Morgunblaðið - 15.12.1977, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1977
Korchnoi hyggst berjast
til þrautar í 9. skákinni
eftir MARGEIR
PÉTURSSON
VIKTOR Korchnoi á enn möguleika
á að auka forskot sitt í einvígi sínu
við Boris Spassky í Belgrad í Júgó-
slavíu. Hann hafði hvítt í níundu
skák einvígisins sem tefld var i gær
og fékk snemma rýmra tafl Hann
jók síðan stöðugt við yfirburði sína
en valdi þann kost í 29 leik að
skipta upp á drottningum og einfald-
aðist taflið töluvert við það
Korchnoi stóð þó samt sem áður
örlítið betur og hafnaði tvívegis jafn-
teflisboðum Spasskys Er skákin fór
í bið eftir 41 leik hafði Korchnoi
einhverja vinningsmöguleika
Spassky tefldi mjög varfærnislega
ígær og lét sér greinilega nægja
jafntefli. Að vísu valdi hann óvenju-
lega byrjun með svörtu, en tókst þó
ekki að slá ryki í augu Korchnois
fremur en fyrri daginn Korchnoi var
heldur ekki á því að taka neina
áhættu og lét sér nægja, eins og
áður segir, lítilfjörlega yfirburði í
endatafli í stað þess að reyna að
auka á flækjurnar.
Afstaða þess síðarnefnda er mjög
vel skiljanleg Hann hefur öruggt
forskot og sér enga ástæðu til þess
að hætta þvi
Hinn hrikalegi ósigur Spasskys í
biðskák áttundu skákarinnar hefur
greinilega dregið mjög úr honum
kjark og hann þarf greinilega tíma til
að átta sig á hlutunum áður en hann
reynir að tefla til vinnings að nýju
íslendingar eru ekki þeir einu utan
Júgóslaviu sem hafa mikinn áhuga
á framvindu einvígisins. Það sýnir
bezt að viðstaddir einvígið eru 250
erlendir blaðamenn, frá öllum
heimshornum, t d eru nokkrir frá
Argentínu, en þar koma leikir á
fjögurra leikja fresti í útvarpi jafnóð-
um og skákirnar eru tefldar Níunda
skákin tefldist þannig:
Hvítt: Viktor Korchnoi
Svart: BorisSpassky
Vængtafl
1 c4 — e6 2. Rc3 — f5
(Með þessum leik reynir Spassky
að beina skákinni yfir á farveg
Hollensku varnarinnar, sem var
mikið tefld fyrir nokkrum áratugum,
en hefur nú að mestu fallið í skugg-
ann af indversku byrjununum. Skák-
ir með Hollenskri vörn eru oft
skemmtilegar, þar leggur svartur
lítið upp úr liðsskipan sinni á
drotnningarvæng og miðborði en
reynir að ná sókn á kóngsvæng)
3. Rf3 — Rf6 4. b3
(Korchnoi þekkist ekki boðið, en
fer sér hægt. Eftir 4 d4 kemur upp
hefðbundin hollensk vörn, en þar
sem hvítur leikur þeim leik aldrei i
skákinni verður að nefna byrjunina
vængtafl)
b6 5. g3 — Bb7 6 Bg2 — Bb4
(Sú áætlun svarts að skipta upp á
þessum biskup fyrir riddarann á c3
verður að teljast allóvenjuleg
Spassky hefur sennilega óttast að
hvítur mundi í miðtafli reyna að
leika d3 og síðan e4 með sókn á
miðborði)
7. Bb2 — 0 0 8. 0 0 — Bxc3
(Eftir 8 d6 9 d3 — Rbd7
10 Dd2 getur hvítur drepið aftur
með drottningu á c3, sem er honum
í hag)
9. Bxc3 — d6 10 d3 — De8
(Svartur fylgir hinni hefðbundnu
hollensku áætlun að koma
drottningunni yfir á kóngsvæng og
leika síðan e.t.v. g7 — g5)
11. e3
(Korchnoi hefur greinilega óttast
11. . . Dh5 meira en lítið, því að
annars hefði hann einfaldlega leikið
11. b4 með sömu áætlun og i
skákinni Ef svartur leikur nú 11
Dh5 getur hvítur leikið 1 2 Rd4,
sem þvingar fram drottningakaup,
því að 12. . . Rg4 gengur ekki
vegna 1 3. h3)
Rbd7 12. Rbd2 — De7 13. a4 —
Hac8
(Spassky ákveður að bíða átekta
og sjá hvað setur 13. e5 kom
þó sterklega til greina)
14. a5 — Ba8 15. axb6 — axb6
16. Ha7 — e5 17. Da4
(Hvítur hefur yfirráð yfir einu
opnu línunni á borðinu og verður
því að teljast standa betur, þar sem
að svartur hefur lítið mótspil á
kóngsvæng)
Bxf3 18. Bxf3 — e4 19. dxe4 —
fxe4 20. Bg2 — De6 21. Dc6 —
Rb8 22. Db5 — Rbd7
(Þessi leikur jafngildir friðartil-
boði, því að ef hvítur léki nú 23
Dc6 væri sama staðan komin upp
aftur)
23. Hfa1 — h6 24. Bxf6
(Það vekur athygli hversu baráttu-
laust Korchnoi lætur biskupaparið af
hendi. Hann hefur sennilega ekki
fundið neina leið til þess að komast
áfram í stöðunni og því ákveðið að
einfalda taflið)
Rxf6 25. Dc6 — Hf7 26. c5
(Þessi leikur leiðir einungis til ein-
földunar Vænlegra til árangurs
virðist 26. Ha8! sem heldur svört-
um í talsverðri klemmu)
bxc5 27. bxc5 — Df5!
(Snjall leikur Veikleiki hvits á f2
gæti nú reynst honum skeinuhættur
ef hann gætir ekki að sér Mun
lakara var 27 Dc4 vegna 28
Bf1! og ef 28 Dxc5? þá 29
Dxc5 — dxc5 30 Bc4)
28. cxd6 — cxd6
29. Dxc8 +
(29 Dxd6?? leiddi til taps eftir
Hxa7 30 Hxa7 — Hc1 + 31 Bf1
— Db5 og 29 Ha8 var varhugavert
vegna 29 Hxa8 30 Hxa8+ —
Kh7 og nú gengur 31 Dxd6 ekki af
sömu ástæðu og áður)
Dxc8 30. Ha8 — Hf8
(Mjög svipað framhald verður
uppi á teningnum eftir 30 Dxa8
31 Hxa8 + — Hf8 32 Ha6 —
Hd8 33 Bh3)
31. Hxc8 — Hxc8 32. Bh3 —
He8 (Hér bauð Spassky jafntefli)
33. Ha6 — d5 34. Be6+ — Kf8
35. g4 — g5 36. h3 — Ke7 37.
Kf1 — Hb8 38. Bf5 — Hb1 + 39.
Kg2 — Hb7 40. Kg3 — Hc7 41.
h4 — d4!?
(Þessi leikur kom mjög á óvart, en
Spassky hefur talið sig knúinn til
þess að losa um sig 42 exd4 strax
er auðvitað vafasamt vegna 42
Hc3+ og síðan 44 gxh4, en
hvernig Spassky ætlar að sýna fram
á réttmæti peðsfórnarinnar eftir 42
hxg5 — hxg5 43 exd4 fáum við
væntanlega að sjá á morgun)
Hér fór skákin í bið Korchnoi tók
sér góðan tíma á biðleikinn, hugsaði
sig um í hálftíma Biðskákin verður
telfd í dag
VEÐUR
víða um heim
stig
Amsterdam 8 rigning
Aþena 8 heiðskírt
Berlin 7 skýjað
Brússel 12 rigning
Chicago 4 skýjað
Frankfurt 8 þoka
Genf 6 skýjað
Helsinki 4 skýjað
Kairó 17 skýjað
Kaupmannah. 7 heiðskírt
Lissabon 18 heiðskírt
London 11 bjart
Los Angeles 25 bjart
Madrid 14 heiðskírt
Miami 25 rigning
Moskva -5- 9 bjart
New York 3 rigning
Ósló 3 bjart
Paris 11 skýjað
Róm 10 skýjað
Stokkhólmur 4 skýjað
Tel Aviv 17 skýjað
Toronto 3 rigning
Vancouver 9 skýjað
Vin 2 skýjað
Peter Menten:
Sovézk loftbrú
til Eþíópíu
Washington 14. desember. AP.
SKVRT var frá því í Washington í
dag, að Sovétmenn hefðu hafið
flutning hergagna til Eþíópíu
með flugvélum, og hefðu fengið
29 fórust
Evansville. Indiana,
1 4 desember AP
FLUGVÉL frá bandariska leiguflug-
félaginu „National Jet Service"
fórst í dag skömmu eftir flugtak frá
flugvellinum i Evansville og með
henni 29 manns.
Með flugvélinni var körfuknatt-
leikslið háskólans i EvansviHe, þjálf-
arar þess og aðrir framámenn og
stjórnarmenn flugfélagsins.
Talið er líklegt að annar hreyfill
flugvélarinnar, sem var af gerðinni
DC 3, hafi bilað og flugvélin ætlað
að snúa við. þegar hún rakst á hæð
og eldur kviknaði i henni.
Rigning var og þoka þegar slysið
átti sér stað og skyggni ekki nema
nokkur hundruð metrar.
leyfi til að fljúga yfir nágranna-
lönd Eþíópíu á þeim forsendum
að um venjulegt farþegaflug væri
að ræða.
,,Við höfum skýrt Sovétstjórn
frá áhyggjum okkar vegna þessa,
og stjórnir Afríkuríkja hafa sömu
skoðun á þessu máli og við, þær
vilja ekki að risaveldin blandi sér
í málefni Afríku," sagði tals-
maður Bandarikjastjórnar, Ken
Brown.
Hann sagði einnnig, að margar
leiðir hefðu verið notaðar við loft-
flutningana, og „að ekki hefði
alltaf verið beðið um flugumferð-
arleyTi í viðkomandi löndum.“
Loftflutningarnir hófst fyrir
um þremur vikum, og eru taldir
vera liður í uppbyggingu hers
Eþíópíu í Ogadeneyðimörkinni,
en þar eiga Eþiópiumenn í bar-
dögum við sómalska skæruliða.
Brown sagði að lokum, að
Bandaríkjamenn héldu þvi fram
,,að risaveldin ættu ekki að skipta
sér af málefnum Afriku, en láta
Afríkubúa um að útkljá deiluefni
sín“.
15 ár fyrir stríðsglæpi
Amsterdam. 14. des. AP.
PIETER Menten, 78 ára gamall
hollenzkur milljónamæringur,
sem var í stormsveitum nazista I
seinni heimsstyrjöldinni, var í
dag dæmdur til 15 ára fangelsis-
vistar fyrir stríðsglæpi sem
framdir voru fyrir 36 árum.
Dómstóllinn komst að þeirri
niðurstöðu að Menten væri sekur
um ómannúðlegan glæp, hefði
með köldu blóði tekið af lífi um
20—30 íbúa pólska þorpsins
Rodgorotdtsy þann 7. júlí 1941.
Hinir myrtu voru Gyðingaætíar.
I réttarhöldunum sem hófust 9.
maí omu fyrir vitni m.a. frá Sovét-
ríkjunum, Póllandi, V-Þýzkalandi
og Bandaríkjunum. Sovézku vitn-
in, en Podgorotdtsy er nú bær í
Ukrainu, sögðust hafa séð Menten
umræddan dag taka þátt í (að
berja á fórnarlömbunum og héfði
síðan fyrirskipað aftöku þeirra
með kúlnahrið. Sum fórnarlamb-
anna voru grafin lifandi, hermdu
vitnin.
Menten hefur statt og stöðugt
neitað því að hafa verið í
Framhaid á bls. 18
Þjóðverjarnir þrír sem eru höfuðpaurarnir í njósnamálinu sem
komið hefur verið upp um í V-Þýzkalandi. A myndinni eru
hjónin Lothar-Erwin og Renate Lutze en á hinni myndinni er
Jiirgen W'iegler. Öll sitja þau í fangelsi.
Sovétríkin:
Minnkandi
iðnframleiðsla
Moskvu. 14. desember. AP.
I EFNAHAGSAÆTLUN Sovét-
ríkjanna fyrir 1978 er gert ráð
fyrir minni iðnvexti og að gerðar
verði ráðstafanir til að auka upp-
skeru korns sem var með minna
móti f ár.
Nikolai K. Baibakov, yfirmaður
ríkisáætlana, tjáði sovézka þing-
inu, að iðnaðarframleiðsla ykist
aðeins um 4,5% á næsta ári en til
samanburðar gat hann þes», að
reiknað væri með 5,6% fram-
leiðsluaukningu í iðnaði i ár. Er-
lendir sérfræðingar sögðust telja
minni iðnvöxt á næsta ári endur-
spegla áhuga Sovétmanna á gæð-
um I stað magns svo og vandamál
sem samsetningariðnaður og létt-
ur iðnaður eiga við að stríða, en
frá þessum tveimur greinum iðn-
aðar koma flestar neyzluvörur og
heimilistæki.
Sérfræðingarnir telja einnig að
lítil kornuppskera i ár valdi
minni hagvexti í iðnaði þar sem
hún mun koma niður á matvæla-
iðnaðinum.
I ræðu sinni sagði Baibakov að
það væri takmark Sovétmanna að
kornuppskeran næsta ár yrði 220
milljón tonn, en í ár var hún ekki
nema 195,5 milljón tonn. Upp-
skerumet var sett í fyrra, 223,8
milljón tonn.
Framleiðsluaukning í sovézkum
iðnaði hefur í nokkur ár dregizt
smátt og smátt saman, enda nálg-
ast hún þau takmörk sem henni
eru sett við núverandi tækni og
vélvæðingu í sovézkum iðnaði. Nú
byggist afkoman og aukin fram-
leiðsla miklu fremur á aukinni
framleiðni hvers einstaklings en
nýjum vélum og framleiðsluþátt-
um.