Morgunblaðið - 15.12.1977, Síða 1
270. tbl. 64. árg.
FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Bjartsýni um sam-
komulag í Ródesíu
Salisburv, 14. desember AP
SVARTIR og hvítir stjórnmála-
menn settust í dag aó nýju að
samningaborði i Salisbury til að
reyna að ná samkomulagi um
stjórn svartra manna í landinu og
var talsverð bjartsýni ríkjandi
um að samkomulag myndi takast
á næstunni.
Til þessa hafa viðræður stjórn-
ar Ian Smiths við biökkumanna-
leiðtogana þrjá. sem fallizt hafa á
viðræður, einkum snúizt um
almennan kosningarétt allra
þeirra sem eru 18 ára og eldri, en
nú er búizt við að viðræðurnar
muni snúast um það hvert vera
skuli hlutverk öryggissveitanna í
landinu, en í þeim eru nær ein-
göngu svartir menn, enda þótt
þær lúti stjórn hvítra. Sveitir
þessar hafa borið hita og þunga
Lugmeier
Lugmeier
dæmdur í 11
ára fangelsi
Miinehen, 14. des. AP
DÓMSTÖLL í Múnchen
dæmdi í dag Ludwig Lugmeier
í 11 ára fangelsi fyrir þátt
hans í að ræna 560 þúsund
mörkum úr br.vnvörðum bíl á
árinu 1972. Lugmeier hafði áð-
ur, að honum fjarstöddum,
verið dæmdur í 12 ára fangelsi
fyrir bankarán í Frankfurt ár-
ið 1973. Hann var handtekinn í
Reykjavlk í ágúst sl.
^élagi Lugmeiers, Gerhard
Li'nden, var í dag dæmdur í 11
ára fengelsi, en þriðji maður-
inn í ráninu 1972 situr þegar í
fangelsi og afplánar 11 ára
dóm sinn.
baráttunnar við skæruliða undan-
farin fimm ár.
Ekki mun enn hafa verið samið
um hver verða réttindi hvítra
manna í landinu eftir að blökku-
menn taka þar við völdum né með
hvaða hætti kosið skuli til þings
en heimildum beggja vegna
samningaborðsins ber saman um
að samkomulag muni að likindum
nást um þessi atriði.
Samningaviðræðum þessum
hafa blökkumannaleiðtogarnir
tveir, Nkomo og Mugabe, sem eru
í útlegð, algerlega hafnað og hafa
þeir heitið þvi að magna skæru-
hernaðinn gegn stjórn Smiths.
Leiðtogarnir þrír, sem nú sitja að
samningaborði með Smith, hafa
hins vegar Iýst því yfir að hreyf-
ingar þeirra hafi stuðning um það
bii 80% allra svertingja í landinu,
en þeir eru 6,4 milljónir.
(símaim ntl V1»)
Frá Kairófundinum sem hófst í gær. Við borðið sitja, frá vinstri, Meguid sendiherra, fulltrúi Egypta,
Ensio Siilasvuo, finnski hershöfðinginn sem er fulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Ben-Elissar, fulltrúi
Israelsmanna, og Alfred Atherton. fulltrúi Bandaríkjastjórnar. Sæli Sovétríkjanna, Líbanons. Sýrlands.
Jórdaníu og PLO-hrevfingarinnar eru auð.
Kairófundurinn hafinn:
Búizt við litlum árangri fyrr
en eftir komuBegins fráUSA
Kafró, Washington,
14. des. AP. Reuter.
kaírórAðstefnan til
undirbúnings Genfarráö-
stefnunni um varanlegan
friö í Miðausturlöndum
hófst í morgun með ræðum
fulltrúa Egyptalands og
Israels, þeirra Abdel
Meguid sendiherra Egypta
hjá S.Þ. og Eliahu Ben-
Elissar ráðuneytisstjóra í
ísraelska forsætisráðu-
neytinu. Lögðu þeir báðir
áherzlu á að nást yrði sam-
komulag allra ríkja sem að
deilunni standa, en hvor-
ugur minntist á þau tvö
mál sem líklegust eru til
að standa í vegi fyrir samn-
ingum, þ.e. málefni Pale-
stínuarabanna og framtíð
þeirra landsvæðasem Isra-
elsmenn hafa hernumið.
Fundurinn i dag fór fram með
mjög vinsamlegum hætti. Einn
fulltrúi frá hverjum viðræðuað-
ila, en þeir eru auk ísraels og
Egyptalands, Bandaríkin og Sam-
einuðu þjóðirnar, sat við samn-
ingaborðið en aðstoðarmenn
Brezka þingið hafnar hlut-
fallskosningum til EBE-þings
Frjálslyndir styðja stjórnina áfram
London, 14. des. AP. Reuíer.
FRJALSLYNDI flokkurinn í
Bretlandi hefur ákveðið að halda
áfram samstarfi sinu við stjórn
Verkamannaflokksins enda þótt
neðri málstofa þingsins hafi fellt
tillögur stjórnarinnar um hlut-
fallskosningar til Evrópuþingsins
m.á. með atkvæðum margra þing-
manna Verkamannaflokksins.
Frjálslyndi flokkurinn hafði lagt
á það mikla áherzlu að frumvarp
V-þýzka stjórnarandstaðan:
Leber ber að víkja
vegna njósnamálsins
Bonn, 14. des. Reuter, AP.
FLOKKUR kristilegra demókrata
í V-Þýzkalandi, sem er í stjórnar-
andstöðu, krafðist þess í dag, að
Georg Leber, varnarmálaráð-
herra landsins, segði af sér vegna
njósnamálsins sem komið hefur
verið upp um í landinu og jafn-
framt sakaði stjórnarandadstaðan
hann um að reyna að hyima yfir
málið. Helmut Kohl, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar, sagði í
yfirlýsingu í dag að ráðherrann
væri óhæfur til að gegna starfi
sínu og yrði að fara frá. Kohl
sagði ennfremur að Helmut
Schmidt kanzlari yrði að taka á
sig einhverja sök í máli þessu.
Schmidt hefur neitað því að
hafa vitað neitt um málið þar til
upp um það var ljóstrað í Frank-
furter Allgemeine Dagbiaðinu sl.
mánudag.
Bandarísk hernaðaryfirvöld
hafa viljað láta líta svo út sem of
mikið hafi verið gert úr máli
þessu og að skjöl þau sem Renate
Lutz hafi Ijósritað og kotnið til
kommúnistalandanna hafi ekki
verið jafnmikilvæg og af sé látið.
Njósnararnir þrír voru hand-
teknir í júní í fyrra en ekki var
ljóst hvað njósnir þeirra voru
miklar umfangs fyrr en fyrir
skömmu og v-þýzki ríkissaksókn-
arinn hefur látið þau orð falla að
málið hafi valdið landinu meira
tjóni en njósnamál það sem varð
Willy Brandt að falli árið 1974.
Réttarhöld yfir fólkinu sem hand-
tekið hefur verið I málinu hefjast
í næsta mánuði í Dússeldorf.
Dagblöð í V-Þýzkalandi sem
mikið hafa skrifað um málið fara
mörg hörðum orðum um Leber
varnarmálaráðherra og saka hann
um að hafa ekki tekið mál þetta
nógu föstum tökum í upphafi.
Leber mætti í dag á fundi með
varnarmálanefnd þýzka þingsins
í Bonn en að honum loknum
sögðu þingmenn stjórnarandstöð-
unnar að hann hefði farið undan í
Framhald á bls. 18
þetta næði fram að ganga og var
það einn hornsteinninn i sam-
komulagi flokkanna. Um tíma f
dag var talið að samstarf flokk-
anna væri nú farið út um þúfur,
en eftir fundi þingmanna frjáls-
Iyndra og fund leiðtoga þeirra,
David Steel, með Callaghan for-
sætisráðherra var ákveðið að rifta
ekki samstarfinu að svo stöddu,
enda þótt talið sé að forsætisráð-
herrann hafi ekki boðið flokkn-
um neitt í staðinn.
Neðri málstofan felldi með 319
atkvæðum gegn 223 frumvarpið
um hlutfallskosningar til Evrópu-
þingsins og Vilja þingmenn í stað-
inn viðhalda því kerfi sem gildir í
kosningum til brezka þingsins að
sá hljóti kosningu í hverju kjör-
dæmi sem flest atkvæði fær. Úr-
slit atkvæðagreiðslunnar munu
hafa í för með sér töf á því að
Evrópuþing kosið beinni kosn-
ingu í aðildarrikjum EBE taki til
starfa. Fyrirhugað var að kosn-
ingar færu fram til þingsins í maí
eða júní á næsta ári, en fyrirsjá-
anlegt er nú að af því getur ekki
orðið svo snemma, þar sem mik-
inn tíma þarf í Bretlandi til að
koma um kring því kosningakerfi
sem þingið þar vill og ákveða
verður nýja kjördæmaskipan
fyrir Evrópuþingskosningar í
landinu.
Roy Jenkins, sem nú er í for-
Framhald á bls. 18
þeirra fyrir aftan þá. Stólar ann-
arra sem boðið var til ráðstefn-
unnar en ekki þágu boðið voru
auðir. Fundarstaður er Mena-
hótelið rétt við egypzku pýramíd-
ana, en á því hóteli áttu Churchill
og Stalín með sér fund árið 1943.
Egyptar hafa lagt sig mjög fram
um;að veita gestum sínum góða
þjónustu og hafa í fyrsta sinn í
sögunni verið opnaðar simalínur
milli Kairó og Tel Aviv og hægt er
að hlusta óhindrað á ísraelskt
útvarp í Egyptalandi. Öll simtöl
til Tel Aviv, matur og drykkur er
á kostnað Egypta.
Ekki fóru fram ýtariegar við-
ræður á þessum fyrsta fundi frek-
ar en búizt var viö, en almennt er
gert ráð fyi'ir að hinar raunveru-
legu samningaviðræður fari fram
í óformlegum viðræðum aðila, en
allir fundarmenn búa á Mena-
hótelinu. Tæpast er þó búizt við
því að nokkuð taki að miða i sam-
Framhald á bls. 18
Verkfalli
afstýrt á
Grænlandi
með lögum
Kaupmannahöfn,
14 des Reuter
DANSKA þingið samþykkti í kvöld
með yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða neyðarlöggjöf til að afstýra
verkfalli 45 starfsmanna i.raforku-
verum og kyndistöðvum á Græn-
landi sem talið er að geti haft
hörmulegar afleiðingar fyrir íbúa
landsins Lögin gefa sáttatillögu
danska rikissáttasemjarans laga-
gildi og banna verkfallið Fulltrúar
allra flokka á þinginu nema fjögurra
smáflokka greiddu atkvæði með til-
lögu Grænlandsmálaráðherrans um
þessa löggjöf, en ráðherrann,
Jörgen Peder Hansen, hafði lýst þvi
yfir að héraðsráðið á Grænlandi,
sem verður stjórn landsins þegar
það fær heimastjórn, væri löggjöf-
inni fylgjandi