Morgunblaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 5
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ STARFSMENN á vegum Rauða hálfmánans og Alþjóðlega Rauða krossins í Jórdaníu unnu í gær við að koma upp flóttamannabúðum skammt frá landmærunum við Írak. Þorkell Þorkelsson, ljós- myndari á Morgunblaðinu, sem er staddur í Jórdaníu á vegum Rauða krossins, segir undirbúning búð- anna langt kominn en ekki hafi reynst unnt að slá upp tjöldunum vegna sandstorms sem þarna var í gær. „Það er ómögulegt að segja til um hversu margir flóttamenn munu koma frá Írak yfir landa- mæri Jórdaníu. Búðirnar sem við erum að reisa hér eiga að taka um fimm þúsund manns en þær verða stækkanlegar til þess að rúma allt að 25 þúsund manns. Rauði kross- inn er nú með mikinn viðbúnað í öllum löndunum í kringum Írak.“ Þorkell segir töluvert af Írökum í Jórdaníu og sérstaklega í Amm- an og svo eigi fólk auðvitað vini og kunningja handan landamæranna. „Maður finnur að það eru margir mjög órólegir yfir ástandinu en menn telja sig ekki vera í hættu hér. Það tekur allt að sextán klukkutíma að aka héðan frá Amman til Bagdad.“ Morgunblaðið/Þorkell Aðstæður voru allar erfiðar við flóttamannabúðirnar skammt frá landamærum Íraks. Undirbúa komu flóttamanna UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hef- ur fengið lítið af fyrirspurnum frá aðstandendum þeirra Íslendinga sem búsettir eru í Írak og ná- grannalöndum þess. Anna Katrín Vilhjálmsdóttir sendiráðsritari sagðist vona að það gæfi góða mynd af stöðunni. „Við erum að vona að þetta sé lýsandi fyrir ástandið þarna – að það sé í raun ekki mikið af Íslendingum á þessum slóðum, en það verður bara að koma í ljós,“ sagði Anna Katrín. Hannes Heimisson, skrifstofu- stjóri utanríkisráðuneytisins, sagði að Hagstofa Íslands hefði gefið þeim þær upplýsingar fyrir nokkru að um 112 Íslendingar væru búsettir í Írak og nágranna- löndum þess, allt frá Egyptalandi til Sameinuðu arabísku fursta- dæmanna og upp að Tyrklandi. Þá eru meðtalin lönd eins og Ísrael, Jórdanía, Egyptaland, Kúveit, Óman, Katar og fleiri ríki við Persaflóann og þar í kring. „Okkur fannst þessi tala ótrú- lega há. Ég held að þarna sé að miklu leyti um að ræða fólk sem er þarna í tímabundnum verkefnum. Við teljum að það sé mun minni hópur sem er í raun á staðnum,“ sagði Hannes. Hann bætti við að utanríkis- ráðuneytinu hefði ekki borist nán- ari sundurliðun frá Hagstofunni um búsetu fólksins. Telja fáa Íslendinga í kringum Írak Í KÚRDISTAN í Norður-Írak hef- ur íraski herinn skotið á eigin her- menn sem reynt hafa að flýja yfir á sjálfsstjórnarsvæði Kúrda til þess að gefast þar upp. Hefur Íraksher jafnvel elt þá uppi í þyrl- um og skotið á þá umsvifalaust ef þeir hafa náð til þeirra. Þetta segir Tishk T. Karim Mahmood, sem hefur búið á Ís- landi um árabil, en flestir í fjöl- skyldu hans eru í kúrdíska hluta Íraks, nálægt borginni Sulaym- aniayh, ekki langt frá landamærum Íraks og Íran. Kúrdistan í Norður-Írak lýtur ekki stjórn Saddams Husseins og hefur verið hluti af flugbannsvæði Íraks frá árinu 1992 en þarna búa liðlega fjórar milljónir manna. Almennir stjórnarhermenn munu gefast upp við fyrsta tækifæri Morgunblaðið ræddi við einn bræðra Tishks sem þarna er staddur, en bróðirinn, sem af ör- yggisástæðum vill halda nafni sínu leyndu, segir íraskar herþyrlur hafa farið í árásarferðir inn á kúrdíska svæðið til þess að drepa liðhlaupa úr eigin her. „Í fyrradag tókst á milli 50–100 almennum stjórnarhermönnum að komast yfir til okkar. Þeir voru heppnir því stuttu áður höfðu nokkrir íraskir hermenn reynt að flýja yfir en íraski herinn skaut á þá á flótt- anum og sendi síðan þyrlur á eftir þeim til þess að skjóta þá niður. Þeir voru allir drepnir. Þeir skjóta umsvifalaust á þá sem hlaupast undan merkjum og hafa jafnvel sérþjálfaðar sveitir til þess.“ Bróðir Tishk segir að íraskir hermenn hafi haft sambandi við Kúrda og sagt þeim að þegar árás- ir hefjist muni þeir strax gefast upp fyrir þeim. Eins og er sé erfitt fyrir þá að flýja þar sem stríðið sé ekki hafið en það breytist vænt- anlega fljótt þegar árasir á Írak byrja og þá verði auðveldara fyrir þá að flýja. „Þeir hermenn sem hafa sloppið hingað yfir til Kúrd- istan segja allir að Írakar vilji ekki heyja stríð, það séu bara sérsveitir sem séu hollar Saddam Hussein sem séu tilbúnar til þess að berjast en ekki almennu hermennirnir.“ Tishk segir að flestir af íbúum Sulaymaniayh, þar sem búa um 1,4 milljónir manna, hafi yfirgefið hana í gærdag af ótta við efna- vopnaárás af hálfu sveita Husseins enda séu hinar hræðilegu efna- vopnaárásir Saddams Husseins ár- ið 1988 fólki á þessu svæði enn í fersku minni. Tishk segir að flestir borgarbúa hafi haldið til smærri þorpa og sveitabæja í fjöllunum í kring. „Tveir bræðra minna, sem þarna eru, hafa farið burt með börn sín og konur en ætla sjálfir eins og margir karlmannanna að fara aftur til Sulaymaniayh og vera þar. Það er einkum tvennt sem fólkið óttast, í fyrsta lagi efnavopnaárás og í öðru lagi árásir hryðjuverka- manna, því nokkur hundruð talib- ana og al-Queda-manna halda til á landamærum Íraks og Íran, ekki langt þarna frá.“ Tishk segir að Kúrdarnir á þessu svæði séu aðeins léttvopn- aðir og hafi engin þungavopn. „Fólk hér þekkir notkun efnavopna af eigin reynslu og telur raunveru- lega hættu vera á ferðinni núna; þess vegna vilja menn að minnsta kosti koma konum og börnum á öruggari svæði. Munu ekki skorta mat Tishk segir ekkert síma- eða netsamband vera nú við þann hluta Íraks sem sé undir stjórn Saddams en aftur á móti hafi hann getað verið í sambandi við sitt fólk. „Móðir mín sagði mér að þau hefðu nægan mat, þeim hefði verið úthlutaður matur fyrirfram sem dugar fram í júní og hún ætti t.d. nóg af hveiti og olíu. „Fjölskylda mín óttast auðvitað mest að Saddam Hussein kunni að beita efnavopnum gegn Kúrdum. Hann gerði það árið 1988 og flest- um eru í fersku minni þær skelfi- legu sjónvarpsmyndir sem birtust af þeim árásum. Eiturefnin færu væntanlega bæði í mat og vatn og þá gæti ástandið orðið mjög slæmt enda kemst fólkið þarna ekkert þar sem öll landamæri að héraðinu eru lokuð.“ Tishk segist í lengstu lög hafa vonast til þess að koma mætti Saddam frá án þess að til stríðs kæmi. „Ekkert okkar óskar þess að það verði stríð en ég held ég geti fullyrt að bæði Kúrdar í Írak og almenningur í Írak vilji að Saddam Hussein verði komið frá völdum.“ Elta uppi og skjóta eigin hermenn Viðbúnaðar- stig tvö hjá Varnarliðinu EFTIRLIT með erlendum ferða- mönnum hefur verið mjög mikið frá 11. september og ekki er talin ástæða til þess að auka það frekar vegna yfirvofandi stríðs í Írak en við- búnaðarstig hjá Varnarliðinu var aftur á móti aukið í síðasta mánuði. „Í rauninni er miklu meira og ýt- arlegra eftirlit með ferðamönnum nú en fyrir 11. september og það hefur verið fest í sessi. Hins vegar var eft- irlit innan Varnastöðvarinnar og að- gengi að henni aukið 9. febrúar, þ.e. þá færðu menn sig upp um eitt við- búnaðarstig, í annað af fjórum, en hafa ekki séð ástæðu til þess að breyta því nú,“ segir Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Kefla- víkurflugvelli. 27 ÁRA íslensk kona, Steinunn Hildur Trusdale, er sjóliði í Bandaríkjaher og var send í herförina gegn Írak. Hún hefur verið hermaður í eitt og hálft ár og er gift bandarískum hermanni sem nú er í Japan. Nokkrar vikur eru síðan Steinunn var send í herförina en hún hefur það hlutverk að aka sjúkrabifreið bandaríska hersins í Kúveit. Ekki er gert ráð fyrir að hún fari inn fyrir landamæri Íraks. Steinunn hefur dvalið í Bandaríkjunum síðan 1996 og ákvað að sækja um hjá hernum vegna áhuga síns á að gera eitthvað sem engin kona hefði gert áður að sögn föður hennar, en íþróttaáhugi hennar hafði líka sitt að segja. Lék hún handknatt- leik með Fram og með sænsku atvinnumannaliði áður en hún fór til Bandaríkjanna. Áhyggjur af ástandinu Faðir hennar, Kjartan Sigtryggsson, hefur ekki heyrt frá dóttur sinni í nokkrar vikur og segir að Steinunn hafi haft samband rétt áður en hún var send til Kúveit. Hafi hún þá ekki búist við því að stríð myndi brjótast út. „Maður hefur miklar áhyggjur af ástandinu, sérstaklega ef allt fer í bál og brand,“ segir Kjartan. „Menn virðast vera svo kokhraustir hérna og halda að stríðinu ljúki á 1–2 dögum. Það má vel vera og það væri gott.“ Steinunn Hildur Trusdale, sjóliði í Bandaríkjaher. Íslensk kona sjóliði í her Bandaríkjanna í Kúveit Send í herförina gegn Írak
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.