Morgunblaðið - 25.02.1989, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1989
3
Hugmyndir um iðnviðar-
framleiðslu á Suðurlandi
STARFSMENN Rannsókna-
stöðvar Skógræktar ríkisins á
Mógilsá hafa lagt til að hafin
verði stórfelld framleiðsla á iðn-
viði með ræktun á ösp. Járn-
blendiverksmiðjan á Grundar-
tanga notar mikið af innfluttu
kurli, sem starfsmenn rann-
sóknastöðvarinnar telja að
mögulegt og hagkvæmt sé að
framleiða hér á landi. Hugmynd-
in er að taka 5—6 þúsund hekt-
ara af framræstum mýrum á
Suðurlandi, aðallega í uppsveit-
um Árnessýslu, undir ræktunin.
Jón Gunnar Ottósson líffræðing-
ur segir að með þessu sé hægt að
sameina þær tvær meginstefnur
sem uppi hafi verið í skógrækt á
íslandi. Annars vegar nytjaskóg-
rækt með barrtijám að skandinaví-
skri fyrirmynd og hins vegar hug-
myndir um ræktun víðis á ökrum
til iðnviðarframleiðslu sem fyrir-
huguð var fyrir Kísilmálmvinnslu á
Reyðarfirði. Þessi möguleiki hefði
skapast þegar Jámblendiverksmiðj-
an fór að nota innflutt kurl í ofnana
í staðinn fyrir kol og koks með
góðum árangri.
Jón Gunnar sagði að kosturinn
við þessa framleiðslu væri að stofn-
kostnaður væri minni en í nytja-
skógrækt og fullar afurðir kæmu
eftir 35—40 ár í staðinn fyrir
80—90 ár, auk þess sem framleiðsl-
an skapaði verðmæti og vinnu á
ræktunartímabilinu með grisjun
skóganna.
Öspin hefur verið skoðuð í rann-
sóknastöðinni, aspir valdar til rækt-
unar og er nú verið að hraðrækta
úr þeim í samvinnu við garðyrkju-
mann á Flúðum. Valdar voru tvær
aspir og er verið að reyna að búa
til úr þeim 400 þúsund plöntur á
nokkrum mánuðum. Ef það tekst,
segir Jón Gunnar, að búið sé að
leysa vandamálið með að fá efnivið-
inn í iðnviðarframleiðsluna. Hann
segir að hægt sé að byija að planta
út 1990 og fá fyrstu afurðir um
aldamót. Hugmyndin er að planta
út tijám í 1.000 hektara á ári í 5
ár og þyrfti að ná samningum við
nokkra tugi bænda. Kostnaður er
áætlaður 50—60 milljónir kr. á ári.
Segja sig úr Leik-
stjórafélaginu
HELGI Skúlason og Helga Bach-
mann sögðu sig úr Leikstjórafé-
laginu í gær, en í fyrrakvöld
samþykkti félagsfundur Leik-
stjórafélagsins að senda Helga
áminningarbréf vegna ummæla
hans í Qölmiðlum um Ingu
Bjamason leikstjóra.
Helgi sagði í samtali við Morgun-
blaðið að honum hefði ekki borist
áminningarbréf það sem félags-
fundur Leiksljórafélagsins ákvað
að senda honum. „Mér hefur heldur
ekki borist fyrsta bréfíð með
svívirðingunum, heldur einungis
lesið þá kafla úr því sem birst hafa
í dagblöðum. Mér skilst að til þessa
félagsfundar hafí verið boðað
beinlfnis til þess að vísa mér úr
félaginu, en einhverra hluta vegna
virðist hafa skort þor til að leggja
þá tillögu fram. Við Helga fengum
lögmann okkar til að skrifa inn
úrsögn okkar úr þessu, og það sem
endanlega varð til þess að við
ákváðum það var hið langa nef sem
félagið hefur nú sent Helga Hálf-
danarsyni.
Okkur hjónunum hafa verið að
berast skeyti og hringingar frá
fjölda fólks innan leikarastéttarinn-
ar, sem segir að viðbrögð mín hafí
ekki verið deginum of fljót við því
ástandi sem leikarar hafa orðið að
búa við í sívaxandi mæli varðandi
Leikstjórafélagið, en margir með
vangetu hafa flotið innan þess í
lqolfar samtryggingar hinna
óhæfu," sagði Helgi Skúlason.
Peníngakassa
með 250 þús.
krónum stolið
PENINGAKASSA með um 250
þúsund krónum, aðallega f ávis-
nnnm, var stolið úr Tonmennta-
skólanum við Lindargötu á mið-
vikudag.
Þjófnaðurinn var tilkynntur RLR
um miðjan dag og er talið að hann
hafí verið framinn að degi til. Unn-
ið er að rannsókn málsins.
Síðdegis sama dag var brotist inn
í mannlausa íbúð við Sólvallagötu,
stolið þaðan tveimur myndavélum,
pennasetti og fleiri munum.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Sigurður Sigurðsson við vélsleðann sem er nánast ónýtur.
Mannlaus vélsleði á
fiillri ferð á hósvegg
Seifo8si.
MANNLAUS vélsleði frá Árvél-
um á Laugarvatni hentíst fyrír
nokkru á fullri ferð 8-900
metra eftir gangsetningu og
hafnaði á fbúðarhúsi. Enginn
óhöpp urðu á fólki en vélsleðinn
er nánast ónýtur.
Óhappið varð með þeim hætti
að Sigurður Sigurðsson eigandi
Árvéla sf. á Laugarvatni var að
gangsetja sleðann utan við verk-
stæði fyrirtækisins og fékk mann
til liðs við sig til að halda við
bensíngjöfína. Þegar sleðinn
hrökk í gang sat bensfngjöfín föst
og sleðinn þaut af stað. Maðurinn
sem hélt við bensíngjöfína áttaði
sig ekki á því að drepa á vélinni
með neyðarrofa um leið og hann
stökk frá.
Sleðinn hentist áfram í sveig
upp fyrir verkstæðið, sem er vest-
an vegarins að Laugarvatni,
gegnt Menntaskólanum, fór fram-
hjá öllum hindrunum, yfír veginn
og hafnaði á íbúðarhúsi. Minnstu
munaði að sleðinn færi inn um
glugga á húsinu. Gera má ráð
fyrir að sleðinn hafí náð um 70
kílómetra hraða á ferð sinni.
Sigurður Sigurðsson sagði að
það hefði verið líkt og sleðanum
væri stýrt svo listilega hefði hann
sveigt fram hjá öllum hindrunum.
Mesta mildi hefði verið að ekki
fór ver.
—Sig. Jóns.
T Ó N L E
í HÁSKÓLABÍÓI
laugardagiim
25. febrúar kl. 5.
Undirleikari Lára Rafnsdóttir.
íslensk, skandinavísk og
ítölsk lög og aríur.
K A R
Aögönguiniöasala í Háskólabíói