NT - 04.01.1985, Síða 1
■*^*V
Föstudagur 4. janúar 1985 - 2. tbl. 69. árg.
Gamli miðbærinn í Reykjavík:
Engin aðstaða til
að skipta á börnum
■ Eins og nú er háttað er
hvergi aðstaða fyrir fólk til að
skipta á ungbörnum í miðbæ
Reykjavíkur nema á kvenna-
náðhúsunum í Bankastræti. Sú
aðstaða er hins vegar með þeim
hætti að heilbrigðisyfirvöld vilja
ekki auglýsa hana, hún væri
aðeins til að bæta úr í neyðartil-
vikum.
Þetta kom fram í svari borgar-
stjóra, Davíðs Oddssonar, í svari
við fyrirspurn borgarfulltrúa
Kvennaframboðs á borgarstjórn-
arfundi í gær. Borgarstjóri sagði
að menn litu til skipulags Kvos-
arinnar um lausn.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
lagði til að aðstaða yrði leigð til
þessara nota í einhverju verslun-
arhúsnæði, en af því væri nóg í
gamla miðbænum og í grennd
við hann. Hún sagði ástæðulaust
að bíða árum saman eftir lausn
á svo einföldu vandamáli, sem
þó varðaði svo marga. Davíð
Oddsson sagði að e.t.v. mætti
hugsa sér þá lausn til bráða-
birgða ef húsnæði fengist, ef
ekki væri leitast við að leysa
málið um leið og hreinlætismál í
miðbænum í heild, m.a.með tilliti
til hreyfihamlaðra og aldraðra.
Siglufjörður gerir samning við danskt fyrirtæki:
Kannar möguleika á stof n-
un lítilla iðnfyrirtækja
Kostnaðurviðfyrstaáfangaum200 þús. kr
■ Siglufjarðarkaupstaður hef-
ur nýverið undirritað samstarfs-
samning við danska fyrirtækið
Scankey A/S um könnun nýrra
möguleika í iðnaði.
Samkomulagið gerir ráð fyrir
að danska fyrirtækið kanni
hvaða möguleikar eru á stofnun
lítilla iðnfyrirtækja, með 5-10
starfsmönnum, á Siglufirði og
hefur það 3-6 mánuði til að
vinna að tillögugerðinni.
Kostnaðurinn vegna þessarar
könnunar fyrir bæjarsjóð Siglu-
fjarðar er um 200 þúsund kr.
Ekki eru uppi hugmyndir um að
bæjarfélagið fari út í neinar
meiriháttar fjárfestingar. Verð-
ur einstaklingum á Siglufirði
boðið að nýta sér þær hugmynd-
ir sem gætu komið út úr þessari
könnun.
Ef niðurstöður könnunarinn-
ar verða jákvæðar og einhverjir
fást til að leggja út í þessi
verkefni, 2-3 eftir atvikum,
verður tekið til við frekari verk-
efnakönnun. Gerð verður
markaðslýsing, söluáætlun og
rekstraráætlun, svo eitthvað sé
nefnt.
Að sögn Óttars Proppé,
bæjarstjóra á Siglufirði kom
danska fyrirtækið inn í myndina
gegnum iðnráðgjafa Fjóðrungs-
sambands Norðurlands, og taldi
hann að eitthvað ætti að geta
skilað sér út úr þessari könnun,
„því þetta virðast vera menn
meðfæturna á jörðinni?einsog
hann orðaði það. Danska fyrir-
tækið Scankey A/S hefur verið
með fleiri verkefni í gangi hér á
landi á undanförnum árum. Til
tals kom að það ynni svipaða
könnun fyrir Húsavíkurkaup-
stað, en ekkert varð úr því
verkefni.
Sér Bjössi á mjólkurbílnum um skólakstur í dag á Suðurlandi?
Krakkarnir bíða
á brúsapallinum
- en óvíst er hvort skólabílarnir láta sjá sig
■ Nú í morgun biðu fjöl-
brautaskólanemar í Selfoss-
skólanum sem búsettir eru á
Stokkseyri og Eyrarbakka að
líkindum við brúsapallinn án
þess að fá nokkurn akstur með
skólabílum. Þegarþetta erskrif-
að í gærkvöldi hafði enn ekki
fengist lausn á þessu máli.
Sérleyfisbílar Selfoss hafa
haft með þennan akstur að gera.
En um leið og skólanefnd sagði
þeim upp öðrum skólaakstri þar
sem nemedur hafa ekki viljað
þiggja þjónustu Selfossbíla þá
Ííta forsvarsmenn sérleyfisins
svo á að allir samningar þeirra
við skólann séu lausir. Skóli
hófst í dag eftir jólafrí.
„Við lítum svo á að þegar
okkur er sagt upp skólaakstri
sem við höfðum samkvæmt út-
boði þá eigi það við allan akstur-
inn,“ sagði Þórir Jónsson for-
svarsmaður sérleyfisins í samtali
við NT í gær. Þegar NT náði tali
af Hirti Þórarinssyni formanni
skólanefndar í gærkvöldi þá
sagði hann að í gær hefðu þeir
komið á framfæri við sérleyfið
þeirri einlægu ósk að þeir héldu
áfram akstri á Stokkseyri og
Eyrarbakka. Beðið var svars
við þeirri beiðni í gærkvöld.
Ástæða þess að Sérleyfisbíl-
um Selfoss var sagt upp akstri
nú á áramótum er að fáir og nær
engir nemendur vildu nýta sér
þjónustu þeirra heldur fóru með
öðrum rútum en Selfossbílarnir
óku tómir á sömu leiðum. Þetta
átti þó ekki við um akstur frá
Stokkseyri og Eyrarbakka.
Rússar hafa aldrei
átt frumkvæði að
vígbúnaðarkapphlaupi
- segir E. A. Kosarev, sendiherra Sovétríkj-
anna í viðtali við NT. Sjá bls. 20
Atvinnuástand á Siglufirði er I Óttars Proppé. 40-60 manns
að glæðast á ný, eftir lægð að hafa verið á atvinnuleysisskrá á
undanförnu og munar þar mest Siglufirði sl. 1 'A mánuð en þeir
um að Sigló-verksmiðjurnar eru munu flest allir fá atvinnu hjá
aftur að komast í gagnið, að sögn | Sigló hf.
Borgin
greiði
55 millj.
meðSVR
■ Fjárhagsáætlun SVR
fyrir 1985 hefur verið send
borgarstjórn til afgreiðslu.
Aætlunin hljóðar upp á
um 243 milljónir króna,
en reiknað er með að far-
gjaldatekjur verði 185
milljónir króna, aðrar
tekjur um 3 milljónir og
framlag borgarsjóðs það
sem á vantar eða um 55
milljónir króna.
Á hverju ári ferðast um
10 milljónir farþega með
vögnum SVR.
Nýr forseti
borgarstjórnar
■ Páll Gíslason læknir var
kjörinn forseti borgarstjórn-
ar Reykjavíkur á borgar-
stjórnarfundi í gærkvöldi
með 11 samhljóða atkvæð-
um. 9 fulltrúar minnihlutans
sátu hjá.
Magnús L. Sveinsson var
kjörinn fyrsti varaforseti og
Katrín Fjeldsted annar vara-
forseti nteð söntu atkvæða-
tölu. Einn fulltrúi meirihlut-
ans var fjarverandi er at-
kvæðagreiðslan fór fram.
Lengstu
nærbuxur
í heimi?
■ Eru jietta léngstu nær-
buxur í heimi? Ekki er
enn Ijóst hvort heims-
metabók Guinnes viður-
kennir þaö en Hildibrand-
arnir í Vestmannaeyjum
ætla sér að reyna að kom-
ast á spjöld þeirrar mcrku
bókar út á þessa virðulegu
tlík sem formaður félags-
ins, Ásbjörn Garðarsson,
íklæddist á 5 ára afntælis-
balli Hildibrandafclagsins
í Vestmannaeyjum í jóla-
fríinu.
Við sama tækifæri var
afhjúpuð stytta af „Hóla-
götufrúnni", þeirri sem
kærði nokkra meðlimi fé-
lagsins fyrir að sýna á sér
óæðri endann fyrir ári, og
Hæstiréttur fjallaði urn á
dögunum. NTAymlIng.i.