Morgunblaðið - 15.12.1977, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1977
7 frumlegir og frjósamir
listamenn í hugmyndaorgiu
„HÉR sýna sjö frumlegir og frjósamir
listamenn Mætti kalla þetta hug-
myndaorgiu En aðdragandi sýningar-
innar er orðinn æði langur.” Þannig
buðu listamenn og aðstandendur sýn-
ingarinnar VETRARMYND, sem nú
stendur yfir í Norræna húsinu blaða-
mann velkominn
Tilefni sýningarinnar er að lífga upp
á skammdegið, en eins og listamenn-
irnir komust að orði er þetta álitinn
kolómögulegur tími til sýninga, þar
sem allir eru i jólastússi, en að þeirra
áliti gefur það sýningunni einmitt gildi
,.í henni taka þátt hleypidómalausar
manneskjur, bæði ..prófessjónalar” og
..amatörar" eins og Baltasar komst að
orði
Hinir frumlegu og frjósömu lista-
menn eru auk Baltasars, Þorbjörg
Höskuldsdóttir, Atli Heimir Sveinsson,
Bragi Hannesson, Haukur Dór,
Magnús Tómasson og Ófeigur Björns-
son
0
FASTEIGNA
HÖLUN
FASTEIGNAVIÐSKIPTI
MIÐBÆR - HÁALEITISBRAUT 58 -60
SÍMAR-35300 & 35301
Við Ásbraut
einstaklingsíbúð á 2. hæð.
Við Æsufell
3ja herb. falleg ibúð á 7. hæð.
Suður svalir. Frystihólf í kjallara.
Mikil og góð sameign
Við Framnesveg
einbýlishús (steinhús) hæð og
kjallari. Á hæðinni er 3ja herb.
íbúð.
í smiðum
Við Orrahóla
3ja herb. endaibúð á 3. hæð.
T.b. undir tréverk. Til afhending-
ar í okt. '78. Fast verð. Góð
greiðslukjör.
Sölumenn
Agnar Ólafsson,
Arnar Sigurðsson,
Hafþór I. Jónsson hdl.
„Við vonum að Vetrarmynd skapi
skemmtilega tilbreytingu í svartasta
skammdeginu og skemmtilega afþrey-
ingu fyrir unga sem eldri Það sem
gerir sýningu þessa að okkar mati
mjög sérstæða er að hér sýna mjög
ólíkir listamenn. sem nota m a olíuliti,
vatnsliti, túss, kol, acryl, silfur, gull.
leður, kopar og herta nautshúð
Hugmyndin að sýningunni var sú að
tefla saman sem ólikustum listgreinum
og sjá hvernig þær mundu spjara sig
saman Við viljum leggja áherzlu á að
aflið á bak við góða myndlist er hið
sama og því ættu flokkadrættir eftir
stefnum ekki að eiga sér stað "
Frá Ikaros til
Wright-bræðra
Magnús Tómasson sýnir þarna
kassaverk, sem hann nefnir „sýniljóð"
„Þetta er ágrip af sögu flugsins," sagði
Magnús um eitt kassaverkið „Verk
þessi eru hluti af sýningu minni í
Gallerý Súm Ég nota vatnsliti. olíuliti,
skurðlæknahníf og pappír " Einhver
greip nú fram í og sagði að list
Magnúsar væri mjög erfið í fram-
kvæmd, þar sem verk hans væru i
þremur víddum og þyrfti að reikna þau
út og mæla „Það, sem ég vil segja um
list mína," hélt Magnús áfram, „er að
hún er skáldskapur. Ijóðræn með gam-
ansömu ívafi. Þetta verk kalla ég „Sam-
anburðarlandafræði", tvær kassa-
myndir og likingin er Baula í Borgar-
firði á annarri myndinni en hitt er
Keops pýramídinn i Egyptalandi Þá
eru kassamyndir minar „Ágrip af sögu
flugsins" eins og nafnið bendir til Þær
hefjast á Ikarosi, sem var fangi ásamt
föður sinum á eynni Krít Faðir hans
gerði þeim flugham úr fjöðrum Síðan
er hér óður til Leonardos da Vinci,
hópflug ítalanna og endar sagan á
Wright bræðrum "
Droplaug í
Blóðbankanum
Bragi Hannesson, sem hélt sina
fyrstu einkasýningu á Akureyri í sumar
sýnir þarna 24 vatnslita- og oliumynd-
ir H :nn er bankastjóri Iðnaðarbankans
og málar í fristundum sínum „Hann er
amatör-bankastjóri," sagði Baltasar
sem lék við hvern sinn fingur „í guðs
lifandi bænum verið ekki að blanda
bankastjórum inn í þetta." sagði Bragi
hlæjandi „Ja, ég geri flest mín „por-
Ljóð um hljóð
Þorbjörg Höskuldsdóttir sýnir teikn-
ingar og klippimyndir „Mér finnst allt-
af erfitt að ræða um myndlist. Þegar ég
hef lokið einni mynd, er ég búin að
segja allt það, sem ég vil. Ein mynda
hennar á sýningunni minnir ofurlltið á
ERRO og þegar hún er spurð álits á
þvi, svarar Þorbjörg: ,Ja. það er ekki
svo vitlaust hjá þér Ég hefði nú ekki
hugsað út i það En eins og ERRO nota
ég einnig klippimyndir
Tónlistin svifur yfir salinn, en að
■ ✓ íS
Bragi Hannesson, Ófeigur Björnsson. Þorbjörg Höskuldsdóttir, Magnús
Tómasson og Baltasar.
trait" af bankastjórum og það verður
nú svolitið einhæft til lengdar, þvi
þetta eru allt karlmenn," sagði Balta-
sar xMagnús Tómasson kvaðst þó vita
um einn kvenbankastjóra, sem væri
hún Droplaug i Blóðbankanum
Ófeigur Björnsson gullsmiður sýnir
þarna hluti, sem við fyrstu sýn líkjast
skúlptúr en hann er harðákveðinn i að
kalla þá „myndklæði." hálsmen, sem
maður iklæðíst „Annað hvort kalla ég
þetta myndklæðr eða skartmyndir " Eitt
myndklæðið litur út eins og brynja og
er að Ófeigs sögn mjög hentugt fyrir
konur, sem eiga reykingamenn fyrir
elskhuga „Svo er það skothelt lika,"
bætti einhver viðstaddra við.
„Það er nytjasjónarmið á bak við
myndklæðin min," sagði Ófeigur
„Fólk hefur aldrei séð svona hluti áður,
því þetta er alveg ný hugmynd, sem
hefur ekki verið útfærð áður á þennan
hátt, Efnin, sem ég nota eru kopar,
leður, kvenhár, og kemur fram hér
alveg ný afstaða gagnvart efninu."
DðGUNIN
myndir*fc
KRISHNAMURTI
heldur því fram, að frelsi sé
einungis hægt að öðlast með
gjörbreytingu mannsandans og að
sérhver einstaklingur búi
yfir afli til að breyta sjálfum sér
frá rótum, ekki einhvern tíma
í framtíðinni, heldur á stundinni.
KRISHNAMURTI
hefur aldrei glatað þeim fögnuði
sem fyllti hann snemma á fjórða
tug aldarinnar og það er þessi
fögnuður sem hann þráir að deila
með öðrum. Hann veit að hann
hefur fundið lækningu við
sorginni og eins og góðum lækni
sæmir langar hann til að láta
mannkynið njóta hennar.
ÞJOÐSAGA
þjngholtstræti 27 ■ Símar 13510 • 17059
sögn listamannanna sýnir Atli Heimir
Sveinsson tónskáld þarna alveg nýja
hlið á sér. Hann sýnir nótur. Þess utan
hefur hann samið einnar klukkustund-
ar tónverk fyrir sýninguna sérstaklega
Nóturnar sem hann sýnir eru Ijóð um
hljóð, Ijóðverk í mynd eða hljóðljóð,
eins og einhver viðstaddra komst að
orði en sjálfur var Atli Heimir ekki
viðstaddur né Haukur Dór þegar blaða-
mann bar að garði
Haukur Dór sýnir þarna málverk og
teikningar
Klíkusýningar
eru leiðinlegar.
Baltasar sýnir málverk og eru þau öll
ný, máluð síðastliðið hálft ár. „Allt eru
þetta olíumálverk og eru þau máluð i
framhaldi af sýningu minni á Kjarvals-
stöðum i marz siðastliðnum. Á þeirri
sýningu kom fram mikil breyting i
verkum minum, eiginlega ný stefna og
þá stefnu hef ég haldið áfram að þróa
siðan Það hefur orðið stórt stökk i list
minni síðastliðið ár, bæði í litum,
tækni og uppbyggingu Þessi sýning
er því gott tækifæri fyrir mig til að fá
skoðun samtimamanna minna á þeirri
þróun, sem orðið hefur, og eínnig
gefur hún mér tækifæri til að sjá hvar
ég stend meðal annarra listamanna "
Þorbjörg Höskuldsdóttir bætir því við
að oft séu listamenn lengi að jafna sig
eftir stórar sýningar og allir þeir, sem
taka þátt i VETRARMYND, hafi sýnt á
þessu ári. Því hafi svona sýning góð
áhrif á starf hvers listamanns og auk
þess gefi hún fólki tækifæri til að
fylgjast með reglulega
„Við viljum skapa aukna breidd i
listinni," segja þau „Klikusýningar eru
leiðinlegar, einhæfar og alltof oft end-
urteknar Að sjálfsögðu geta sýningar
þar sem líkir listamenn sýna verið
ágætar þegar verið er að kynna nýja
strauma í listinni.
Baltasar hefur orð á því að hverjum
listamanni fylgi ákveðinn hópur Á
VETRARMYND komi nú fólk, sem sæk-
ir yfirleitt Gallerý Súm, þ e aðdáendur
M :gnúsar Tómassonar Þá komi þarna
fólk sem fari á sýningar á Kjarvalsstaði
eða í Norræna húsið, en yfirleitt eru
þessir hópar ólikir og þarna muni þeir
nú mætast
Að samspilið kveiki
neista í hugum fólks
Talið héfur nú borist að öðru.
Magnús minnist á greftrunarsiði i
Ameriku og einhver segir að lík, sem
grafist hafi i eyðimerkursandi i Egypta-
landi hafi varðveitzt miklu betur en
þau, sem hafi verið smurð I einni
kassamynd Magnúsar „Ágrip af sögu
flugsins" er uppstoppaður fugl Hann
stoppaði fuglinn ekki upp sjálfur held-
ur fór með hann á Náttúrugrípasafnið
Hins vegar hefur afi hans beðið hann
um að stoppa sig upp þegar hann
deyr „Það gæti flokkast undir islenzka
nytjalist," segir einn viðstaddra og
bætir við hvort Morgunblaðið geti ekki
komið þvi á framfæri að ríkisstjórnin
niðurgreiddi myndlist, sérstaklega á
svona timum þegar harðna tæki í ári.
Að lokum sögðu hinir frumlegu og
frjósömu listamenn að þeir vonuðu að
fólk kæmi til að skoða sýningu þeirra,
skoða verkin án allra hleypidóma og
athuga hvort samspil hinna óliku list-
greina kveikti ekki einhvern neista i
hugum þeirra — h.Þ.
Krishnamurti leysir upp Stjörnufélagid
í Ommen 1929
Tveggja herbergja íbúð
Til sölu er mjög góð tveggja herbergja íbúð á 5.
hæð við Asparfell. Suðursvalir. Útborgun 5
millj. skiptanleg.
Höfum kaupanda
að góðri 2—r3 herbergja íbúð í Vogunum,
Heimunum eða grennd. Góð útborgun í boði.
Upplýsingar gefur
Agnar Gústafsson hrl.
Hafnarstræti 11.
Símar 12600 og 2 1 750.
Utan skrifstofutíma 4 1028.
Félagsstarf eldri borgara
í Reykjavík
Jólafagnaður
Verður haldinn að Hótel Sögu, Súlnasal, laugardaginn
17. des. '77 og hefstkl. 14.00 (Kl. 2.00 e.h.)
Dagskrá:
Kórsöngur: Karlakór Reykjavíkur, stjórnandi Snæbjörg
Snæbjargardóttir.
Einsöngur: Margrét Halldórsdóttir, við hljóðfærið: Sigfús
Halldórsson tónskáld.
Ljóð Drífu: Geirlaug Þorvaldsdóttir les. Jórunn Viðar
leikur á pianó.
Dans: Nemendurfrá Dansskóla Sigvalda.
Tvisöngur: Hlíf Káradóttir og Sverrir Guðmundsson, við
hljóðfærið: Gróa Hreinsdóttir.
Helgileikur: Nemendur frá Vogaskóla, stjórnandi: Þor-
steinn Eiríksson, prestur: síra Þórir Stephensen.
Almennur söngur, við hljóðfærið Sigríður Auðuns.
Kaffiveitingar.
^Reykvíkingar 67 ára og eldri velkomnir
ISI Felagsmalastofnun Reykjavikurborgar
^ lO
'V