Morgunblaðið - 21.12.1986, Síða 41

Morgunblaðið - 21.12.1986, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1986 41 LISTAVERK Békmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir Jean M.Auel: Þjóð bjarnarins mikla Þýðing:Fríða Á. Sigurðardóttir Útg. Vaka Helgafell ÞJÓÐ BJARNARINS mikla, Ne- anderdalsmaðurinn er að líða undir lok, en í þessari viðamiklu og löngu skáldsögu er hann miðdepillinn. Þegar Neanderdalsmaðurinn er horfínn vegna andlegra takmarkana sinnar leysir frum-Kromagnonar hann af hólmi. Lítil stúlka af Hinum nýja kynþætti, líklega fímm ára gömul er tekin í fóstur af ætt hellis- bjamarins mikla. Hópurinn finnur telpuna, eftir náttúruhamzfarir, þar sem allir hennar nánustu hafa látið lífið. En stúlkan litla á ekki sjö daga sæla. Bilið milli hennar og hellis- bjarnarættarinnar er djúpt og virðist óbrúanlegt. Stúlkan - sem Ætt hell- isbjamarins skírir Ayla virðist til dæmis geta talað, að vísu glatar hún tali sínu, eftir að hafa búið um hríð hjá hópnum. En hún gerir eitt sem veldur þeim mikilli undrun. Hún hlær og grætur og á til svipbrigði, sem þekkjast ekki hjá Neanderdals- manninum. Neanderdalsmaðurinn gefur frá sér hljóð og tjáir sig nán- ast einvörðungu með táknum. Aukin heldur er heilastarfssemi Aylu ber- sýnilega önnur og hún ræður við ýmsa þætti mannlífsins sem hinir félagar hennar botna ekkert í. Það em andarnir og tótemin sem ráða lífi þeirra.Þegar hópurinn finn- ur Aylu hafði hann hrakizt úr helli sínum vegna reiði andanna og það er raunar Ayla, sem vísar þeim á nýjan íverustað. Þótt þeim standi að mörgu leyti ógn af þessari telpu, er hún með semingi tekin inn í sam- félagið, þar sem hún virðist hafa orðið viðskila við sitt fólk og á eng- an að. Töfrakonan Iza og bróðir hennar Creb, sem er andlegur leið- togj hópsins skynja meira en aðrir innan hópsins og átta sig á styrk Aylu og virða jafnvel þá eðlisþætti hennar, sem gerir hana ekki aðeins óskiljanlega þrátt fyrir að hún læri táknmálið, heldur sýnir hún í öllu hversu ólík hún er þeim. Hún er ekki bara öðmvísi í útliti.ljósari yfír- litum, naumast loðin, bláeygð, hefur beina fætur, hún gengur að mestu upprétt, hefur seinna á klæðum en konur hópsins, henni er fyrirmunað að skilja af hvetju hún þarf að sýna karlmönnunum þá auðsveipni sem af konunum er krafizt, í þeirra aug- um er hún ljót og það er lítil von til að hún muni finna maka sem vill taka hana að eldstæði sínu. Það versta er þó að, hún æfír sig á laun að veiða. Það er dauðasök og enn sannar hún lífsgetu sína og ótrúleg- an kraft tótemsins sem ættflokkur- inn hafði gefíð henni með því að pumr Eróbikkskór Mjúkt og þægilegt leður Litir: hvítt og svart Verð kr. 3.050.- lágir Verð kr. 3.428.- háir Klapparstíg 40. Á HORNIKLAPPARSTÍGS 06 GRETTISGÓTU S:117S3 JNGOLFS ÓSKARSSONAR Metsölublad á hverjum degil Jean M. Auel komast aftur lífs úr þeim þrenging- um, eftir að hafa verið rekin í útlegð um hríð, þegar upp komst að hún stundaði veiðar og jafnvel fremi karlmönnum hópsins. Ayla er sýknt og heilagt að vekja furðu hópsins sín. Hún hefur lært lækningar af Izu og hún virðist skilja ýmislegt sem hópnum er hul- ið, meira að segja vemdara hennar Crebs. Hún hefur tvívegis bjargað bömum frá dauða, að því er virðist á yfímáttúrlegan hátt. Það hlýtur að benda til að andar Hellisbjamar- ins líti á hana með velþóknun, þrátt fyrir að hún geti ekki virt alla siði ættarinnar. Eftir að hún kemst heim úr útlegðinni sýnir hópurinn henni þann ótrúlega sóma að heiðra hana með því að leyfa henni að vera við- stödd trúarathöfn karlmanna. Lýsingarnar á fólkinu sem kem- ur við sögu eru heillandi og skýrar. Stúlkan Ayla sem er að reyna að skilja samfélag sem hún hefur villzt inn í. Samfélag sem reynir þrátt fyrir allt að skilja hana. Elskulegi bæklaði trúarleiðtoginn Creb, töfra- læknirinn Iza, hinn hamslausi og ástríðufulli Broud, sem leggu:- fæð á Aylu, en dýrkar hana og gimist, þótt hann skilji ekki hvers vegna. Allt er þetta ógleymanlegt fólk og væri auðvitað full ástæða til að geta fleiri.Með eiginleiki, sem nútímamaðurinn ætti að kannast við marga. Ég þekki því miður ekki önnur verk Jean M. Auel, en ótrúleg rann- sóknarvinna hlýtur að liggja að baki þessarar bókar. Efni hennar verður ekki endursagt í örstuttri umsögn. Ég verð að láta mér nægja að benda sem flestum á að lesa þessa bók, sem er ekki aðeins samin af vand- virkni og listrænni hæfni, heldur einnig af miklu viti og þekkingu. I Þessar framandi persónur af ætt hellisbjamarins stíga upp af síðun- um og verða margar ógleymanlegar, yndislegar og átakanlegar. Lífsbar- 1 átta þeirra, trúarsiðir og hugsunar- háttur verður lesanda hugleikin. Þýðing Fríðu Á. Sigurðardóttur er efninu samboðin. Hún er listaverk. Ferskir ávextir: B.C. Rauð epli Delicious B.C. Rauð epli, extra stór Gul epli, Golden Delicious Græn epli, Granny Smith Jarðarber Ananas Avacado Kiwi Kókoshnetur Greip, hvítt Greip, rautt Vínber, blá Vínber, blá Lúxus Vínber, græn Perur Appelsínur Appelsínur, extra stórar Sítrónur Melónur, gular Hony Dew Döðlur, ísrael Konfekt döðlur Bananar Granat epli Plómur Ferskjur Nektarínur Lime Pomelos Papylas Clementínur, Marocco Clementínur, m/laufi Bökunar kartöflur Matar kartöflur Parísar kartöflur. Frosið grænmeti: Jarðarber Gulrætur Broccoli Blómkál Rósenkál Maisstönglar Maískorn Blandað grænmeti Gulrætur og baunir Grænar baunir Spínat Snittubaunir Blombergs Nýtt grænmeti: Tómatar Agúrkur lceberg salat Blaðasalat Steinselja Rósenkál Blómkál Maísstönglar Rauð paprika Gul paprika Græn paprika Perlulaukur Charlottlaukur Laukur Púrrur Sveppir Broccoli Hvftkál Rauðkál Rauðrófur Gulrætur Gulrófur Kínakál Radísur Súrkál Baunaspírur Selieríkál Sellerírót Snittubaunir Hvítlaukur Rauðlaukur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.