Morgunblaðið - 15.12.1977, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1977
21
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýslngar — smáauglýsingar
18 ára stúlka
óskar eftir vinnu allan eða
hálfan daginn. Sími 1 7949.
Svalheimamenn
eftir séra Jón Thorarensen er
mikil sölubók, þjóðleg,
fræðandi og skemmtileg.
_ \
Arin og skrautsteina-
hleðslur
einnig flisaiagnir. Uppl. i s.
84736.
IOOF 1 1 = 159121 58'/2 =
Jólav.
IOOF 5 = 1 591 21 58'/2 -
E.K. Jólaf
1.0. G.T.
St. Andvari nr. 265
Jólafundur í kvöld kl. 8.30.
Kaffi eftir fund. Allir vel-
komnir.
Æt.
Nýtt lif
Síðasta samkoman kl. 20.30
að Hamraborg 1 1, sem Alex
Scofield, talar á og biður fyrir
sjúkum. Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn
í kvöld kl. 20.30. almenn
samkoma.
Kaffiveitingar verða eftir
fundinn. Allir karlmenn vel-
komnir.
Filadelfia
Almenn æskulýðssamkoma i
kvöld kl. 20.30. Samkomu-
stjóri Svanur Magnússon.
Meðal ræðumanna Gestur
Sigurbjörnsson.
Verið velkomin.
A.D. K.F.U.M.
Síðasti fundur fyrir jól verður
i kvöld, fimmtudag, kl.
20.30 að Amtmannsstíg 2B.
,,Er sál min Drottins frelsi
fann". Fjórir vitnisburðir.
Grensáskirkja
Almenn samkoma verður i
safnaðarheimilinu i kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Séra Halldór S. Gröndal
Munið sérverzlunina
með ódýran fatnað.
Verðlistinn Laugarnesvegi
82, S. 31330.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Nauðungaruppboð. Miðvikudaginn 20. janúar 1978 kl. 14
verður bifreiðin M-2219 International árg. 1968, eign Steins
S. Jóhannessonar, Sjávargötu 26, Njarðvík boðin upp og seld
ef viðunandi tilboð fæst til lúkningar ógreiddum þinggjöldum
og innheimtukostnaði samtals að fjárhæð kr. 390.534 kr. auk
uppboðskostnaðar. Bifreiðin M-2219 er í bílskúr á bænum
Svinadal í Skaftártunguhreppi skemmd eftir árekstur. Eftir
Kröfu Finns Torfa Stefánssonar hdl. selst bifreiðin i þvi ástandi
sem hún er.
Uppboðshaldarinn i Vestur-Skaftafellssýslu
13.12 ‘77 Einar Oddsson, sýslumaður.
Loftpressur —
Traktorsgröfur
Tökum að okkur múrbrot, fleygun og
sprengingar. Einnig til leigu ný ,,Case-
grafa", og loftvatnsdælur.
Gerum föst tilboð.
Véla/eiga Símonar Símonarsonar,
Kríuhólum 6, s/mi 74422.
Hundahreinsun í Kópa-
vogi
Hundahreinsun fer fram föstudaginn 16.
des. nk. kl. 16.00 — 18.00 í húsakynn-
um Áhaldahúss Kópavogskaupstaðar,
Kársnesbraut 68
Eigendum hunda ber að koma með þá til
hreinsunar — sbr. lög nr. 7 frá 3. febr
1 959.
Athygli skal vakin á að vegna inngjafar
bandormalyfs er nauðsynlegt að hundur-
inn svelti i sólarhring fyrir inngjöf.
He/lbrigðiseft/rlit
Kópa vogskaups taðar.
Hestamannafélagið Fákur
Hagbeitarlönd okkar verða smöluð n.k.
sunnudag 18. desember.
Hestar verða í rétt sem hér segir:
Saltvík kl. 10 — 1 1 .
Arnarholti kl. 12.30 —13.
Dalsmynni kl. 14.30 —15.30.
Hagbeit og flutningur greiðist á staðnum.
Síðasta smölun fyrir jól.
Graskögglar til sölu fyrir félagsmenn á
mjög hagkvæmu verði meðan birgðir
endast.
Tamning og þjálfunarstöð verður rekin i
vetur og byrjar 3. janúar. Nokkur pláss
laus.
Hestamannafélagið Fákur.
Bridgefélag Borgar-
ness
Nú stendur yfir tvimennings-
keppni með þátttöku 16 para.
Lokið er 5 kvöldum af fimm og
verður siðsta spilakvöldið i
kvöld. Mjög hörð barátta er um
efsta sætið milli þriggja efstu
paranna.
Staðan fyrir siðustu umferð-
ina:
Guðjón Stefánsson —
Jón Þ. Björnsson 1009
Baldur Bjarnason —
JónEinarsson 1008
Guðjón Pálsson —
Jón Guðmundsson 1003
Hólmsteinn Arason —
Unnsteinn Arason 924
Eyjólfur Magnússon —
Jenni Ölafsson 923
Guðjón Karlsson —
Magnús Þórðarson 854
Meðalárangur 840.
Eins og áður sagði verður sið-
asta umferðin spiluð í kvöld.
Brldge
umsjón ARNÓR
RAGNARSSON
Spilað er i Hótel Borgarnesi og
hefst keppnin klukkan 20.
Næsta keppni félgsins verður
aðalsveitakeppnin og hefst hún
eftir áramót.
Bridgedeild
Rangæingafélagsins
Nýlega iauk fimm kvölda tvi-
menningskeppni hjá félaginu
og urðu tvö pör efst og jöfn.
Sigríður Ottósdóttir og Ingólfur
Böðvarsson með 620 stig og
Anton Guðjónsson og Stefán
Gunnarsson með sömu tölu.
Hluti þeir hæstu skor í síðustu
umferðinni 143 stig.
Röð næstu para:
Margrét Helgadóttir —
Hersveinn Þorsteinsson 609
Pétur Einarsson —
Sigurleifur Guðjónsson 585
Guðriður Sæmundsdóttir —
Þorsteinn Jóhannesson 572
Sveitakeppnin hefst 4. janúar
i Domus Medica og verðu.r spil-
að hálfsmánaðarlega eins og áð-
ur. Þær sveitir sem ekki hafa
tilkynnt þátttöku og ætla að
vera með hafi samband við
Ingólf Böðvarsson i sima 71352
eða Sæmund Jónsson i sima
74095 sem allra fyrst.
Tafl- og bridge-
klúbburinn
I kvöld verður spilaður eins
kvölds jólatvfmenningur og
verður b.vrjað að spila klukkan
19.45. Að keppni lokinni verður
árangur reiknaður út og verð-
laun afhent.
Allir bridgespilarar eru
hvattir til aðfjölmenna.
— Afmæli
Sigríður
Framhald af bls. 19
60 ára hjúskaparafmæli og fá von-
andi að njóta þess dags heilbrigð
og glöð í hópi niðja og tengda-
barna og minnast þá liðinna ára,
þar sem skin og skúrir skiptust
svo eftirminnilega á.
Ekki var liðið fyrsta hjúskapar-
ár þeirra, þegar holskefla harms
og 'dauða reið yfir. Fyrri hluta
aprílmánaðar 1919 hafði snjóað
mikið i Siglufirði og Dölum. Aust-
anstórhríð hafði geisað stanzlaust
í viku frá 5.—12. apríl með þeim
afleiðingum, að mannskæð snjó-
flóð féllu austan Siglufjarðar og
víðar í nágrenninu. Þá var búið
þar á fimm jörðum og auk þess
var staðsett þar, í Staðarhóls-
landi, síldarverksmiðja — Evang-
erverksmiðjan. Snjóflóðið sópaði
burtu og gereyðilagði hús, verk-
smiðjur og búslóðir fólksins og 11
manns létust í þessu hörmulega
snjóflóði. Snjóflóð féll á þessum
tima einnig í Héðinsfirði og Siglu-
nesi, en að þeim verður ei vikið
hér, heldur því, er snjóflóðið
mikla féll í Engidal. Var það
sennilega sama daginn og snjó-
flóðið féll austan Siglufjarðar. í
þeim ósköpum létu sjö manns líf-
ið. Móðir Halls Aribaldssonar og
þeirra systkina, svo og amma
þeirra, bróðir og tvær systur,
mágur og unglingsstúlka á Engi-
dal. Þetta var skelfileg helfregn,
sem barst Sigríði Jónsdóttur 21
árs gamalli húsmóður. Maður
hennar og bræður tveir voru á
hákarlaskipi þegar þetta gerðist.
Þeir lentu i hrakningum og komu
fyrst til Siglufjarðar eftir að
skyldulið þeirra hafði verið
greftrað. Um slysið höfðu þeir
ekkert heyrt. I þessum snjóflóð-
um, sem getið er hér um, fórust
átján manns,—Fjórtán af fólki
þessu var jarðsett í Siglufirði 25.
apríl 1919. Því er hér á þetta
minnst, að á þessum dimmu dög-
um sýndi það sig, hvað i brúðinni
frá Máná bjó. Hugrökk og stillt án
manns síns og mága sér við hlið,
tók hún ákvarðanir sem þurfti að
taka í slíkum tilfellum og það er
enn í minnum haft nyrðra á hve
eftirtektarverðan hátt og sérstæð-
an hþn gerði það. Sigríður Jóns-
dóttir reyndist á þessu sorgarári
mikil stoð manni sinum og
tengdafólki á erfiðum tímum.
Arin liðu. Hallur Garibaldsson
vinnur myrkranna á milli til sjós
og lands og sér heimili sínu vel
farborða. Vinnubrögð hans og
verklagni muna þeir, er séð hafa,
og enn vinnur hann fullan vinnu-
dag hálfníræður.
Vinnudagur Sigríðar var alla
daga langur, því auk þess heimil-
isfólks sem nefnt hefur verið
eignuðust þau átta börn. tveir
drengir létust ungir, en upp kom-
ust: Pétur, stýrimaður hjá Aust-
ur-Asiufélaginu, búsettur í Ala-
borg, kvæntur danskri konu, Ing-
er; Margrét, hannyrðakennari i
Reykjavík, ógift; Magdalena,
simavarðstjóri hjá Pósti og síma,
Siglufirði, gift Guðlaugi Karls-
syni fulltrúa hjá L.I; Jón, fyrrv.
bankastjóri, kvæntur Kristínu
Ölafsdóttur, búsett í Reykjavík;
Helgi, byggingam. kvæntur Eddu
Indriðadóttur búsett á Akureyri;
Guðjón, starfsm. Húsnæðismála-
stofnunar ríkisins, kvæntur
Emmy Þórarinsdóttur, búsett i
Reykjavik.
Heimili Halls og Sigríðar var
ætið mannmargt og gestrisni var
þar mikil, haft var eftir einni
frænkunni, sem var að kveðja og
þakka fyrir sig, að loknu orlofi i
Hallshúsi ,,þetta er bara hótel hér
— opið hús öllum“.
Þrátt fyrir langan vinnudag
þeirra hjóna sem hér er minnst,
hafa þau jafnan átt sér hugðar-
efni og sinntu þeim.
Þau voru kirkjurækin og sóttu
velflestar guðsþjónustur, a.m.R. á
vetrum. Hallur var stéttvís og
vann mikið fyrir stéttarfélag sitt.
Sigríður vann að líknarmálum í
kvenfélaginu Von, þar bar hún
sérstaklega fyrir brjóst aldraða
fólkið og hag þess. Sigríður fór
ekki að neinu óðslega en kom
samt sínu fram. hún var og er
prúð kona. Hún var kjörin heið-
ursfélagi Kvenfélagsins Vonar nú
er það minntist 60 ára afmælis
sins nýlega.
Sigríður Jónsdóttir var jafnan
heimilisvinur í minum foreldra-
húsum og ég man hana allt frá
minum fyrstu bernskudögum.
Hún var þá ljúf og elskuleg og
mikið tryggðatröll eins og æ síð-
an.
Sigriður og Haliur hafa ekki
ætið siglt sléttan sjó, þvert á móti
hafa þau hlotið ágjafir á stundum
eins og fyrr hefur verið að vikið,
en skaphöfn þeirra, góð heilsa,
heilbrigt lífsviðhorf og siðast en
ekki sist takmarkalaust trúar-
traust, hafa fleytt þeim fyrir brim
og boða svo að vissulega er orð á
gerandi.
Sigriði vinkonu sendum við
hjónin innilegustu árnaðaróskir í
tilefni dagsins og þökkum gömul
kynni, sem gleymast ei.
Jón Kjartansson.
— Afmæli
Guðmundur
Framhald af bls. 23
manntalsþingin drógust oft á
langinn, því margt var að ræða
um og Guðmundur hafði tekið eft-
ir ýmsu á dagferð, sinni og var
fróðlegt á að hlýða.
Guðmundur var lengi póstur og
eftir að ég varð póstafgreiðslu-
maður i Hólminum varð oftar að
leið lá saman þvi auðvitað þurfti
Guðmundur bæði áð skila og taka
póst og allt var það af sömu trú-
mennsku og áður og er gaman að
láta hugann reika til þessara
daga.
Nú heldur Guðmundur upp á
merkisafmæli sitt í dag. Gaman
hefði verið að geta verið þar
nærri og enn glaðst með glöðum.
En það er pósturinn, jólapóstur-
inn, sem heldur mér til baka og
auðvitað verð ég að sjá um að
hann komist til skila, þetta skilur
minn ágæti Vinur sem svo lengi
gætti þess að hver fengi sitt bréf
úr töksunni. hans. Því sendi ég
þessar línur í blaðið okkar uni
leið og ég þakka þeim hjónum allt
gott á liðnum árum og bið þeim
sannrar blessunar komandi tíma.
Arni Helgason