Morgunblaðið - 21.12.1986, Page 7

Morgunblaðið - 21.12.1986, Page 7
tf- MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1986 7 ÚTVARP/SJÓNVARP Stöð tvö: Tilsögn í matargerðarlist ■i Landsmenn hafa að 00 undanfornu fengið að kynnast matargerðar- list Ara Garðars Georgssonar, en hana hefur hann kynnt á Stöð tvö. Ari Garðar var um árabil matreiðslumeistari í Bandaríkjun- um og stýrði þar veitingastað nokkrum, en í yfirkokkstíð Ara Garðars hækkaði eldhúsið úr því að vera þriggja stjömu í að vera fimm stjömu eldhús. Geri aðrir betur. Ari Garðar hefur að undanf- ömu kynnt margskonar rétti, stóra og smáa, enda mun ekki af veita þegar jólin ganga í garð. I dag mun Ari Garðar sýna hvemig tilreiða á tvær glæsimáltí- ðir. Annars vegar er það Wald- orf-salad, hreindýrasteik og súkkulaðibúðingur, en hins vegar Ari Garðar í eldhúsi Stöðvar tvö. grænmetis-salad, piparsteik og mandarínuábætir. Ari Garðar verður aftur á dagskrá á morgun og þá mun hann vera með avocado, önd og jarðaber Ro- manov. Ras 2: Breytt dagskrá Dagskrá Rásar tvö er nú sem óðast að skiýðast jólabúningnum og verður hún nokkm lengri og viðameiri um hátíðamar en endra- nær. í dag verður til að mynda Morgunútvarp frá klukkan 9.00 til 12.00, í umsjá Þorgeirs Ást- valdssonar, þar sem hann kynnir jólalög úr ýmsum áttum og rab- bar við hlustendur úti á landi un jólaundirbúninginn og fleira. Há- degisútvarp verður í umsjón Gunnlaugs Sigfússonar og Krydd í tilveruna, þáttur með afmælis- kveðjum og léttri tónlist, hefst klukkan 13.00. Venjulega lýkur dagskrá Rás- arinnar kl. 18.00 á sunnudögum, en frám að áramótum verður nú einnig útvarpað á sunnudags- kvöldum. Frá klukkan 18.00 fram að kvöldfréttum verða leikin létt jólalög, en að sjöfréttum loknum kynna þau Inger Anne Aikman og hákon Sigurjónsson jólalög úr ýmsum áttum, t.a.m. úr heimi jazzins, rokksins og byggðastefn- unnar. Dagskrá Rásar tvö lýkur svo um miðnætti. Útgefandi: Dreifing: Smárakvartettinn Fálkinn hf. í Reykjavík. — kemur út úrval sönglaga Smárakvartettsins í Reykjavík — m.a. endurútgáfa af plötum, sem hafa verið ófáanlegar um 30 ára skeið. Mörg lög, sem ekki hafa komið út fyrr á hljómplötum, t.d. 7 laga pró- gram frá 1956, sem „fannst“ í segulbandasafni Ríkisútvarpsins. Þá syngur Smárakvartettinn 7 ný lög í tilefni þessarar afmælis- útgáfu — sem er: tvær hljómplötur í albúmi. Jólagjöfin til íslendinga hérlendis sem erlendis!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.