Lesbók Morgunblaðsins - 09.01.1982, Síða 14
Vigrarseyð
er talað um í fornum sögum
Gengið um Vigurhlöö meö Baldri bónda Bjarnasyni
Eftir Finnboga Hermannsson
Þrír ættliðir í Vigur: Aftast Bjarni og Stefán. í miðið: Björn og Baldur, núverandi ábúendur —
og fremst: Bjarni og Salvar. Myndin er tekin fyrir rúmum áratug.
„Þetta er nú ekki nema þriðji ættliðurinn
hér í Vigur, hann bjó hérna fyrst séra Sig-
urður Stefánsson, hann kom hérna 1883,
pabbi minn tekur siðan við af honum,
Bjarni Sigurðsson, hann tekur við búskap
1918, og hann býr þangað til 1953, að við
bræöurnir, ég og Björn, tókum við búskap.
Síðan höfum við hokrað hérna. Siguröur
var ættaður úr Skagafirði, fæddur á Ríp í
Hegranesi og er Skagfirðingur að ætt. Fað-
ir hans bjó á Heiði í Göngusköröum, það er
næsti bær við Veðramót. Þaðan er
mamma mín upprunnin, þau voru nefnilega
systkin séra Siguröur og Þorbjörg amma
mín móöir Bjargar, svo og Stefán skóla-
meistari. Já, já, þeir voru báöir á þingi og
tóku mikinn þátt í landsmálum. Stefán var
þingmaður fyrir Eyfirðinga og Skaftfellinga
en Sigurður fyrir ísfirðinga og Norður-
isfirðinga seinna meir.“ Baldur Bjarnason
segir frá fyrri ættliðum.
Ekki fluttist séra Sigurður beint í Vigur,
þegar hann kom vestur?
„Hann var eitt ár á Eyri í Seyöisfirði hjá
Guðmundi Bárðarsyni, það er fyrsta árið
sem hann er prestur hérna í Ögurþingum,
’81 eða ’82 má ég segja, og þá fékk hann
strax augastað á þessari eyju og keypti til
aö byrja með einhvern part í henni, þetta
var þá allt bútað í sundur, hún var víst í
eigu tíu-tuttugu manna. Hann var svo lengi
að smá kaupa þetta, eftir því sem þetta
losnaði og menn vildu selja þetta. Sjálfsagt
hefur hún veriö dýr einsog þessar hlunn-
indajaröir hafa verið, einkum þessar æð-
arvarpsjarðir. Það var þó ekki eins mikið
æðarvarp þegar hann kom og seinna varð
svo. Þegar ég var að alast upp og man
fyrst eftir mér þá var það oft svona um
hundrað pund, svo hefur það aukist svona
nokkuð.”
Ljótur bjó á Mánabergi
Bæjarhúsið hér í Vigur, hver byggir það?
„Það er séra Sigurður, hann byggir
þetta. Húsið er byggt í áföngum dálítið,
fyrst innra húsið, þú sérð að þetta er
burstabær og svo ytri bærinn, líklega var
búiö að byggja þetta allt fyrir aldamót svo
að húsið er ansi gamalt að stofni til, upp-
Séð inn í myiluna í Vigur. Tannhjól eru öli
gjörð af tré.
undir hundrað ára gamalt, og viö erum að
gera þetta upp núna.“
Það sem ef til vill mesta athygli vekur er
myllan hér á hólnum, Baldur.
„Þegar afi okkar kemur hingað, þá er
þessi mylla og ég veit ekkert hvenær hún
hefur verið byggð. Hún var að vísu miklu
minni, en hann lét stækka hana. Hér inni í
stofunni er mynd frá 1874, Ijósmynd, af
bæjarhúsum hér og öllu, þá er þessi mylla.
Og það er eina mannvirkiö fyrir utan bæ-
inn, sem enn er við lýði. Á þessari mynd
sést húsaskipunin alveg hreint, og það er
nú ekkert eftir af þeim húsum nema það
hús og þessi mylla. Þessi hús hérna fyrir
neðan lét séra Sigurður byggja, Sjóarhúsiö
og hjallinn og öll þessi hús, við göngum
þangaö á eftir. Flest húsin eru uppistand-
andi sem hann lét byggja, en það hefur
náttúrlega bæst við nokkuö af húsum.”
Ég spyr Baldur, hvort Vigur sé söguríkur
staöur.
„Hún kemur ekki svo mikið við sögu, svo
maður viti til, það er ekki talað um hana
sem landnámsjörð, ekki svo maöur viti til.
Það er lítið minnst á hana í fornsögum, ekki
nema í Hávarðar sögu ísfirðings, þá er hún
líklega kölluð Mánaberg en ekki Vigur. Það
er bergstandur úti á eyjunni sem heitir
Mánaberg og það er talað um það, að Ljót-
ur hafi búiö á Mánabergi. En nafngiftin Vig-
ur helgast líklega áf lögun eyjarinnar, hún
er einsog sverð í laginu. Vigur, ekki síst
þekkt úr Gunnarshólma:
„Nú er á brautu
borinn vigur skær“
„Nú er á brautu borinn vigur skær," og
vigrarseyði er talað um í fornsögunum, hún
er einsog spjót eða sverð í laginu."
Hvaða búskap stundið þið helst hér í
Vigur um þessa mundir?
„Það er helst nautgriþarækt, við erum
með fimmtán gripi í fjósi og það á miklu
betur við hérna mjólkurframleiðsla en
sauðfjárrækt, þó erum við með um hundr-
að og sextíu fjár. Það er miklu meira vesen
með féð, þurfa að flytja það í land, smala-
mennska á landi og svoleiöis. Hins vegar er
hér góö beit í eyjunni á veturna og það er
sjaldan sem tekur fyrir beit alveg.“
Handraðinn í
gullkistunni
Ég spyr Baldur, hvort hann sjái fram á,
að afkomendur hans vilji byggja Vigur.
„Ég hef nú ekki ástæðu til aö ætla ann-
að, mér finnst þeirra hugur standa til þess
fyllilega og ég vona það að minnsta kosti.
Það er líka annað en bara venjulegur,
hefðbundinn búskapur sem er á svona
stöðum. Það eru hlunnindin og svoleiðis,
æðarvarp og fuglatekja svo maður tali nú
ekki um það, að það lifnaði kringum eyjuna
af fiski. Þetta var nú uppistaðan í búskap
hér í gamla daga, sjávarútvegurinn. Pabbi
minn til dæmis, hann reri öllum vorum hér
til fiskjar og á haustin líka. Hann hafði alltaf
háseta og reri fastar vertíðir hérna í Djúpiö
og það var stutt að fara hér í álinn oft, fullt
af ýsu og góðfiski, nú er ekki hægt að fá
eitt einasta kvikindi, ekki einu sinni í soðiö,
hvernig sem því nú viö víkur. Ekki hefur
stækkun landhelginnar komið okkur til
góða, en maður hefur haft illan bifur á
rækjuveiðunum, það kannski hittist þannig
á, en þegar rækjuveiðarnar byrjuðu, þá
hvarf fiskurinn. Allir þessir firðir eru
upþeldisstöðvar, það er vísindalega sann-
að af ekki ómerkari manni en Bjarna Sæ-
mundssyni fiskifræðingi. Þaö segir frá því í
ritgerð, sem pabbi gamli skrifaöi einu sinni
í Sögufélagsritiö, um gullkistuna, Djúpið,
þaö væri gullkista Vestfjarða, en þaö væri
sérstakt hólf í kistunni sem væri handrað-
inn og allir kannast við, og það væri Skötu-
fjörðurinn, sem var afskaplega fiskisæll og
það gekk fiskur alveg inn í botn. Þeir höfðu
þaö svoleiðis kallarnir sem bjuggu á Borg
og þar í fjarðarbotninum, að þeir lögðu
stundum lóðirnar á fjörunni og þegar féll út
aftur var fiskur kominn á. Annars er gasa-
lega mikil síldargengd hérna í allt sumar,
ger við ger. En það virðist ekki skipta
neinu, því strákarnir mínir fóru nú hérna
fram með lóðir í álinn með nýja s(ld fyrir
nokkru. Þeir fengu ekki eitt einasta kvik-
indi. Hann virðist ekki taka æti, þegar kem-
ur fiskur í Djúpiö veiðist hann stundum í
net. Það gæti breytt lífi hérna við Djúpið,
kæmi fiskur aftur í firðina, þarna í Ögur-
nesi, gegnt okkur, voru fleiri heimili, þetta
var útróðrastöð líka, þarna voru geröir út
milli tíu og tuttugu bátar í Nesinu, og þeir
sóttu allan sinn fisk hérna norður í Djúpið.
Eftir stríðið svona um 1950, þá hvarf þetta
allt saman. Fólk flutti þá burtu í veiöistöðv-
arnar."
Hvenær mannstu fyrst eftir þér hérna í
Vigur?
„Það er nú ekki svo gott að tímasetja
þaö, ég er fæddur 1918, 9. nóvember. Ég
man óglöggt eftir afa mínum, séra Sigurði,
hann dó 1924, dálftiö þó. Ég man eftir því,
þegar hann dó og svona einstaka atvik.
Hann var dálítið sérstæöur persónuleiki,
gamli maðurinn, virðulegur meö skegg og
þannig stendur hann manni fyrir hug-
skotssjónum, maður bar heldur virðingu
fyrir honum. Amma mín lifði til 1936 má ég
segja."
Þinn hugur hefur ekki staðið til annars
en vera hér, Baldur?
„Nei, manni fannst það einhvern veginn
eins og sjálfsagður hlutur, því að Siguröur
bróðir gekk nú í skóla, svokallað lang-
skólanám, var nú lögfræðingur og var elst-
ur af okkur. Ég var nú lítið við skólanám,
varö gagnfræðingur frá Menntaskólanum á
Akureyri og það svo sum hvarflaði að
manni að halda áfram. En mönnum fannst
það ekki alls kostar gott. Nú, ég á nú einn
bróður enn þá, Björn, sem er á svipuðu
reki og ég. Okkur fannst það sjálfgefið, að
taka viö þessu, við þessari eyju. Manni
hefði ekki þótt gaman, að láta þetta fara í
eyði eða úr ættinni, því það er vel hægt að
lifa á þessum stað, að minnsta kosti hefur
manni gengið það svona þolanlega."
Drepa kollurnar
á hreiðrunum
Ég spyr um minnisstæöa gesti í Vigur.
„Það er nú margur sauðurinn sem kemur
úr misjöfnu fé, það voru Álendingar, ein-
hvers konar hópur af skólafólki, og einn
Álendingurinn var svo hrifinn af því, hvað
fuglarnir voru spakir hér, sérstaklega æð-
arfuglinn og hann ætlaði ekki aö geta slitið
sig frá að skoða kollurnar. Það er ekki við
góöu að búast, að þær væru spakar þar,
því þeir beinlínis drepa þær á hreiðrunum,
Álendingarnir. Þar er æöarfuglinn ekki friö-
aður. Svona er þetta líka í Kanada og þeir
sögðu eiginlega sömu söguna þar, fuglinn
er drepinn alveg miskunnarlaust, en þeir
voru nú samt að kynna sér þetta með tilliti
til nytjanna. Ég held þær séu ekki friðaðar
14