Morgunblaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 28
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 27 MENNTAMÁLARÁÐHERRA hefur ákveðið að setja á laggirnar ráðgjafarhóp um listkennslu í skól- um. „Ráðuneytið hefur ekki haft slíkan hóp starfandi til þessa en nú hef ég ákveðið að leita til Banda- lags íslenskra listamanna um tilnefningu í slíkan ráðgjafar- hóp sem geti verið ráðuneyt- inu innan handar um þróun list- náms í grunn- og framhalds- skólum. Mikil- vægt er að í slík- um hópi sitji fulltrúar allra helstu listgreina og að hver fulltrúi hafi virkt bakland í sinni listgrein. Bréf með beiðni um tilnefningar í þenn- an hóp verður sent BÍL á næstu dögum,“ sagði Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra á fundi um stöðu leiklistar í grunnskólum og framhaldsskólum í vikunni. Ráðherra sagðist ennfremur gjarnan vilja skoða ýmsa mögu- leika til að efla leiklist í skóla- kerfinu. „Til greina kæmi að gera tilraun til að skilgreina leiklist- arkjörsvið á listnámsbraut ef áhugi reynist fyrir hendi og fela einhverjum skóla að þróa slíkt nám. Einnig kæmi til greina að líta á verkefnið Tónlist fyrir alla sem fyrirmynd að verkefni sem nefna mætti Leiklist fyrir alla. Markmið slíks verkefnis væri að efla tengsl milli leikhússins og skólanna.“ Ráðgjafar- hópur um listkennslu Tómas Ingi Olrich ÓÐALSBÓNDINNPúntila á viðkunnuglegtvandamál að stríða. Hann er alkóhólisti. Og líkt og margir alkóhól- istar breytir hann al- gjörlega um persónuleika þegar hann er undir áhrif- um; þessi harðneskjulegi, tilfinningalausi og harð- drægi atvinnurekandi og stóreignamaður breytist nefnilega í barnslegan öðling sem sóar fé á báða bóga í fylleríum sínum, treystir bílstjóranum sín- um Matta fyrir úttroðnu peningaveskinu og vill allt fyrir alla gera. Hann vill gifta dóttur sína Evu hverjum þeim sem hún elskar þegar hann er fullur en þegar rennur af honum krefst hann þess að hún giftist tilgerðarlegum ráðuneytisfulltrúa. Hann á sannarlega við vandamál að stríða. Vandamálið er kannski bara spurning af höfundarins hálfu hvort sé meira vandamál; að vera tilfinningalaus kapítalisti eða sífullt góðmenni. Og eru þetta yfirhöfuð þær ósættanlegu andstæður sem hér er gefið í skyn? Það er Theódór Júl- íusson sem fer með hlut- verk Púntila og Bergur Þór Ingólfsson leikur bíl- stjórann Matta, hið sígilda tvíeyki leikhússins um breyskan húsbónda og snjallan þjón birtist hér í útfærslu Brechts, sem hann byggði á sögum og ófullgerðu leik- riti finnskrar vinkonu sinnar Hellu Wuolijoki. Skrifað í skugga einræðis Leikritið skrifaði Brecht í skugga síðari heimsstyrjald- arinnar sumarið og haustið 1940 á heimili Wuolijoki, herragarðinum Marlebekk (Kásala) í Finnlandi þar sem Brecht dvaldi í útlegð frá Þýskalandi Hitlers. Leikritið var ekki frumsýnt fyrr en 8 árum síð- ar í Zürich í Sviss. Það hefur síðan verið eitt af vinsælustu leikritum Brechts og annað af tveimur leik- ritum hans sem íslensk atvinnu- leikhús hafa séð ástæðu til að svið- setja oftar en einu sinni. Hitt er að sjálfsögðu Túskildingsóperan. Sviðsetning Leikfélags Reykjavík- ur að þessu sinni er þriðja upp- færslan hérlendis en áður hafa Þjóðleikhúsið og Leikfélag Ak- ureyrar tekið Púntila og Matta til sýningar. „Þetta leikrit leynir verulega á sér,“ segir Bergur Þór og rifjar upp að fyrstu viðbrögð sín við verkinu hafi verið að finnast það einfalt í sniðum. „Eins konar dæmisaga, þar sem Matti vinnu- maður væri svo ótrúlegur besser- visser að það væri varla hægt að leika hann sem persónu. Svo þegar við byrjum að vinna sýninguna og ég fer að skoða Matta betur kem- ur annað í ljós, hann er í klemmu milli þess að njóta góðs af gæsku hins fulla húsbónda síns eða láta renna af honum og tryggja þar með afkomu sína á vissan hátt þótt Púntíla svívirði hann og niðurlægi þegar hann er allsgáður.“ Theódór tekur undir þetta og segir Púntila vera margslungna persónu sem engan veginn er jafn einföld og hún lítur út fyrir að vera. „Þetta er ekki spurning um hvítt og svart. Góður fullur og vondur edrú. Þetta er miklu flókn- ara en svo. Það sem gerir Púntila að spennandi verkefni að glíma við er sú mótsögn að gagnvart áhorf- endum á hann samúð þeirra þegar hann er fullur en þeir skilja gjörð- ir hans þegar hann er allsgáður. Okkur líkar kannski ekki við að- ferðina, hörkuna og tillitsleysið en við teljum okkur skilja að þetta er nauðsynlegt til að reksturinn á fyrirtækinu, búinu, gangi.“ Leitað í huga hins sósíalíska skálds Við rifjum upp að sósíalistinn Berthold Brecht hafi stundum ver- ið sagður hafa viðurkennt með þessu leikriti að mannjöfnuð væri ekki hægt að sýna í verki nema missa dómgreindina í leiðinni. Þegar rennur af Púntila rekur hann fyrirtæki sitt af hörku og skynsemi en drukkinn er hann góður en vitlaus. „Þetta er grund- vallarmisskilningur á efni verks- ins,“ segir Bergur Þór. „Það sem ég tel hafa vakað fyrir Brecht er að sýna hversu hættulegt það er þegar veiklundaður og sjúkur ein- staklingur fær of mikið vald. Hann fer illa með það og misbeitir því og þá gildir einu hvort hann er undir áhrifum áfengis eða ekki.“ Theódór tekur undir þetta og bætir við að Brecht skrifi verkið þegar ægivald Hitlers hafi skekið heimsbyggðina og því ekki und- arlegt að þetta hafi leitað á huga hins sósíalíska skálds. „Púntila tel- ur sig auðvitað vera að gera það sem rétt er en þegar einstakling- urinn er veiklundaður getur slíkt orðið hættulegt þegar því fylgir of mikið vald yfir lífi og limum ann- arra.“ Bergur bætir við að atburðir í veröldinni í dag séu einmitt þess eðlis að slíkar hugsanir verði sér- staklega áleitnar og einstaklingar með of mikil völd geti reynst sam- félagi þjóðanna hættulegir. Alþýðlegur gamanleikur „Þrátt fyrir þennan alvarlega undirtón er Púntila og Matti í rauninni alþýðlegur gamanleikur og góð skemmtun,“ segir Theódór. „Það er auðvitað sammerkt öllum góðum leikritum að þau eru hvort- tveggja í senn, góð skemmtun og efni til umhugsunar.“ Tónlist skipar stóran sess í sýn- ingunni í anda Brechts en það vek- ur athygli að í stað hefðbundinnar tónlistar Kurts Weils hefur finnski tónlistarmaðurinn Matti Kallio samið nýja tónlist sérstaklega fyr- ir þessa sýningu við söngtexta Guðmundar Ólafssonar. Tón- skáldið tekur fullan þátt í sýning- unni og leikur á harmonikku og gæðir sýninguna anda hinna þús- und vatna Finnlands, tímalaus saga um breyska fyllibyttu sem ráðskast stefnulaust með fólk og fénað að geðþótta sínum. Sjúkur maður með mikil völd Bergur Þór Ingólfsson og Theódór Júlíusson leika Matta og Púntila. Á stóra sviði Borgarleikhússins verður í kvöld frumsýnt gamanleikritið Púntila bóndi og Matti vinnumaður eftir Bertold Brecht. Hávar Sigurjónsson ræddi við Theódór Júlíusson og Berg Þór Ingólfsson, sem fara með titilhlutverkin. havar@mbl.is Eftir Bertold Brecht. Þýðing: Þorsteinn Þorsteinsson. Guð- mundur Ólafsson samdi söng- texta. Leikarar: Theódór Júlíusson, Bergur Þór Ingólfsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Guð- mundur Ólafsson, Gísli Örn Garðarsson, Björn Hlynur Har- aldsson, Valur Freyr Einarsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Marta Nordal, Guðrún Ásmundsdóttir. Tónlist: Matti Kallio Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen Lýsing: Kári Gíslason Búningar: Helga I. Stef- ánsdóttir Leikmynd: Vytautas Narbutas Leikstjóri: Guðjón Pedersen Púntila bóndi og Matti vinnumaður Margrét Helga Jóhannsdóttir fer með hlutverk Sprútt-Emmu í sýningunni. Morgunblaðið/Jim Smart Höfundur tónlistar, Matti Kallio, og höfundur söngtextanna, Guðmundur Ólafsson leikari, taka báðir þátt í sýningunni í Borgarleikhúsinu. Slunkaríki, Ísafirði Nú stendur yfir sýning á verkum listnemanna Auðar Jörundsdóttur, Dagbjartar Drífu Thorlacius, Halldórs H. Guðmunds- sonar, Harnar Harðardóttur og Röðuls Reyrs Kárasonar ásamt verkum Tuma Magnússynar mynd- listarmanns. Yfirskrift sýning- arinnar er: Óvænt ánægja. Opið er kl. 16-18 fimmtudaga til sunnudaga til 23. mars. Kaffitár, Bankastræti Nú stendur yfir sýning Ágústu Oddsdóttur á lágmynd í röð myndverka sem hún hefur unnið að undanfarið. Ágústa starfar við myndlist í Reykjavík. Hún útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands, 1997. Sýningin stendur til 10 maí. Vínbarinn, Kirkjutorgi Ljós- myndasýning Inger Helene Bóas- son, Landslag líkamans, er fram- lengd til 1. júní. Í DAG Þjóðerni í þúsund ár? hefur að geyma safn greina eftir unga fræði- menn af ýmsum sviðum hug- og fé- lagsvísinda og takast þeir á við spurningar sem tengjast íslensku þjóðerni og sögu þess. Meðal þess sem tekið er til athugunar eru sjálfs- myndir fyrir daga nútímaþjóðern- ishyggjum, mótun þjóðernis og hug- myndir Íslendinga um stöðu sína meðal þjóða heimsins. Ritstjórar eru Jón Yngvi Jóhanns- son, Kolbeinn Óttarsson Proppé og Sverrir Jakobsson. Útgefandi er Háskólaútgáfan. Bók- in er 255 bls., prentuð í Gutenberg. Verð: 3.200 kr. Greinasafn Ein mynda Inger Helene Bóasson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.