24 stundir - 16.07.2008, Blaðsíða 14

24 stundir - 16.07.2008, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 24stundirI I . Í Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@24stundir.is Bandarísk stjórnöld hafa að und- anförnu verið að auka hlut hins opinbera á lánamarkaði. Erfiðleik- arnir sem hálfopinberu íbúðalána- sjóðirnir, Fannie Mae og Freddie Mac, hafa lent í að undanförnu í kjölfar húsnæðiskreppunnar sem hófst vestanhafs á síðasta ári, hafa varpað ljósi á þessa staðreynd. Þetta á ekki eingöngu við um íbúðalánin í Bandaríkjunum held- ur einnig námslán. Flestir gerðu væntanlega ráð fyrir öðru þegar George W. Bush var kjörinn forseti á sínum tíma, að því er segir í grein á vef bandaríska dagblaðsins New York Times (NYT). Fyrir um tveimur árum, þegar almennir bankar kepptust enn við að ná sem stærstri hlutdeild á íbúðalánamarkaðinum, dró veru- lega úr hlutdeild íbúðalánasjóð- anna Fannie Mae og Freddie Mac, og fór hún undir 40% af nýjum lánum. Á fyrstu þremur mánuðum þessa árs var hlutdeild sjóðanna komin í hátt í 70% af nýjum íbúða- lánum. Segir í greininni í NYT að svipað eigi við um námslánin. Al- mennu bankarnir hafi að stórum hluta dregið sig út af þeim mark- aði, en í maímánuði síðastliðnum ákvað Bush-stjórnin að auka hlut ríkisins á honum. Sumir fagna en aðrir ekki Bandaríkin hafa jafnan verið tal- in meðal helstu merkisbera hins frjálsa markaðar í heiminum. Hlutverk hins opinbera þar í landi hefur engu að síður breyst mikið á umliðnum árum undir stjórn nú- verandi forseta, eða frá því að veita ábyrgðir yfir í að vera nánast eini lánveitandinn á þeim hluta lána- markaðarins sem snýr að íbúða- lánum og námslánum. Í greininni í NYT segir að þeir sem óttast aukin inngrip ríkisins í markaðinn líti þróunina að und- anförnu hornauga. Tala sumir þeirra um hörmulega þróun sem geti endað með ósköpum. Það muni koma í hlut skattgreiðenda að greiða fyrir mistökin. Stuðn- ingsmenn aukinna afskipta ríkisins eru hins vegar taldir gleðjast. Ofurtrú á markaðinn Greinarhöfundur í New York Times segir að ástæðan fyrir því hvernig komið er fyrir lánamark- aðinum vestanhafs sé sú ofurtrú sem Alan Greenspan, fyrrverandi seðlabankastjóri til langs tíma, hafði á að markaðurinn myndi bjarga sér. Fyrir tilstilli Greenspan hafi bankar fengið að spinna flók- inn vef skuldabréfavafninga, sem hafi á fyrstu árum þessa áratugar stuðlað að aukinni íbúðaeign al- mennings og mikilli hækkun á íbúðaverði. Þetta hafi gengið ágæt- lega á meðan íbúðamarkaðurinn var virkur og kaupendur af fast- eignaveðlánum bankanna voru til staðar. Þar hafi íbúðalánasjóðirnir Fannie Mae og Freddie Mac verið stórir aðilar. Það sé hins vegar að koma þeim í koll nú, því hin auð- velda fjármögnun á íbúðalána- markaðinum hafi gert að verkum að kröfur til lántakenda hafi sífellt minnkað. Áhætta bankanna hafi því aukist með auknum útlánum þeirra og fasteignablaðran hafi því sprungið. Þess vegna sé staðan nú eins og hún er. Leiðarahöfundur bandaríska viðskiptablaðsins Wall Street Journ- al leggur til í leiðara í gær að fjár- málaráðherra Bandaríkjanna, Henry Paulson, skipi tilsjónar- mann yfir Fannie Mae og Freddie Mac, til að gæta hagsmuna skatt- greiðenda. Ábyrgð ríkisins á sjóð- unum sé orðin það mikil að fulltrúi ráðherrans verði að geta gripið inn í gang mála ef allt stefnir í óefni. Aukin ríkisumsvif á lánamarkaði  Talsmenn lítilla ríkisafskipta í Bandaríkjunum telja hættu á að þróunin geti endað illa Erfiðleikar Frá því var greint í New York Times nýlega að stjórnvöld teldu koma til greina að yfirtaka Fan- nie Mae og Freddie Mac ef fyrirhug- aðar aðgerðir duga ekki til að bjarga sjóðunum. ➤ Bandaríska fjármálaráðu-neytið hefur lýst því yfir að það muni fara fram á að þing- ið veiti því ótakmarkaða heimild til að lána íbúðalána- sjóðunum Fannie Mae og Freddie Mac fé. ➤ Hlutur hins opinbera á íbúða-og námslánamarkaði í Banda- ríkjunum hefur breyst frá því að veita ábyrgðir á lánum banka yfir í að vera í raun nánast eini lánveitandinn á þessum sviðum þar í landi. AÐKOMA HINS OPINBERA MARKAÐURINN Í GÆR ● Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,46% og var 4.126 stig við lokun markaðar. ● Mest voru viðskipti með hluta- bréf Kaupþings, fyrir um 988 milljónir króna. Heildarvelta dagsins í hlutabréfaviðskiptum nam ríflega 3 milljörðum króna sem verður að teljast sæmilegt miðað við markaðsaðstæður. ● Atlantic Petroleum er eina fé- lagið sem hækkaði í verði í kaup- höllinni en nokkur stóðu í stað. Hækkun Atlantic nam 0,67%. ● Mest allra lækkuðu bréf Teym- is, um 13,33% en skammt þar undan kom Eik Banki. Bréf hans lækkuðu um 9,63%. ● Helstu hlutabréfavísitölur Evrópu, FTSE í London, og DAX í Frankfurt, lækkuðu. Sömu sögu er að segja frá Norðurlöndunum.              !" #$$%                      !   " #  $    % &'()* &   + ,- ./-  01 2     345    61    '    '7.   .8 1  *9 / 01, , :  ,      ; 1    ;     ,/  !  "                                                          :,   0 , <   " & >? ?@4 ABB 4? >>3 4C> DD 45? >3C C>3 A3? AB? A43 A34 A@? 5AB >34 @C DAB @D? 4D? 33C @C4 D3@ 4C4 C4C @@? >35 > C?> 534 CB@ ABC CC@ CA >5? 3DB CD BA5 B35 + B 55B >B? ?C4 >53 C 4>? CB4 + + + ?> DAB BBB ?B@ 45B + 4E@C 5E?@ >AE45 4E>5 CAE4? CAE35 C4EA5 ?>BEBB >>E5B D?E3B 3ECC @E3@ CE44 D4EBB + C@5EBB CA@BEBB C@?EBB C3AEBB + + + A?D5EBB CBEBB + 4E@4 5ED? >AEDB 4E3C CAE?4 CAEAB C4E55 ?>CEBB >>E4B DDEBB 3EC@ @EAA CE4D D?ECB CE>B C@DEBB C5BDEBB >B5EBB C3?E5B >>EBB + DE5B AD5BEBB + 5E5B ./  ,  A C? >B AB 4A A C ?4 5? C> A >C C@ 4 + + 3 C 5 + + + 5 C + F  , , C5 ? >BBD C5 ? >BBD C5 ? >BBD C5 ? >BBD C5 ? >BBD C5 ? >BBD C5 ? >BBD C5 ? >BBD C5 ? >BBD C5 ? >BBD C5 ? >BBD C5 ? >BBD C5 ? >BBD C5 ? >BBD @ ? >BBD A ? >BBD C5 ? >BBD C5 ? >BBD C5 ? >BBD 3B 4 >BBD 4 C> >BB? 3 4 >BBD C5 ? >BBD C5 ? >BBD ? 3 >BBD Greiningardeild Kaupþings spáir því að vísitala neysluverðs hafi hækkað um 0,6% í júlímánuði. Þýtt yfir í verðbólgu þýðir það að almennt verðlag hefur hækk- að um 13,2% frá því í júlí árið 2007 en verðbólgan í júní var 12,7%. Í verðbólguspá greiningardeild- arinnar kemur fram að út- söluáhrif eru töluverð nú í júlí, sem dempar vísitöluna og má því velta vöngum yfir hver hækk- unin væri ef ekki væri fyrir út- sölurnar. Sérfræðingar Kaup- þings spá því að verðbólga muni ná hámarki í ágúst og að þá verði hún 14%. Þar er þó gert ráð fyrir að krónan gefi ekki mikið eftir á næstu mánuðum. gsþ Spá 13% verðbólgu í júlí Heimsmarkaðsverð á gulli nálg- ast nú á nýjan leik þær methæðir sem það náði í upphafi marsmán- aðar en kostaði únsan af gulli í fyrsta skipti í sögunni meira en 1.000 Bandaríkjadali. Í gær fór gullverð yfir 980 dali og hefur það stigið töluvert að und- anförnu. Sem betur fer er það lítið notað hér á landi og því munu íslenskir neytendur lítið finna fyrir þessu. Rapparar ættu hins vegar að leita sér að öðru skrauti. gsþ Gullverð fer hækkandi Nöfnin á bandarísku heild- söluíbúðalánasjóðunum Fan- nie Mae og Freddie Mac minna einhverja Bandaríkjamenn ef- laust á ömmu og afa úr sveit- inni. Nöfnin standa þó ekki fyrir einhverja ákveðna ein- staklinga heldur eru þau ein- faldlega útfærsla sem óþekkt- um aðilum datt í hug út frá skammstöfunum sjóðanna. Fyrst var nafnið Fannie Mae búið til út frá skammstöf- uninni á heiti íbúðalánasjóð- sins Federal National Mortgage Association, FNMA, sem var stofnaður árið 1938. Síðar kom svo nafnið Freddie Mac fyrir systursjóðinn, sem heitir Fede- ral Home Loan Mortgage Cor- poration, skammstafað FHLMC. Sá sjóður var stofn- aður árið 1970. Ekki nöfn á ömmu og afa úr sveitinni FÉ OG FRAMI frettir24stundir.is a Á fyrstu þremur mánuðum þessa árs var hlutdeild sjóð- anna komin í um 70% af nýjum íbúðalánum. SALA JPY 0,7438 1,97% EUR 124,59 1,09% GVT 158,87 1,02% SALA USD 77,81 0,47% GBP 156,42 1,39% DKK 16,702 1,11% 25% AFSLÁTTUR SUMARTILBOÐ ® - Lifið heil

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.