NT - 04.01.1985, Page 24
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leið ir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT Síðumúli 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495
Allt leiðakerfi SVR endur
skipulagt fyrir árið 1986
- ný skiptistöð reist í Mjóddinni
■ Stefnt er aö að algjörlega
nýtt leiðakerfi SVR verði tekið
í notkun vorið 1986.
Unnið hefur veiið að undir-
búningi nýs leiðakerfis um
nokkuö skeið, en á fjárhags-
áætlun þessa árs cr ckki gert
ráð fyrir að það verði tekiö í
notkun að fullu leyti á þessu
ári.
Sigurjón Fjeldsted, stjórn-
arformaður SVR, sagði á fundi
nteð blaðamönnum í gær, að
Ijóst væri að nýtt leiðakerfi
kostaði mikla pcninga og
breytingar.
Sveinn Björnsson, forstjóri
SVR, sagði að unnið hefði
vcrið að málinu í langan tíma,
en áður cn það væri kynnt
þyrfti aö leysa ýntis mál. Hann
nefndi sem dæmi að byggja
þyrfti skiptistöö í Mjóddinni,
er gegna ntyndi miklu hlut-
verki.
Sveinn sagði tilgang með
nýju leiðakerfi vera m.a. að
stytta tíma er fólk þyrfti að
nota til að komast leiðar sinnar
og minnka skiptingar um
helming.
Þá kom frant á fundinum að
fullur vilji er meðal forystu-
ntanna SVR til að taka upp
samstarf við nágrannasveitarfé ’
lögin um sameiginlegt strætis-
vagnakerfi. Slíkt hefurnokkuö
verið rætt á fundum Samtaka
sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu.
Sveinn sagði að af slíku
samstarfi myndi leiða augljós
hagræðing. Hann nefndi sem
dæmi að utan háannatíma gæti
Hafnarfjarðarstrætó annað
fólksflutningum úr Hafnar-
firði, Garðabæ og Kópavogi.
Nú þegar er nokkur sam-
vinna milli SVR og SVK, í
Kópavogi, en bæði fyrirtækin
eru rekin afsveitarfélögunum.
Strætisvagnaakstur í Hafn-
arfiröi og til Reykjavíkur, er
hins vegar í höndum einkafyr-
irtækis, Landleiða.
Hið nýja leiðakerfi sem nú er
í undirbúningi gerir ekki ráð
fyrir slíkri samvinnu.
Sigurjón Fjeldsted sagði að
hið nýja leiðakerfi kallaði á
aukinn vagnakost, en á fjár-
hagsáætlun SVR fyrir þetta ár
er gert ráð fyrir að á næstu
fjórum árum verði keyptir 20
nýir vagnar. Ef leiðakcrfið
verður tekið í notkun á næsta
ári gæti það þýtt að vagnarnir
yrðu keyptir fyrr en ella, þar
sem nokkuð af vagnakosti
SVR nú eru gantlir og úr sér
gengnir vagnar.
Þá kom fram á fundinum að
hugsanlegt er að kerfið verði
tekið upp í áföngum.
Áður en leiðakerfið verður
tekið í notkun þarf að leysa
t.d. vandamál vagnanna í mið-
bænum, en þar veldur mikil
umferð oft seinkun á akstri
vagnanna. Mun ætlunin vera
að kerfið byggist upp á hrað-
feröum úr úthverfunum í mið-
bæinn.
Þá er eftir að búa til „stað-
alkerfi" eða með öðrum orðum
ákveða hversu langt fólk eigi
að þurfa að ganga til að komast
á biðstöð, og hversu lengi fólk
eigi að þurfa að bíða eftir
vagni.
Verulegar breytingar
á leiðakerfi SVR
- tvær nýjar leiðir og aðrar breytast
■ Verulegar breytingar
verða gerðar á leiðakerfi
Strætisvagna Reykjavíkur á
sunnudagogmánudag. Með-
al brcytinga má nefna að
hafinn verður akstur á tveim-
ur nýjum leiðum, frá Lauga-
læk að Álfabakka leið 19 og
Lækjartorg að Grafarvogi
leið 15. Aksturástðarnefndu
leiðinni hófst 27. des. sl. en
á leið 19, Laugalæk að Álfa-
bakka hefst akstur á mánu-
dag.
Þá breytist hringleið, leiðir
8 og 9 þannig að hafinn
verður akstur um nýja mið-
bæinn og verður ekið unt
Háleiti. Þannig hætta vagn-
arniraðaka um Miklubraut.
Leið 10, Hlemmur Selás,
breytist þannig að vagnarnir
hefja akstur um Ártúnsholt.
Þá verða nokkrar aðrar
breytingar, aðallega þannig
að brottfarartímar breytast.
Þá hefur verið gefin út ný
leiðabók, og kostar 10 kr.
Nánar veröur gerð grein fyrir
breytingunum í NT á
morgun.
Hin nýja leið Laugalækur-Álfabakki, leið 19.
Leikrit eftir Guðmund Steinsson:
Sýnt í Kaupmanna-
■ íslenskt leikrit, Lúkas, eftir
Guðmufid Steinsson verður frum-
sýnt í Kaupmannahöfn á næstu
dögum og tvö þýsk leikhús hafa
keypt sýningarrétt á Lúkasi. Pað er
Kaffe-teatret í Köben sem sýnir
Lúkas og heldur Guðmundur utan
í dag til þess að verða við frumsýn-
ingu. í samtali við NT sagði hann
að fyrsta sýningin sem opin væri
áhorfendum færi fram þann 8. en
formleg frumsýning yrði svo vænt-
anlega þrem til fjórum dögum
síðar.
Búist er við að Lúkas verði svo
frumsýndur í Múnchen eftir tvo til
þrjá mánuði. Lúkas var frumsýndur
hér heima áTifla sviðinu í Þjóðleik-
húsinu 1972 og fyrst á erlendri
grund í London 1976. Verkið var
svo nýlega þýtt yfir á frönsku af
þjóðleikhúsi þar.
Slökkviliðið:
Vitleysur í við-
vörunarkerfum
fjölga útköllum
■ Yfir þriðjungs aukning varð
á útköllum slökkviliðs Reykja-
víkur á árinu og er meginorsök-
in fleiri fölsk útköll
frá viðvörunarkerfum. Þá
eru íkveikjur algengasta orsök
eldsvoða en þær eru skráðar 82
talsins af 246 eldsvoðum, það er
þriðjungur. í 95 tilvikum eru
orsakir ókunnar.
Alls voru útköll slökkviliðsins
447 á árinu en 175 voru til
komin vegna gruns um eld sem
ekki reyndist svo vera. Fimm
sinnum var slökkviliðið narrað
og í 21 tilviki voru ástæður
aðrar en eldur, svo sem vatns-
leki eða losa þurfti fólk úr bílflök-
um. Þessi tilvik eru nú í fyrsta
sinn skráð með útköllum og
valda að hluta til þeirri aukn-
ingu sem veröur á skráðum
útköllum. í fyrra voru útköllin
aðeins 328 en eldsvoðar litlu
færri en í ár, eða 233.
Aðeins eitt meiriháttar
bruhatjón varð á árinu 1984.
Það var á Landspítalanum þeg-
ar eldur kom upp í geðdeildinni í
sumar. Enginn fórst í eldsvoða
1984 en tveir 1983. í langflestum
tilvikum eldsvoða, eða 191 af
246 varð tjón ekkert.
Áreytti
stúlku-
barn
■ 1 gærdag hræddi mað-
ur stúlkubarn við Gullteig
í Laugarneshverfi með því
að veifa kynfærum sínum
framan við það' og ota
þeim að því.
Stúlkan flúði skelfingu
lostin í nærliggjandi hús,
þó hún þekkti þar ekki til
og var þaðan hringt í lög-
reglu.
Maðurinn komst undan
á Lödu»bifreið og telur
lögreglan að hér sé á ferð-
inni sami maður og nokkr-
um sinnum áður hefur
stundað slíkt óeðli gagn-
vart börnum í þessu
hverfi. Ekki er vitað hver
þessi maður er en lögregl-
an leitaði hans í gær.