Morgunblaðið - 15.12.1977, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1977
27
Þrettán þættir um þjóðkunna
kennimenn og leiðtoga ís-
lenzkrar kirkju, skráðir af
börnum þeirra:
FAÐIR MINN
PRESTURINN
Já, af hverju heldur þú að plata DUMBÓ og STEINA
sé ein mest selda og vinsælasta plata, sem komið
hefur út á íslandi í ár?
Nú auðvitað af því að plata DUMBÓ og STEINA er
framar öllu bráðskemmtileg og hress og það sem
þjóðin hefur fyrst og fremst þarfnast á þessu herrans
ári, er upplyfting. Ef þú varst ekki búinn að tryggja þér
eintak, er eins gott að hafa hraðan á áður en fjórða
upplag, (sem reyndar var að koma) selst upp.
skftinor
Dreifing um Karnabæ simi 28155
vandamálin svo aö allir mættu vel
við una.
Þriðjudagurinn 6. desember
var strangur dagur. Að loknu
dagsverki bað hann einn af starfs-
mönnum sínum að aka sér heim,
hann treysti sér ekki til þess sjálf-
ur. Þá hefur mikið verið dregið af
vini mínum, Sigurði Árnasyni.
Skömmu eftir heimkomuna eln-
aði honum sóttin. Hann var flutt-
ur í sjúkrahús — þar andaðist
hann kl. 8 um kvöldið. Sigurður
stóð meðan stætt var. —
Sigurður Arnason var fæddur á
Seyðisfirði 22. febrúar 1911. For-
eldrar hans voru Arni Eyjólfsson
og Þorgerður Brynjólfsdóttir,
bæði ættuð úr Mýrdalnum. Faðir
hans fór til Englands, réðist þar á
togara. Arni var skipstjóri á ensk-
um togara, sem skotinn var niður
í fyrri heimsstyrjöldinni og fórst
með skipi sínu.
Sigurður ólst upp að Oskoti í
Mosfellssveit til 11 ára aldurs. Þá
fluttist hann til Reykjavíkur á
heimili hinna kunnu sæmdar-
hjóna Guðnýjar og Christian
Björnæs.
Þorgerður, móðir Sigurðar,
hafði ráðist sem matráðskona til
simavinnuflokks, sem C. Björnæs
stjórnaði. Sigurður kynntist því
snemma lífi símamanna í tjald-
búðum.
Hjónin Guðný og Chr. Björnæs
reyndust honum sem bestu for-
eldrar. Sigurður mat þau mikils
og var einkar kært með honum og
börnum þeirra hjóna, sem litu á
hann sem bróður sinn.
Chr. Björnæs var annálaður
fyrir góða verkstjórn, aga og
reglusemi i hvívetna. Sigurður
lærði mikið af þeim öðlings-
manni.
Sigurður byrjaði ungur að
starfa hjá Pósti og síma. Fyrst
símasendill, bifreiðastjóri þegar
aldur leyfði, þá simaverkstjóri
um fjölda ára.
Sigurður Árnason var mikill að
vallarsýn, hár og herðabreiður
Afhveríu?
Minning:
Sigurður Á rnason
símaverkstjóri
Sigurður hafði ekki gengið heill
til skógar að undanförnu, en
skyldan kallaði og þá brást hann
ekki. Trúmennska, hógværð og
einbeitni i starfi var hans aðall.
Hann mætti til starfa að
morgni, þriðjudagsins 6. des. s.l.,
stjórnaði liði sínu, svaraði fyrir-
spurnum um framkvæmdir, hann
reyndi að leysa vanda hinna
mörgu símnotenda, sém leituðu
til hans, nokkrir óþolinmóðir eins ,
og gengur, Sigurður reyndi með 1
sinni Ijúfmennsku að afgreiða
enda hið mesta hraustmenni.
Reyndi oft mikið á vaskleika hans
við flutning á símaefni, staurum
og vír, yfir óbrúaðar ár og veg-
leysur. Ekki er ósennilegt að of-
reynsla í svaðilförum á yngri ár-
um hafi orðið honum örlagarík —
sérhlífni var óþekkt hugtak hjá
Sigurði Árnasyni.
Persónulega og fyrir hönd
starfsfólks simstöðvarinnar í
Reykjavik þakka ég honum
trausta og góða samvinnu. Með
honum er genginn góður maður.
Sigurður kvæntist árið 1952 eft-
irlifandi konu sinni, Júlíönu Sig-
urjónsdóttur, ættaðri frá Hnífs-
dal. Þau eignuðust tvö börn, Sig-
urjón Braga og Þorgerói, sem
bæði eru uppkomin.
Ég votta ástvinum Sigurðar
dýpstu samúð mína.
Hafsteinn Þorsteinsson.
Faðir minn — Presturinn er bðk um mikla mannlega
reisn, um óvenjulegt andlegt atgervi, um menn mikilla
og háleitra hugsjóna.
Árni Jónsson eftir Gunnar
Árnason, Sigtryggur Guðlaugs-
son eftir Hlyn Sigtryggsson,
Þórarinn Þórarinsson eftir
Þórarin Þórarinsson, Jón
Finnsson eftir Jakob Jónsson,
Haraldur Níelsson eftir Jónas
Haralz, Stefán Baldvin
Kristjánsson eftir Sigríði Thor-
iacius, Friðrik Hallgrímsson
eftir Hallgrím Fr. Hallgríms-
son, Sigurbjörn Á. Gíslason eft-
ir Láru Sigurbjörnsdóttur, Bjarni Jónsson eftir Ágúst
Bjarnason, Ásmundur Guðmundsson eftir Tryggva Ás-
mundsson, Sigurgeir Sigurðsson eftir Pétur Sigurgeirs-
son, Sveinn Víkingur Grímsson eftir Gunnar Sveinsson
og Sigurður Stefánsson eftir Ágúst Sigurðsson.
ATHYGLI skal vakin á þvf, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
daga. Greinar mega ekki
vera f sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
línubili.