NT - 04.01.1985, Síða 20
Föstudagur 4. janúar 1985 20
„Sovétríkin og Bandaríkin bera
ábyrgð á að varðveita friðinn“
Rætt við sendiherra Sovétríkjanna Evgeniy Alexandrovits Kosarev
■ í september á síðasta ári kom nýr sendiherra Sovétríkjanna,
Evgeniy Alexandrovits Kosarev, hingað til lands. Hann vakti
mikla athygli nú um áramótin þegar hann tók lagið fyrir
landsmenn ásamt bandaríska sendiherranum, Brement, í beinni
útsendingu frá Sigtúni.
NT lék forvitni á að kynnast sendiherranum og skoðunum hans
á heimsmálunum. Skömmu fyrir áramót ræddi NT við Kosarev
og lagði fyrir hann nokkrar spurningar.
Kosarev, sem er 65 ára gamall, er mjög reyndur diplómat.
Hann hefur starfað í fjörutíu ár í sovésku utanríkisþjónustunni.
Hann er upphaflega menntaður sem flugvélaverkfræðingur en á
árundm 1941 til 1943 var hann kallaður í herinn og tók þá m.a.
þátt í vörnum Sovétmanna í Leníngrad.
Að stríðinu loknu byrjaði Kosarev að starfa hjá utanríkisráðu-
neytinu. 1944 til 1947 sótti hann sérstakan diplómataskóla og
síöan liefur hann dvalist samtals 27 ár erlendis bæði í Austur-Þýska-
landi oi> Vestur-Þvskalandi og í Luxemborg þar sem liann var sendi-
hcrra 1969 til 1979.
Kosarev segist lengi hafa haft áhuga fyrir íslandi og íslenskri
menningu. Árið 1963 heimsótti eiginkona hans, Valentína.ísland
og söng hér á tónleikum, en þá var hún söngkona hjá
Bolshoj-leikhúsinu. Sendiherrann hefur einnig lesiö mörg
íslensk bókmenntaverk í rússneskri þýðingu, þar á meðal
íslenskar fornsögur.
Hér á eftir fara svör Kosarcvs við nokkrum spurningum blaöa-
manna erlendu fréttadeildarinnar á NT.
Spurning: Herra sendiherra,
verslunarviðskipti (slands og
Sovétríkjanna eru mjög mikil-
væg fyrir íslendinga, enda
kaupa Sovétríkin umtalsvert
magn af útflutningsvörum
okkar, Hversu mikilvæg eru
þessu viðskipti fyrir Sovétríkin
og teljið þér hagkvæmt að
auka viðskiptin milli landa
okkar enn meira?
Svar: Verslunarviðskipti eru
ein elsta aðferð samstarfs og
samskipta milli þjóða í ólíkum
löndum. Þau gera sérhverju
landi kleift að afla sér vöru til
að fullnægja eftirspurn íbú-
anna.
Sovétríkin byggja v'erslunar-
viðskipti sín við önnur ríki á
grundvelli gagnkvæms hagn-
aðar og jafnréttis, þannig að
það væri ekki rétt að tala um
einhliða hagnað annars hvors
aðilans - viðskiptin eru í þágu
beggja aðila.
Eins og kunnugt er kaupa
Sovétríkin 20% íslenskra
fiskafurða, og hvað varðar
síldina, kaupa þau um 80%
aflans. Auk þess kaupum við
ullar- og skinnavörur og máln-
ingavörur. Þar sem efna-
hagskreppa herjar ekki á so-
véskan markað, tryggir þetta
þúsundum íslendinga fasta at-
vinnu í fiskiðnaði, ullar- og
skinnaiðnaði.
Viðskiptin við ísland veita
Sovétríkjunum ekki aðeins
tækifæri til að gera borð sovésks
verkafólks fjölbreyttara. held-
ur einnig til að selja Islandi
olíuvörur, bifreiðar og fleiri
vörur, sem ekki eru framleidd-
ar á íslandi. Fyrir okkur, eins
og fyrir íslandinga, eru við-
skiptin einnig mikilvæg vegna
þess að þróun þeirra stuðlar að
betra pólitísku andrúmslofti og
auknum skilningi og trausti
milli ríkja, sem er afar mikil-
vægt nú á tímum, þegar spenn-
an í heiminum hefur orðið
meiri en dæmi eru til.
Spurning: Þjóðir Evrópu hafa
sívaxandi áhyggjur af hernað-
aruppbyggingu sem á sér stað
bæði í vestri og austri. Hvaða
ráðstafanir teljið þér að verði
að gera til að draga úr hinni
hættulegu spennu, sem ríkir í
Evrópu?
Svar: Ég er yður fyllilega sam-
mála að íbúar heimsins hafa
vaxandi áhyggjur vegna auk-
innar hættu á því að það komi
til kjarnorkustyrjaldar. Það
skilur sérhver maður að því
meiri sem kjarnorkuvopna-
birgðir eru í heiminum og því
fleiri herstöðvar og önnur
hernaðarmannvirki, því senni-
legra er að komi til kjarn-
orkustyrjaldar og ef kæmi til
slíkrar styrjaldar þá er nú eng-
inn lengur í vafa um að lífinu
á plánetu okkar væri lokið.
Það yrði ekki um neina sigur-
vegara að ræða og ekki heldur
sigraða.
Til þess að draga úr spenn-
unni í heiminum, er nauðsyn-
legt að öll lönd og fyrst og
fremst þau, sem ráða yfir
kjarnorkuvopnum, hafni beit-
ingu kjarnorkuvopna að fyrra
bragði, eins og Sovétríkin hafa
þegar gert. Ef ekki verður um
fyrstu kjarnorkuárásina að
ræða, verður ekki um svarárás
að ræða.
Til þess að draga úr þeirri
spennu sem ríkir í Evrópu og
heiminum er nauðsynlegt að
Bandaríkin og NATO-löndin
hætti aðgerðum til að ná hern-
aðaryfirburðum umfram So-
vétríkin og önnur sósíalísk
lönd. Slíkar aðgerðir leiða að-
eins til vígbúnaðarkapphlaups
og vaxandi gagnkvæmrar tor-
. tryggni.
K. Chernenko, aðalritari
Kommúnistaflokks Sovétríkj-
anna og forseti Forsætisnefnd-
ar Æðsta ráðs Sovétríkjanna,
sagði: „Sovétríkin leitast ekki
við að ná hernaðaryfirburðum
umfram aðra, en leyfa heldur
ekki að yfirburðir séu umfram
þau. Það getur verið að ein-
hverjir í Bandaríkjunum eigi
erfitt með að sætta sig við þetta
en það verður að viðurkenna
Sendiherra Sovétríkjanna á íslandi, Evgeniy Alexandrovits Kosarev.
NT-mynd Ari
þá staðreynd, að ríki okkar
geta aðeins átt samskipti á
grundvelli sem byggist á jöfn-
um og lögmætum hagsmunum
hvort annars. Það er ekki til
neinn annar skynsamlegur val-
kostur.“
Sovétríkin leggja til við Vest-
urveldin að þau hafni í sam-
skiptum við önnur ríki hugtök-
um eins og „ofbeldisstefnu“,
„fælingu"', „yfirburðum" og
leggja til að í staðinn komi
hugtökin „að beita ekki valdi“,
„traust", „jafnrétti“,
„gagnkvæmt tillit tilöryggis".
í mars sl. gekk K. Chern-
enko út frá þessu er hann
mótaði og lagði fram tillögur
um að kjarnorkuveldin fylgdu
eftirfarandi reglum í samskipt-
um sín á milli: Að kjarn-
orkuveldin líti á það sem meg-
intakmark utanríkisstefnu
sinnar að koma í veg fyrir
kjarnorkustyrjöld. Að þau
leyfi ekki að það skapist ástand
þrungið hættu á kjarnorku-
átökum, og ef til slíkrar hættu
komi, verði þegar í stað haldn-
ar viðræður til að kjarnorku-
átökin fari ekki af stað. Þau
hafni áróðri kjarnorkustyrjald-
ar í hvaða formi sem er -
■ í sovéska sendiráöinu í Reykjavík. Lengst til hægri er E. Barbukho, yflrmaður fréttastofu APN
á íslandi, þá kemur sendiherra Sovétríkjanna, Evgeniy Alexandrovits Kosarev, við hliö
sendiherrans situr V. Trofímov, blaðafulltrúi sendiráðsins og lengst til vinstri á myndinni situr
Ragnar Baldursson blaðamaöur NT. nt-mynd Arí
alheims eða takmarkaðrar.
Þau taki á sig þá skuldbindingu
að beita ekki kjarnorkuvopn-
um að fyrra bragði. Þau beiti
ekki undir neinum kringum-
stæðum kjarnorkuvopnum
gegn kjarnorkulausum
löndum, sem hafa slík vopn
ekki á landsvæði sínu. Þau
virði kjarnorkuvopnalaus
svæði, sem þegar hefur verið
komið á og hvetji til stofnun-
ar nýrra svæða af því tagi í
ýmsum heimshlutum. Þau leyfi
ekki dreifingu kjarnorkuvopna
í hvaða formi sem er. Þau selji
engum þessi vopn eða stjórn
yfir þeim, komi þeim ekki fyrir
á landsvæði ríkja, þar sem þau
eru ekki fyrir, flytji ekki kjarn-
orkukapphlaupið á ný svið,
þ.m.t. geiminn. Þau vinni að
því skref fyrir skref á grund-
velli jafns öryggis að draga úr
vígbúnaði allt til algerrar eyði-
leggingar hans í öllum
formum.
Land okkar er fylgjandi því
að eiga samningaviðræður við
önnur kjarnorkuveldi um sam-
eiginlega viðurkenningu á slík-
um reglum og að þær verði
gerðar skuldbindandi. Slíkt
mundi stuðla að minnkandi
hættu á kjarnorkuátökum og
drægi verulega úr spennunni í
Evrópu.
Spurning: (slenskt máltæki
segir að sjaldan valdi einn þá
tveir deila. Er ekki réttmætt að
telja að Sovétríkin beri sinn
hluta ábyrgðarinnar á því van-
trausti, sem ríkir í samskiptum
Sovétríkjanna og Bandaríkj-
anna? Er stjórn yðar reiðubúin
til að hefja viðræður við
Bandaríkin í því skyni að
draga úr spennu í samskiptum
Sovétríkjanna og Bandaríkj-
anna og taka aftur upp viðræð-
urnar um takmörkun vígbún-
aðar? Eins og kunnugt er hefur
R. Reagan, sem nýlega var
endurkjörinn í forsetaembætt-
ið, sýnt áhuga á að bæta sam-
skiptin við Sovétríkin.
Svar: Þér vitnið í íslenskt mál-
tæki og spyrjið hvort Sovétrík-
in eigi ekki sök á því vantrausti
sem nú ríkir í samskiptum
Sovétríkjanna og Bandaríkj-
anna. Ég svara því skýrt og
skorinort - Sovétríkin eiga
ekki sök á því.
Sovótríkin hafa aldrei átt
fumkvæðið að vígbúnaðar-
kapphlaupi á nokkru sviði.
Allar vígbúnaðartegundir í So-
vétríkjunum hafa komið fram
eftir að þær hafa komið fram
hjá Bandaríkjunum og banda-
mönnum þeirra. Þannig var
það með atómsprengjuna og
vetnissprengjuna, orrustuflug-
vélarnar og ýmsar tegundir
eldflauga. Aðgerðir Banda-
ríkjanna og bandamanna
þeirra hafa haft í för með sér
svaraðgerðir af hálfu Sovét-
ríkjanna og enginn getur af-
sannað þá staðreynd.
Sovétríkin hafa aldrei reynt
að deila við Bandaríkin og
aldrei gefið ástæðu til þess.
K. Chernenko, forseti For-
sætisnefndar Æðsta ráðs So-
vétríkjanna, sagði í viðræðu
við fulltrúa bandarískra við-
skiptaaðila þann 4. desember
sl. að „Sovétríkin fylgdu stöð-
ugt þeirri stefnu að koma á
jöfnum og góðum samskiptum
við Bandaríkin á grundvelli
gagnkvæmrar virðingar og
með tilliti til lögmætra hags-
muna hvors aðila. Sovétríkin
eru fylgjandi gagnkvæmum
tengslum á öllum sviðum, þar
á meðal viðskipta- og efna-
hagssviðinu, ef rutt verður úr
vegi þeim gervihindrunum,
sem þeim hafa verið settar."
Ef stjórnvöld í Bandaríkjun-
um færu eftir þessari hvatningu
Sovétríkjanna, mundi ástand-
ið í heiminum breytast til hins
betra.
Víst hefur Reagan upp á
síðkastið lýst nokkrum sinnum
yfir að nauðsyn beri til að losa
jörðina við kjarnorkuvopnin,
að möguleikar séu á alvarleg-
um viðræðum við Sovétríkin
og fl. En samt sem áður ganga
því miður allar aðgerðir
bandarískra stjórnvalda á
skjön við yfirlýsingar um vilja
til að bæta samskiptin við So-
vétríkin. Eins og áður reyna
þau að ná hagstæðri stöðu fyrir
Bandaríkin með valdi í viðræð-
um við Sovétríkin og ekki
verður vart neinnar viðleitni til
að hætta vígbúnaðarkapphlaup-
inu, þvert á móti eru gerð-
ar ráðstafanir af hálfu Banda-
ríkjanna til að færa vígbúnað-
arkapphlaupið yfir á nýtt svið
- út í geiminn. Þetta gerir
okkur varkára og gefur ástæðu
til að draga í efa friðaryfirlýs-
ingar Reagans. Ef bandarísk
stjórnvöld eru reiðubúin til að
láta hlut fylgja máli, þá munu
Sovétríkin ekki láta á sér
standa.
Við skiljum að nú á tímum
bera Sovétríkin og Bandaríkin