NT - 04.01.1985, Qupperneq 12
Tom Selleck
- aðdáendahópur
sat fyrir
honum í
frumskóginum!
* Foreldrar Sellecks, Martha og Bob Selleck, sjást hér með
honum.' Tom var giftur, en þau hjónin eru nú skilin.
mkm
* Svona líkar mér lífið í mínum sælb
garðinum.
Vinningar í H.H.Í. 1985: 9 á kr. 2.000.000; 108 á kr. 1.000.000; 108 á kr. 100.000; 2.250 á kr. 20.000; 18.855 á
kr. 4.000; 113.436 á kr. 2.500. 234 aukavinningar á kr. 15.000. Samtals 135.000 vinningar á kr. 544.320.000
Föstudagur 4. janúar 1985 12
U Tom Selleck þykir með glæsi-
legustu leikurum, sem sjást á hvíta
tjaldinu. Selleck leikur í myndinni
Lassiter, sem sýnd er í einu kvik-
myndahúsinu hér um þessar
mundir.
Reuter-fréttaskeyti frá Honolulu 17. des. sl.:
■ Órakaður og þreytulegur
stendur leikarinn Tom Selleck með
byssu í hendi í stafni fljótabáts,
sem kemur á fullri ferð fyrir bugðu
á ánni og stefnir að landi við
leðjuborinn árbakka í stórrigningu
og frumskógurinn teygir sig niður
að ánni. Tom skimar til beggja
handa eins og til að gá að hættu-
legum óvini, stekkur síðan á land
í rigningunni og hleypur upp ár-
bakkann, en... allt í einu staðnæm-
ist hann, því framundan varð
óvænt fyrirsát. Það var þó ekki
óvinurinn í kvikmyndinni, sem
hann var að leika í - heldur 100
manna hópur af gegnblautum að-
daendum leikarans, sem höfðu gert
honum þarna fyrirsát til að sjá
hann og fá eiginhandaráritun
hans! Þegar Selleck kom hlaup-
andi upp árbakkann hrópaði
fólkið: „Tom, Tom við elskum
þig!“ Leikarinn stóð þarna steini
lostinn, en öryggisverðir hlupu til,
svo þessir einlægu aðdáendur
gerðu ekki aðsúg að stjörnunni,
en allir vildu fá einhvern minjagrip
eða i það minnsta áritun á mynd af
leikaranum.
Tom Selleck er nærri 2 m á hæð
og allur hinn myndarlegasti. Leikstjór-
ar eru yfir sig hrifnir af Tom sem
mótleikara glæsikvennda, sem nú til
dags eru margar hverjar það hávaxn-
■ ályað sumar hetjurnar verða að vera
á háhæluðum skóm til að geta kysst
þær.
Selleck hefur sl. fjögur ár leikið í
framhaldsmyndaflokknum Magnum
og hann var að leika i einum slíkum
þætti, þegar aðdáendurnir biðu hans
í rigningunni. I þessum þætti átti
hann að vera að leita að vini sínum
úr st^ðinu í Víetnam, sem hafði verið
stríðsfangi, og var atburðurinn mynd-
aður á Hawaii-eyjunni Oahu. Magn-
um-þættirnir eru teknir á Hawaii og
því hefur Tom Selleck búsetu þar.
Nú er svo komið, að Tom segist
helst vilja hafast við í húsvagni sínum
i kvikmyndaverinu, þvi að hann hafi
■ engan frið fyrir fólki í húsinu sem
hann býr í. Þessir sjónvarpsþættir
hafa gengið mjög vel I samfleytt á
fimmta ár, en Tom réði sig til 7 ára hjá
því fyrirtæki. Magnum-þættirnir hafa
verið áýpdir í 73 löndum.