Lesbók Morgunblaðsins - 21.11.1987, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 21.11.1987, Blaðsíða 16
1 Alíalenzk sveitahjörtu. ÆRINKARAOG KREMLARBÆNDUR Sú hreyfíng í myndlist, sem nefnd hefur verið súrrealismi, stóð í mestum blóma fyrr á öld- inni. Enda þótt Salvador Dali sé tórandi ennþá, eru þeir allir gengnir, sem áunnu sér frægð undir þessu merki, t.d. Magritte, Max Emst og Yves Tanguy. Þótt nú sé sú óskatíð, að allt telst leyfílegt, hafa yngri myndlistar- menn að mestu látið stefnuna ósnerta og fyrirbærið er afskaplega fyrirferðarlítið í íslenzkri myndlist, nema við gefum okkur það, að eitthvað af fantasíum Kjarvals og Flóka sé súrrealismi, sem er vfst hæpið. Um þessa helgi iýkur á Kjarvalsstöðum sýningu Lýðs Sigurðssonar. Eins og mynd- imar bera með sér, sem hér eru prentaðar, er Lýður hreinræktaður súrrealisti og ætti þarmeð að hafa skapað sér nokkra sérstöðu hér. Aðspurður um ástæðuna fyrir því að hafa valið þessa leið, segir Lýður: „Ég lá í bókum á Amtsbókasafninu á Akureyri; þar voru listaverkabækur og það kom einhvemveginn af sjálfu sér, að ég hallaðist strax að því sem sá þar eftir súr- realistana. En þetta má líka, held ég, rekja til æsku minnar á bænum Glerá við Akur- eyri, þar sem ég ólst upp. Ég var mikið einn og átti ekki leikfélaga. Maður bjó sér til ímyndaðan heim og seinna, þegar ég fór að grúska í Dali og Magritte, þá fann ég eitthvað, sem ég kannaðist við og höfðaði til mín.“ „Kynntirðu þér kannski hugmyndafræði súrrealista frá því um 1920 eins og hún birtist í stefnuskrá Bretons?" „Nei, ég get ekki sagt það. Ég hef mína éigin hugmyndafræði, en á bak við þetta er líka viss virðing fyrir fallega unnu verki, eða góðu handverki getum við sagt. Það er kannski til komið vegna þess, að ég lærði á sínum tíma húsgagnasmíði, þar sem gott handverk er að sjalfsögðu grandvallaratriði og ennþá nota ég húsgagnasmíðina til að sjá mér farborða. Ég hélt ég mundi hætta öllum myndiistarpælingum eftir að ég sneri StúJka á sólarströnd. Örstutt spjall við LÝÐ SIGURÐSSON sem sýnir nú á Kjarvalsstöðum og hefur haslað sér völl undir merki súrrealisma mér að smíðunum^en þessi árátta vildi ekki láta mig f friði. Ég hélt áfram að hugsa um myndir og fór á öll þau myndlistamám- skeið, sem í náðist fyrir norðan. Árið 1982 flutti ég suður og fór þá í Myndlistarskóla Reykjavíkur. Síðan hef ég búið í Reykjavík. Áður hafði ég haldið tvær einkasýningar á Akureyri, en þetta er fyrsta einkasýningin í Reylq'avík. Þetta er að veralegu leyti frásagnarleg myndlist. En sú frásögn er ekki hnitmiðuð í þá veru, að allt í myndinni sé fyrirfram ákveðið. Óft gef ég ímyndunaraflinu lausan tauminn og þá breytast myndimar í með- föranum. Það er einmitt það, sem mér finnst mest spennandi og skapandi, þegar eitthvað nýtt kemur til sögunnar og heimtar aðild að myndinni. Það gerist mest á fyrri vinnslu- stigum. Svo kemst hugmyndin á hreint og þá gengur maður í sjálft handverkið og klár- ar myndina." Lýður Sigurðsson. „En þetta hlýtur að vera mjög tímafrek aðferð." „Já, hvorttveggja er, að aðferðin er mjög tímafrek og eins gerir hún miklar kröfur um fæmi í nákvæmnisútfærslu. Ég hef reynt að losa um vinnubrögðin, mála dálítið grófar eða expressjónískara. En það virðist ekki ganga upp, svo ég held mig við þessa raunsæisútfærslu. Ég leik mér stundum með orð, eða orða- tiltæki.og geri þau að myndefni. Fræg poppsljama heitir Ireen Cara, framborið á íslenzku Ærin. Úr því varð ærin Kara: Popp- stjaman er þá með ærhöfuð og með plástrað fýrir augun, því hún er að koma úr augnað- gerð. Hún er hluti af mynd, þar sem einnig era Gói, ríðandi á leið til útlanda og hefur höfuð og háls hestsins umbreyzt í flugvélar- hreyfil og skrúfu. Þriðja persónan í mynd- inni er mr. Seafood; maður með þorskhaus, sem hugar að netum. Fleira af þessu tagi mætti nefna: Hvítabimi við störf í flug- stjómarklefa og Amarflugsmenn, sem eru með amarhöfuð. Hrafn, sem sparkar manni fram af hömrum - það er að sjálfsögðu hrafnaspark - og einnig getur að líta Kreml- arbændur með sauði sína; uppúr hausunum á þeim standa myndavélar. Þetta er kannski einna helzt það, sem flokka mætti undir pólitíska list. Svo er það íslenzk búhátta- brejrting: Kýmar hafa breyzt að hluta til í gulrætur og stundum er ívaf af táknmynda- stefnu eða symbólisma. Dæmi um það er mynd, sem heitir „Alíslenzk sveitahjörtu" og sýnir Heiðarhomið í Borgarfirði, en á sléttunni stendur torfbær að því er virðist. Þegar betur er að gáð, era þetta kindar- hjörtu og geta minnt okkur á, að við höfum lengst aí lifað af þessari skepnu." GS. .-I 16

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.