Lesbók Morgunblaðsins - 25.01.1997, Blaðsíða 19
eru Rómansa eftir Saint-Saéns, Andante eft-
ir Richard Strauss og Canto serioso eftir
Carl Nielsen. Frá því tímabili er einnig
Rapsódía fyrir óbó og orgel eftir Rheinber-
ger, sem hann tók úr einni af fjölmörgum
orgelsónötum sínum og útsetti fyrir óbó og
orgel.
Geislaplata i vaendum
Hörður segir þessa „tilraun" í anda þess
sem tíðkist í auknum mæli erlendis, þar sem
orgelið hafi vaxið mjög að vinsældum eftir
að það „fór að kalla til liðs við sig ýmiss
konar hljóðfæri". Þar hafi hátíðum undir yfir-
skriftinni „Orgel og..til að mynda vaxið
fiskur um hrygg. „Menn hafa fundið upp á
ýsmu á slíkum hátíðum, má þar nefna orgel
og gítar, orgel og saxófón, orgel og básúnu,
orgel og söng og meira að segja orgel og
blokkflautu."
Að sögn Harðar verða tónleikarnir á
sunnudag forsmekkurinn að því sem koma
skal á Kirkjulistahátíð í vor en þá verður "
vígt nýtt hljómborð við orgel Hallgríms-
kirkju, sem gerir samspil mun auðveldara,
þannig að unnt verður „að raða allskonar
hópum í kringum orgelspilaborðið niðri í kirkj-
unni“. Verður við það tækifæri meðal annars
boðið upp á tónleika með orgelleik og kór-
söng og orgelleik og slagverksleik.
En það hangir fleira á spýtunni. „Já, aðal-
ástæðan fyrir samstarfinu núna er löngun
okkar allra til að festa þessi verk og fleiri til
á skífu,“ segir Hörður en fyrirhugað er að
upptökur hefjist í næstu viku. Verður geisla-
plata þessi að líkindum gefin út af Hallgríms-
kirkju og vonast Hörður til að hún geti orðið
upphafið að röð geislaplatna með orgelleik,
með og án annarra hljóðfæra.
Að sögn Harðar má gera ráð fyrir að plat-
an komi út fyrir næstu jól en þess má geta ^
að Daði og Joseph, „sem lengi hafa verið í
fremstu röð blásara á íslandi", svo sem Hörð-
ur kemst að orði, spila nú í fýrsta sinn ein-
leik á plötu. „Að því leytinu til verður þessi
plata jafnframt sérstök."
HUGLJUFTI
HALLGRÍMSKIRKJU
ÞETTA verða sérlega hugljúfir tónleik-
ar — verkin ættu að eiga greiðan
aðgang að fólki,“ segir Hörður
Áskelsson organisti sem standa mun
í eldlínunni ásamt Daða Kolbeinssyni óbóleik-
ara og Joseph Ognibene homleikara á tónleik-
um Listvinafélags Hallgrímskirkju kl 17.00
á sunnudag. Á efnisskrá er tónlist úr ýmsum
áttum sem spannar tímann frá barokk til
rómantíkur en meðal höfunda eru Telemann,
Loeillet, Albinoni, Saint-Saéns, Strauss og
Rheinberger.
Tónleikarnir eru að sönnu óvenjulegir en
verkin sem félagarnir hafa valið til flutnings
eru upprunalega fyrir aðra hljóðfæraskipan
— orgelþátturinn er umritun á þætti strengja-
sveitar eða píanós. Reyndar veit Hörður ekki
til þess að skrifuð hafi verið tónverk fyrir
þessa samsetningu hljóðfæra.
Daði og Joseph hafa áður leikið með Herði
á tónleikum í Hallgrímskirkju hvor í sínu
lagi. Var það, að sögn þess síðastnefnda,
kveikjan að tónleikunum nú. „Á þeim tón-
leikum komumst við að því hvað þessi sam-
setning er spennandi. Óbó og orgel er reynd-
ar þekkt sem sérstaklega falleg samsetning
en að horn og orgel hljómuðu svona vel sam-
an var ný reynsla fyrir okkur. Við ákváðum
því að steypa öllum hljóðfærunum saman á
einum tónleikum, þótt rétt sé að taka fram
að við spilum ekki allir saman nema í einu
verki.“
Morgunblaóið/Þorkell
JOSEPH Ognibene, Hörður Áskelsson og Daði Kolbeinsson
búa sig undir tónleikana á sunnudag.
Um helmingur verkanna er frá barokktím- ello og þáttur úr konsert fyrir tvö óbó eftir
anum, hornkonsert eftir Telemann, óbósónata Albinoni, en þar leikur hornið rödd annars
eftir Loeillet, þáttur úr óbókonsert eftir Marc- óbós. Rómantísku verkin fyrir horn og orgel
Morgunblaðið/Þorkell
LAUFEY Sigurðardóttir fiðluleikari, Daníel Þorsteinsson píanóleikari og Sigríður Grön
dal sópransöngkona verða í sviðsljósinu í Gerðubergi á mánudagskvöld.
ANDLEG STURTA
„ÞAÐ ER ávallt mikil áskorun að takast á
við Mozart og í raun forréttindi að fá að fíkta
i þessari tónlist eða eins og góð manneskja
norður á Akureyri hefur sagt: „Það er eins
og að fara í andlega sturtu“,“ segir Daníel
Þorsteinsson píanóleikari sem hefur með öðr-
um skipulagt tónleika í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi á mánudag kl. 20.30 í tilefni af
því að þá verður 241 ár liðið frá fæðingu
tónskáldsins Wolfgangs Amadeusar Mozarts.
Að sögn Daníels er hugmyndin að „afmæl-
istónleikum" af þessu tagi nokkurra ára göm-
ul en nú hafi þau ákveðið að láta slag standa.
Reyndar vonast píanóleikarinn til að geta
gert tónleikana að árlegum viðburði enda sé
af nógu að taka þegar tónsmíðar Mozarts séu
annarsvegar.
Efnisskráin sem boðið verður uppá í Gerðu-
bergi er, að sögn Daníels, hádramatísk og
afar fjölbreytt,. Nefnir hann fyrst sónötu í
B-dúr KV.454 fyrir fiðlu og píanó, þar sem
Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari mun leggja
honum Iið. „Það er átök í þessari sónötu.“
Jafnframt er á efnisskrá kvartett í g-moll
KV.478 fyrir píanó, fiðlu, víólu og selló, þar
sem Guðmundur Kristmundsson víóluleikari
og Richard Talkowsky sellóleikari munu bæt-
ast í hópinn. „G-moll var tóntegund örlaganna
í lífi Mozarts en allflest verkin sem hann samdi
í g-moll einkennast af togstreitu tragedíu og
ljóðrænu, sem á svo sannarlega við þennan
kvartett, sem markaði að auki ákveðin tíma-
mót í kammermúsík, þar sem Mozart nýtir
möguleika hljóðfæranna mun betur en áður
hafði verið gert.“
Loks verður flutt úrval laga afmælisbarns-
ins, átta að tölu, fyrir sópran og píanó, við
þýsk, frönsk og ítölsk ljóð, en Mozart var,
að því er fram kemur í máli Daníels, mikill
tungumálamaður. Mun kastljósið þá beinast
að Sigríði Gröndal sópransöngkonu.
„Þessi sönglög Mozarts eru merkilega sjald-
an flutt miðað við hve miklar perlur mörg
þeirra eru. Sennilega stafar það af því að þau
hafa annarsvegar fallið í skuggann af öðrum
tónsmíðum Mozarts og hins vegar af sönglög-
um annarra ljóðatónskálda, svo sem Schu-
berts, Schumanns og síðar Brahms. Sannleik-
urinn er á hinn bóginn sá að Mozart var
merkilega sannspár, einkum síðustu ár ævi
sinnar, um það sem síðan gerðist á blóma-
skeiði þýska ljóðsins. Efnistök hans voru með
öðrum orðum ekkert ósvipuð því sem gerðist
hjá Schubert og jafnvel Brahms. Mozart sinnti
ljóðinu hins vegar ekki nema í hjáverkum og
yfírleitt af ákveðnu tilefni — hann virðist
ekki hafa gert þetta af innri þörf enda hafði
hann í nógu öðru að snúast,“ segir Daníel.
TILFINNINGAR
UNGMENNA Á MYND
EFNT verður til styrktarhátíðar í
Borgarleikhúsinu á morgun, sunnu-
dag, í tengslum við sýningu Mótor-
smiðjunnar Hvernig líður mér — ég
vildi að ég gæti sagt það með orðum,
sem lauk í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær.
Kenndi margra grasa á sýningunni,
svo sem meðfylgjandi myndir gefa til
kynna en hún samanstóð að mestu af
málverkum af persónulegum toga
enda mun markmið verkefnisins, sem
ungmenni í Mótorsmiðjunni tóku þátt
í, hafa verið að gefa tilfinningunum
lausan tauminn.
:
Listaklúbbur Leikhúskjallarans
KONUR MEÐ PENNA
I LISTAKLÚBBI Leikhúskjallarans á
mánudagskvöld, kl. 21 verður dagskrá
sem María Sigurðardóttir leikkona hefur
tekið saman í tilefni af afmæli Kvenrétt-
indafélagsins. Þar verður fjallað um
nokkrar íslenskar skáldkonur og verk
þeirra.
„Meginuppistaðan í dagskránni eru
skáldkonurnar Guðný frá Klömbrum og
Ólöf frá Hlöðum, en sagt verður frá ólíkum
uppvexti þeirra og lífshlaupi. Ólöf var alin
upp í mikilli fátækt, en Guðný á efnuðu
menningarheimili, en endaði síðan ævi sína
í sárri niðurlægingu, eftir að maður henn-
ar hafði yfirgefið hana og ráðstafað börn-
um hennar og eigum", segir í kynningu.
Þá verða fluttar vísur eftir tvíburasyst-
urnar Herdísi og Ólínu Andrésdætur, sem
fæddar voru í Breiðafjarðareyjum og
einnig úr verkum Guðfinnu frá Hömrum,
Kristínar Sigfúsdóttur og Jarðþrúðar
Jónsdóttur.
Auk Maríu taka þátt í þessari dagskrá
leikkonurnar Kristbjörg Kjeld, Edda Heið-
rún Backman og Halldóra Geirharðsdóttir.
Bókmenntalegur ráðunautur er Soffía
Auður Birgisdóttir.
Dagskráin hefst kl. 21, en húsið opnar
kl. 20.30. Aðgangseyrir er kr. 600 en 400
fyrir meðlimi Listaklúbbsins.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 25. JANÚAR 1997 19