Lesbók Morgunblaðsins - 25.01.1997, Qupperneq 2
Morgunblaðió/Ásdís
„Það er geysilega spennandi að fá að leika á slíkt hljóðfæri,“ segir Örn Falkner um
nýja orgelið í Kópavogskirkju.
Leikió á nýtt
orgel í
Kópavogs-
kirkju
FTRSTU orgeltónleikar af átta, sem haldnir
verða í Kópavogskirkju á næstu mánuðum í
tilefni af nýja pípuorgelinu þar, verða á morg-
un, sunnudag kl. 21. Þar leikur Öm Falkner
organisti og kórstjóri kirkjunnar sálmafor-
leiki og tokkötur eftir Johan Sebastian Bach,
César Franck og Max Reger.
Nýja orgelið í Kópavogskirkju er það
næst stærsta á landinu og var vígt fyrr í
mánuðinum. Að sögn Arnar Falkner hefur
hljóðfærið þegar fengið lofsamlega dóma
fyrir fallegan hljóm og formfegurð. „Þetta
orgel er smíðað af Bruhn & Son í Danmörku
og er mjög vel heppnað. Það er stórt og
mikið og hefur mikinn og fallegan hljóm.
Það er geysilega spennandi að fá að leika
á slíkt hljóðfæri."
Fram til vors verða haldnir alls átta tón-
leikar í Kópavogskirkju, annað hvert sunnud-
dagskvöld, þar sem leikið verður á orgelið
og fleiri hjóðfæri. Örn Falkner ríður á vaðið
á morgun en á síðari tónleikum koma meðal
annars fram og flytja margs konar tónlist
organistamir Marteinn H. Friðriksson, Hörð-
ur Áskelsson, Kjartan Siguijónsson, Lenka
Mateova og Haukur Guðlaugsson. Guðný
Guðmundsdóttir og Gunnar Kvaran leika á
fiðlu og selló, Guðrún Birgisdóttir og Martial
Nardeau á flautur, Kristinn Ámason og Ein-
ar Kristján Einarsson á gítara og einnig
syngja óperusöngkonurnar Sigrún Hjálmtýs-
dóttir og Ingibjörg Marteinsdóttir ásamt því
að Kór Kópavogskirkju syngur á tvennum
tónleikum undir stjóm Arnar Falkners.
Fyrsta bók J.D.
Salinger í 34 ár
BANDARÍSKI rithöfundurinn Jerome David
Salinger hefur samþykkt útgáfu á einni af
skáldsögum sínum og kemur hún út hjá lítt
þekktu forlagi á næstunni. Salinger, sem hef-
ur haidið sig eins fjarri sviðsljósinu og kostur
er, hefur ekki sent frá sér bók í 34 ár.
Sagan nefnist „Hapworth 16, 1924“ og er
fimmta verk J.D. Salingers. Hún birtist fyrst
í The New Yorker árið 1965 og er um 20.000
orð að lengd. Sagan er bréf sem sjö ára dreng-
ur sendir íjölskyldu sinni en vangaveltur hans
og lífssýn eru um margt óvenjulegar.
Það sama verður efalaust sagt um Salin-
ger, sem er sagður nær sjúklega einrænn.
Hann er 78 ára og býr í litlu þorpi í New
Hampshire. Hann veitir ekki viðtöl og vill
ekki á nokkum hátt láta á sér bera. I stað
þess að leita til stórra og þekktra forlaga, sem
fegin myndu gefa út verk hans og borga vel,
leitar hann til óþekkts forlags. Ekki verður
hægt að panta eintök fyrirfram, ekki verður
birtur útdráttur úr bókinni, ekki verður mynd
af höfundi á kápunni og sagt er að Salinger
hafi krafist þess að nafn hans verði prentað
lóðrétt framan á kápuna svo að minna beri á
því.
Salinger varð heimsþekktur er bók hans
Bjargvætturinn í grasinu („Catcher in the
Rye“) kom út árið 1951. Hún selst enn í um
400.000 eintökum ár hvert.
Þijár aðrar bækur eftir Salinger komu út
á eftir Bjargvættinum, sú síðasta árið 1963.
Sagt er að Salinger sitji enn við skriftir, allt
að 15 klukkustundum á dag en enginn veit
hvar afrakstur þeirrar vinnu er að finna. Á
síðustu þremur áratugum hefur Salinger að-
eins einu sinni komið fram opinberlega en það
var á miðjum síðasta áratug til að koma í veg
fyrir útgáfu á ævisögu sinni eftir Ian nokkurn
Hamilton en í bókinni voru birtir hlutar úr
bréfum sem Salinger sagði heyra undir höf-
undarrétt.
•STJÓRNANDINN George Solti hef-
ur áhuga á því að selja á svið óperu
eftir Mozart eða Verdi. í samtali við
Der Spiegel segir hinn 84 ára gamli
stjórnandi að hann hafi lengi langað
til þess en skort hugrekki. Ekki sé
þó loku fyrir það skotið að það takist
áður en ævi hans sé öll.
•OPERAMA-fyrirtækið hefur auglýst
eftir 500 manns til að taka þátt í
umfangsmikilli uppsetningu á Aidu
eftir Verdi í Róm og Mílanó í mars.
Vantar fólk til að leika þræla og her-
menn í Egyptalandi hinu forna en
stjórnandi hljómsveitarinnar verður
Giuseppe Raffa.
•TYRKNESKA lögreglan hefur
handtekið þýskan ferðamann, Man-
fred Lehmann, sem gerði tilraun til
þess að hafa á brott með sér freskur
úr hinni fornu borg Efesus. Var kom-
ið að Lehmann, sem er á sjötugsaldri,
þar sem hann notaði hamar til að
reyna að ná freskum af súlu í bóka-
safni sem reist var árið 135 e.Kr.
LANDVÆTTIR Á LISTASAFNI
ÍSLENSKA þjóðin, saga hennar og menn-
ing eru í brennidepli á myndlistarsýningu
Borghildar Óskarsdóttur sem opnuð verður
í Ásmundarsal, Listasafni ASÍ við Freyju-
götu, í dag kl. 16.00. Á sýningunni eru
verk unnin í leir, gler, steinsteypu og tré.
Segir listakonan hugmyndina að sýning-
unni vera skjaldarmerki íslands, einkum
skjaldberana, landvættirnar fjórar. Eru þær
í aðalhlutverki í Ásmundarsal, bæði í formi
leirs og glers. „Mér fannst ég þurfa að
taka þetta viðfangsefni fyrir,“ segir Borg-
hildur en aukinheldur getur að líta á sýning-
unni fleiri „tilvitnanir" í íslenska menn-
ingu, sem listakonan hefur útfært í stein-
steypu og tré, svo sem brot úr handriti
Halldórs Laxness að Heimsljósi og elstu
rituðu heimild um orðið íslendingar, sem
fengið er úr Konungsbók Grágásar frá því
um 1250.
Athygli vekur að leirmótin sem Borghild-
ur hefur steypt glerverkin í eru hluti af
sýningunni. Segir hún mótin ómissandi fyr-
ir heildarmyndina, auk þess sem þau standi
fyllilega fyrir sínu sem sjálfstæð listaverk
þegar búið sé að steypa í kringum þau.
„Þegar ég var að byija að vinna með leir
og gler saman henti ég alltaf leirformunum
þegar glerið var tilbúið en þegar ég fór að
huga betur að þeim þótti mér þau svo fal-
leg að ég hef varðveitt þau síðan. Þetta
er mjög skemmtilegt dæmi um form og
innihald."
Borghildur segir ýmsar áleitnar spuming-
ar hafa komið upp á yfírborðið meðan hún
vann að sýningunni, eins og um uppruna,
þjóðerni og fleira af því tagi - enda sé sitt-
Morgunblaóið/Þorkell
BORGHILDUR Óskarsdóttir myndlistarkona sækir yrkisefni sitt í menningu
og sögu íslensku þjóðarinnar.
hvað í tíðarandanum sem knýi okkur til að
gefa stöðu okkar í heiminum gaum. Hafi
hún, eftir föngum, reynt að leita svara en
niðurstaðan sé óljós.
Sýningin í Ásmundarsal er níunda einka-
sýning Borghildar en fýrstu einkasýningu
sína hélt hún á sama stað fyrir fjórtán áram.
Þar með era kynni hennar af húsinu reynd-
ar 'ekki upptalin, því hún kenndi þar í sjö
ár þegar Myndlistarskólinn í Reykjavík hafði
þar aðsetur. „Það er alveg yndislegt að
koma aftur í Ásmundarsal," segir lista-
konan. „Það er búið að gera húsið mjög
fallega upp og þessi aðstaða ætti að henta
Listasafni ASI sérstaklega vel. Það verður
að vera sýningarsalur í húsinu - það nýtur
sín best þannig."
Sýning Borghildar stendur til 9. febrúar
og er opin alla daga, nema mánudaga, á
milli klukkan 14 og 18.
MENNING/
LISTIR
í NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni
Mótunarárin í list Ásmundar Sveinssonar.
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
Yfirlitssýn. á verkum eftir Hring Jóhannes-
son, sýn. á nýjum verkum eftir Jónínu
Guðnadóttur til 16. febr., á verkum eftir
Kjarval til 11. maí.
Listasafn íslands
Sýn. á verkum Eiríks Smith, „Á milli
tveggja heima“, til 16. febr.
Galleri Hornið - Hafnarstræti 15
Samsýn. félagsm. í Fél. leikmynda- og
búningahöf. til 12. febr.
Mokka - Skólavörðustíg
Ljósm. eftir Spessa til 6. febr.
Sólon íslandus - við Bankastræti
Sigurl. Jóhannesd., Silla, sýnir til 26. jan.
Galleríkeðjan - Sýnirými
Sýningar í janúar: í sýniboxi: Haraldur
Jónsson. I barmi: Róbert Róbertsson og
Ragnheiður Ágústsd. ber sýninguna. Hlust:
551 4348: G.R. Lúðvíksson.
Gerðarsafn - Hamraborg 4 Kóp.
Bestu blaðaljósmyndimar 1996 og úrval
mynda liðinna áratuga til 2. febr.
Undir pari - Smiðjustíg 3
Sýning Frakks til 25. jan.
Listhús 39 - Strandgötu 39, Hf.
Samsýn. Önnu Guðjónsdóttur og Erlu Sól-
veigar Óskarsdóttur til 26. jan.
Norræna húsið - við Hringbraut
Gerhard Roland Zeller og Þór Ludwig Stie-
fel sýna til 26. jan. Veggspjaldasýning í
anddyrinu til 29. jan.
Listasafn ASÍ
Borghildur Óskarsdóttir sýnir til 9. febr.
Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b
Svava Bjömsdóttir sýnir til 26. jan.
Listþjónustan - Hverfisgötu 105
Hafsteinn Austmann sýnir til 2. febr.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Halldór Ásgeirsson sýnir til 16. febr.
Gallerí Fold - við Rauðarárstíg
Sýn. á nokkram af síðustu myndum Hrings
Jóhanness. í baksal gallerísins til 2. febr.
Galleri Stöðlakot - Bókhlöðustig 6
Sigurður Haukur Lúðvígs. sýnir til 28. jan.
Myndás - Laugarásvegi 1
Kristján E. Einarsson sýnir ljósmyndir.
Hallgrímskirkja - Skólavörðuholti
Sýn. á myndum Helga Þorgils Friðjónss. i andd.
Galleri List
Inga Elín sýnir til 5. febr.
Skruggusteinn - Hamraborg 20a, Kóp.
Sibba sýnir smámyndir til 27. jan.
Slunkaríki - ísafirði
Haraldur Jónsson sýnir til 2. febr.
TONLIST
Laugardagur 25. janúar
Tónlistarsk. ísl. Suzukisamb. með tvenna
nemendatónl. í Grensáskirkju kl. 15 og 16.
Sunnudagur 26. janúar
Afmælishátíð vegna 90 ára afmælis Guð-
mundar Inga Kristjánssonar skálds á
Kirkjubóli endurtekin í Digraneskirkju kl.
20. Jónas Ingimundarson heldur tónleika f
Miðgarði í Skagafirði kl. 16. Hörður Áskels-
son organisti, Daði Kolbeinsson óbóleikari
og Joseph Ognibene hornleikari halda tón-
leika í Hallgrímskirkju kl. 17. Orgeltónleik-
ar í Kópavogskirkju kl. 20; Örn Falkner
organisti og kórstjóri kirkjunnar.
Mánudagur 27. janúar
Mozart-tónleikar í Gerðubergi kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Litli-Kláus og Stóri-Kláus sun. 26. jan.
Villiöndin lau. 25. jan., fim. Leitt hún skyldi
vera skækja lau. 25. jan., fim., lau. Þrek
og tár sun. 26. jan., fös. Kennarar óskast.
mið. 29. jan., lau.
Borgarleikhúsið
Trúðaskólinn sun. 26. jan. Svanurinn sun.
26. jan., þrið., mið. BarPar lau. 25. jan.,
fös., lau. Domino lau. 25. jan., lau. Fagra
veröld lau. 25. jan., sun., fös. Krókar & kim-
ar, ævintýraferð um leikhúsgeymsluna frá
13-18 alla daga og til kl. 22 sýningardaga.
Skemmtihúsið
Ormstunga sun. 26. jan., fös.
Loftkastalinn
Áfr. Latib. sun. 26. jan. Á sama tíma að
ári sun. 26. jan., lau. Sirkus Sk. skr. lau.
25. jan., fös.
Höfðaborgin
„Gefin fyrir drama þessi d.“ fim .30. jan., lau.
Félagsheimili Kópavogs
Gullna hliðið sýnt í sun. 26. jan. kl. 20.30.
Hermóður og Háðvör
Birtingur lau. 25. jan.
Nemendaleikhúsið
Hátíð lau. 25. jan., fös., lau.
Kaffileikhúsið
Einleikir Völu Þórs sun. 26. jan., fös.
Möguleikhúsið
Ferðas. um minnsta tröll f heimi sun. 26. jan.
Norræna húsið
Brúðul. f. böm 3-6 ára sun. 26. jan. kl. 14.
Leikfélag Menntaskólans v. Hamrahlíð
Poppleik. Óli sun. 26. jan., mán., mið., fim.
Leikfélag Akureyrar
Undir berum himni lau. 25. jan., fös.
Kossar og kúlissur frums. 30. jan., lau.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 25. JANÚAR 1997