Lesbók Morgunblaðsins - 23.10.1949, Síða 14
474
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
að glasið skoppaði neitt eftir gólf-
i.iu, enda er það þannig lagað, að
það getur ekki oltið. Helt jeg því
fyrst að það mundi hafa brotnað,
og seild:;t eftir því. En þar var þá
ckkert glas. Þetta þótti mjer und-
arlegt o ; leit undir borðið og alt
um kring. en hvergi var glasið að
sjá. Mjer brá í brún, því að þótt
það hefði skotrast eitthvað gat það
ekki hafa farið annað en undir borð
ið, fram að dyrum, eða aftur fyrir
mig að hinu borðinu. Jeg skimaði
um alt, en það kom fyrir ekki. Fór
jeg x á að hugsa um hvort mjer
væri farin að förlast sýn, að jeg
kæm ekki auga á glasið á gólfinu.
Fekk jeg mjer því sófl og sópaði alt
gólfið vandlega, undir borðum og
stólum og út í horn, en ekki kom
glasið í leitirnar.
Þetta er ekki einleikið, hugsa jeg
með mjer, fer fram fvrir, aflæsi
hurðinni og geng upp á loft til ná-
grannakonu ncinnar. Jeg sagði
henni mínar farir ekki sljettar,
tóbaksglasið mitt hefði dottið ofan
af borðinu og — horfið.
— Altaf eruð þið jafn fundvísir
karlmennirnir, sagði hún gletnis-
lega og helt að sjer mundi ekki
verða mikið fyrir því að finna glas-
ið. Jeg bað hana þá að koma niður
með mjer og gerði hún það. Svo
fór hún að leita. Hún sópaði alt
gólfið, þreifaði út í hvert horn, leit-
aði undir legubekkjunum og dró
fram sængurfatakassann og tætti
alt upp úr honum. En ekki fann
hún glasið, og gafst upp við leitina.
Með það fór hún e. lofaði að senda
til mín son sinn, sem væri afar
fundvís.
Pilturinn kom rjett á eftir, og
hóf nú enn rækilegri leit. En betta
for á sömu leið. Ekki fann henn
g.asið.
Þá fór jeg . húsráðanda á næstu
hæð, sagði íum upp alla sögu
og að mje pætti liklegast að ein-
hver ósýnilegur heiðt tekið glasið
til þess að láta mig vita af því, að
jeg væri ekki einn í herberginu.
Ekki vildi nábúi minn leggja trún-
að á það, en kom niður með mjer
og hóf nýa leit af enn meiri ná-
kvæmni en áður hafði verið gert,
ef unt var. Og þegar hann var al-
veg viss um það, að glasið væri
hvergi í herberginu, tók hann að
leita í fötum mínum, ekki aðeins
í vösunum, heldur þuklaði hann
þau öll til þess að vita hvort glas-
ið leyndist ekki í fóðrinu — eins og
jeg vissi ekki vel að jeg hafði ekki
stungið á mig glasinu, heldur hafði
það dottið á gólfið.
Nú var þýðingarlaust að leita
meira. Glasið var algjörlega horfið.
Jeg var alveg sannfærður um að
það hafði verið tekið af ósýnileg-
um höndum. Fann þó á mjer að jeg
mundi fá það aftur, en það var
mjer ráðgáta hvar jeg mundi rekast
á það.
Morguninn eftir var jeg eitthvað
að fikta við dúk, sem lá ofan á út-
varpinu. Skrapp hann þá úr hönd-
um mjer upp fyrir útvarpið. Jeg
seildist eftir honum, en hann var
horfinn. Sá jeg að hann mundi
hafa smokkast í horninu niður með
rönd útvarpsborðsins, og var það
þó næsta ótrúlegt, því að hann er
svo stór, að hann gat varla íarið
það nema samanbrotinn, eða sam-
anvafinn, vegna þess hvað þar er
þröngt. Jeg dró þá fram kassann,
sem lokar skotinu, sem útvarps-
borðið er í, og sá þar dúkinn inni
í horni. Jeg seildist eftir honum,
en um leið og jeg lyfti honum,
glóði þar á týnda glasið.
Jeg er alveg sannfærður um að
þ ð var þar ekki kvöldið áður. því
a' svo vand'.ega vai leitað j ar í
harninu. Og hvernig heiði þa5 líka
áct að geta komist bangað, þó*t það
dytti á gólfið fram uncir djrum?
Jeg bað þig að koma hingað til
þess að þú gætir sjálfur gengið úr
skugga um að það væri á móti öll-
um náttúrunnar lögmálum, að glas-
ið hefði skoppað þangað af sjá^fs-
dáðum.“----------
Það var rjett. Þótt glrsinu nefði
verið skotrað eftir gólfinu, gat það
ekki komist inn í þennan krók, sem
er umgirtur á alla vegu. Eina leið-
in, sem það gat farið þangað, er sú,
að þegar það fell á gólfið hefði það
tekist á loft líkt og gúmmíknöttur
og flogið yfir kassann, eða þá enn
hærra og farið yfir útvarpið og nið-
ur veggkverkina, þar sem dúkurinn
fór. Vegarlengdin frá þeim stað, er
glasið fell í gólfið, og út í horn,
þar sem það fanst, er rúmir 3 metr-
ar. Venjulegt glas hefði getað oltið
þessa leið, ef ekkert hefði verið
fyrir. En nú er þetta ekki venju-
legt glas. Það er um 10 cm á hæð
með stút og tappa, fleygmyndað
þannig að þverskurður af því yrði
eins og aflangur tígull. Á því eru
fjórir fletir, svo að það getur alls
ekki oltið. En setjum svo, að það
hefði runnið eftir gólfinu. Hvernig
átti það þá að taka sig á loft, er
það kom að kassanum og hoppa
yfir hann? Það væri á móti nátt-
úrunnar lögmáli, og þá ekki síður
hitt, að það hefði hoppað yfir út-
varpið, rúman meter frá gólfi!
Þessa leið gat það ekki komist
nema því aðeins að einhver flytti
það. En þar var engum til að dreifa
nema Stefáni sjálfum, eða þeim,
sem leituðu með honum, en ekkert
þeirra verður vænt um slíkt.
Á. Ó.
^ ^
Sjötta boðorðið.
Prestur spurði dreng að því
hvernig sjötta bcðcrð ð væri.
„Þjer skuluð ekki hórdém
drýgja“, svaraði hann.
„Ekki stendur: Þjer sknluð, held-
ur: þú skalt“, sagði prestur.
Piltur sagði: „Jeg vildi ekki
segja þú við yður“.