Lesbók Morgunblaðsins - 26.09.1998, Side 15
Nú skimuðum við ákafir fram og fyrir mið-
nætti brá fyrir dökkri útlínu við sjóndeilda-
hring. Strýtulaga form sem vindurinn feykti
ekki í burtu.
Land.
ísland.
Petta hlýtur að hafa verið sama sýn sem þeir
sáu á langskipunum. Þeir sem sigldu hingað
eftir sól og stjörnum, öldugangi og flugi fugla.
Vegvísar okkar voru gervihnettir út í geimn-
um, en gleðin við að sjá land hlýtur að hafa
verið sú sama.
Strax við sólarupprás risu Vestmannaeyjar
úr hafí. Kulnuð eldfjöll, sem hafa mótast af
grimmum öldum Norður Atlantshafsins. I hell-
um og holum hreiðruðu um sig langvíur, fýlar,
mávar, og lundar.
Innsiglingin til hafnarinnar í Heimaey er
milli tveggja lóðréttra klappa. Við urðum agn-
dofa við þessa stórfenglegu sýn, svo gapandi af
undrun sigldum við inn á grunn í höfninni.
Hægt og hljótt liðum við upp á sandbakka og
sátum þar hjálparlausir og alveg fastir.
Við fylltum olíutankinn og hringdum til
Onnu áður en við héldum áfram. Hún hafði
ekki heyrt frá okkur síðan við vorum á
Skotlandi og var viss um að við hefðum lesið
vitlaust á sjókortin og værum í Færeyjum.
Þegar ég lýsti fyrir henni hafnargarðinum sem
Eldfellið hafði skilið eftir sig þegar það gaus,
skildist henni að við vorum á réttum stað.
-Þið komið þá til mín í afmælið! Ó, þið komið!
Það var heiður himinn og sterk sólin skein yfir
suðurströnd Islands þannig að Mýi'dalsjökull
lýsti eins og þeyttur rjómi á bakkelsi. Tákn um
boðið sem við áttum í vændum.
Vatnið var grunnt og sterkur vindur að vest-
an gerði ölduna þétta og krappa. Vindin jók og
nú sigldum við bara á tveggja hnúta ferð
áfram. Það er við ofurefli að keppa, ef vindur-
inn helst komumst við ekki á réttum tíma!
Við bönkuðum á loftvogina og reyndum að
spá í veðrið. Að lokum kallaði ég upp Vest-
mannaeyja radíó til að fá veðurfréttir. Sá sem
svaraði lofaði okkur áframhaldandi vindi að
vestan allan næsta dag. En, bætti hann við, það
er alltaf von!.
Hann hafði varla sleppt orðinu fyrr en það
datt á logn og öldurnar lægði.
Nú var vonin vakin að ná áfangastað í tíma-
og við þöndum vélina þar til hún glóði.
Eftir miðnætti fórum við fyrir Reykjanes og
gátum tekið stefnu í norður í þægilegum byr.
Þegar við fórum hjá Garðskaga, síðasta spöl-
inn, var meðvindur og sólskin þær sjómílur
sem eftir voru til Reykjavíkur.
-Manstu eftir sýn minni í Noregi, sagði Kelle
með glott á vör þegar við sáum Reykjavík und-
an spinnakernum. Hún var einmitt svona.
Léttir og lukkulegir sigldum við rólega að
aðfangastað.
Kelle og Anders voru að æfa söngin sinn á
hljóðfærin þegar Anna kallaði áköf til okkur á
VHFinum.
-Við sjáum ykkur! En ekki flýta ykkur! Dólið
aðeins á meðan sjónvarpsfólkið setur upp
myndavélamar! Nú var bæði þvottur og vatns-
greiðsla, hrein föt og hafnklárt á dekki. Hvað
gerir maður ekki fyrir augnabliks frægð.
Með spinnakerinn hátt á lofti liðum við inn í
höfnina til þess að fá þær frábærustu móttökur
sem sjómaður getur fengið. Á bryggjunni stóðu
böm sem veifuðu íslenska fánanum í kring um
sex dásamlegar magadansmeyjar með bera
nafla og slæður fyrir andlitinu. Allt slegið í takt
með tónum af austurlenskri tónlist úr stórum
hátalara.
Við tókum spinnakerinn niður og lögðumst
að bryggu.
Þegar dansinn var búinn steig fram tíu ára
stúlka, einnig klædd sem magadansmær og
bað hljóðs.
Hátt og snjallt las hún úr Hávamálum:
Veiztu, efþúvinátt
þannerþúveltrúir,
og vilt þú af honum gott geta
geði skaltu við þann skipta
fara að finna oft..
Til að fullkomna komu okkar kom víkinga-
skipið íslendingurinn, sem er eftirmynd af
Gaukstaðarskipinu, inn í höfnina og batt land-
festar fyrir aftan Yemayu.
Þar lágu þau, tvö falleg skip, systur úr sömu
fjölskyldu. Þær höfðu áreiðanlega margt að
tala um. Við skildum þær eftir einar og fórum í
land til að eyða næstu dögum í vín, konur og
gleðskap.
Þegar fréttirnar komu í íslenska sjónvai-pinu
vai- það helst : Kína tekur yfir Hong Kong og
magadans á höfninni í Reykjavík.
Rein Norberg er fæddur í Tallin í Eistlandi. Hann fór
ungur að sigla ó farskipum til austurlanda fjær, Mex-
ikó og Suður-Ameríku, en settist síðar ó skólabekk og
lærði félagsfræði. Eftir að hafa unnið við það f nokk-
ur ár byggði hann skútuna Yemayu og sigldi til Vest-
ur-lndia, siglingu sem tók þrettán mánuði. Hann hefur
skrifað barnabækur, greinar í blöð, smásögur og nú
er væntanleg ný bók eftir hann sem gerist á Madaga-
skar.
Frásögnina af siglingunni til (slands þýddi Anna
Elísabet Borg, leikkona.
ÞEIR KOMU MED ELPl OG SVERÐI - UM LANDVINNINGA SPÁNVERJA 4
„DAUÐA YFIR SPÁNVERJA
OG ALLA YFIRSTÉTT..."
EFTIR BERGLINDI GUNNARSDÓTTUR
VALDSTJÓRN Spánverja miðaði fyrst og fremst að því að auðga hina spænsku krúnu. Öll
innlend framleiðsla var flutt frá löndum indjána til Spánar, bæði jarðargróður, gull og silfur.
Hluti af fresku eftir Diego Rivera.
DSÚLARNIR
Hér skrái ég þetta: Arið 1541 komu Dsúlarn-
ir í fyrsta sinn, útlendingarnir úr austrinu. Þeir
komu til Ekab, sem er nafn þessa staðar. Þeir
sigldu inn Vatnahliðið í Ekab að bænum Na-
kom Balam, á fyrstu dögum árs Katún Ellefu
Ahaú. Tuttugu og fímmtán áratugum áður en
Dsúlarnir komu höfðu ítsarnir dreifst...
Andi ítzanna) felldi sig hvorki við Dsúlana né
við kristindóminn, sem vh-ti hvorki anda fugl-
anna né anda gimsteinanna eða hinna slípuðu
stcina, og ekki heldur anda tígrisdýranna, sem
vernda manninn... Hins vegar þekktu þeir
(Dsúiarnir) tímatalið ogjafnvel tímann í líkama
þeirra (aldurinn). Tunglið, blærinn, árið og dag-
urinn, allt líður þetta áfram, en líður þó undir
lok. Blóðið leitar sér að lokum hvíldar, eins og
allt vald vill hefjast á veldisstól...
Þeh' (Itzarnir) höfðu vitið á valdi sínu, helgi-
dóminn, og illgirni var óþekkt í brjósti þeirra.
Hreystin ríkti, trúarhneigð, og hvorki þekktust
sjúkdómar né verkir í beinum, hitasótt eða
bólusótt eða verkur í lungum eða í kviði. Fólk
gekk upprétt. En þá komu Dsúlarnir og
eyðilögðu allt. Þeir innrættu mönnum ótta,
blóm fölnuðu og þeh' sugu merg úr mönnum,
svo blóm þeirra sjálfra fengju að blómgast. Þeir
eyddu blóma Naksír Xutsítl. Engir prestar
urðu eftir til að auðga vísdóm okkar. Og þannig
hófst önnur tíð og þeir ríktu, og ríki það reið
okkur að fullu. Allh• urðum við jafnir; sviptir
visku og þori, svipth’ andlegum leiðtogum og
því samviskulausir. Horfín var hin djúpa viska,
og hvorki voru til orð né fræðsla færustu
manna. Guðir trúarinnar sem okkui' var boðuð
voru gagnslausir guðir, Dsúlarnir komu til þess
eins að gelda sólarijósið. Og synh' sona þeirra
urðu eftir meðal okkar, sem aðeins hlutum
beiskjuna að gjöf.
(Úr Chílam Balam bókunum. Guðbergur
Bergsson þýddi)
Hvernig leit samfélagið út undir
stjórn Spánverja í nýlendum
þeirra? Það sem kom með
Spánverjum var vissulega
gjörólíkt því sem fyrir var og
úr sambræðingi þessara kyn-
þátta spruttu á margan hátt
merkir hlutir, svo sem í listum.
Hins vegar ber stjórnarfar álfunnar enn þess
merki að þessir ólíku kynþættir gátu ekki með
góðu móti lifað saman; til þess voru Spán-
verjarnir of harðir og ósveigjanlegir og indján-
arnir of þolgóðir í undirgefni sinni og fullir af of
miklum söknuði.
Valdstjórn Spánverja miðaði fyrst og fremst
að því að auðga hina spænsku krúnu. Öll inn-
lend framleiðsla var flutt frá löndum indjána til
Spánar, bæði jarðargróður, gull og silfur. Gullið
var brætt og steypt í stengur, jafnvel dýrgripir
og fágæt listaverk, svo auðveldara væri að
flytja það sjóleiðis. Námavinnsla á gulli var
mikil, einkum í upphafi, en síðan á silfri. Til
hreinsunar á silfrinu var notað kvikasilfur sem
flutt var frá Spáni og einokað af krúnunni.
Hreinsaður málmurinn var síðan allur fluttur
til Spánar og þar hirti kóngurinn þegar fimmt-
unginn sem sinn eignarhlut.
Námavinnslan byggði fyrst og fremst á inn-
fæddu vinnuafli þar sem indjánar voru þrælk-
aðir. Sættu þeir hinni hroðalegustu meðferð,
einkum fór slæmt orð af námavinnslunni í Perú
og Bólivíu.
Það hve aðkomumenn voru gagnólíkir íbúum
álfunnar gaf tilefni til margvíslegra heilabrota
varðandi sambýli kynþáttanna, eðli þeirra og
blöndun. Þannig veltir jesúítinn Bernabe Cobo
því fyrir sér hvort rauðbrúnn hörundslitur
indjánanna stafi af loftslagi eða erfðum, og
hvort þeir Spánverjar sem búi í nýlendunum
hafi breyst svo í útliti að þeir dragi dám af
frumbyggjum eftir áralanga veru þar í álfu.
Hann kemst að þeirri niðurstöðu að svo sé ekki.
Indjánum lýsir Bernabe Cobo svo:
„Allir eru þeir hæglátir að eðlisfari, og þar
eð hæglæti gerir limi manna mjúka, eru þeir
bæði mjúkholda og viðkvæmir. Þar af leiðir, að
þeir þreytast fljótt, og eru því ófærir um að
leggja á sig jafn mikið erfiði og Evrópubúar; á
Spáni afkastar einn maður á akri meira en fjór-
ir indjánar gera hér. Þeir eru hægfara í öllu því
sem þeir taka sér fyrir hendur, og ef einhver
rekur á eftir þeim við vinnu, neita þeir að gera
nokkurn skapaðan hlut, en ef þeir eru látnir
vinna, eins og þeim er lagið, ferst þeim hvað
eina vel úr hendi. Þeir auðsýna mikla þolin-
mæði við að læra vinnubrögð okkar. Þess
vegna eru þeir svo frábærir handverksmenn.
Þeir eru einkum lagnir við að læra þau störf,
sem útheimta þolinmæði, og hafa því margir
náð meistaralegri færni í iðn sinni, sérstaklega
þeirri, sem er flókin. Þeim geðjast þó ekki að
erfiðisvinnu. Þeir sýna mikla hæfileika í söng
og hljóðfæraleik, málaralist og höggmyndlist,
og einnig í útsaumi, silfursmíði og svipuðum
störfum. En umfram allt sýna þeir ótrúlega
þolinmæði gagnvart seinlæti lamadýrsins, sem
er burðardýr þeirra. Þessi dýr ganga svo hægt,
að Spánverjar fá með engu móti þolað það, án
þess þeim renni í skap. Aftur á móti fylgir
indjáninn þeim eftir á sama hraða, án þess
nokkru sinni að tapa stillingu sinni, hversu oft
sem lamadýrið stansar eða leggst niður á jörð-
ina með byrði sína á bakinu, en það gera þau
þráfaldlega."
„HAMINGJA HINS INNBORNA"
Eitt af verkefnum hvíta mannsins í álfunni
var hinn trúarlegi þáttur. „Kirkjan taldi það
skyldu sína að snúa öllum sem til náðist til
kristni, koma þeim til skilnings á guðs orði og
innprenta þeim kristilegt siðgæði. Auk þess að
sinna heiðingjum og nýkristnum frumbyggjum
þurfti kirkjan jafnframt að varðveita og hlúa að
trúarlífi hinna hvítu herra vestanhafs. Öll
menntun og rekstur menntastofnana hvíldi og á
herðum kirkjunnar. Mörgum kirkjunnar þjón-
um hefur vafalaust þótt hin kaþólska kristni
frumbyggjanna næsta sérstæð og mjög svo
blönduð heiðnum, indjánskum siðum. En allt
um það festi kirkjan vel rætur og tryggði sig í
sessi.
Margir kirkjunnar menn börðust með odd og
egg gegn hinni hrikalegu meðferð á indjánum á
fyrstu áratugum 16. aldarinnar. Að kröfu
manna eins og Bartolomé de las Casas, sem
nefndur hefur verið postuli Ameríku, voi-u sett
ýmis lög um réttindi indjána. En það var ekki
fyrr en löngu síðar, eða um aldamótin 1600,
sem vernd þessi bar árangur. En þá voru
indjánar horfnir af stórum svæðum, svo sem
eyjum Karabíska hafsins og víðar. Árið 1608
voru indjánar í Mexíkó 1.8 milljón, en voru allt
að 25 milljónum rúmum 80 árum fyrr. Svipuð
varð þróunin annars staðar. Frelsissvipting,
þrælkun, svo og margvíslegar evrópskar far-
sóttir eiga mestan þátt í þessari óhugnanlegu
fækkun frumbyggjanna," segir í bók Sigurðar
Hjartarsonar, Þættir úr sögu Rómönsku Amer-
íku. Við það er svo að bæta að sagnir herma frá
sjálfsvígum heilla þorpssamfélaga þar sem
indjánar gátu með engu móti unað við ástand
sitt.
Á meðan landvinningamenn fyrirlitu indjána
og vildu hafa þá sem þræla kröfðust prestar
þess að þeir nytu „hamingju hins innborna", og
væru frjálsir. Báðir aðilar börðust fyrir því að
hafa með viðhorfum sínum áhrif í þessu máli.
Julian Garcés, sem varð biskup í Tlaxcala í
Mexíkó árið 1527, tók þátt í deilunni með frægu
bréfi til Páls páfa þriðja. Þar segir meðal ann-
ars:
„Heilagi faðir, mér veitist það ekki vanda-
samt að lýsa fyrir yðar heilagleika því, sem ég
hef orðið áskynja um þá ástkæru hjörð, sem
hefur á skömmum tíma gengið í kirkju vora, til
þess að þér megið gleðjast í guði yfir sálarheill
okkar. Og svo ég þreyti yður ekki með frekari
málalengingum, þar sem þér þurfið að sinna
svo mörgum og vandasömum málefnum í þess-
um heimi, mun ég nú þegar greina frá réttum
málavöxtum.
Börn indjánanna eru engan veginn til leið-
inda með því að sýna kirkju vorri stífni og
þrjósku, eins og börn máranna og gyðinganna
gera; nei, þau innbyrða með slíkum hætti sann-
leika kristinna manna, að þau ekki einasta bera
hann með sér, heldur tileinka þau sér hann, og
það svo auðveldlega, að engu er líkara en þau
drekki hann í sig. Þau læra fyrr en spænsku
börnin, og með meiri ánægju, boðorð guðs og
bænir vorrar trúar, sem þau geyma dyggilega í
huga sér, ásamt öðru, sem þeim er kennt.
Þau eru hvorki gráðug né þrætugjörn, stirfin
né óeirin, uppivöðslusöm né hrokafull, illgjörn
né heiftrækin, heldur notaleg í umgengni, vel
upp alin og afar hlýðin við kennara sína. Þau
ei-u bæði elskuleg og hæversk við félaga sína,
án þess að klaga þá, baktala eða móðga, eins og
algengt er meðal spænskra bama. Samkvæmt
því sem vor tíð býður upp á hyllast þau mjög að
frjálslyndi. Miklu varðar, að það, sem þeim er
gefið, sé gefið einum og öllum, því hvað eina,
sem einn fær, deilir hann með öðrum.“
Það voru einkum jesúítar sem náðu árangri í
málefnum íbúanna og stofnuðu samfélög í
Paraguay þar sem mikill fjöldi indjána lifði í
skjóli þeirra, allt þar til jesúítai- voru gerðir út-
lægir úr Spánarveldi árið 1767. Frægustu trú-
boðsstöðvarnar voru í Misiones-héraði. Þar eð
landvinningamenn áttu torvelt með að yfirbuga
indjánana þar voru jesúítar sendir til þess að
koma réttri skipan á þá. Þeir leituðu indjánana
uppi, fóru djúpt inn í frumskógana með biblíuna
eina að vopni og létu stundum líf sitt fyrir.
En þegar fram liðu stundir gerðist uppgang- y
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 26. SEPTEMBER 1998 1 5