24 stundir - 16.07.2008, Blaðsíða 30

24 stundir - 16.07.2008, Blaðsíða 30
Eftir Trausta S. Kristjánsson traustis@24stundir.is „Ég er soldið þreytt á að vera alltaf kölluð dóttir Jóns Gnarr í fjöl- miðlum, því ég á mér nafn,“ segir Margrét Edda Jónsdóttir, nýjasti meðlimur Merzedes Club. Komst inn á eigin verðleikum Þó að Margrét sé vissulega dótt- ir Jóns Gnarr, sem samdi textann við lagið Frelsi, einsog frægt er orðið, hafði það lítið að segja með inngöngu hennar í Merzedes Club. Það kom ekki í ljós fyrr en eftir á. En hún viðurkennir samt að hafa verið örlítið stressuð í prufunum. „Já, því ég kunni ekki alveg lög- in. Svo voru um 30 aðrar stelpur þarna líka. En sem betur fer var ekki bara verið að leita eftir því hvort maður kunni lögin, heldur var einnig horft mikið til sviðs- framkomu og limaburðar, auk söngsins,“ segir Margrét, sem er enginn aukvisi þegar kemur að limaburði, en hún hefur æft taek- wondo frá átta ára aldri og stund- að stífar æfingar með landsliðinu undanfarið og er því stinn á rétt- um stöðum, sem virðist eitt helsta inntökuskilyrðið í hljómsveitina. „Ég byrjaði í þessu með systk- inum mínum um átta ára ald- urinn, en hætti eftir eitt ár, því mömmu fannst þetta ekki nógu kvenleg íþrótt. Þá fór ég að æfa listskauta í um sex ár, en fann mig aldrei almenni- lega þar, skipti aftur og sé ekki eftir því,“ segir Margrét, sem verður brátt handhafi svarta beltisins. „Í raun ætti ég að hafa fengið það fyrr, en ég hef verið svolítið löt að fara í beltispróf. En þetta kemur nú loksins rétt fyrir áramót.“ Tekur sönginn framyfir Margrét segist ekki í vafa ef hún þyrfti að gera upp á milli söngsins og taekwondo. „Ég hef meiri áhuga á söngnum núna. Þetta eru frábærir og skemmtilegir krakkar sem eru í bandinu og ég hlakka mikið til að fara út til Portúgals,“ segir Margrét svellköld, en hljómsveitin heldur utan til Portúgals á fimmtudaginn og geta aðdáendur hoppað með í gegnum pakka frá Úrvali-Útsýn. Þá má heyra og sjá Margréti syngja og sparka á youtube.com/ maggaedda. Margrét Edda Jónsdóttir er nýjasti meðlimur Merzedes Club Með svarta beltið í sviðsframkomu Margrét Edda Jónsdóttir er nýorðin söngkona í Merzedes Club. Hún æfir stíft taekwondo og er þreytt á að vera kölluð „dóttir Jóns Gnarr“ Pabbinn Jón getur verið stoltur 24stundir/Árni Sæberg Sæt söngkona Margrét er í góðu formi og á því vel heima í Merzedes Club. 30 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 24stundir Eigum gríðalegt úrval af rafmagnspottum! Það er farið að glitta í sumarfríið og ég get ekki beðið! Fríið byrjar á föstudaginn. Jeduddamía hvað ég hlakka til. Býst samt við að nota allt fríið uppi í húsi. Ekki veitir af. Á eftir er langþráður hittingur við skemmtilegt og gott fólk. Hjörtur Örn Arnarson hjortur.blog.is Á meðan ég verð úti að stússast í góðri sólbrennutýpu (þeir sem ekki eru með sólarexem myndu eflaust tana og ég býst við að nokkrir komi semi-svartir heim úr ferðinni á meðan ég tek danska fánann á þetta að venju …) Ingvar Örn Ákason byssan.blogcentral.is Hvers vegna stofnar Jóhannes í Bónus ekki BónusBenzín … 99 krónur lítrinn og hálfvitarnir í Shell og þessu shitti skrattast til að lækka. Nema að Jóhannes sjálfur eigi benzínstöðvarnar á Ís- landi … Önnur lausn væri að Ríkið stofnaði bensínsstöðvar … Ásgeir Vísir visir.blog.is BLOGGARINN HEYRST HEFUR … Það er alltaf gaman á grannaslag Kópavogsliðanna í knattspyrnu eins og reyndin var á mánudags- kvöldið, þegar Blikar lögðu HK 2-1. Stuðnings- menn liðanna eru jafnan skrautlegir og syngja háð- söngva linnulaust meðan á leik stendur. Blikar höfðu einnig klætt kynlífsdúkku í HK-búning og áttu aðra til með hvítu laki, þar sem stóð: falldraug- urinn...en HK er einmitt í neðsta sætinu. tsk Íslenskt neftóbak þykir mörgum vera hið mesta hnossgæti, en því hefur jafnan verið haldið fram að hestaskítur sé meðal helstu hráefna þess. Svo er þó ekki, því um er að ræða reykþurrkað hrá- tóbak, sem blandað er ýmsum efnum til þess að bleyta upp í því. Þá er það látið liggja í tunnum í átta mánuði áður en því er pakkað. En hrossaskítur eða ekki, þá er þetta allt sama óholla tóbakið. tsk Emil Hallfreðsson hefur verið í sumarfríi á Íslandi undanfarnar vikur en hann hélt aftur til Ítalíu í gær þar sem hann leikur með Reggina. Emil sló ekki slöku við í fríinu heldur æfði hann frjálsar íþróttir undir handleiðslu Silju Úlfarsdóttur. Að sögn Emils lét Silja hann taka harðar á því en nokkru sinni fyrr og verður gaman að sjá hvort aukaæfingarnar gera rauða ljónið enn sneggra og kraftmeira en áður. bba „Ég mæli ekki með því að menn drippli mikið boltanum en hver hefur sinn háttinn á,“ segir Davíð Sigurðsson, annar skipuleggjenda Hróa Hattar Strandhand- boltamótsins í Nauthólsvík sem fram fer í fimmta skiptið 26. júlí. Hugmyndin frá Þýskalandi „Þetta er upphaflega hugmynd frá handboltahetjunni Haraldi Þorvarðasyni, sem kynntist þessari íþrótt á sokkabandsárum sínum sem atvinnumaður í Þýskalandi, af öllum stöðum,“ segir Davíð og brosir út í annað munnvikið enda Þjóðverjar ekki þeir sem fyrst koma upp í huga manns þegar strandhandbolti er nefndur, þó svo að þar sé ein sterkasta deild- arkeppnin í handbolta í heim- inum. „Undanfarin ár hafa 16 lið skráð sig til leiks og ætlum við að ná því einnig í ár. Þegar eru átta lið komin en þetta eru aðallega helstu liðin úr N1 deild karla og kvenna,“ segir Davíð, sem játar að hann sé engin handboltahetja sjálfur. „Nei nei, ég er það ekki. En það er alltaf gaman að sprikla í sandinum. Ég hef að- allega verið notaður sem uppfyll- ingarefni þegar vantar menn í lið; Ég spilaði til dæmis með einu kvennaliði í fyrra, með misjöfnum árangri þó,“ segir Davíð skömm- ustulegur. Þeir sem eru áhugasamir um þátttöku geta sent Davíð tölvupóst á netfangið david@go.is, þar sem tekið skal fram heiti liðs, nafn for- svarsmanns, símanúmer og net- fang. traustis@24stundir.is Fimmta strandhandboltamótið nálgast óðum Alltaf gaman að sprikla í sandinum „Hann lyftir sér upp og...skorar!“ Frá mótinu í fyrra. Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Su doku 5 2 7 8 6 9 4 3 1 3 6 8 4 7 1 5 2 9 9 1 4 2 3 5 6 7 8 6 5 1 3 8 2 7 9 4 2 7 3 9 1 4 8 5 6 4 8 9 6 5 7 2 1 3 7 3 5 1 4 8 9 6 2 1 4 2 5 9 6 3 8 7 8 9 6 7 2 3 1 4 5 Það borgar sig ekki að vera að auglýsa svona; það stal einhver hundinum. a Útgáfutónleikarnir okkar á Ós- hlíðinni hljóta að hafa losað um einhverja hnullunga. Ætli bass- inn hafi ekki verið falskur … Lýður, er Grjóthrunið svona laglaust? Lýður Árnason, læknir, leikstjóri og kvikmyndaframleið- andi, er meðlimur í hljómsveitinni Grjóthruni, en í gær var varað við grjóthruni á Óshlíðinni. FÓLK 24@24stundir.is fréttir

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.