Morgunblaðið - 15.12.1977, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1977
t
SIGRÍÐUR ÞORLÁKSDÓTTIR
fyrrverandi tannsmiður
andaðist á Heilsuverndarstöðinni 1 3 þ.m
Aðstandendur.
t M inningarathöfn um dóttur mína
MAGNEU WENNSTRÖM,
f. Ottesen,
fer fram í Þingvallakirkju laugardaginn 1 7 desember kl 2
F h ættingja og vina, Snæbjörn Guðmundsson, Syðribrú, Grimsnesi.
t
Bálför eiginmanns mms,
ÁGÚSTAR SIGUROSSONAR.
_ cand. mag.
fer fram frá Fossvogskirkju. föstudaginn 16 desember kl 1 6 30
Pálína Jónsdóttir.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
SIGURÐUR ÁRNASON,
símaverkstjóri,
Álfheimum 54,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1 5 desember kl.
1 0 30 Blóm og kransar afbeðnir, þeim sem vildu minnast hins látna er
vinsamlegast bent á Hjartavernd
Júlíana Sigurjónsdóttir og börn.
t
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför eiginmanns
míns, föður, tengdaföður og afa
REYNIS HALLDÓRSSONAR,
Skjaldartröð Hellnum,
Sérstakar þakkir til skipshafnar MB Skarðsvik Hellissandi Fyrir hönd
aðstandenda,
Jóna Jónsdóttir.
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og kærleika við andlát og útför
eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður og afa,
GUÐBJARNA ÞORVALDSSONAR
Aðalstræti 32 ísafirði.
Elin Árnadóttir
Halldór Guðbjarnason Steinunn Brynjólfsdóttir
Eydis Guðbjarnadóttir Trausti Þórðarson
Ásthildur Ólafsdóttir og barnabörn.
t
Hjartans þakkir fyrir vinarhug sem sýndur var við veikindi og fráfall
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa
HELGA ÁGÚSTSSONAR
frá Birtingaholti.
Ágúst H elgason, Helga I. Helgadóttir,
Oddur Helgason, Ragnheiður Guðjónsdóttir,
Móeiður Helgadóttir, Garðar Jónsson,
börn og barnabörn.
t
Móðir okkar
AUÐBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Vestri-S kógtjörn,
Bessastaðahreppi,
lézt 1 4 desember á St Jósepsspitalanum Hafnarfirði
Börnin.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu við andlát og jarðarför móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐLEIFAR ÓLAFSDÓTTUR
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki og vistfólki á Hrafnistu fyrir
frábæra umönnun Þóra Jónsdóttir
Kristin Jónsdóttir,
Helga Jónsdóttir.
Páll Jónsson,
S igurður Jónsson,
Jón Bjornsson,
Bragi Ólafsson,
Helgi Eysteinsson,
Þórður Magnússon,
Maria Ásgeirsdóttir,
Rakel Viggósrióttir,
Hrefna Indriðadóttir,
og barnabörn
Jónína Björnsdótt-
ir — Minningarorð
Fædd 25. júlí 1897
Dáin 9. desember 1977
„Vinir berast burt
með tímans straumi."
Þessi orð þjóðskáldsins komu
mér í hug, er ég heyrði um fráfall
Jónínu Björnsdóttur, konu síra
Benjamíns Kristjánssonar, fyrr-
um prests og prófasts að Lauga-
landi i Eyjafirði. Lézt hún á Borg-
arspítalanum 9. þessa mánaðar
eftir þunga vanheilsu síðasta
misserið. Fer fram í dag kl. 15.
minningarathöfn um hana í Dóm-
kirkjunni, en jarðrteskar leifar
hennar verða síðan fluttar norður
og jarðsettar að Munkaþverá í
Eyjafirði. Þessarar mætu konu,
og náinnar vinkonu okkar hjóna
síðasta áratuginn, er mér bæði
ljúft og skylt að minnast með
nokkrum orðum.
Jónína Björnsdóttir var fædd
að Karlsstöðum i Fljótum 25. júlí
1897 og átti þvi rúmlega 80 ár að
baki að leiðarlokum. Foreldrar
hennar voru þau merku hjón,
Björn Jónsson, bóndi og skip-
stjóri að Karlsstöðum, og kona
hans, Guðriður Hjaltadóttir. Bæði
voru þau hjónin kvistir af sterk-
um stofnum sprottin, sem einkum
áttu rætur í Fljótum og annars
staðar í Skagafirði. Að Karlsstöð-
um ólst Jónína upp í stórum og
glæsilegum systkinahóp, og lærði
ung að beita hug og hönd bæði úti
og inni. En eins og gengur og
gerist hurfu systkinin uppkomin
smám saman að heiman, og þá
einkum til Reykjavíkur. Jónína
var snemma námfús og var tvo
vetur við nám á Hvítárbakkaskóla
í Borgarfirði. Þá var hún um
skeið verzlunarmær á Siglufirði,
og síðan nokkur ár við sama starf
í Reykjavík. En 26. júní 1928
urðu straumhvörf í lífi hennar,
sem mörkuðu henni störfin og
sporin ævina á enda. Þá gekk hún
að eiga ungan guðfræðing, Benja-
mín Kristjánsson frá Tjörnum í
Eyjafirði. Lá leið þeirra fyrst til
Kanada, þar sem þau störfuðu
sem presthjón Sambandssafnað-
arins í Winnipeg árin 1928 —
1932. Sama ár hurfu þau aftur
heim á kunnar slóðir, því „römm
er sú taug, sem rekka dregur föð-
urtúna til.“ Eftir að síra Benja-
mín hafði verið kjörinn prestur í
Grundarþingum, varð þar vett-
vangur lífs þeirra og starfs sam-
fellt í 36 ár. Sátu þau lengst af að
skólasetrinu Syðra-Laugalandi,
og nutu almennrar vinsældar og
virðingar sinna fjölmörgu sóknar-
barna. Var heimili þeirra þar
löngum miðstöð margvíslegra
starfa og athafna, og jafnframt
griðastaður innlendum mönnum
og erlendum. Frábær gestrisni og
hlýtt viðmót þeirra hjóna leiddi
svo margan þangað heim, og létti
um leið öðrum byrðar á raunar-
stundum. Og í öllum þessum um-
svifum, bæði prestsstörfunum og
öðrum störfum, stóð frú Jónína
við hlið manns síns af mikilli
ástúð, kostgæfni og frábærri at-
orkusemi. Ætla ég að Eyfirðingar
muni lengi geyma í minni hennar
hlut sem prestkonu og húsmóður.
Jónína Björnsdóttir var ein af
þeim systrum, sem ekki er auð-
velt að gleyma. Hún var kona vel
á sig komin, bæði til líkama og
sálar, og sómdi sér vel, hvar sem
hún kom eða fór. Fróðleiksþrá
hennar var rík, minni gott, og
frásagnargáfa áberandi létt og
skýr. Allt viðmót hennar var ein-
lægt og hlýtt, og gestrisni með
afbrigðum. Ég held að hún hafi
næstum því litið á það sem laga-
brot, ef komið var á heimili henn-
ar án þess að þiggja góðgerðir. Þá
var og hjarta hennar viðkvæmt
svo að naumast mátti hún aumt
sjá án þess að hrærast. Annarra
raunir voru hennar raunir, hvar
sem hugur hennar eða hönd náði
til. Og hún sparaði aldrei sporin
eða handtökin, jafnvel síst þegar
aðrir áttu í hlut. Fyrir því varð öll
þjónusta hennar við lifið svo
ávaxtarík fyrr og siðar.
Framhald á bls. 18
t
ÁSBJÖRN ÓLAFSSON,
stórkaupmaður,
Borgartúni 33.
andaðist i Landspítalanum að kvöldi 1 3 desember
Dagbjört Eyjólfsdóttir Unnur Gréta Ásbjarnardóttir
Ólafia Ásbjarnardóttir Björn Guðmundsson
t
Móðir mín og móðursystir okkar,
ÁSTA BJÖRNSDÓTTIR LEVI
andaðist á Landspítalanum, þriðjudaginn 13 desember Fyrir hönd
aðstandenda
Geir R. Andersen.
Steinunn og Björg Berndsen.
t
Móðirokkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma
ÞÓRUNN VILHJÁLMSDÓTTIR.
Hverfisgötu 101 A,
lést þríðjudaginn 13 desember frá Öldrunardeild Landspitalans,
Hátúni 1 OB
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 20 des kl
10 30 Guðrún Simonsen,
Jenný Jakobsdóttir. Guðmundur Agnarsson,
Klara Simonsen. Jóhann Tryggvason,
Ottó Simonsen. Emelia Jónsdóttir,
barnabörn barnabarnabörn. og barnabarnabarnabörn.
t
Innilegt þakklæti færum við öllum þeim mörgu sem vottuðu okkur
samúð og vináttu við andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður,
tengdamóður og ömmu
guðríðar kristbjargar sigurðardóttur
Brekkubraut 27 Akranesi.
S igurdór Jóhannsson
Sigrún Sigurdórsdóttir
Bragi Þór Sigurdórsson
Jóhann Sigurdórsson
Hlynur Sigurdórsson
tengdabörn og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
föður okkar, sonar, stjúpsonar og bróður,
sverris briem
húsasmiðs
Efstahjalla 7.
Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarfólki á deild 4A
Borgarspítalanum, fyrir velvild og góða aðhlynningu
Þórarinn Valur
Hrefna Sigríður
Gróa Guðmundsdóttir
Páll Briem
Jónina Briem
og systkini hins látna.
t
Þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
fósturföður og bróður
GUÐMUNDAR ÓLA ÞORLÁKSSONAR
Hvanneyrarbraut 59
Siglufirði.
Sigurjóna Lúthersdóttir,
Víðir Óli Guðmundsson,
Guðmundur Gauti Guðmundsson,
Elsa Guðmundsdóttir, Þorsteinn Ragnarsson,
Guðný Guðmundsdóttir,
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir,
Lovísa G uðbrandsdóttir,
Ásgerður Guðbrandsdóttir,
Hermína Guðbrandsdóttir og systkini hins látna.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 81960