Morgunblaðið - 15.12.1977, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1977
29
Fundur Óðins:
Yerðbólgan leiðir til
samdráttar í framkvæmdum
Málfundafélagið Óðinn og Verka-
lýðsráð Sjálfstæðisflokksins héldu
almennan fund i Valhöll. Háaleitis-
braut 1, mánudaginn 5. des. sl.
Pétur Hannesson, formaður Óðins
setti fundinn kl. 20.30. Síðan tók
Birgir ísl. Gunnarsson borgarstjóri til
máls. Borgarstjóri ræddi verklegar
framkvæmdir í Reykjavík og atvinnu-
mál Reykvíkinga og þróun þeirra mála
á undanförnum árum Þá ræddi borg-
arstjóri þá miklu verðbólgu, sem verið
hefur að undanförnu og þá erfiðleika
sem hún veldur Nú væri svo komið að
ekki væri hægt að mæta þessari verð-
bólgu með auknum álögum; þvi væri
ekki hægt að mæta með öðrum hætti
en með stórfelldum niðurskurði á opin-
berum framkvæmdum Þar verður
m.a. að fresta framkvæmdum við
gatnagerð svo eitthvað sé nefnt
Ræddi borgarstjóri nánar þessi mál
Að lokinni framsöguræðu borgarstjóra
þakkaði Pétur Hannesson, formaður
Óðins, borgarstjóra fyrir og óskaði eftir
fyrirspurnum frá fundarmönnum til
borgarstjóra Fundurinn var nokkuð
fjölmennur og bárust margar fyrir-
spurnir.
Pétur Kr Pétursson spurði borgar-
stjóra, hvaða áhrif kjarasamningarnir
hefðu á stöðu borgarsjóðs.
Halldór Þ Briem spurði um fjárhags-
lega stöðu félagsmálastofnunarinnar í
Reykjavík
Þorsteinn Kristjánsson spurði, hver
ástæðan væri fyrir lélegri endingu ný-
bygginga borgarinnar og átti þar við
sundlaugarnar í Reykjavík, Slökkvi-
stöðina, sem er um 10—12 ára
gömul og virðist núna þurfa mikillar
endurnýjunar og gagngerða viðgerða
við
Þorvaldur Mawby spurði um skipu-
lagsmál. starfsemi Þróunarstofnunar
Reykjavíkurborgar, teiknistofu borgar-
innar og kostnað við rekstur þessara
stofnana Ennfremur spurði Þorvaldur
Mawby um kostnað vegna keyptrar
skipulagsvinnu.
Ólafur Hannesson spurði hvers
vegna bæjarsíminn hefði verið lagður
undir stjórn landssímans.
Ingimundur Gestsson ræddi um að
embættismenn réðu meira en hinir
kjörnu fulltrúar borgarinnar Einnig
ræddi Ingimundur um hina nýgerðu
kjarasamninga milli starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar og borgarstjórnar-
innar.
Kristján Ottósson spurði um rekstur
Sumargjafar og hvað borgin ætti marg-
ar íbúðir
Gunnar Bachmann spurði borgar-
stjóra hvort borgarstjórn Reykjavíkur
hefði ekki leitað til alþingismanna
Reykjavíkur um samstarf
Ólafur Hannesson spurði hvort borg-
in fengi sinn hluta af vegagjaldi og
hvers vegna væri verið að auka há-
Glæsilegt úrval
af ensku silfurpletti:
Smjörkúpur, bakkar,
blómaskálar o.fl.
Spánskar postulinsstytt
ur ný gerð.
ítalskir skrautbakkar og
glasabakkar.
Tékkneskur kristall.
Kerti
í þúsundatali
JÓLAKORT
JÓLAPAPPÍR.
BLÓMABÚÐIN
MiRA
markshraða fyrir bifreiðar i Reykjavík
Pétur Hannesson spurði um úthlut-
un lóða
Pétur Kr Pétursson óskaði eftir lok-
un Smiðjuvegar við Reykjanesbraut,
þá hefði Reykjavik sinn hlut og Kópa-
vogur sinn.
Halldór Briem spurði um bilastæði í
miðbænum
Eiríkur Kristinsson spurði um nætur-
sölu fyrirkomulag Eirikur talaði um
niðurskurð opinberra framkvæmda
Þorvaldur Mawby spurði hvort ekki
væri hægt að fá hverfasamtökin til
meira samstarf við borgarstjórn, t d
við að setja upp sparkvelli, mörk og
fleira Leggja niður Þróunarstofnun
borgarinnar og athuga hvort ekki sé
hægt að byggja ódýrara á vegum hins
opinbera þegar borgin byggir fyrir sig
eins og t d búningsklefa við Sundlaug
vesturbæjar, sem urðu óhóflega dýrir
og margt fleira.
Þorvaldur Þorvaldsson sagði að
draga þyrfti úr framkvæmdum, lýsti
ánægju með unglingavinnu, gerði
fyrirspurn um gatnagerð, sagði að ekki
væri hugað nægilega mikið að viðgerð-
um gatna Þorvaldur spurði um fram-
kvæmdir við Reykjanesbraut Hann
sagði að laga þyrfti Bæjarháls og Bú-
staðaveg Flýta þyrfti ýmsum smá lag-
færingum gatna Umferðarmálanefnd
verður að vinna af meiri áhuga að sínu
starfi í Reykjavik
Þorsteinn Kristjánsson spurði hver
réði rekstri sundlaugarinnar i Laugar-
dal.
Þorvaldur Mawby spurði um fyrir-
komulag til iþróttaæfinga i sundlaug-
unum.
Halldór Briem spurði um hvort
byggingameistarar sem létu bjóða út
verk og sýndu hagkvæmni i byggingar-
fyrirkomulagi og byggðu ódýrt væru
ekki látnir ganga fyrir við úthlutun lóða
á vegum borgarinnar
Þórólfur Þorleifsson spurði um fram-
kvæmd á brú yfir Kringlumýrarbraut i
sambandi við Bústaðaveg
Þorvaldur Þorvaldsson spurði um
frágang á Sætúni, tengingu á Sætúni
við Kleppsveg. Það vantaði lýsingu
meðfram Sætúninu Eins væri þessi
tenging bráðnauðsynleg til þess að
gatan gæti komist í almennilega notk-
un.
Borgarstjóri svaraði öllum fyrir-
spurnunum mjög itarlega
Þá bárust ekki fleiri fyrirspurnir og
Pétur Hannesson formaður Óðins
þakkaði fundarmönnum góða fundar-
sókn þvi eins og áður segir var fundur-
inn nokkuð fjölmennur og fyrirspurnir
góðar og svaraði borgarstjóri þeim öll-
um mjög skilmerkiga og var almenn
ánægja með árangur fundarins Þess
skal og getið að stjórn Óðms bauð
fundarmönnum upp á molakaffi og
gosdrykki og var almenn ánægja með
það fyrirkomulag Á fundinum fór fram
fjársöfnun á vegum fjármálanefndar
Óðins i styrktarsjóð félagsins sem veitt
hefur verið úr fyrir hver jól og söfnuð-
ust á fundinum um 170 þús kr i
sjóðinn. Ritari fundarins var Kristján
Guðbjartsson Fundi var slitið um kl
hálftólf
SUÐURVERI
StigahlíS 45—47 Simi 82430
Gjafavörur
Njótið þess að gefa góöa gjöf-fallega gjöf frá Rosenthal
Gjafavörur frá Rosenthal
hafa hlotið
heimsviðurkenningu fyrir
afbragðshönnun og
framúrskarandi gæði!
Þess vegna hafa Rosenthal
vörurnar tvenns konar gildi
— jafnt fyrir þann sem
gefur og þann sem þiggur.
Njótið þess að gefa góða
gjöf — fallega gjöf, sem
segir meir en orð fá lýst.