Morgunblaðið - 15.12.1977, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1977
31
IÞROTTAKABARETT I HOLLINNII KVOLD
ÞAÐ er langt síðan fðlki
hefur verið boðið uppá
jafnfjölbreytta íþrótta-
skemmtun eins og þá sem
verður í Laugardalshöll-
inni í kvöld. Þar verður
fléttað saman gamni og al-
vöru og hápunkturinn
verður leikur milli lands-
liðsins í handknattleik og
úrvalsliðs, sem íþrótta-
fréttamenn hafa valið. Það
eru Samtök íþróttafrétta-
manna, sem hafa skipulagt
hátíðina, en samtökin áttu
nvlega 20 ára afmæli. Ef-
laust muna ýmsir eftir
íþróttahátíð, sem sömu
samtök héldu eitt sinn í
gamla Hálogalands-
bragganum. Þá var uppselt
á svipstundu og urðu
hundruð manna frá að
hverfa, en þeir, sem voru
svo heppnir að komast inn
urðu svo sannarlega ekki
fyrir vonbirgðum. Forsala
hefst klukkan 18 í dag.
Dagskráin i kvöld er þannig, að
klukkan 19.55 kemur Ómar
Ragnarsson fram á gólfið og sýnir
nokkrar upphitunaræfingar.
Klukkan 20 hefst siðan fyrsti
leikurinn og munu íþróttafrétta-
menn leika gegn lyftingamönn-
um. Verður leikinn handknatt-
leikur í fyrri hálfleik og knatt-
spyrna í þeim seinni. Iþrótta-
fréttamenn hafa nokkur undan-
farin ár leikið gegn dómurum og
alltaf unnið og þykir þeim nú timi
til kominn að spreyta sig gegn
sterkari mönnum. Þessi leikur
stendur í hálftima.
Klukkan 20.30 hefst leikur, sem
marga fýsir vafalaust að sjá, en þá
Ieika Amerika og ísland í körfu-
knattleik, eða nánar tiltekið þá
leikur úrvalslið íslenzkra körfu-
knattleiksmanna gegn Banda-
ríkjamönnunum, sem þjálfa
nokkur íslenzku liðin og leika
með þeim.
Næsta atriði, Ýmsar íþróttir,
111. deild karla í handknattleik:
Markverðirnir
áttu beztan leik
Á LAUGARDAGINN voru leiknir
tveir leikir í III. deild karla í hand
knattleik í í þróttaskemmunni á
Akureyri léku Dalvík og UBK, og
með sigri þeirra síðarnefndu héldu
þeir áfram sigurgöngu sinni. í
íþróttahúsi Vestmannaeyja léku
heimafélögin Týr og Þór fjörugan og
jafnan leik, þar sem markverðirnir
„áttu daginn", að viðstöddum áhorf-
endafjölda, sem I. deildar-félög
mættu stundum vera stolt af. Sú
viðureign endaði með sigri Þórs.
f Dalvík — UBK 28:35 Lengi vel
varð það ekki séð af markatöflunni,
að þarna ættust við efsta og neðsta
liðið í deildinni, lakara liðið dró hitt
með sér, eins og stundum vill verða,
þegar skárra liðið vanmetur and-
stæðinginn. Vörn Blikanna var lengi
vel sofandi og opin og markvarslan
um leið næstum engin í sókn voru
Blikarnir hins vegar snöggir og skor-
uðu oftast fljótt, flýttu sér svo mikið
á þeim væng, að svo virtist sem þeir
ætluðu ekki að ná áttum i leiknum,
þeirri yfirvegun í heildarleik sinum,
sem er forsenda eðlilegs árangurs,
hver svo sem andstæðingurinn er.
Marktalan var jöfn i leikhléi, 15:15,
og fyrst i sinni hálfleik komust Dal-
víkingar í tveggja marka forystu.
Síðan jafnaðist leikurinn í 19:19, en
þá skoruðu Blikarnir 7 mörk í röð og
komust mest 10 mörk yfir. Marka-
tala, sem sýnir fleiri mörk en minút-
urnar, sem leikurinn stendur, lýsir
Fyrir þennan leik höfðu liðin sömu
stöðu í deildinni, en Týr nokkru betri
markahlutfall Um 500 manns komu
til þess að horfa á viðureignina — og
urðu ekki fyrir vonbirgðum
Framan af leiknum höfðu Týrarar
nokkurt frumkvæði, einkum og sér i
lagi vegna frábærrar markvörslu í leik-
hléi stóð 13:10 fyrir Tý og sigurvonir
voru töluverðar fyrir leikmenn Týs,
þegar hér var komið En Þórsarar tóku
mikinn fjörkipp i sinni hálfleik, sigldu
fram úr og sigruðu með tveggja marka
mun Þeir máttu þakka markverði sín-
um öðrum fremur fyrir það Þetta var
sem sagt dagur markvaðanna i Eyjum
Eyjaliðin eru nú mjög áþekk að getu
Þau hafa bæði sótt reynslu og leik-
menn til „meginlandsins” og notað
frábæra aðstöðu í hinu nýja íþróttahúsi
út í æsar
Þór hefur nú haft Hannes Leifsson
(úr Fram) sem þjálfara og lykilleikmann
síðan í fyrrahaust og Andrés Bridde
(einnig úr Fram) síðan i haust Með
þeim tveimur hefur myndast sterkur
kjarni ásamt með nokkrum ágætum
leikmönnum Þórs úr heimabyggðinni
Lið Þórs er til alls líklegt.
í haust fékk lið Týs Jón Hermanns-
son (úr Ármanni) sem þjálfara Nú fyrir
fáum vikum bættist Tý einnig Egill
Steinþórsson (einnig úr Ármanni), sem
lék í fyrra sem markvörður i unglinga-
landsliðinu. Lið Týs er annars skipað
all jöfnum leikmönnum og liðið er í
sókn í deildinni.
ekki góðum leik. Lið UBK leikur allgóðan sóknar- Staðan: UBK 6 5 1 0 165135 11
leik, oft frábæran, enda hefur það Þór — Ve 5 3 1 1 105 97 7
skorað 165 mörk I 6 leikjum eða ÍA 6 3 0 3 125:1 12 6
27.5 mörk i leik að jafnaði. Varnar- Týr — Ve 5 2 1 2 105:97 5
leikurinn er á hinn bóginn veika UMFN 5 2 1 2 90:91 5
hliðin, eins og hann mæti afgangi. UMFA 5 2 0 3 122:127 4
enda hefur liðið fengið á sig 135 ÍBK 3 1 0 2 67 78 2
mörk í þessum 6 leikjum, þrátt fyrir . Dalvik 5 0 0 5 95:124 0
að eiga mjög góða markverði, þótt
þeim hafi fatast nú. Með skipulegri
og fjölbreyttari varnarleik, gæti
þetta lið skapað sér góða framtið.
Lið Dalvíkur á greinilega undir
högg að sækja hvað varðar aðstöðu
og leikreynslu — eða sambærilega
þróun á við liðin syðra. Leikskipulag
liðsins er ekki markvisst og þrekið
bregst. í liðinu eru góðir einstakling-
ar og leikgleði. Á þessu tvennu flýtur
liðið öðru fremur. í fyrra sigraði það í
þriggja liða Norðurlandsriðli og
keppti úrsltialeik við sigurvegara í
Suðurlandsriðli, lið HK, um sæti i II.
deild, en tapaði með þriggja marka
mun. í sameinaðri III. deild hafa
Dalvíkingar ekki hlotið stig i 5 leikj-
um. Þeir hafa þó náð allgóðum leik-
koflum, sem fela í sér fyrirheit verði
ráðist að augljósum vanköntum.
Týr — Þór 20:20. Þessi fyrri inn-
byrðis leikur Vestmannaeyjaliðanna I
deildinni i ár. varð sannkallaður „leikur
ársins" i handknattleiknum þar úti
lítt þekktar, er á dagskrá klukkan
21.15 og kemur í ljós í kvöld hvað
þar er á ferðinni.
Klukkan 21.30 verður athyglis-
verður knattspyrnukappleikur á
dagskránni. Lið sem kallast
„Ömars all-star“, en í þvi liði eru
auk Omars Ragnarssonar þeir
Halli og Laddi og Gunngr Þórðar-
son, leikur gegn úrvalsliði Alþing-
is. I þingmannaliðinu eru tveir
fyrrverandi landsliðsmenn, þeir
Albert Guðmundsson og Ellert B.
Schram auk þeirra Karvels
Pálmasonar og Jóns Ármanns
Héðinssonar. Er ekki nokkur vafi
á því að þetta verður eftirminni-
legur leikur.
Rúsínan í pylsuendanum verð-
ur svo leikur milli landsliðsins og
liðs íþróttafréttamanna í hand-
knattleik en Janusz Cerwinski
mun að sjálfsögðu stjörna lands-
liðinu en Pétur. Bjarnason mun
stjórna liði ,,pressunnar“. Leikur
þessara liða hefst klukkan 22.
Landsliðið verður skipað þess-
um leikmönnum:
Gunnar Einarsson, Haukum,
Kristján Sigmundsson, Vikingi,
Geir Hallsteinsson, FH, Janus
Guðlaugsson, FH, Jón H. Karls-
son, Val, Þorbjörn Guðmundsson,
Val, Bjarni Guðmundsson, Val,
Björgvin Björgvinsson, Víkingi,
Árni Indriðason, Víkingi, Ólafur
Einarsson, Víkingi, Páll
Björgvinsson, Víkingi og Viggó
Sigurðsson, Víkingi.
Pressuliðið verður skipað eftir-
töldum leikmönnum:
Birgir Finnbogason, FH, Örn
Guðmundsson, KR, Þórarinn
Ragnarsson, FH, Jón Pétur Jóns^
son, Val, Steindór Gunnarsson,
Val, Stefán Gunnarsson, Val, Þor-
björn Jensson, Val, Gústaf
Björnsson, Fram, Þorbergur
Aðalsteinsson, Vikingi, Konráð
Jónsson, Þrótti. Ásgeir Elíasson,
IR, Þorgeir Haraldsson, Haukum
og Birgir Jóhannesson, Fram.
Kynnir kvöldsins verður Bald-
vin Jónsson, sem að öðrum mönn-
um ólöstuðum hefur mesta
reynslu í slíku og mun hann leika
létt lög af „Gömlu góðu lummun-
um“ inn á milli atriða (af plötum
auðvitað).
Næstu leikir:
í vikunni: UMFN — ÍBK i Íþrótta
húsi Njarðvikur (átti að vera 1 112)
Sunnudagur 18.12 ÍBK — ÍA í
íþróttahúsi Njarðvikur kl 14 55
UMFN —~ UMFA i íþróttahúsi Njarð-
vikur kl 1 & 1 0 _. .. ... ,
Samkvæmt mótskrá verða þetta síð-
ustu leikir i deildinni á þessu ári herb
Þetta er úrvalssveit Alþingis, Albert, Karvel, Jón Ármann og Ellert.
Þessir menn eru til alls líklegir eins og alþjóð veit og ólíklegt er að
Ómar og menn hans ríði feitum hésti frá viðureigninni við þingmenn-
ina í kvöld.
SIGURIAFMÆLISGJÚF
HAFSTEINN Óskarsson hinn ört
vaxandi hlaupari í ÍR sigraði
nokkuð óvænt í Stjörnuhlaupi FH
sem fram fór á sunnudaginn.
Skaut hann mörgum beztu
hlaupurum landsins ref fyrir rass
með þessum sigri sínum, sem var
hans fyrsti f meiri háttar keppni
við heiztu hlaupara landsins. Haf-
steinn var vel að sigri sínum
kominn, hann tók forystu er
hlaupið var tæplega hálfnað og
var að mestu í fararbroddi upp
frá því. Þá gat Hafsteinn vart
kosið sér betri afmælisgjöf því
hann var einmitt 18 ára daginn
sem hlaupið fór fram.
Að þessu sinni fór hlaupið fram
á sömu leið og hið fyrsta. Keppt
var við betri aðstæður en.þá og
bætti Hafsteinn verulega sigur-
tímann úr fyrsta hlaupinu, eða
um 8 sekúndur. Hlaupið hófu
flestir beztu hlaupararnir sem
hérlendis eru, og komu tveir
Akureyringar sérstaklega til
hlaupsins. Fyrstu menn urðu
annars:
mín.
Hafsteinn Öskarsson IR 17:26,7
Sigurður P. Sigmundss.
FH 17:41,2
Agúst Þorsteinss., UMSB 17:48,9
Hörkukeppni var í kvenna-
flokki Stjörnuhlaupsins. Þar
sigraði Thelma Björnsdóttir
UMSK að vísu nokkuð örugglega,
en keppnin um annað sætið var
mjög hörð og réðst ekki fyrr en á
marklínunni. Fyrstu fjórar urðu
annars:
Thelma Björnsd., UMSK
Guðrún Árnad. FH
Ragnhildur Pájsd., KR
Anna Haraldsd., FH
MlN.
4:48,3
4:57,2
4:57,9
4:58,2
Kristinn með 300 leiki
HINN góðkunni körfuknattleiksmaður úr KR. Kristinn Stefánsson, náði
þeim árangri í leik KR og Fram á sunnudaginn, að leika sinn 300. leik
fyrir félag sitt. Kristinn er búinn að vera í eldlinunni frá þvt 1963 og á
þessum tima hefur hann leikið fjölda landsleikja og úrvalsleikja, auk
þess sem hann hefur unnið mikið og gott starf á sviði unglingamála
fyrir KKÍ ásamt Gunnari Gunnarssyni. Á myndinni hér að ofan sést
Kristinn taka við blómsveig úr hendi Margrétar Halldórsdóttur
ÁG/GG
SKAGINN SLO
STJÖRNUNA
ÚR BIKARNUM
HANDKNATTLEIKSMENN
Akraness, sem leika í þriðju
deild, gerðu sér lítið fyrir um
síðustu helgi og unnu Stjörnuna
úr Garðabæ með 21 marki gegn
19. í Bikarkeppni HSl. Leiddi tA
í leikhléi 13:9 og var yfir lengst af
leiktímanum.
Var mikil barátta i leiknum og á
köflum um hálfgerð slagsmál að
ræða. Framfarir Skagamanna í
handknattleiknum eru umtals-
verðar, enltv+ et.þó ekki að neita
að greinilegt var að 2. deildarlíð
Stjörnunnar vanmat andstæðing-
inn að þessu sinni.
Markahæstir i liði IA voru
Haukur Sigurðsson (6), Þórður
Björgvinsson (5) og Sveinbjörn
Hákonarsson (3). Af leikmönnum
Stjörnunnar skoruðu þeir Hörður
Hilmarsson (7) og Magnús
Andrésson (5) flest mörk.