Lesbók Morgunblaðsins - 26.09.1998, Side 11
+
5
BANKASTRÆTI 7a - Hús málarans - Sólon íslandus. Húsið var reist árið 1926 . Það var Jón Björnsson kaupmaður sem
lét Einar teikna húsið fyrir sig. Árið 1958 var húsið hækkað og var nýja hæðin gerð úr timbri og steini. Hún er síst til
prýði fyrir húsið og í alls engu samræmi við gerð þess.
:»ííSkííS'.’,*•. v.yy
INGÓLFSSTRÆTI - Gamla bíó - íslenska óperan. Árið 1925 bað
P. Petersen Einar um að gera uppdrátt að nýju lifandimynda-
leikhúsi. Húsið er byggt í hreinum nýklassískum stíl.
LAUGAVEGUR 36 - Bakarí Sandholt. Árið 1925 tók Einar að sér
að teikna íbúðarhús og bakarí fyrir Guðmund Ólafsson og
Sandholt. Húsið er eins og Gamla Bíó í nýklassískum stíl.
FRÍKIRKJUVEGUR 11. Thor Jensen stórkaupmaður lét reisa húsið eftir teikningum Einars árin 1907-08.
Húsið er í nýklassískum stíl, en klætt bárujárni sem verður að teljast einkennandi fyrir íslenskan
byggingarstíl á þessum tíma.
ISLENSK byggingarlist á sér ekki mjög
langa sögu. En einmitt það gerir hana
óvenjulega og áhugaverða. í dag stöndum
við fyllilega jafnfætis öðrum þjóðum á
sviði byggingarlistar, þrátt fyrir það að
hér var ekki til sú atvinnumannastétt sem
við í dag köllum arkitekta fyrr en í upp-
hafi þessarar aldar og voru þeir í þá daga
kailaðir annað hvort húsa- eða byggingarmeist-
arar. Almenn umræða um sögu byggingarlistar-
innar hefur aukist undanfarin ár og sem betur
fer virðast flestir í dag telja húsaverndun og
virðingu fyrir gömlum
byggingum sjálfsagðan
hlut. Til skamms tíma
voru það nær einungis
gömlu timburhúsin sem
talin voru i útrýmingar-
hættu, en nú er farið að
gefa meiri gaum að stein-
steypuhúsum frá því á
fyrri helmingi þessarar
aldar. Þau eru ekki síður
mikilvægur kafli í ís-
lenskri byggingarlistar-
sögu.
Umfjöllunarefni mitt í
þessari grein er afmarkað
svið í íslenskri byggingar-
listarsögu, eða það tímabil
þegar Islendingar upp-
götvuðu byggingarefnið
steinsteypu og fóru að
nota hana nær eingöngu sem efnivið við hús-
byggingar. Flestir þekkja til verka þeirra Rögn-
valdar Ólafssonar og Guðjóns Samúelssonar.
Þeir eru færri sem þekkja til samtímamanns
þeirra sem var ekki síður afkastamikill á tíma-
bilinu 1920-’30, en einmitt á þeim áratug var
mikil gróska í byggingu steinsteypuhúsa í borg-
inni. Þessi maður, sem mér fínnst kominn tími
til að kynna fyrir almenningi, hét Einar Er-
lendsson og starfaði hann sem húsameistari í
hartnær hálfa öld.
Hver var Einar Erlendsson?
Einar Erlendsson fæddist 15. október árið
1883. Foreldrar hans voru Erlendur Árnason
húsasmíðameistari og Agústa H.J. Ahrenz, og
var hún af þýskum ættum en faðirinn Húnvetn-
ingur. Kona Einars hét Sigríður Lydia Thjell og
eignuðust þau hjónin tvö börn. Ekki kemur
margt fyrir á prenti um uppvaxtarár Einars. A
unga aldri lærði hann trésmíði eins og faðirinn
og tók Einar sveinspróf í þeirri grein. Því næst
hélt bann utan til náms í húsagerðarlist í
Tekniske Selskabs Skole í Kaupmannahöfn. Þar
var hann við nám í alls þrjú ár eða frá 1901-1903
og svo aftur veturinn 1904. Þegar Einar kom
aftur heim til íslands gerðist hann aðstoðar-
maður Rögnvaldar Ólafssonar sem þá var ráðu-
nautur landsstjórnarinnar í húsagerð. Báðir
höfðu þeir orðið að hverfa frá námi áður en þeir
luku því. Þeir höfðu svipaðan bakgrunn, nema
hvað Rögnvaldur hafði lokið stúdentsprófí og
lesið guðfræði í eitt ár við Prestaskólann áður
en hann hóf nám sitt í húsagerðarlist í Dan-
mörku. Einar var aðstoðarmaður Rögnvaldar
frá 1905-1917, en vann jafnhliða á sinni eigin
teiknistofu.
A þeim þremur árum sem liðu frá fráfalli
Rögnvaldar og þar til að Guðjón Samúelsson
tók við starfí húsameistara, gegndi Einar stöðu
byggingarfulltrúa Reykjavíkur. Guðjón varð
fyrstur manna til þess að gegna starfí húsa-
meistara ríkisins þegar til þess var stofnað árið
1920, en hann var einnig fyrstur Islendinga til
þess að ljúka prófí í arkitektúr. Einar gerðist
aðstoðarmaður Guðjóns og gegndi því starfi þar
til Guðjón féll frá, en þá tók Einar við stöðunni
næstu fjögur árin eða frá
1950-54. Einar starfaði
ekki einungis fyrir hið op-
inbera heldur starfrækti
hann eigin teiknistofu og
teiknaði fyrir fjölmörg
fyrirtæki og einstaklinga.
Hann þótti fmmlegur og
hagsýnn teiknari og voru
hús hans því vinsæl.
Asamt því að vera af-
kastamikill á bygginga-
sviðinu, þá var Einar at-
hafnasamur á sviði félags-
mála og hófust afskipti
hans af þeim nokkuð
snemma. Hann var ein-
ungis 15 ára gamall þegar
hann gerðist aukafélagi í
Iðnaðarmannafélagi
Reykjavíkur, líklega á
meðan hann var í trésmíðanáminu við Iðnskól-
ann. Hann var virkur í féiaginu og átti síðar eft-
ir að verða formaður þess um fimm ára skeið, á
árabilinu 1936-40. Einar var kosinn heiðursfé-
lagi á 100 ára afmæli félagsins árið 1967, en
hann hafði þá verið félagsmaður í Iðnaðar-
mannafélaginu í 70 ár. Meðal þeiira félaga og
fyrirtækja þar sem Einar var einn af stofnend-
um voru íþróttafélag Reykjavíkur, Sparisjóður
Reykjavíkur og Rotaryklúbburinn. Einnig sat
hann í ýmsum nefndum á vegum bæjarins og
var meðal annars varaborgarfulltrúi fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn í Reykjavík árin 1942-1950. Jafn-
framt var hann kosinn sjöundi þingmaður
Reykvíkinga árið 1942.
Einar Erlendsson var iðnaðarmaður sem
þekkti vel til allra framkvæmda við húsabygg-
ingar og hugaði ekki síður að tæknilegum atrið-
um utan sem innan, en jafnframt hafði hann
gott listrænt innsæi og er það það sem gerði
hann að vinsælum og virtum húsameistara.
Upphaf ferils Einars
sem húsameistara
Einar Eriendsson byrjaði feril sinn sem að-
stoðarmaður Rögnvalds Ólafssonar. Er hann
kom heim frá Danmörku hófst hann þegar
handa við að teikna hús. A þeim tíma var timbur
enn algengasta byggingarefnið. Einar var
menntaður trésmiður og kunni því vel til verka.
Eftir brunann mikla í Reykjavík árið 1915 má
segja að smíði timburhúsa leggist svo til alveg
af. í stað timbursins kom steinsteypan. Einar
virðist ekki hafa verið iengi að tileinka sér nýja
byggingarefnið og byrjaði hann snemma að
EINAR Erlendsson húsameistari.
ÞINGHOLTSSTRÆTI 29a - Borgarbókasafn. Húsið var reist árið 1916 úr steinsteypu í nýbarokk-stíl,
EFTIR SIGRÍÐI BJÖRK JÓNSDÓTTUR
Einar Erlendsson hóf feril sinn sem aðstoðarmaður Rögnvaldar Ólafssonar og átti síðan eftir að teikna nokkur þeirra húsa
sem hvað hæst ber í íslenskri steinsteypuklassík. Hann var orðinn mjög fær í að notfæra sér byggingarstíla eins og klassík
og barokk og flest húsanna sem hann teiknaði á tímabilinu 1920-30 eru einmitt sambland af þessum tveimur stíltegundum.
prófa sig áfram. Til þess að gefa einhverja mynd
af ferli Einars fyrir 1920 verða hér nefnd nokk-
ur þeirra húsa sem hann teiknaði fyrir þann
tíma.
Eitt frægasta timburhús sem Einar teiknaði
er Fríkirkjuvegur 11 sem athafnamaðurinn
Thor Jensen lét reisa fyrir sig árin 1907-08.
Húsið er í nýklassískum stíl, en er klætt með
bárujárni sem verður að teljast mjög einkenn-
andi fyrir íslenskan byggingarstfl. I æviminn-
ingum sínum segir Thor frá því að hann hafi
sjálfur leitað fyiirmynda að húsi sínu í bókum á
Landsbókasafninu en síðan fengið húsameistar-
ann Einar Erlendsson til þess að sjá um út-
færsluna.
Timburhúsið sem enn stendur við Skólabrú 1
var reist árið 1907 eftir teikningu Einars. Sama
ár vann Einar að endurbyggingu Fálkahússins
og hefur húsinu ekki verið breytt síðan. Við
Kirkjustræti 2 stendur hús Hjálpræðishersins
eða Herkastalinn eins og hann er oft nefndur.
Húsið teiknaði Einar árið 1916.1 fyi-stu var hús-
ið aðeins tvflyft en var hækkað um tvær hæðir
árið 1929 og sá Einar um að teikna viðbótar-
hæðirnar tvær svo að ekki er hægt að sjá annað
en að húsið hafi átt að vera fjórar hæðir í upp-
hafi. Herkastalinn er byggður í nýrómönskum
stfl. Það er ekki klassísk fornöld sem er fyrir-
myndin í það skiptið heldur evrópskir miðalda-
kastalar. Eftir að húsið var hækkað um tvær
hæðir er þetta einkenni ekki eins áberandi. Til
þess að líkja eftir hleðslu hefur steypan verið
lögð í mót, en þetta má sjá víðar á húsum sem
eru byggð um þetta leyti. Síðar átti Einar efth-
að teikna einbýlishús í nútímalegri og klassísk-
ari kastalastfl.
Árið 1916 er við Þingholtsstræti 29A reist hús
það sem nú hýsir Borgarbókasafn, eftir teikn-
ingum Einars. Húsið er gert úr steinsteypu en
er í nýbarokk-stfl. í miðbæ Reykjavíkur eru
fleh-i hús sem Einar hefur teiknað. Við Hafnar-
stræti standa þrjú stórhýsi eftir Einar. Þetta
eru Hafnarstræti 10-12 sem gekk undir nafninu
Edinborgarhúsið , Mjólkurfélagshúsið númer 5
og hús Helga Magnússonar kaupmanns en þar
er Rammagerðin nú til húsa. Öll þessi hús bera
einhver einkenni nýklassíkur. Einnig teiknaði
Einar húsið sem stendur við Austurstræti núm-
er 14 og verður minnst á það síðar.
Einar var orðinn mjög fær í að notfæra sér
byggingarstfla eins og klassík og barokk. Flest
þeirra húsa sem hann teiknaði á tímabilinu
1920-30 eru einmitt sambland af þessum tveim-
ur stflum.
Á þessum árum 1915-20 teiknaði Guðjón
Samúelsson nokkrar byggingar í „hefðbundnum
stfl“ sem þegar hafði náð vinsæidum. Guðjón
hafði lært að byggja í nýklassískum stíl í Aka-
demíunni í Kaupmannahöfn. Sökum velgengni
sinnar hugðist Guðjón ekki ljúka prófi í arki-
tektúr en koma heldur til stai-fa á íslandi þar
sem næg verkefni biðu hans. Það var Jón Magn-
ússon, þáverandi forsætisráðherra, sem lofaði
Guðjóni embætti húsameistara ríkisins ef hann
aðeins lyki námi sínu. Hefur það vafalaust haft
áhrif á þá ákvörðun Guðjóns að ljúka náminu
áður en heim skyldi haldið. Einari Erlendssyni
var ekki boðin staðan heldur gegndi hann henni
aðeins tímabundið eða í rúm tvö ár, eða meðan
Guðjón var að Ijúka námi. Einar hafði þegar
þetta var ekki hlotið húsameistararéttindi
vegna þess að hann hafði, eins og margir íslend-
ingar sem fóru til náms í Kaupmannahöfn á
þessum árum, ekki lokið prófi í greininni. Hann
fékk ekld húsameistararéttindi fyrr en árið 1939
og hafa menn líklega talið hann þá hafa sannað
sig í 818141. I bókinni Islenzk bygging eru til-
teknir þríi’ samstarfsmenn Guðjóns, þar á meðal
Einar Erlendsson. Þar segir:
Einar Erlendsson var mjög fær húsameistai-i,
og auk þátttöku sinnar við ríkisbyggingar, hafði
hann á eigin spýtur staðið fyrir byggingu
margra merkra húsa í Reykjnvík. Meðan Einar
starfaði með húsameistara íikisins gætti hann
með mikilli umhyggju hinna miklu fjármuna,
sem runnu í miljóna tali gegnum skrífstofu
hans.
Einar átti langa starfsævi og gafst honum
tækifæri til þess að vinna með þeim tveimur
mönnum sem minnst er sem frumkvöðlanna
tveggja í íslenskri byggingarsögu í upphafi ald-
arinnar. Einar sat ekki aðgerðalaus þennan
tíma heldur var hann þvert á móti mjög at-
hafnasamur húsameistari. I hugum margra er
Guðjón sá eini sem teiknaði þessi nýklassísku
fínu hús sem standa víðs vegar í miðbæ Reykja-
víkurborgar. Það eru ekki eins margir sem
þekkja til verka Einars Erlendssonar. En hann
á heiðurinn af mörgum þeirra húsa sem setja
ekki hvað síst stórborgarbrag á þessa litlu borg.
Nýklassík
Hugtakið steinsteypuklassík hefur verið not-
að í umfjöllum um þau steinsteypuhús sem
byggð voru í Reykjavík ó órabilinu 1920-30. í
þessum húsum eru klassísk stfleinkenni útfærð í
hið nýja byggingarefni sem þá var nýlega komið
fram. Húsin voru mótuð að erlendri fyrirmynd
en annað byggingarefni notað. Húsin bera ekki
eingöngu nýklassísk einkenni heldur er í þeim
að finna fleiri stíleinkenni fyrri tíma, þetta hefur
líka verið kallað sögustíll. Hugtakið klassík í
þessu samhengi á því fremur við um eitthvað
gamalt og viðurkennt. Einar Erlendsson hefur
gjarnan verið nefndur faðir steinsteypuklassík-
ur en einnig byggðu aðrir í þeim stfl.
Einar Erlendsson var afkastamikill á þessu
tímabili eða á milli 1920 og 1930. Erfitt er að
velja einstök hús til umfjöllunar þar sem úi-valið
er mikið og gott. Það liggur þó beint við að velja
til umfjöllunar nokkur hús sem standa við tvær
af elstu götum borgarinnar, Bankastræti og
Laugaveg. Einar teiknaði tvö hús sem standa í
Bankastræti og eni það húsin númer 5 og 7a.
Það fyrra hýsir nú Islandsbanka. Það er þó nær
óþekkjanlegt ef borin er saman frumteikning
Einars af húsinu. Öllu þekktara er Hús málar-
ans, í dag oftast kallað Sólon Islandus, sem er
númer 7a. Húsið var reist árið 1926 og heldur
enn sínum ytri einkennum, fyrir utan efstu hæð-
ina sem var bætt við löngu síðar. Næsta hús
stendur að vísu hvorki við Bankastræti né
Laugaveg, en er þó vel sjáanlegt frá Laugaveg-
inum. Þetta er Gamla Bíó sem stendur við Ing-
ólfsstræti, kannski betur þekkt sem ísienska
óperan. Það hús er í hreinum nýklassískum
ISLENSK STEINSTEYPUKLASSIK I VERKUM EINARS ERLENDSSONAR
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 26. SEPTEMBER 1998
+
LESBÓK MORGUNBIAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 26. SEPTEMBER 1998 1 1