NT - 04.01.1985, Side 6
lít
Föstudagur 4. janúar 1985
Guðmundur Jónas Kristjánsson:
Ratsjárstöðvar
Þurfa ekki
lengur
vitnanna við
Malcon Spaven, þekktur
breskur sérfræðingur í vígbún-
aðar- og afvopnunarmálum, frá
háskólanum í Sussex í Eng-
landi, hafði fyrir nokkru dvöl
hér á leið sinni frá Bandaríkj-
unum. Meðan á dvölinni stóð,
flutti hann erindi um fyrirhug-
aðar byggingar ratsjárstöðva á
íslandi.
Megin niðurstaða þessa
breska vígbúnaðarsérfræðings
er sú, að allar þær miklu hern-
aðarframkvæmdir, sem nú eiga
sér stað á íslandi, og sem enn
eru fyrirhugaðar í náinni
framtið á vegum bandaríska
hersins, þar með talin áform
um byggingar ratsjárstöðva á
Vestfjörðum og N-Austur-
landi, feli í sér stigmögnun
vígbúnaðar og spennu um-
hverfis ísland, og aukna þátt-
töku Islendinga í hernaðarneti
Bandaríkjanna.
Yfirlýsing
Wesley McDonalds
flotaforingja
Eitt aðal vitnið sem Malcon
Spaven leiðir fram í vitnastúk-
unni, er cnginn annar en sjálf-
ur yfirmaður AtlantshafsÁota
Bandaríkjanna, Wesley
McDonald.
I febrúars.l. lýsti þessi flota-
foringi því skilmerkilega yfir,
frammi fyrir hermálanefnd
öldungadeildar Bandaríkja-
þings, að bygging og uppsetning
ratsjárstöðva á Vestfjörðum
og N-Austurlandi, „hefði úr-
slitaþýðingu fyrir árangur sjó-
hernaðarstefnu Bandaríkj-
anna á Atlantshaií".
Þessi merka yfirlýsing, eins
helsta yfirmanns alls Atlants-
hafsflota Bandaríkjanna, þarf
ekki aö koma á óvart. Hins
vegar hlýtur hún að teljast afar
athyglisverð, einkum fyrir þá
aðila hérlendis, sem gerst hafa
miklir talsmenn þessara
stöðva, m.a. á þeirri forsendu,
að þærséuekki mikilvæghern-
aðarmannvirki, heldur miklu
frenrur eftirlits- og öryggis-
tæki, sem komi t.d. íslenskum
sjó- og loftförum að góðum
notum. Slíkum málatilbúnað
virðist hins vegar Wesley Mc-
Donalds flotaforingi vísa á
bug. Ratsjárstöðvarnar marg-
umtöluðu hafa að hans mati
þvert á móti úrslitaþýðingu í
nýrri sjóhernaðarstefnu
Bandaríkjanna á Atlantshafi.
Þær hljóta því skv. þcim úr-
skurði að teljast mjög nrikilvæg
hernaöarmannvirki. Allt tal
um annað getur þess vegna
ckki stafað af öðru en furöu-
legri fáfræði, eða vísvitandi
blekkingu.
Ný sjóhernaðarstefna
á Atlantshafi
En í hverju felst þessi nýja
sjóhernaðarstefna Bandaríkj-
anna á Atlantshafi. þar sem
ratsjárstöðvar á Vestfjörðum
og N-Austurlandi yrðu þessir
„lykilhlekkir"?
Þessi nýja stefna, sem geng-
ur undir nafninu NADS
(North Atlantic Defence
System) byggist skv. upplýs-
ingum Spavens á því, að sókn-
argeta bandaríska flotans er
stóraukin, með það að mark-
miði, að koma á stríðstímum í
veg fyrir, að sovéski flotinn fái
aðgang að opnu hafi frá Kóla-
skaganum, jafnhliða því sem
árásir verði gerðar á sovéskar
herstöðvar á Kólaskaganum
þegar í upphafi átaka.
Hlutverk og tilkoma
ratsjárstöðvanna
En hvert er þá raunverulegt
hlutverk þessara umdeildu rat-
sjárstöðva á Islandi, ef þær eru
ekki tilkomnar fyrst og fremst
til að þjóna vörnum Islands,
ásamt Áug- og skipaumferð
unrhverfis landið, eins og Geir
Hallgrímsson og hans „nótar"
halda fram að þær eigi að gera?
Skv. upplýsingum Spavens,
(og nú vitnar hann cnn í
McDonald ílotaforingja og
bandarískar þingskýrslur) þá
er tilkoma bygginga ratsjár-
stöðvanna aðallega orðin
vegna heildarendurskoðunar
og endurby ggingar á vígbúnað-
arkerfi Bandaríkjanna á N-
Atlantshafi. Þessi endurskoð-
un felst aðallega í því, að flytja
varnarlínuna, svokallað
„GIUK-hlið", sem áður gilti
milli Grænlands, íslands og
Bretlands, norður í Noregs-
haf, en þannig er ætlunin að
tryggja hernaðaryfirburði
Bandaríkjanna á þeim slóðum,
með mikilli sóknargetu á Kóla-
skagann í upphafi stríðsátaka.
Það er m.ö.o. af þessum
sökum, sem könnunarkerfi
bandaríska hersins er í mikilli
uppbyggingu um þessar
myndir, segir Malcon Spaven.
Endurbætur þær, á fjarskipta-
og könnunarkerfi' bandaríska
hersins á N-Atlantshafi, sem
nú standa yfir. þ.á.m. áformin
um byggingu nýrra ratsjár-
stöðva á Islandi, eiga sér því
megin forsendu í gjörbreyttri
vígbúnaðarstefnu, þar sem
horfið hefur verið frá hug-
myndinni um jafnvægi við
„GIUK-hliðið" að þeirri nýju
sjóhernaðarstefnu, sem áður
er getið, er aðal niðurstaða
þessa breska vígbúnaðarsér-
fræðings.
Fullyrðingar
utanríkisráðherra
hlægilegar
Fullyrðingar Geirs Hall-
grímssonar utanríkisráðherra
um að tilkoma ratsjárstöðv-
anna byggist fyrst og fremst á
varnarþörfum íslands, og ör-
yggi íslenskra sjó- og loftfara,
eru þess vegna hlægilegar.
Hjákátlegust er þó sú hug-
detta, að Póstur og sími á
íslandi skuli bera veg og vanda
þessara stöðva, og annast
reksturinn. Er það þá væntan-
lega haft í huga, að milda
ásjónuna, milda liinn raun-
verulega hernaðartilgang
stöðvanna, í augum okkar út-
kjálkamanna. Slíkur hjákát-
leiki er þó helst til þess fallinn,
að forheröa okkur enn frekar í
andstöðunni, og er hún þó
ærin fyrir. Afhjúpunin hefur
nefnilega þegar farið fram.
Til fjölgunar skotmarka
Athyglisverðust er þó sú
fullyrðing breska vígbúnaðar-
sérfræðingsins, Malcons
Spavens, að umræddar ratsjár-
stöðvar geri í dag nákvæmlega
ekkert umfram þaðsem núvcr-
andi tækjabúnaður gerir. Að
hér sé fyrst og fremst um að
ræða umframkönnunargetu,
sem gegni aðallega því hlut-
verki, að fjölga skotmörkunum
frá Sovétmönnum, og bæta
þannig stríðsgetu bandaríska
flotans. Af þeim sökum myndu
Sovétmenn líta á hinar nýju
ratsjárstöðvarsem stigmögnun
vígbúnaðar af okkar hálfu, og
svara mcð viðeigandi gagnráð-
stöfunum. Þarna má segja, að
við séum komin að þeirn
kjarna, sem allt þetta mál snýst
um, og er áhersluþungi þeirrar
bænaskrár, sem Vestfirðingar
sendu til ríkisstjórnar Islands
fyrir skömmu. í bænarskránni
stóð þetta m.a.:
„Samviska okkar... neyðir
okkur til að mótmæla fram-
komnum hugmyndunr um
byggingu ratsjárstöðvar á
Vestfjöröum, vegna þess m.a.
að við erum þeirrar skoðunar,
að þær auki á vígvæðingu þjóð-
anna, sem stefnir jarðarbyggð
í geigvænlega hættu. - Við
álítum að voðinn felist ekki
aðeins í beitingu vígbúnaðar-
ins, heldur ali tilvist hans jafn-
framt á tortryggni, ótta og
hatri og við óttumst að fjárfest-
ingar í umræddum stöðvum
hér á landi kalli á fjárfrekar
mótframkvæmdir annars
staðar. Slíka sjálfvirkni síauk-
ins vígbúnaðar ber að
stöðva..."
Grundvallarleg breyting
á hlutverki hersins
En áformin um byggingu
ratsjárstöðvanna á Vestfjörð-
um og N-Austurlandi, eru ekki
bara liður í heildarendurskoð-
un á vígbúnaði Bandaríkjanna
á Atlantshafi. Þær eru ekki
síður liður í grundvallarbreyt-
ingu á hlutverki bandaríska
hersins á íslandi.
Þvert á allar yfirlýsingar opin-
berra aðila hér á Iandi þess
efnis, að hlutverk hersins á
Miönesheiði sé fyrst og fremst
varnarlegs eðlis fyrir öryggi
(slands, þá er árásarhlutverk
hans í þágu öryggishagsmuna
Bandaríkjanna alltaf að koma
betur og betur í ljós. Þess
vegna eru ratsjárhugmyndirn-
ar nú enn ein ávísunin á stór-
aukinn árásarvígbúnað Banda-
ríkjanna á Islandi. Þær eru
beinlínis lokainnsiglið á stuð-
púðahlutverk íslendinga í
hugsanlegum stríðsátökum
stórveldanna á N-Atlantshafi.
Eða. eins og hinn virti banda-
ríski vígbúnaðarsérfræðingur,
William Arkin, orðaði það svo
skilmerkilega í blaðaviðtali á
dögunum. Hann sagði:
„Ratsjárstöðvarnar eru ekki
mikilvægar í sjálfu sér. Ef við
tengjum þær við önnur atriði
eins og staðsetningu KC-135
eldsneytisflutningavélanna í
Keflavík, (Þær eru undir yfir-
stjórn „Strategic Command"
sem er sú yfirstjórn Banda-
ríkjahers sem semur og stjórn-
ar kjarnorkuárásum á Sovét-
ríkin - innsk. GJK) staðsetn-
ingu AWACS-vélanna, endur-
nýjun orrustuflugflotans með
F-15 herþotum, óskir flotans
um að byggja neðanjarðar-
stjómstöð, ótta flotans unr eitur-
efnaárás á Keflavík, byggingu
bensínbirgðastöðvarinnar í
Helguvík, (sem m.a. á að
þjóna flugvélum til eldsneytis-
flutninga af gerðinni KC-135 -
innsk. GJK) óskir flotans urn
nýja flugbraut, vaxandi hern-
aðarumsvif á svæðinu, aukn-
ingu á flugi P-3 Orion vélanna
í Keflavík. ef við tengjum alla
þessa hluti saman og reynum
að gera okkur heildarmynd,
þá eru ratsjárstöðvarnar ekki
bara aukaatriði, þær eru líka
hluti af þessari heildarmynd."
(leturbr. GJK)
Og ennfremur segir William
Arkin:
„En það verður aldrei til
þess ætlast af okkur að búa til
þessa heildarmynd. Okkur er
ætlað að kyngja einum bita í
einu. (Sbr. ratsjárstöðvarnar
nú - innsk. GJK) Við verðum
aldrei matreidd á slíkri heildar-
mynd. hvorki hér eða annars
staðar í heiminum þar sem
hernaðaráform eru í gangi.
Þess vegna kemur það í okkar
hlut, að raða saman bitunum
og búa til þessa heildarmynd".
- Kjarnorkuvopn
á íslandi -
„Varnarsamningurinn“
þverbrotinn
Eins og alþjóð er kunnugt,
var hinn bandaríski vígbúnað-
arsérfræðingur, William
Arkin, á ferð hér á landi fyrir
skönrmu, og hélt m.a. fyrirlest-
ur við Háskóla íslands um
vígbúnaðarmál. Arkin er einn
af virtustu fræðimönnum á
sviði vígbúnaðar- og kjarn-
okrumála í heimalandi sínu,
þótt málgagn Pentagons á Is-
landi, Morgunblaðið, hafi ekki
linnt háðsyrðum sínum og
skætingi gagnvart honum, eftir
að hann hefur nú endanlega
dregið leyndarhjúpinn frá
hinni raunverulegu starfsemi
og eðli bandarísku herstöðvar-
innar í Keflavík. Geta má þess
í þessu sambandi, að William
Arkin er ritstjóri heimildarrits
um kjarnorkuvopn sem aðal-
öryggismálaráðgjafi tveggja
forseta í Bandaríkjunum.
Kennedys og Johnsons, telur
besta verk á þessu sviði.
Sem kunnugt er, hefur Will-
iam Arkin sýnt forsætisráð-
herra og utanríkisráðherra
skjal sem á að sanna, að forseti
Bandaríkjanna hafi á formleg-
an hátt staðfest áætlun um, að
flytja megi kjarnorkuvopn til
íslands á stríðstímum. Áætlun
þessi gengur þvert á megin-
stefnu Islendinga í öryggis- og
varnarmálum. sem grundvall-
ast á því, að á íslandi skuli ekki
geymd kjarnorkuvopn, hvorki
á friðar- né stríðstímum. Áætl-
un þessi gengur líka þvert gegn
ákvæðum í svokölluðum varn-
arsanrningi íslands og Banda-
ríkjanna, þess efnis, að íslend-
ingar áskilji sér allan rétt til að
ákveða með hvaða hætti að-
staðan á Islandi sé hagnýtt,
þ.á.m. hvort hér verði staðsett
kjarnorkuvopn eða ekki.
Sem betur fer fór tók Stein-
grínrur Hermannsson forsæt-
isráðherra frumkvæðið af Geir
Hallgrímssyni íþessu stórmáli,
og lýsti því strax yfir, að hann
myndi krefjast þess, að Banda-
ríkjastjórn gæfi ýtarlegar
skýringar. Þegar þetta er
skrifað, liafa engar skýringar
borist.
Tímabært að staldra við
Það hlýtur því að vera rök-
rétt að álykta sem svo, að
þessar alvarlegu uppljóstranir
Williams Arkins, marki tíma-
nrót í allri umræðu og afstöðu
manna hér á landi til veru
bandaríska hersins á íslandi.
Að sjálfsögðu verður sú al-
menna hugarfarsbreyting háð
því, að upplýsingar Arkins eigi
sér stoð, og að ekki komi fram
trúverðuguar skýringar frá
Bandaríkjastjórn, sem undir-
striki hið gagnstæða. En komi
þær skýringar fram, þá mega
þær svo sannariega vera ýtar-
legar og trúverðugar, eins og
málum er nú háttað. Það þarf
nefnilega mikið til að slökkva
það bál tortryggni. sem nú
hefur verið kveikt.
Það er þess vegna orðið
tímabært, að íslensk stjórn-
völd staldri nú við, og taki til
alvarlegrar endurskoðunar öll
hcrnaðarumsvif Bandaríkja-
manna á íslandi. Fyrsta skrefið
í þá veru væri að stöðva allar
nýjar hernaðarframkvæmdir,
s.s. í Helguvík, og leggja allar
hugmyndir um ratsjárstöðvar
á hilluna.
Úrslitavaldið er í höndum
Framsóknarfiokksins
Hugmyndirnar um byggingu
ratsjárstöðva á Vestfjörðum
og N-Austurlandi, hafa víða
mætt mikilli andstöðu, sérstak-
lega í þeim landshlutum, þar
sern rætt er um að staðsetja
fyrirhugaðar ratsjárstöðvar.
Þannig hefur andstaðan á
Vestfjörðum verið mikil. og
fer dagvaxandi, eftir því sem
mál skýrast.
Á kjördæmisþingi fram-
sóknarmanna á Vestfjörðum á
s.l. hausti koniu þessi mál til
umfjöllunar. Á þinginu var
borin fram tillaga af 12 þing-
fulltrúum, þar sem minnt var á
flokkssamþykktir framsókn-
armanna um takmörkun hern-
aðarumsvifa á Islandi, og lýst
yfir andstöðu við byggingu rat-
sjárstöðva á Vestfjörðum og
N-Austurlandi. í tillögunni var
jafnframt skorað á þingmenn
Framsóknarflokksins að
standa fast gegn öllum slíkum
áformum. Því miður komst
tillaga þessi ekki undir at-
kvæðagreiöslu, vegna atvika,
sem ekki verða tíunduð hér,
enda kunn þeim sem með
fylgdust. í mótmælaskyni við
þau málalok, gengu tveir fulltrú-
ar af fundi. Einn þeirra var
undirritaður.
Ljóst er, að mikil andstaða
er meðal framsóknarmanna á
Vestfjörðum gegn áformunum
um byggingu ratsjárstöðvar
fyrir bandaríska herinn. Það
væri hörmulegt pólitískt slys,
ef EKKERT tillit verði tekið
til þeirrar réttmætu andstöðu.
Þessi nrikla andstaða er þó
aðeins spegilmynd af þeirri
víðtæku andstöðu meðal fólks
úr öllum flokkum. sem nú er
að finna hvarvetna á Vest-
fjörðunr.
Það fer ekki á milli nrála, að
úrslitavaldið í máli þessu, er í
höndum forystu Framsóknar-
flokksins, því flokkurinn hefur
forystuhlutverki að gegna í
núverandi ríkisstjórn, og sjálf-
ur forsætisráðherrann, Stein-
grímur Hermannsson, er þing-
maður annars þess kjördæmis
sem Geir Hallgrímsson og
hans lið í Washington áfornrar
nú að fórna undir ratsjárstöð.
Á það ber einnig að líta, að
við, sem enn lítum á Fram-
sóknarflokkinn sem þjóðlegan
félagshyggjuflokk, ætlumst
auðvitað til þess, að hann sé
ávallt þeirri pólitískri skil-
greiningu trúr. einmitt þegar
upp koma mál af því tagi, sem
hér hefur lítillega verið fjallað
um.
Hljóta að hugsa
málið til enda
Ratsjárstöðvarnar margum-
töluðu eru óumdeilanlega mikil-
væg hernaðarmannvirki í nýrri
sjóhernaðarstefnu Bandaríkj-
anna á Atlantshafi, sbr. yfirlýs-
ingu Wesleys McDonalds
flotaforingja. Þær þurfa því
ekki lengur vitnanna við.
Fjölgun þeirra nú. getur því
ekki kallast annað en aukin
hernaðarumsvif. Aukin hern-
aðarumsvif bandaríska hersins
á íslandi eru hins vegar í
mikilli þversögn við llokks-
samþykktir okkar framsókn-
armanna. Því hljóta þeir
menn, sem enn eru ákveðnir í
því að ganga veg aukinna hern-
aðarumsvifa, undir leiðsögn
Geirs og Pentagons, að hafa
hugsað málið til enda. Það ætti
því ekki að koma þeim á óvart,
þótt andstaða Vestfirðinga sé
meiri en þeir ætla.
Flateyri 12. des. 1984
Guðmundur Jónas Kristjánssun
Radarstöðin á Ileiðarfjalli, Langanesi.