Morgunblaðið - 25.02.1989, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 19?9
___________ls____; , .....— • ■ ■■ • ■■■ .-■ .tn.
Búnaðarþing
sett á mánudag
Morgunblaðið/RAX
Grýlukerti
Eftir veðrahaminn undan-
fiiríð hanga nú viða mynd-
arleg grýlukerti niður af
þakbrúnum húsa. Þessir
klakaströnglar geta veríð
augnayndi, en þeir geta
einnig slasað fólk hœttu-
lega, fiilli þeir niður. Hús-
eigendur eru skyldir til að
hreinsa kertin af þak-
brúnum, svo þau komi ekki
þeim eða öðrum i koll.
Þessar ungu stúlkur á
myndinni virðast ekki hafit
minnstu áhyggjur af
hættulegum grýlukertum,
heldur svala sér á þeim
milli leikja.
Skuldin lýsandi
dæmi um stöðuna
- segir Kristján Ragnarsson um skuld
útgerðar við Lífeyrissjóð sjómanna
„Mér kemur á óvart að skuld en hlutur sjómanna, sem útgerðin
útgerðarinnar við Lífeyrissjóð
sjómanna sé eins há og firam
hefúr komið, um 300 miHjónir
króna. Þetta er hins vegar í raun
aðeins lýsandi dæmi um rekstr-
arstöðu útgerðarinnar. Hún er í
dag rekin með miklu tapi,“ sagði
Kristján Ragnarsson, fram-
kvæmdastjórí LÍÚ, í samtali við
Morgunblaðið.
Guðmundur Hallvarðsson, form-
aður Sjómannafélags Reykjavíkur,
sagði frá þessu í samtali við Morg-
unblaðið í vikunni. Hjá honum kom
fram, að greiðslur á framlagi út-
gerðarinnar í gegn um greiðslumiðl-
un sjávarútvegsins skiluðu sér vel,
AJþingi:
Starfshlé
í viku
Ákveðið hefur verið að Al-
þingi starfi ekki með hefð-
bundnum hætti f næstu viku,
m.a. vegna þings Norður-
landaráðs, sem að þessu sinni
er haldið i Stokkhókni. Al-
þingi kemur aftur saman til
fimda mánudaginn 6. marz
nk.
Engir fundir verða á Alþingi
næstu vikuna. Ástæðan er þing
Norðurlandaráðs, sem að þessu
sinni er haldið f Stokkhólmi. Sjö
alþingismenn sitja þing Norður-
landaráðs, auk viðkomandi rá-
herra.
tæki af launum þeirra, skilaði sér
illa. Því mætti hugsa sér að færa
hvorutveggja inn í greiðslumiðlun-
ina.
Kristján Ragnarsson segist
andvígur þeirri hugmynd. Það megi
þó ekki skilja sem svo, að hann sé
á móti því að iðgjöldin skili sér.
Nógu mikið sé þegar tekið í gegn
um greiðslumiðlunina og hann vor-
kenni Lífeyrissjóðum ekkert að inn-
heimta þennan hluta iðgjaldanna.
Búnaðarþing hefrt næstkomandi
mánudag. Það verður sett klukk-
an tfu af Hirti E. Þórarinssyni
formanni Búnaðarfélags íslands
og Steingrfmur J. Sigfússon land-
búnaðarráðherra ávarpar þingið.
Meðal mála sem lögð verða fyrir
þingið er erindi um búreikningastofu
og bókhaldsþjónustu bænda, erindi
um takmarkanir á lausagöngu búfl-
ár, erindi um vanefndir ríkissjóðs á
lögbundnum greiðslum, samræmd
stjóm umhverfismála á íslandi og
frumvarp til laga um innflutning
dýra.
Dyrasímaviðgerðir:
NY SMURÞJONUSTA
FYRIR
CITROEN OG SAAB
AUKIN ÞJÓNUSTA Á BIFREIÐAVERKSTÆÐUM GLOBUS
Skoðað ef
kæra berst
Rannsóknarlögreglumönnum
þykir ekki þ'óst hvort lög séu brot-
in með þeirri viðgerðarþjónustu á
dyrasímum sera skýrt var frá f
Morgunblaðinu f gær. Þótt svo
værí þykir ekki ljóst hvort fara
berí með málið sem brot á iðnlög-
gjöf, sem þýðir að RannsóknadeUd
lögreglunnar f Reykjavfk fengi
það til meðferðar, eða hvort svik-
um eða blekkingum sé beitt þann-
ig að málið heyri undir RLR.
Friðrik Gunnarsson, aðstoðaiyfir-
lögregluþjónn f Reykjavfk, sagði að
hvorki hefðu kvartanir né kærur
borist þangað vegna þessa máls.
Hann sagði að ef um brot á iðnlög-
gjöf teldist vera að ræða, þar sem
skorti á réttindi mannanna til þess-
ara starfa, væri eðlilegast og venju-
legt að kæra bærist frá viðkomandi
fagfélagi.
Helgi Daníelsson jrfirlögreglu-
þjónn RLR kannaðist ekki við að
kærur vegna þessa máls hefðu bo-
rist. Hann sagðist telja að af frétt-
inni væri ekki ljóst að blekkingum
hefði verið beitt og ef kæra bærist
þyrfti að taka meðhöndlun hennar
til sérstakrar skoðunar.
Globus hefur nú opnað smurstöð fyrir Citroén
og Saab bifreiðar á verkstæðum sínum að
Lágmúla 5.
Smurstöðin er opin alla virka daga á
verkstæðistíma. Hægt er að hringja og panta
tíma eða líta við þegar leiðin liggur nálægt
Lágmúlanum og fá afgreiðslu á meðan beðið er.
Verðið hjá okkur er það sama og á
venjulegum smurstöðvum þrátt fyrir að allir
starfsmenn Globus verkstæðanna séu
sérþjálfaðir í viðhalds- og viðgerðarþjónustu
á Citroén og Saab bifreiðum.
Við minnum Citroén og Saab eigendur einnig
á fyrirbyggjandi kílómetraskoðanir og
örugga viðgerðar- og varahlutaþjónustu Globus.
GLOBUS VERKSTÆÐIN - FAGLEG
ÞJÓNUSTA FYRIR CITROÉN OG SAAB
YDDA F3d1.4/SlA