Fréttablaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þórhildar Elínar Elínardóttur www.isam.is Í næstum 60 ár hefur Mjólkurkexið frá Frón verið uppáhaldskex Íslendinga. Það er kexið sem fær okkur öll til að brosa og kemur við sögu á hverjum degi. Mjólkurkex www.fronkex.is Í dag er miðvikudagurinn 15. október, 288. dagur ársins. 8.19 13.13 18.06 8.09 12.58 17.46 Eftir heila viku af uppnámi sem einkenndist mest af fréttum af því hvað Davíð hafi eiginlega verið að meina höfum við nú hneppt börnin okkar og barnabörn í ævilangt skuldafangelsi. VIÐ fyrsta kynslóð bómullar- barna drukkum í okkur spennandi ævintýri af kröppum sjó sem afi, amma og þau öll máttu sigla, boða- föllum og brimsköflum úr lífi venjulegs fólks – svo ég grípi til kunnuglegra myndlíkinga. Sögur af manneskjum sem reyndu sitt af hverju og þurftu að treysta á ýmis- legt annað en óskerta dómgreind seðlabankastjóra til að lifa af. Sem vissu að stundum þarf að gera fleira en gott þykir og trúðu því að nægjusemi væri dyggð. ÞETTA fólk gat sagt börnum og barnabörnum sögur af eigin lífs- reynslu. Um frostaveturinn mikla 1918 þegar sængin hans afa fraus föst við útvegginn og andardrátt- urinn hrímaði innandyra. Þegar lítil telpa sem varð seinna mamma mín stóð daglangt í röð til að kaupa skó en fékk enga því sendingin var búin, loksins þegar röðin kom að henni. Eða þegar allur bærinn fann ilminn af eplunum sem voru loksins komin í kaupfélagið og jólin gátu gengið í garð. VARLA hafa öll þessi blankheit og vöruskortur á liðnum kreppu- tímum verið eintóm skemmtun þótt frásagnirnar seinna meir hafi stundum orðið rómantískar, því margir liðu alvöru skort. Og vissu- lega er ógnvekjandi sú tilhugsun að fáeinir fjárhættuspilarar hafi nú klúðrað á stuttum tíma áratuga uppbyggingu heillar þjóðar. En kannski fáum við í staðinn tæki- færi til að rifja upp lífsgæði sem einhvers staðar urðu undir í öllu atinu og safna í sarpinn upplifun- um til að miðla börnum og barna- börnum. Kannski verða síðari tíma frásagnir innihaldsríkari en um skeið leit út fyrir. EINHVERN veginn yrðu nefni- lega frekar andlausar og óspenn- andi velmektarsögur af pabban- um sem skipti jeppanum upp í flottari jeppa. Eða af ömmunni sem fílaði engan veginn parketið á stofunni og fékk sér loks nýtt í stíl við burstaða stálið í baðkarinu. Nú er lag til að gleðjast yfir því að upplifa alvöru efnivið. Síðar getum við sagt litlum börnum af næstu kynslóðum æsispennandi ævintýri um íslenska efnahags- undrið. Sögulaunin verða millj- arðarnir sem þeim er gert að greiða fyrir okkar hönd. Köttur úti í mýri

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.