, Lestin
branar, en á henni vora lög við texta
eftir ýmsa höfunda. Þriðja platan,
Ég leitaði blárra blóma, var gefin út
í tilefni af 70 ára aftnæli Tómasar
með textum hans en þá var það
Erlingur Vigfússon sem söng flest
lögin.
Gylfí lærði á píanó á unga aldri
hjá Bjama Þórðarsyni sem þá kenndi
í því húsi við Vonarstræti sem Al-
þingi fékk síðar til afnota. Hann
segir að það sé mjög misjafnt hversu
fljótur hann sé að semja lög.
Skapstilling o g sálarró
— Sem dæmi get ég nefnt lagið
við textann Ég Ieitaði blárra blóma.
Ég hafði komið seint heim eftir erf-
iða fjárlagaumræðu á Alþingi og
konan var náttúrlega farin að bíða
með matinn. Ég greip bókina Við
sundin blá og þegar ég opna hana
lendi ég á þessu ljóði, Eg leitaði
blárra blóma. Ég settist við hljóð-
færið og spilaði lagið strax og kall-
aði fram til konunnar minnar: Hér
er komið lag til þín! Þannig hefur
lagið verið síðan. Það tók mig hins
vegar mörg ár að semja lagið Þjóð-
vísu eftir Tómas Guðmundsson og
mér fannst það veralega vandasamt.
Eru ný lög í smíðum?
Flutningur Kammersveitar
Reykjavíkur á Des canyons aux etoi-
les eftir Messiaen er stórviðburður
og í heild var flutningurinn frábær-
lega vel útfærður. Píanóleikur Önnu
Guðnýjar Guðmundsdóttur var
glæsilegur en hlutur pfanósins nálg-
ast að vera jafn mikill og {píanókon-
sert. Homeinleikur Joseph Ognibene
í sjötta kaflanum, Óp stjamanna, var
frábærlega vel gerður og slagverks-
mennimir Eggert Pálsson og Maaten
van der Valk, er léku einleik á
klukkuspil og xylorimba stóðu sig
með prýði. Yfir þessu vakti eyra
Heimdallar er allt heyrir, snillingur-
inn Paul Zukofsky, er stjómaði þessu
magnaða verki af hógværð og trú-
leika við boðskap meistarans.
Hljómsveitin í heild stóð sig með
miklum ágætum en leiðtogi hennar
Rut Ingólfsdóttir, fiðluleikari, á þó
meiri þakkir skiidar en fyrir það eitt
að hafa staðið sína vakt á „1. púlti".
Hún hefur í 15 ár haldið uppi starfi
Kammersveitar Reykjavíkur með
sívaxandi „slagkrafti" og staðið fyrir
flutningi merkra nútímaverka, sem
trúlega væra enn óflutt hér á landi,
auk þess að hafa flutt mörg af snilld-
arverkum eldri meistara.
Um leið og Rut Ingólfsdóttur er
óskað til hamingju með verðskulduð
Menningarverðlaun Dagblaðsins, er
henni þakkað fyrir ómetanlegt starf,
bæði er varðar Kammersveit
Reykjavíkur og framlag hennar sem
listamanns. Tónskáldafélag íslands,
undir tónleikaheitinu Myrkir músík-
dagar, tók þátt í þessari tónveislu
með Kammersveitinni og má þar
kenna þann mikla áhuga sem tón-
skáld hafa á verkum Messiaen, enda
munu fá tónskáld hafa haft eins
mikil áhrif á þróun nútímatónlistar.
Með þessum tónleikum lauk Myrk-
um músíkdögum að sinni en Kamm-
ersveit Reykjavíkur á enn eftir eina
tónleika á þessu 15. starfsári og
verður þar eingöngu flutt frönsk tón-
list, m.a. frumfluttur nýr blásarak-
vintett eftir Martial Nardeau, flautu-
leikara.
— Nei, nú er ég alveg hættur að
semja og ég vil leggja áherslu á það
að þetta hefur alltaf verið tóm-
stundaiðja mín - ég lít ekki á mig
sem tónskáld því ég hef ekki neina
menntun á þessu sviði. Ég hef hins
vegar alltaf haft mikla ánægju af
þessari tómstundaiðju og hún hefur
í gegnum árin auðveldað mér að
halda skapstillingu og sálarró í
stjómmálabaráttunni. jt
(Ljósm. Sigurgeir Siguijónsson).
Þau flytja lög Gylfa á plötunni
Ljósið loftin fyllir, frá vinstri:
Garðar Cortes, Ólafur Vigoir
Albertsson, Sigríður EUa Magn-
úsdóttir, Kristinn Sigmundsson
og Ólöf Kolbrún Harðardóttir.
Njóttu þess að vera í góðu veðri á Spáni um páskana, liggja í sólbaði, spila tennis,
stunda íþróttir, borða veislumat á hverjum degi fyrir lágt verð, skreppa í jeppa-safarí og vera
hluti hins fjölbreytta mannlífs. Ferðamiðstöðin VERÖLD getur nú boðið nýjar
stúdío-íbúðir á Benidorm yfir páskana á frábæru verði. Levante Club er ný hótel-íbúðabygging
við hliðina á Europa Center sem býður uppá margskonar þjónustu fyrir Veraldarfarþega.
Það býður enginn betur um páskana í ár.
BENIDORM
Brottför 21. mars - 13 dagar. í leiguflugi. Europa Center, Torre Levante, Levante Club,
Verð frá kr. 32.600,-*. 2 í stúdíóíbúð frá 39.900.-
COSTADELSOL
Brottför 21. mars — 13 dagar. I beinu leiguflugi. Benal Beach, Santa Clara Timor Sol
Verð frá kr. 34-700,- *. 2 í stúdíóíbúð frá kr. 43.800,-
THAILAND
Brottför 20. mars - 18 dagar. Flug um Kaupmannahöfn.
Glæsileg lúxusferð með íslenskum fararstjóra.
Bangkok 5 dagar, Pattaya 10 dagar. Gist verður á hinu frábæra Dusit
Resort, lúxushóteli á Pattaya. Verð kr. 98.900,-
Btyndís Schram,
* Verð miðað við hjón með 2 böm innan 12 ára. fararstjóri í
Thailandsferð
Veraldar
F E R fl A Kl IIISIÖ <11N
AUSTURSTRÆTI17. SÍ Ml 91 -622200 Opið í dag fró kl. 10-14