Morgunblaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 50
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 49 FÓLK  HOLLENSKI knattspyrnumaður- inn Marc Overmars hjá Barcelona segir að hann hafi ekki hug á því að fara á ný til Englands á næstunni til að leika þar. Overmars, sem Arsen- al seldi til Barcelona, hefur verið orðaður við Liverpool og Manchest- er United. „Ég er ánægður hjá Barcelona og vil vera áfram hjá lið- inu.“  KELD Bordinggaard, aðstoðar- maður Morten Olsens, landsliðs- þjálfara Dana, er farinn til Rúmeníu til að kynna sér aðstæður og skoða keppnisvöllinn í Búkarest, þar sem Danir mæta Rúmenum 29. mars. Leikurinn er afar þýðingarmikill fyrir Dani, sem hafa hug á að komast í lokakeppni EM í Portúgal.  ÞAR sem Danir vilja ekki lenda upp á kant við Rúmena fyrir leikinn, ætlar Bordinggaard ekki að tjá sig um völlinn opinberlega fyrir leikinn, en mun koma ábendingum til réttra aðila, ef völlurinn í Búkarest er ekki boðlegur.  MORTEN Olsen, landsliðsþjálfari Dana, sagði fyrr í vetur að völlurinn í Búkarest væri líkari kartöflugarði en knattspyrnuvelli og vildi láta Bordinggaard kanna völlinn betur.  MICHAEL Owen framherji Liver- pool getur í kvöld sett met takist honum að skora á móti Celtic í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum UEFA- keppninnar. Owen hefur skorað 20 mörk fyrir Liverpool í Evrópu- keppninni, jafnmörg og Ian Rush, og hefur engum leikmanni Liverpool tekist að skora fleiri mörk fyrir fé- lagið í Evrópukeppni.  GRAEME Souness knattspyrnu- stjóri Blackburn og Andy Cole framherji liðsins hafa náð sáttum en heiftarlegt rifrildi þeirra á milli á æf- ingu Blackburn-liðsins á föstudag- inn varð til þess að Souness valdi Cole ekki í leikmannahópinn fyrir leikinn á móti Arsenal á laugardag- inn. Þeir félagar hittust á fundi í gær og hreinsuðu andrúmsloftið og þar með kemur Cole inn í liðið sem mæt- ir Newcastle um helgina.  FJÁRHAGUR þýska handknatt- leiksliðsins Eisenach er afar bágur um þessar mundir og svo kann að fara að það verði gjaldþrota áskotn- ist því ekki peningar sem fyrst. Eis- enach skuldar um 24 millj. króna auk þess sem stuðningsaðilar þess hafa hlaupið undan merkjum. Liðið er einnig nærri fallsvæðinu í 1. deild- inni og ljóst að takist að bjarga fjár- hagnum fyrir horn þá bíða þess erf- iðir tímar því tveir sterkir leikmenn yfirgefa það í vor, Norðmaðurinn Johnny Jensen fer til Flensborgar og Stephan Just til Grosswallstadt. Miðað við stöðuna þykir sýnt að ekki komi jafnsterkir menn í þeirra stað. Þess má geta að Julian Róbert Duranona lék með Eisenach í nokk- ur ár undir lok síðustu aldar. VALUR tryggði sér í gær Reykjavíkurmeistaratilinn í meistaraflokki kvenna í knattspyrnu. Valur og Breiðablik áttust við í loka- leiknum í Fífunni í Kópavogi í gær og skildu liðin jöfn, 1:1. Stigið nægði Valskonum til að hampa titilinum. Þær hlutu 10 stig, einu meira en Íslandsmeistarar KR. Breiðablik komst yfir í leiknum með marki Hjördís- ar Þorsteinsdóttur en Rut Bjarnadóttir jafnaði metin fyrir Hlíðarendaliðið og þar við sat. Selfoss er með ungt og efnilegtlið. Við vorum kannski sjálfum okkur verstir framan af leik, vor- um í „ströggli“ til að byrja með en eft- ir 15 mínútna leik tókum við okkur á og kláruðum þetta eins og menn. Við vorum ekki al- veg rétt innstilltir í byrjun, en slíkt vill gerast,“ sagði Ágúst Jóhanns- son, þjálfari Gróttu/KR eftir leik. Grótta/KR á eftir tvo erfiða leiki við Þór á útivelli og FH á heima- velli. „Það er fínt að vera komnir í 5. sætið og því ætlum við að halda, en til þess þurfum við að vinna bæði Þór og FH. Það verður erfitt verkefni, það er á hreinu. En ég var feginn að ná þessum tveimur stigum í kvöld. sSelfyssingar byrja á að taka Alexanders Petersons úr umferð og gaf það góða raun þar sem Selfyssingar leiða. Grótta/KR skoraði sín fyrstu þrjú mörk úr vít- um en síðan þegar leið á hálfleik- inn, tóku gestirnir á sig rögg og þreytan fór að síga á fáa leikmenn Selfyssinga. Í hálfleik var staðan 12:19. Gestirnir mættu grimmir til leiks í upphafi seinni hálfleiks, og skoruðu þeir 12 mörk á móti 1 marki heimamanna fyrstu 20 mín- úturnar. Eftir það slökuðu Gróttu- menn á og hvíldu lykilleikmennina. Selfyssingar löguðu stöðuna aðeins síðustu mínúturnar. Hjá heimamönnum var Ívar Grétarsson þeirra besti maður og stjórnaði hann leik Selfyssinga ágætlega á miðjunni og mátti oft á tíðum sjá fallegar sóknir í fyrri hálfleik. Hjá Gróttu/KR voru það Páll Þórólfsson og Petersons sem stóðu sig einna best, en þrátt fyrir að vera tekinn úr umferð var Pet- ersons síógnandi fyrir utan. Sverr- ir Pálmason skoraði grimmt fyrir Gróttu, en hann var með 9 mörk í gærkvöldi. „Ég er mjög ánægður með fyrri hálfleikinn hjá okkur, við vorum að fá „slúttin“ úr hornunum og það var það sem við þurftum. Í seinni hálfleik datt síðan botninn úr þessu hjá okkur. Þeir tóku Ramúnas út og við lendum í sömu vandræðum og í allan vetur. Markvarslan var ekki eins og hún á að vera og þeg- ar þetta allt spilar saman er út- koman þessi. Þá eru einnig búin að vera mikil veikindi hjá okkur, en það er kannski engin afsökun. Við eigum eftir ÍBV úti og HK heima, við stefnum auðvitað að sigri úti í Eyjum,“ sagði Ívar Grétarsson, besti maður Selfyssinga í gær- kvöldi. Selfoss engin hindrun GRÓTTA/KR skaust upp í 5. sæti Esso-deildarinnar í handknattleik, eftir stórsigur á Selfyssingum í gærkvöldi, 36:19. Selfyssingar áttu þó í fullu tré við Gróttu/KR fyrstu 15 mínútur leiksins sem heima- menn leiddu, en Selfoss skoraði fyrstu tvö mörk leiksins. Hins veg- ar var aldrei spurning hver færi með sigur af hólmi í seinni hálfleik, en þá skoruðu Gróttumenn 17 mörk á móti 7 mörkum Selfyssinga, þar af skoruðu gestirnir 12 mörk á móti 1 marki heimamanna fyrstu 15 mínútur seinni hálfleiks. Helgi Valberg skrifar Ljóst að Þorbergur Aðalsteins-son, sem tók við FH, á dög- unum hefur náð að rífa upp sjálfs- traust leikmanna FH. Hefur þeirunn- ið fjóra af þeim fimm leikjum sem hann hefur stýrt þeimí. Mikið var í húfi fyrir heima- menn FH í gær og þeir virtust gera sér vel grein fyrir því. Drifnir áfram af baráttujaxlinum Hálfdáni Þórð- arsyni sýndu þeir strax að eingöngu sigur kæmi til greina. Engu að síð- ur voru Mosfellingar sprækir í byrj- un og komust í 4:3 eftir að Reynir Þór Reynisson í marki þeirra varði tvö vítaskot. Menn voru sókndjarfir þó að mörkin væru ekki mörg því markverðir beggja liða stóðu sig vel á milli stanganna. Um miðjan hálf- leik misstu gestirnir einbeitinguna í nokkrar mínútur og Hafnfirðingar gengu strax á lagið og náðu mest fimm marka forystu þegar Logi Geirsson skoraði átta af 10 síðustu síðustu mörkunum fyrir hlé. Hafnfirðingar byrjuðu síðari hálf- leikinn af krafti og náðu aftur fimm marka forystu en slökuðu síðan full- mikið á klónni og þó að nokkuð væri dregið úr baráttuþreki gestanna tókst þeim saxa á forskotið niður í tvö mörk, 23:21, rétt eftir miðjan hálfleik. Það var nóg til að FH-ing- ar skerptu duglega á baráttunni og leiðir skildu. „Við tókum þetta með hörkuvörn, sérstaklega í síðari hálfleik en sjálfstraustið hjá okkur er á réttu róli og þegar við náum svona vörn getum við mjög mikið,“ sagði Magn- ús markvörður sem átti stórleik í markinu með 24 skot varin. „Ég hugsa ekkert um úrslitakeppnina ennþá, það er allt önnur keppni og við tökum einn leik fyrir í einu. Við erum enn ekki öruggir þangað og verðum að halda áfram en þetta er allt á réttri leið þó að ýmislegt megi bæta. Leikir okkar voru köflóttir í vetur og margir góðir en nú er sjálfstraustið komið, menn eru farn- ir að þora að taka almennilega á þessu og fórna sér í leikinn.“ Magn- ús, Hálfdán og Logi voru lang- atkvæðamestir hjá FH. „Við erum í erfiðri og leiðinlegri stöðu þegar við höfum að engu að keppa nema stríða hinum liðunum,“ sagði Daði Hafþórsson, sem skoraði fjögur mörk fyrir Mosfellinga. „Þá er erfitt að koma réttum baráttu- anda í leikmenn og okkur vantaði einbeitinguna eins og svo oft í vetur en við leyfum öllum að spila og reynum að hafa gaman af þessu. Við förum samt í alla leiki til að gera okkar besta þar til yfir lýkur.“ Hjá Aftureldingu byrjaði Reynir Þór vel en missti taktinn. Daði stóð fyrir sínu einsog Sverrir Björnsson en tveir ungir piltar, Hrafn Ingvarsson og Einar Ingi Hrafnsson, áttu góða spretti. FH tók áttunda sætið af Fram SJÁLFSTRAUSTIÐ var sannarlega í lagi hjá FH-ingum þegar þeir fengu Aftureldingu í heimsókn í Kaplakrika í gærkvöldi og þá var ekki að sökum að spyrja. Mosfellingar, sem eiga ekki möguleika á að komast í úrslitakeppnina, náðu þó að hanga í Hafnfirðingum fram í síðari hálfleik en þá skildu leiðir endanlega. FH-ingar unnu 31:23 og skutust upp fyrir Fram í 8. sæti deildarinnar en ef þeir bjóða uppá svipaða baráttu aftur er ljóst að möguleikar þeirra á að halda því mikilvæga sæti eru miklir. Síðustu tveir leikirnir munu skilja milli feigs og ófeigs en auk FH berjast Grótta/KR, HK, Þór frá Akureyri og Fram einnig um fjögur laus sæti í deildinni – eitt situr eftir. Stefán Stefánsson skrifar Valur Reykja- víkur- meistari FYLKIR hyggst vekja karladeild félagsins í handknattleik til lífs á nýjan leik og ætla Árbæingar að senda lið til keppni á næsta tíma- bili. Þessa dagana eru forráðamenn Fylkisliðsins að þreifa fyrir sér á leikmannamarkaðnum og safna liði og eins stendur yfir leit að þjálfara. Efstur á óskalista Árbæinga í þjálf- arastarfið er Haukamaðurinn Hall- dór Ingólfsson og hafa Fylkismenn þegar rætt við hann um að taka að sér starfið og leika jafnframt með liðinu. „Já, þetta hefur verið viðrað við mig en málið er ekki komið lengra en það. Ég ætla bara að skoða þetta í rólegheitum en fyrst ætla ég að einbeita mér að komandi verk- efnum með Haukunum enda úr- slitakeppnin framundan. Ég neita því samt ekki að það hefur blundað í mér að fara út í þjálfun svo ég úti- loka ekkert í þessu sambandi,“ sagði Halldór við Morgunblaðið í gær. Samningur Halldórs við Hauka er uppsegjanlegur eftir hvert tíma- bil og því er ekkert því til fyrir- stöðu að Halldór söðli um og taki að sér að þjálfa og spila með Fylkis- mönnum á næstu leiktíð. Sigmundur Lárusson, einn þeirra sem er í forystu Fylk- ismanna að endurvekja karlaliðið, sagði við Morgunblaðið í gær að allt væri á fleygiferð í Árbænum og stefnt væri á að mæta með öflugt lið til keppni næsta haust. „Það er 100% öruggt að við verð- um með lið á næsta tímabili. Við er- um þessa dagana að negla saman lið og ég get lofað því að það verður miklu sterkara en það lið sem lék síðast í 1. deildinni. Það er mikill hugur í okkur,“ sagði Sigmundur. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að Fylkismenn séu í við- ræðum við Heimi Örn Arnarson, fyrrum leikmann KA, sem leikur nú með norska 1. deildarliðinu Haslum, og þá hyggjast Fylkis- menn reyna að fá Róbert Julian Duranona til liðs við sig en hann leikur þessa dagana með þýska lið- inu Wetzlar. Karladeild Fylkis var lögð niður eftir tímabilið 2000–01 en þá léku Fylkismenn í 2. deild en voru tíma- bilið á undan í efstu deild. Ekki er hægt að segja að árangur Árbæj- arliðsins hafi verið glæsilegur þessi ár. Liðið hlaut 2 stig í 1. deildinni 1999–2000 en ekkert stig í 2. deild- inni árið eftir. Halldór og Duranona til Fylkis? Halldór Ingólfsson HJÁLMAR Þórarinsson, knattspyrnumaðurinn efnilegi úr Þrótti í Reykjavík, dvelur þessa dagana hjá hollenska Heerenveen, sem er í 11. sæti úrvalsdeildarinnar þar í landi. Honum var boðið þangað til reynslu og hann verður þar fram að helgi. Hjálmar, sem er nýorðinn 17 ára gamall, hefur þegar skorað þrjár þrennur fyrir Þróttara í Reykjavík- urmótinu og deildabikarnum á þessu ári en hann lék talsvert með meistaraflokki félagsins í fyrra þó hann væri enn í 3. flokki. Hjálmar hjá Heer- enveen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.