Morgunblaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 20.03.2003, Blaðsíða 26
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 25 SYSTIR Jóhanna hefur starfað við St. Fransiskusspítalann í Stykk- ishólmi í 39 ár og hinn 23. mars mun hún fara aftur til Hollands og dveljast þar í framtíðinni. Systir Jó- hanna kom frá Hollandi hinn 1. mars 1964 og var þá að fylgja ann- arri systur. Hún ætlaði að dvelja hér í sex vik- ur, en áhugi hennar á Íslandi hefur enst henni þangað til nú og hefur hún allan þennan tíma verið tilbúin að hjálpa öðrum. Hún gegndi fjöl- mörgum störfum á sjúkrahúsinu og var yfirmaður í eldhúsinu þar í 27 ár eða þangað til hún fór á eft- irlaun. Eftir það beindist áhugi hennar að þeim sem áttu bágt. Hún var dugleg að heimsækja sjúka og þá sem einmana voru í bæjarfélaginu. Hennar einkenni eru einlægni og hlýja sem Hólm- arar kunna að meta. Hún hverfur nú til æskustöðvanna og mun dvelja á systraheimili í Hollandi. Haldin var kveðjustund á St. Fransiskusspítalanum laugardag- inn 15. mars þar sem vinir í Hólm- inum mættu til að þakka henni fyrir hjálpina og samfylgina á þeim árum sem hún hefur starfað í Stykkis- hólmi. Henni barst m.a. eftirfarandi kveðja: Á kveðjustund er margs að minnast hér minningar tengdar lífinu og þér. Þakkarblær um hugi fólksins fer. Þú finnur hann hér … góðan mín. Stjarnan í austri skær í hug þinn skín. Og Stykkishólmur, hann mun sakna þín. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Systir Jóhanna hefur starfað við St. Fransiskusspítalann í 39 ár. Hún sá um orgelleik í katólsku kirkju systranna um langan tíma. Á myndinni er hún að leika síðustu sálmana á orgelið áður en hún heldur til Hollands. Systir Jóhanna kveður eftir 39 ára þjónustu Stykkishólmur HUGMYNDIR eru nú uppi um að byggja nýja gistiálmu við Hótel Hér- að á Egilsstöðum og verða sextíu herbergi á hótelinu ef af verður. Stjórn Ásgarðs hf. sem á hótelið er þessa dagana að kynna eigendum arðsemiskönnun vegna fyrirhugaðr- ar stækkunar. Á aðalfundi Ásgarðs í apríl nk. verður svo tekin endanleg ákvörðun um hvort af þessu verður. Áætlanir Ásgarðs gera ráð fyrir allt að tvö- földun gistirýmis hótelsins með því að byggja við til norðurs álmu með tuttugu og fjórum herbergjum. Stefnt yrði að því að hefjast handa í vor þannig að taka mætti nýju álm- una í notkun vorið 2004. Tiltölulega einfalt mun vera að stækka hótelið, því að núverandi þjónusturými, eldhús, fundarsalir, bar og afgreiðsla geta annað fleiri herbergum, en þau eru nú þrjátíu og sex talsins. Hótelið var opnað fyrir fimm árum og eru stærstu eigendur þess Flugleiðir og Flugleiðahótel, sem eiga 37% hlut, Austur-Hérað sem á 20% og Byggðastofnun með 18% hlut. Flugleiðir hafa rekið húsið og leigt það af Ásgarði ehf. sem byggði það. Þensluáhrif vegna stórframkvæmda á Austurlandi Hótel Hérað stækk- ar svo um munar Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Hugmyndir eru uppi um að stækka Hótel Hérað á Egilsstöðum um tuttugu og fjögur herbergi. Lokaákvörðun um það verður tekin af eigendum hót- elsins í apríl og verða alls 60 herbergi á hótelinu eftir stækkunina. Egilsstaðir IMPREGILO, ítalska verktakafyrirtækið sem byggja mun aðrennslisgöng og stíflu í Kárahnjúkavirkjun, hefur opnað skrifstofu á Egilsstöðum. Auglýst hefur verið eftir starfsmanni á skrifstofuna, en fyrirtækið ætlar sér að flytja aðalskrifstofur sínar inn á virkjunarsvæðið þegar starfsemi þess við Kárahnjúka verður komin í fullan gang. Þegar nær dregur mun Impregilo ráða fleira fólk til skrifstofustarfa, en áætlanir gera ráð fyrir að allt að 1.000 manns muni vinna hjá fyrirtækinu í tengslum við Kárahnjúkavirkjun meðan á byggingu hennar stendur. Impregilo opnar skrifstofu Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Impregilo, ítalska verktakafyrirtækið sem byggja mun aðrennslisgöng og stíflu í Kárahnjúkavirkjun, hefur opnað skrifstofu á Egilsstöðum. Egilsstaðir tilbo›!frábærí mars erekkertstofngjaldí gsm fylgirinne ign3.000 kr. völdumsímum*** Samanlag›ur afsláttur af síma, ni›urfellt stofngjald og 500 kr. inneign á mánu›i í sex mánu›i. ** 500 kr. inneign á mánu›i í sex mánu›i. flú sparar allt a›11.200 kr.* flú sparar allt a›6.200 kr.* 2.000 kr. á mánu›i í 12 mánu›i vaxtalaust sony ericsson t68i tilbo›sver›: 28.980 kr. MMS ,WAP, GPRS, LITASKJÁR o.fl. léttkaupútkr.4.980 léttkaup 1.500 kr. á mánu›i í 12 mánu›i vaxtalaust nokia 3510i tilbo›sver›: 19.980 kr. MMS, WAP, GPRS, LITASKJÁR, FJÖLTÓNA HRINGING o.fl. útkr.1.980 MMS MMS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.