Morgunblaðið - 07.05.2002, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.05.2002, Blaðsíða 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 23 Heilsubót vikunnar Vega Slimming Formula Flottari línur og flatari magi Nupo Létt Léttari leið til að grennast Friggs freyðivítamín Hollt fyrir kroppinn og gott á bragðið Verð 847 Áður 1.130 Verð 998 Áður 1.355 25% afsláttur SIGUR Jacques Chiracs, forseta Frakklands, í síðari umferð forseta- kosninganna á sunnudag var stærri en flestir höfðu búist við. „Ég hef heyrt og skilið ákall ykkar um að tryggja framhald lýðveldisins, að þjóðin standi saman, að breyting verði í stjórnmálalífinu,“ sagði Chirac er sigurinn var orðinn ljós. Hann hlaut að sögn AFP-fréttastofunnar liðlega 82% atkvæða en andstæðing- ur hans, þjóðernisöfgamaðurinn Jean-Marie Le Pen, tæp 18%. Hinn síðarnefndi hlaut nær 17 af hundraði í fyrri umferðinni og ljóst að honum mistókst gersamlega að fá nýja stuðningsmenn á sitt band. Kjörsókn var mun meiri en í fyrri umferðinni, um 81% en var 72% fyrir tveim vikum. Hvatningarorð nær allra leiðtoga landsins um að mæta á kjörstað þrátt fyrir efasemdir um frambjóðendurna og útbreiddan stjórnmálaleiða virðast hafa borið ár- angur. Margir sögðu aðspurðir að ekki væri verið að velja hinn 69 ára gamla Chirac heldur tryggja að lýð- ræðið og og önnur grundvallargildi lýðveldisins héldu velli. Lofar skattalækkunum og baráttu gegn glæpum Chirac hefur meðal annars heitið því að sett verði á laggirnar nýtt ráðu- neyti almannaöryggis undir beinni forsetastjórn og þá með það í huga að reyna að kveða niður vaxandi glæpa- fár, einnig vill hann lækka tekjuskatt, skatta á fyrirtæki og launatengd gjöld. Hann vill breyta lögum um 35 stunda vinnuviku til að auðvelda smá- fyrirtækjum róðurinn og loks segist hann munu berjast fyrir því að styrk- ir frá Evrópusambandinu til landbún- aðar verði ekki lækkaðir. En til þess að koma þessum áform- um í gegn þarf forsetinn meirihluta- stuðning þingmanna. Þess vegna hef- ur athyglin að loknum forsetakosn- ingunum beinst mjög að væntan- legum þingkosningum í júní. Chirac hefur undanfarin ár haft lítil áhrif vegna þess að sósíalistar hafa farið fyrir ríkisstjórninni. Forseti og for- sætisráðherra hafa orðið að sætta sig við pólitíska en ástlausa „sambúð“, svonefnda cohabitation sem hvorugur hefur verið hrifinn af. Stjórnarskráin frá 1958 tryggir ekki að forseti og þingmeirihluti séu sama sinnis og oft veldur þetta skipulag mála pattstöðu, hvorki stefna forsetans né ríkis- stjórnarinnar nær fyllilega fram að ganga. Sumir stjórnmálaskýrendur óttast að ef vinstrimenn sigri aftur í þingkosningunum muni stjórnmála- þreyta kjósenda aukast enn vegna þessa. Könnun sem birt var á sunnudag gaf til kynna að hægriflokkar myndu sigra í þingkosningunum, fengju allt að 331 sæti af 557, að sögn AP-frétta- stofunnar. Þjóðfylkingunni var spáð allt að þrem sætum en þess ber að geta að kosningakerfið hyglir stóru flokkunum sem hafa möguleika á að gera bandalög fyrir seinni umferðina með þeim sem eru á svipaðri línu og nýtast þannig atkvæði þeirra betur. Le Pen, sem er 73 ára gamall, sagði að dagurinn væri ósigur fyrir Frakka en ástæðan fyrir hrakförunum væri að jafnt hægriflokkar sem vinstri- flokkar hefðu sameinast gegn sér og stutt Chirac. „Aðstæðurnar í seinni umferðinni voru eins og í alræðisríki,“ sagði hann. Allir helstu stjórnmála- flokkar landsins, fjölmiðlar, stéttar- félög og trúarleiðtogar hvöttu kjós- endur til að greiða Chirac atkvæði. En margir vinstrimenn sýndu andúð sína á Chirac á sunnudag, meðal ann- ars var við einn kjörstaðinn komið upp „hreinsistöð“ fyrir þá sem voru búnir að kjósa forsetann og vildu þvo sér á eftir. Forsetinn hefur á undan- förnum árum legið undir rökstuddum grunsemdum um spillingu í embætt- istíð sinni sem borgarstjóri Parísar en hefur sloppið við ákæru vegna stöðu sinnar. Le Pen hét því að hefna sín í þing- kosningum sem fara fram 9. og 16. júní. Fréttaskýrandi BBC segir að þótt úrslitin á sunnudag sýni skýrt að meirihluti Frakka hafni öfgasjónar- miðum Þjóðfylkingarinnar sé árang- ur Le Pens þess eðlis að þáttaskil hafi orðið. „Búið er að brjóta tabú. Öfga- fullir hægrimenn, með andúð sinni á innflytjendum og stundum stefnu kynþáttahaturs, eru orðnir virðulegri en áður.“ Fréttaskýrandinn minnir á að svipuð þróun hafi áður orðið að undanförnu í Austurríki, á Ítalíu, í Danmörku, Belgíu og sums staðar í Þýskalandi. Um sé að ræða mestu sigra slíkra afla í hálfa öld. Le Pen öflugastur meðal verkamanna Kannanir sýna að Le Pen sótti fylgi til allra stétta og þjóðfélagsafla, jafnt til hægri sem vinstri og Þjóðfylkingin er nú sennilega orðinn öflugasti flokk- ur landsins í röðum verkamanna. Kjósendur Le Pens eru að jafnaðí nokkru eldri en meðaltalið, meðal at- vinnulausra er stuðningurinn um 38%. Kjósendur hans óttast margir framtíðina og nefna oft glæpi í stór- borgunum sem ástæðu fyrir því að þeir styðji Þjóðfylkinguna. Fylgið er mest í stærstu borgunum að París þó undanskilinni en víða lítið í þorpum og sveitum. Stuðningurinn við Le Pen var öfl- ugastur í suðausturhéruðum Frakk- lands, um 27%, en þar er mikið um innflytjendur sem Þjóðfylkingin segir bera ábyrgð á glæpafárinu. Eitt helsta baráttumál Le Pens og Þjóð- fylkingar hans er að ólöglegir inn- flytjendur verði reknir úr landi en yf- ir fimm milljónir múslima, aðallega frá Norður-Afríku, búa í Frakklandi. Einnig vill hann auka fangelsisrými, er andvígur Evrópusamrunanum og hnattvæðingunni og vill draga úr rík- isumsvifum. Flestir Frakkar líta svo á að megn- ið af stefnu flokksins sé svo miklar öfgar að hann eigi ekkert erindi við þjóðina. En til lengdar getur orðið snúið fyrir stjórnmálamenn að horfa fram hjá því að nær fimmtungur kjós- enda kýs flokkinn, hvort sem ástæðan er örvænting vegna glæpa og at- vinnuleysis eða hreinlega aðdáun á nýfasisma. Spurningin er hvort næsta ríkisstjórn ákveði að reyna að kæfa Þjóðarflokkinn með því að taka undir sumt af því sem hann boðar og klófesta þannig nokkur atkvæði. Chirac heitir kjós- endum umbótum AP Fylgjendur Jacques Chiracs fögnuðu sigri hans á Lýðveldistorginu í París þegar úrslitin lágu fyrir.                      !"#!  $%&'()    *''(   *''( !  +& '!)&,#'()',-./"  0"123/(40!&'5 ,!&(()"46,, (&4/(       7    Le Pen hótar hefndum í þing- kosningunum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.