NT - 04.01.1985, Page 3
■ Eigandi bifreiðar, sem flutt var inn
notuð frá Þýskalandi árið 1976, hefur
verið dæmdur til þess í Hæstarétti að
greiða tollstjóranum í Reykjavík, 7227
krónur með vöxtum frá 1976, en það eru
eftirstöðvar af upphæð sem eigandi bílsins
komst hjá að greiða vegna þess að við
innflutning bifreiðarinnar voru lagðir fram
falsaðir reikningar fyrir innkaupsverði
hennar.
Mál þetta er angi af mun stærra máli
sem Hæstiréttur dæmdi í snemma á síðasta
ári. Árið 1977 komst upp um mann sem
flutti inn notaða bíla frá Þýskalandi og
falsaði hann innflutningsskjöl vegna þeirra
þannig að þeir virtust vera eldri en þeir í
raun og veru voru.
Innflytjandinn var dæmdur í 9 mánaða
fangelsisvist í Hæstarétti í vor og bifreiða-
eftirlitsmaður, sem skráði ranglega upp-
lýsingar um bifreiðar í spjaldskrá og
skráningarskírteini í greiðaskyni við inn-
flytjandann, var dæmdur til fjögurra mán-
aða fangelsisvistar.
Alls þótti sannað að innflytjandinn
hefði falsað innflutningsskjöl vegna 52
notaðra bifreiða og var bifreiðin, sem um
ræðir í dómi Hæstaréttar nú, ein þeirra.
Innflytjandinn keypti þessa bifreið í um-
boði eigandans og telur Hæstiréttur því að
eigandinn beri ábyrgð á ógreiddum að-
flutningsgjöldum.
værí spor í rétta átt f
Hjá okkur lærirðu
'samkvæmisdansana, gömlu dansana,
Break, Rokk o. fl. o.fl. Auk þess lærir
yngsta fólkid aó dansa hjá okkur.
Sparaóu ekki sporín. Skelltu þér í dans.
Fjölskylduafsláttur. Systkinaafsláttur
DANSSKOU
SIGURDAR HÁKONARSONAR SÍMI:46776 MÐBREKKU17.
með bifreið
FID Félag islenskra danskennara
sjómanna-
ur fram að 17 ný skip, samtals
6269 brúttó rúmlestir voru skrá-
sett á árinu en 15 tekin af skrá,
5797 rúmlestir. 941 skip voru í
eigu íslendinga 1. desember síð-
astliðinn, 194.275 brúttó rúm-
lestir að stærð.
Sjómannaalmanak Fiskifé-
iagsins kom fyrst út 1925 en
áður hafði Stjórnarráðið í sam-
vinnu við varðskipsforingja gef-
ið út almanak handa íslenskum
fiskimönnum um 11 ára skeið.
Halldór Einarsson í Henson
léttur í máli.
Hann kvaðst væntanlega aug-
lýsa eftir fyrstu starfsmönnunum
nú einhverntíma á næstu dögum
og stefna að því að verksmiðjan
fari í gang um miðjan febrúar.
Til að byrja með reiknar hann
með að ráða um 20 manns.
Vant fólk fáist sjaldan og því
bctra að vera ekki með of
marga til að þjálfa upp í einu.
Seinna gæti fjöldi starfsmanna
farið allt upp í 40-50 manns ef allt
gangi að ósicum.
En af hverju byggir Halldór á
Akranesi en ekki á höfuðborg-
arsvæðinu? „Ég hef góða
reynslu af þeirri starfsemi sem
ég er með á Selfossi. Fjölbreytn-
in í atvinulífinu á þessum smærri
stöðum er mun minni. sem gerir
auðveldara að fá starfsfólk,
sem jafnframt er stöðugri vinnu-
kraftur. Hér á höfuðborgar-
svæðinu eru þessi hrikalegu op-
inberu bákn og bankar sem
soga til sín slíkan fjölda, að
minna framboð er af konum til
starfa í iðnaði en þyrfti að
vera“, sagði Halldór.
Varðandi framleiðsluna kvað
Halldór þessa nýju verksmiðju
gefa tækifæri til að framkvæma
ýmsa hluti sem svigrúm hafi
vantaðtil framaðþessu. Pettasé
því tilhlökkunarefni.
Sextugasta
almanakið
■ íslenskt sjómannaalmanak
1985 kom út rétt fyrir áramótin,
en þetta er í sextugasta skipti
sem Fiskifélag íslands stendur
að útgáfu þessari. Að vanda er
efni almanaksins fjölbreytt og
má þar nefna upplýsingar um
öryggismál, skipaskrár, lög og
reglugerðir um veiðar og
vinnslu, flóðtöflur, vitaskrár og
reglur um meðferð íslenska
fánans.
í skipaskrá almanaksins kem-
Helgi og
Margeir
ka þátt
■ Prír íslendingar, Helgi
Ólafsson, Margeir Pétursson og
Jóhann Hjartarson tefla á
svæðamóti sem hefst í Gauksdal
í Noregi á sunnudaginn. Efsti
maður mótsins kemst áfram á
svæðamót, en sá sern verður
númer tvö teflir um það við
þann skákmann sem verður
númcr tvö á svæðamóti þjóða
úr Evrópu og ísrael.
Þekktasti keppandinn á mót-
inu í Gauksdal er án efa Daninn
Bent Larsen, en annar þekktur
Dani veröur einnig meðal þátt-
takenda, heimsmeistari ung-
linga, Curt Hansen. Frá Svíþjóð
koma þeir Lars Karlsson og
Tom Wedberg, frá Finnlandi
Jouni Yrjölá og Heikki Wcster-
inen og frá Noregi Simen Agde-
stein, Knut Helntcrs og Ole
Moen.
■ Jóhann Hjartarson
Eftirhreytur stórs bílasvikamáls í Hæstarétti:
Dæmdur til að greiða
átta ára gamla skuld
- vegna falsaðra innflutningsskjala
Jólatrén
máluð græn
■ Barrheldnari jólatré og fall-
egri á litin er tilgangurinn með
tilraun sem Ágúst Árnason,
skógarvörður í Hvammi í
Skorradal hefur gert í smáum
stíl þessi jól og þau síðustu, að
amerískri fyrirmynd. Trén eru
sprautuð með plastefni með
grænum lit - nokkurskonar
málningu. En sérstaklega í
köldum árum sagði Ágúst það
vera töluvert vandamál hve
rauðgrenitré vilji gulna og fölna
þegar liður á haustið og fram
undir jól og verða þá ekki
útgengileg.
Ágúst telur ekki að trén verði
neitt óeðlileg við meðferðina,
enda hafi fólk tekið þessu vel.
Enn sé þetta í mjög smáum stíl,
en nú er hann að afla sér tækja
og reiknar með að komast veru-
lega í gang fyrir næstu jól. Þess
má geta að það var Ágúst sem
byrjaði fyrir um áratug að selja
stafafuru sem jólatré, sem
Ný verksmiðja opnuð
á Skaga í febrúar
■ Ánægja ríkir nú meðal
manna á Akranesi að sjá þar
hylla undir að nýtt iðnfyrirtæki
taki til starfa fljótlega upp úr
áramótunum - fataverksmiðju
Hensons. Ekki dást menn
minna að framgangi við fram-
kvæmdir, þar sem byrjað var á
byggingu hins nýja 800 fermetra
verksmiðjuhúss seinnipartinn á
þessu ári.
„Já, þetta hefur gengið alveg
sérdeilis vel - enda góðir menn
sem standa að þessari byggingu.
Þetta kemur líka á góðum tíma
fyrir Skagamenn því þeir eru að
byrja ákveðið átak til að laða til
sín fyrirtæki. Auglýsingaher-
ferðin hjá þeim kom í kjölfarið
á startinu hjá okkur og því
skemmtilegt hjá þeim að geta
bent á að einhver hafi riðið á
vaðið og sé mættur á staðinn
með sitt fyrirtæki. Vonandi
senda þeir bara ekki allt of
marga að skoða, þannig að
maður hafi vinnufrið", sagði
mörgum leist nú ekki meira en
svo á í fyrstu, en nú er furan
orðin svo eftirsótt að ekki tekst
að anna eftirspurn eftir henni
fyrir jólatrjáamarkaðinn.
Bílafokin malbik-
inu að kenna?
■ Að áliti lögreglunnar í
Borgarnesi er það malbikinu að
kenna hve rnikið hefur verið um
fok á bílum í Borgarfirði -
sérstaklega undir Hafnarfjalli -
nú síðustu ár. Á „gamla góða“
malarveginum hafi þetta aðeins
komið fyrir endrum og eins.
Vitað er um a.m.k. 7 bíla sem
fuku út af veginum undir Hafn-
arfjalli nú um áramótahelgina -
flestir á leið úr Borgarfirði til
Reykjavíkur. Flestir eru bílarn-
ir mikið skemmdir og sumir
jafnvel ónýtir, en alvarleg slys
urðu ekki á fólki því sem í þeim
voru. Metið varð þó dag einn
snemma í desember þegar lög-
reglan vissi um 7 bíla sem fuku
út af á einum sólarhring.
Útgerðarmenn:
Skilið
skýrslum
■ Fyrir 15. janúar ber öllum
hlutaðeigandi að skila endan-
legum aflaskýrslum fyrir árið
1984 segir í fréttatilkynningu
frá sjávarútvegsráðuneyti. Pá
á tilkynningum varðandi allar
kvótatilfærslur á árinu að vera
endanlega lokið fyrir 7. janúar.