Morgunblaðið - 21.12.1986, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 21.12.1986, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1986 en, Svíann Albert Runbáck (tvær), Norðmanninn Egil Hovland, Þjóð- veijann Helmut Bomefeld og svo Jane La Rowe, bandaríska konu. Hafði kórinn þar með tekið til meðferðar um 20 kantötur alls og ennfremur 12—15 mótettur. Yfirleitt þóttu tónleikar kórsins takast vel, og eru umsagnir í blöð- um til marks um það. Að vísu var misbrestur á því að tónlistargagn- rýnendur sæktu tónleikana, því boðskort vom þeim sjaldnast send, enda var aðgangur ætíð ókeypis, aðeins mælst til einhvers framlags við kirkjudyr í lokin. Leitast var við að hafa m.a. á hverri efnisskrá lög, sem ekki höfðu verið sungin áður, stundum ný íslenzk lög. Þá voru oft sungnar nýjar sálmaþýð- ingar, og voru þar einkum að verki fyrstu prestar safnaðarins og und- irritaður. Ifyrir áratug gerðust kórfélagar allir ævifélgar í Hinu íslenska biblíufélagi, og gæti það verið öðr- um kirkjukórum gott til eftir- breytni. Nokkuð gerði kórinn af því að fara í aðrar kirkjur og syngja við messur eða á sérstökum kirkju- kvöldum. t.d. var þrisvar (1967, 1968, 1975) sungið á kirkjuviku í Lágafellskirkju um föstutímann, eitt sinn í Hafnarfjarðarkirkju og einnig í systurkirkjunni Hallgrims- kirkju í Saurbæ á Hvalfjarðar- strönd. Á þeim tónleikum, sem að fram- an er getið, naut kórinn oftast aðstoðar góðra tónlistarmanna. Auk þeirra, sem þegar voru nefnd- ir, er vert að taka fram nöfn söngvaranna Hönnu Bjamadóttur, Guðrúnar Tómasdóttur, Guðrúnar Þorsteinsdóttur, Margrétar Egg- ertsdóttur (sem var kórfélagi um árabil), Rutar Magnússon, Solveig- ar Björling, Garðars Cortes, Guðmundar Jónssonar og Kristins Hallssonar, organleikaranna Ama Arinbjamarsonar, Áma Bjöms- sonar, Guðmundar Gilssonar (sem gegndi líka söngstjórastarfi í ijar- veru Páls Halldórssonar um skeið), Gústafs Jóhannessonar, Hauks Guðlaugssonar, Jóns Isleifssonar, Kristins Ingvarssonar, Mána Sig- uijónssonar, Páls Kr. Pálssonar, Sigurðar ísólfssonar og dr. Victors Urbancic, og eru þá ónefndir margir strengleikarar og blásarar. Talsvert var um það á fyrri árum, að kórinn efndi til kynning- ar- og skemmtikvölda með dag- skráratriðum, s.s. margskonar söngatriðum og félagsvist. Stund- um hélt kórinn slík kvöld í sam- vinnu við aðra kirkjukóra, a.m.k. Kriststíkneski Einars Jóns- sonar myndhöggvara, gert fyrir 40 árum, er tístamað- urinn var kominn yfir sjötugt og átti 8 ár ótífuð (1874-1954). Gjöf til Hallgrímskirkju og stend- ur þar. Hæð 307 sm. Neskirkjukór og Langholtskirkju- kór. Kórinn hefur farið margar skemmtiferðir að sumarlagi, oft árlega framan af en engar síðasta áratuginn. Ferðast var um Borgar- §örð og Suðurland snemmsumars, en síðsumarferðir voru aðallega famar til beijatínslu og þá gjaman upp í Svínadal. Tvær ferðir verða hvað minnisstæðastar, sín með hvorum hætti, þegar bifreið kórs- ins valt í Skorradal vorið 1963 án þess þó að meiðsli yrðu veruleg á farþegum — og svo aftur 1974, þegar hlýtt var messu hjá sr. Eiríki þjóðgarðsverði Eiríkssyni á Þing- völlum, setin veizla í sumarbústað Páls Hallbjömssonar kirkjuvarðar við Álftavatn og síðan ekið austur í Fljótshlíð, þar sem Rangæingar héldu hátíðlega 11 alda búsetu á íslandi. Að loknu fyrsta starfsári var kórinn formlega stofnaður sem félag, 3. maí 1942. Sjö manns hafa gegnt þar formennsku: Har- aldur Sigurðsson 1942—43, Þórhallur Bjömsson 1944, Kristinn Kristjánsson (látinn) 1945—50, Sverrir Kjartansson 1951—58, Gunnar Jóhannesson 1959—67 og 1969—71, Halldór G. Stefánsson 1972—78 og undirritaður 1968 og 1979—86. Sá hinn síðasti hefur verið í stjóm frá öndverðu og lengst af gegnt ritarastörfum. Þor- björg Guðmundsdóttir hefur verið gjaldkeri korsins sl. 27 ár. Tveir stofnfélagar kórsins hafa verið í kómum til þessa, Haraldur Sigurðsson (sem var þó utan kórs í átta ár) og undirritaður. Nokkrir aðrir stofnfélagar em enn á lífi. í byijun var talsvert rót á fólkinu í kómum, svo að á fyrsta áratugn- um munu 40 manns hafa komið þar við sögu, en síðan hefur fólk verið öllu staðfastara, svo að láta mun nærri að alls hafi þar nú sinnt söngstörfum 100 manns, langan tíma eða skamman. Til marks um staðfestu fólks í kómum má nefna nokkur nöfn: Gunnar Jóhannesson 37 ár, Fríða Aradóttir (látin) 32 ár, Ámi Pálsson og Halldr G. Stef- ánsson 26 ár hvor, Maríus Sölva- son og Sína Bjamadóttir 25 ár hvort, Sigfríður Jónsdóttir 24 ár, Kjartan Kjartansson 22 ár, Inga Þórarinsdóttir og Þórhallur Bjömsson 20 ár hvort, Sigurlaug Siguijónsdóttir og Svala Jónsdóttir 15 ár hvor, Brynhildur Sigþórs- dóttir og Inga Markúsdóttir (látin) 14 ár hvor. Heiðursfélagar hafa verið kjöm- ir þrír: Páll Halldórsson söngstjóri, Fríða Aradóttir og Gunnar Jóhann- esson. Kórinn hefur einnig leitast við að heiðra félaga sína með dá- litlum gjöfum á merkisafmælum þeirra. Tilhlýðilegt er að geta um nán- ustu samstarfsmenn kórsins, presta og meðhjálpara. Prestar: Sr. Sigurbjöm Einarsson 1941—44, sr. Jakob Jónsson 1941—74, sr. Siguijón Ámason (látinn) 1945—67, sr. RagnarFjal- ar Lárusson 1968— , sr. Karl Siguijbömsson 1975— , sr. Láras Halldórsson þjónaði árlangt í fjar- vera sr. Jakobs. Meðhjálparar (kirkjuverðir): Ari Stefánsson (nær aldarfjórðung), Ólafur Guðmunds- son, Eðvarð Bjamason, Pall Hallbjörnsson, Kjartan Jónsson, Bjami Tómasson, Benedikt Jason- Hörður Áskelsson, organisti Antonio D. Corveiras arson og Guðrún Finnbjamardótt- ir. Kórinn naut söngstjómar og forystu Páls Halldórssonar til 1. mars 1978, er hann lét af störfum eftir 37 ára feril sem organisti Hallgrímskirkju. Var hann þá orð- inn 76 ára. Samtímis létu fimm kórfélagar staðar numið, svo að segja má að kórinn hafi ekki borið sitt barr síðan. Þessir félagar vora kvaddir í virðulegu samsæti á Hótel Sögu haustið 1978, og er það síðasti mannfagnaður kórsins. Við tók af Páli spænskur mað- ur, Antonio D. Corveiras, sem er lærður organleikari og hafði dvalið hérlendis um skeið og starfað sem tónlistarkennari. Starfsár hans við kirkjuna urðu liðlega íjögur tals- ins, en vorið 1982 tók við núver- andi organieikari og söngstjóri, Hörður Áskelsson frá Akureyri, þá nýkominn frá námi sem kantor í Tónlistarháskóla Rínarlanda í Dusseldorf. Hefur hann verið at- kvæðamikill í tónlistarstarfi kirkj- unnar þessi fáu ár, fyrst.og fremst með stofnun Mótettukórs Hall- grímskirkju, sem hann hefur nú þegar oft stjómað á tónleikum með loflegum árangri. Er þar kominn á fót kirkjukór mestmegnis skipað- ur ungu fólki og á því framtíðina fyrir sér, og leysir hann nú af hólmi hinn fyrrij sem orðinn er alltof fáliðaður. Ohætt er að full- yrða, að allir núlifandi félagar í kór Hallgrímskirkju frá fyrri tíð og síðari óska þess að söngstarf standi ætíð með blóma við hina tignarlegu kirkju, sem nú er risin og nývígð Drottni til vegsömunar. Fyrsta opinbera samsöng sinn í aðalkirkjunni hélt Mótettukórinn 23. f.m., þegar hann flutti sálu- messu Mozarts með fulltingi einsöngvara og_ hljómsveitar undir stjóm Harðar Áskelssonar. Og nú í miðri jólaföstu fluttu Pólýfónkór- inn og fylgdarlið hans óratóríuna „Messías" eftir Hándel undir stjóm Ingólfs Guðbrandssonar. Við þessa merku tónlistarviðburði hefur reyndin orðið sú, að hvelfingar Hallgrímskirkju skila lofgerðar- hljómunum í fögram enduróm, sem fylgir kirkjugestum áfram á lífsgöngunni. Sem eftirmála þessarar saman- tektar og í tilefni fæðingarhátíðar Frelsarans skal hér settur jóla- sálmur, sem undirritaður íslenzk- aði fyrir Kór Hallgrímskirkju á áram áður, þegar sungið var lag eftir finnska tónskáldið Armas Maasalo, þann hinn sama sem stjómaði kómum á finnsku tón- leikunum í Dómkirkjunni, sællar minningar. Höfundur sálmsins er kona: Helmi Auvinen. Hlýðum, lýðiri Helgitíðaklukkur sll Ofan ber frá æðri heim englasöngsins glaða hreim: „Priður foldu á“. Hlýðum, lýðiri Herrann býður dýrleg jól. Braga himins björtu ljós, blámstrar fegurst jarðar rós. Tendrast trúnni sól. Hlýðum, lýðir helgum tíðum sérhver jól. Guðs í húsin göngum inn; gefur okkur fögnuðinn Jesús, sólna sól. Greinarhöfundur, Baldur Pálma- son, hefur starfað i Kór Haligrí- mskirkju íReykjavík frá stofnun prestakailsins. PELSINN Kirkjuhvoli sími 20160. It'LEROY IAsomer Eigum til Leroy Somer rafala á lager eða með stuttum af- greiðslufresti frá Frakklandi. Ljósavélasamstæður fyrir land og skip. Varahluta- og viðgerðar þjónusta. NORÐURUÚShf. RAFVERKTAKAR Furuvöllum 13, 600 Akureyri, símar 96-25400 og 25401.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.