Lesbók Morgunblaðsins - 26.09.1998, Page 2
NORRÆNIR MÚSÍKDAGAR í STOKKHÓLMI
MIKILL ÁHUGI OG
MIKIL AÐSÓKN
HÚSFYLLIR hefur verið á öllum tónleik-
um Norrænna músíkdaga sem lýkur í dag
í Stokkhólmi og komust færri að en vildu,
en það er alveg nýtt fyrirbrigði á þeirri
hátíð, að sögn Kjartans Olafssonar tón-
skálds sem þar er staddur ásamt fleiri fé-
lögum í Tónskáldafélagi Islands.
A hátíðinni, sem hófst á mánudag, voru
flutt verk eftir sjö íslensk tónskáld: In a
magnetic fleld fyrir kammersveit eftir
Snorra Sigfús Birgisson, Proud Music of
the Storm eftir John Speight, Píanótríó
eftir Askel Másson, Mónetta fyrir fíðlu og
píanó eftir Kjartan Olafsson, Game fyrir
tvær flautur eftir Karólínu Eiríksdóttur,
Flecte Lapis fyrir Midi-píanó eftir Atla
Ingólfsson og hljómsveitarverkið Bells of
Earth eftir Þorstein Hauksson. Þá var
Mist Þorkelsdóttur boðið sérstaklega til
hátíðarinnar en sá háttur hefur verið
hafður á að bjóða þangað tónskáldum af
yngri kynslóðinni frá allri Evrópu.
Kjartan segir að mikill áhugi og mikil
stemmning sé fyrir Norrænum músíkdög-
um að þessu sinni og hátíðin sé sérlega vel
skipulögð hjá Svíum. Hugsanlega megi
rekja aukinn almennan áhuga og aðsókn
til þess að Stokkhómur er nú menningar-
borg Evrópu. „A hátíðinni hefur oft verið
leikin hálfgerð utangarðstónlist fyrir ein-
hverja sérhópa tónlistarmanna en í dag
virðist hópur áheyrenda vera mjög breið-
ur, alveg frá unglingum og upp úr og það
er skemmtileg nýbreytni," segir hann.
Annað sem hefur komið þægilega á óvart
á hátíðinni er skyndileg haustblíða eftir
kalt sumar í Svíþjóð. „Hingað mættu allir
með vetrarföt og skíðaúlpur en nú er sól-
skin og yfir tuttugu stiga hiti,“ segir
Kjartan.
CAPUT OG
SIGRÚN
EÐVALDSDÓTTIR
TILNEFND
CAPUT-HÓPURINN ogSigrún Eðvaldsdóttir
fíðluleikari eru tilefnd af Islands hálfu til Nor-
rænu tónlistarverðlaunanna fyrir árið 1999. •
Frá Danmörku eru tilefnd þau Povl Dissing,
vísnasöngvari og trúbador og Kontra-kvartett-
inn, strengjakvartett; frá Færeyjum þjóð-
lagatríóið ENEKK; frá Finnlandi Maria Kal-
aniemi harmonikuleikari og Leif Segerstam
stjórnandi; frá Alandseyjum Walton Grönros
óperusöngvari; frá Noregi Jan Gai’barek saxa-
fónleikari og strengjakvartettinn Vertavo-
kvartettinn og frá Svíþjóð Palle Danielsson
bassaleikari og Christian Lindberg básúnu-
leikari.
Á haustfundi nefndarinnai' verður ákvörðun
tekin um hver hlýtur verðlaunin og verða þau
afhent á fundi Norðurlandaráðs í Ósló 9.-12.
nóvember n.k.. Verðlaunin nema 350.000
dönskum krónum, jafnvirði um 3,8 milljóna
ki'óna. Formaður nefndarinnar er Martin
Martinsson frá Svíþjóð, en fulltrúi Islands er
Árni Harðarson.
Þeir íslendingar sem fengið hafa verðlaunin
eru Atli Heimir Sveinsson, Hafliði Hallgríms-
son og Björk Guðmundsdóttir.
LESIÐ I MALVERK
Morgunblaðið/Ámi Sæberg.
HVER myndlistarsýningin rekur aðra og mega þeir, sem
vilja fylgjast með, hafa sig alla við vegna stutts sýningar-
tíma. Það væri mikið heillaspor, ef þeir, sem að myndlistar-
sýningum standa, lengdu sýningartimann, þannig að sem
flestir myndlistarunnendur gætu notið allrar þeirrar fjöl-
breytni, sem ríkir.
SYSTURNAR FLYTJA
„RÓMANTÍSKT
OG FALLEGT"
VERK eftir Clöru og Robert Schumann
eru meðal þess sem er á efnisskrá ein-
söngstónleika systranna Signýjar Sæ-
mundsdóttur sópransöngkonu og Þóru
Fríðu Sæmundsdóttur píanóleikara í Hafn-
arborg annað kvöld, sunnudagskvöld. Tón-
leikarnir eru þeir sjöttu í röðinni „Tónleik-
ar á afmælisári,“ sem Hafnarborg, menn-
ingar- og listastofnun Hafnarfjarðar,
stendur fyrir í tilefni af 90 ára kaupstaðar-
afmæli Hafnarfjarðar og 15 ára afmæli
Hafnarborgar.
„Þetta eru dæmigerðir ljóðatónleikar,
falleg og klassísk dagskrá," segir Signý að-
spurð um efnisskrána. Rómantíkin svífur
yfir vötnum í fyrri hluta tónleikanna, þar
sem flutt verða verk eftir Clöru og Robert
Schumann. Signý segir það mjög gaman að
fá að flytja nokkur af lögum Clöru, þar sem
þau séu ekki á efnisskrá á hverjum degi.
Seinni hlutinn hefst með fjórum lögum eftir
Arnold Shönberg, dæmigerðum síðróman-
tískum ljóðum frá byrjun þessarar aldar.
Þegar hér er komið sögu tekur svo við
frönsk tónlist, „glettin og skemmtileg lög
eftir Erik Satie, textinn dálítið kómískur og
nánast absúrd. Þá er ástarvals eftir Franc-
is Poulenc og svo endum við á þremur ljóð-
um úr lagaflokki sem heitir Sumarnætur
eftir Hector Berlioz," segir Signý.
Morgunblaðið/Ásdís
SIGNÝ Sæmundsdóttir sópransöngkona og
Þóra Fríöa Sæmundsdóttir píanóleikari.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Asmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitss. á verkum Ásmundar Sveinssonar.
Fálkahúsið, Hafnarstræti 1
Greipar Ægis: Sandskúlptúrar. Til áramóta.
Gallerí Art Hún, Stangarhyl 7
Toshiko Takaezu. Leirlistaverk. Til 4. okt.
Gallerí 20 fermetrar, Vesturgata lOa
Helgi Hjaltalín Eyjólfsson.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg
Gunnar Bjamason. Til 4. október.
Gallerí Fold, Kringlan
Samsýningin Hvalir. Til 29. sept.
Gallerí Kambur, Holta- og Landsveit
Ólafur Elíasson. Til. 4. okt.
Gallerí Listakot
Samsýning 13 listakvenna. Til 26. sept.
Gallerí Stöðlakot
Vatnslitamyndir eftir Nikulás Sigfússon. Til 11. okt
Galleríkeðjan Sýnirými
Sýnibox v. Vatnsstíg: Almee Simons.
Gallerí Barmur: Gunnar Magnús Andrésson.
Gallerí Hlust, sími: 551 4348: Story, eftir Janet
Passehl. Út sept.
Sjónþing Kristins G. Harðarsonar. Til 30. sept.
Gérðuberg: Sjónþing Kristins G. Harðarsonar.
Til 24. okt.
Hafnarborg
Apótekið: Ljósmyndasýning Bernts Schlussel-
burg. Sverrissalur: Margrét Guðmundsdóttir, ol-
íumyndir. Aðalsalur: Anna Sigríður Sigurjónsdót-
ir, skúlptúrar. Til 5. okt.
Hallgrímskirkja
Tryggvi Ólafsson. Til septemberloka.
Ingdlfsstræti 8
Eloi Puig. Til 11. október.
Kjarvalsstaðir
-30 / 60+, samsýning tveggja kynslóða.
Listasafn ASÍ
Gryfjan: Jun Kawaguchi. Asmundarsalur: Þóra
Sigurðardóttir. Til 4. okt.
Listasafn Einars Jönssonar, Skólavörðuholti
Opið laugardaga og sunnudag 14-17.
Höggmyndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn
Sigrún Eldjárn. Bridget Woods. Margrét Sveins-
dóttir. Til 27. sept.
Listasafn íslands
íslensk abstraktlist 1950-60. Til 25. okt.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg 5
Sveinbjörg Hallgrímsdóttir. Til 19. sept.
Mokkakaffi, Skólavörðustíg
Orri Jónsson sýnir Ijósmyndir. Til 10. okt.
Norræna húsið, Hringbraut
Roj Friberg. Til 27. sept.
Andy Horaer. Ljósmyndir frá Álandseyjum. Til
30. sept.
Nýlistasafnið
Sýning í umsjá Harm Lux. Sýnendur eru frá
Sviss, Ungverjalandi og Islandi. Safnasýning. Til
27. sept.
Safn Asgríms Jónss., Bergstaðastræti 74
Sumarsýning á verkum Ásgríms.
Sjóminjasafn íslands, Hafnarfirði
Sumarsýning á Ijósmyndum Helga Arasonar.
Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v. Suð-
urgötu
Handritasýning. Þriðj., mið., fim. 14-16. Til 14. maí.
SPRON, Mjódd
Harpa Bjömsdóttir sýnir til 24. okt.
TÓNLIST
Laugardagur
Skálholtskirlya: Scola Cantorum. Kl. 17.
ísafjörður. Iþrtíttahúsið Torfanesi: Sinfóníu-
hljómsveit íslands og Sigrún Hjálmtýsdóttir
sópransöngkona. Kl. 15.30.
Sunnudagur
Hallgrímskirkja: Douglas A. Brotchie orgelleik-
ari. Kl. 20.30.
Hafnarborg: Signý Sæmundsóttir, sópransöng-
kona og Þóra Fríða Sæmundsdóttur, píanóleikari.
Kl. 20.30.
Reykholtskirkja: Scola Cantorum. Kl. 17.
Þriðtjudagur
Selfosskirkja: Margrét Bóasdóttir sópransöng-
kona og Jörg Sonderman, oragnisti Hveragerðis-
kirkju. Kl. 20.30.
Fimmtudagur
Húskólabfó: SÍ. Gula röðin: Love Derwinger, pí-
anóleikari. Stjórnandi Mikko Franck. Kl. 20.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Bróðir minn ljónshjarta, sun. 27. sept.
Gamansami harmleikurinn, fös. 2., okt.
Borgarleikhúsið
Grease, lau. 26. sept. Fös. 2. okt.
Sex í sveit, lau. 26. sept.
Iðnó
Dimmalimm, lau. 26. sept.
Þjónn í súpunni, lau. 26., sun. 27. sept. Fim. 1.,
fös. 2. okt.
Leikhússport, mún. 28. sept.
íslenski dansflokkurinn
Night, Jorma Uotinen; Stoolgame, Kiri Kylián;
La cabina 26, Jochen Ulrich, íim. 1. okt.
íslenska óperan
Ávaxtakarfan, sun. 27. sept.
Hellisbúinn lau. 26., fim. Fim. 1. okt.
Loftkastalinn
Bugsy Malone, lau. 26. sept.
Fjögur þjörtu, lau. 26. sept.
Hafnarfiarðarleikhúsið
Við feðgarnir, lau. 26. sept.
Síðasti bærinn í dalnum, sun. 27. sept.
Kaffileikhúsið
Svikamylla, lau. 26. sept. Fös. 2. okt.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að
birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist
bróflega eða á netfangi fyrir kl. 16 á miðvikudög-
um merktar: Morgunblaðið, Menningdistir,
Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691222.
Netfang: menning@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 26. SEPTEMBER 1998