Lesbók Morgunblaðsins - 23.10.1949, Blaðsíða 13
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
473
HVER TÓK GLASIÐ?
þaðan aftur áður en dagaði, en það
er ekki auðvelt svona um hásum-
arið.
Á Skeljastöðum hefur verið
k'rkja þessarar litlu sóknar hjer í
Þjórsárdal. Hún varð undir vikur-
fallinu eins og allir bæirnir. Vjer
vitum nú ekki hver rök fylgdu
henni. En hún var útvörður kristn-
innar á þessum stað, skamt frá
fjallinu, þar sem hálf Norðurálfan
helt að dyrnar til Vítis væri. Máske
hefur presturinn staðið í kirkjudyr-
unum með kross í hendi þegar eld-
gosið braust út og myrkur þess
fylti dalinn og flutti þangað dauða
og eyðileggingu?---------
Þannig flýgur hugurinn á meðan
jeg moka vikri og hið svarta gólf
stækkar og bekkir koma í ljós. Það
er einkennilegt að hugsa sjer, að
þetta gólf hefur enginn fótur troðið
um mörg, mörg hundruð ár, og að
hjer er alt eins og það var þegar
eldgosið kom og kaffærði alt í vikri.
Á því er enginn efi. Og þegar Sig-
urður hefur lokið jarðvegsrann-
sóknum sínum og Kristján hefur
grafið upp fleiri fornar minjar, bá
verður hægt að segja nákvæmlegu
um það hvaða ár þessi undur skeðu
Hjer inni í óbygðum er rannsókn-
arefni — hjer er hin norræna Pom •
pei. Undir vikrinum hjer í Þjórs-
árdal eru bæir frá söguöld og tala
sínu máli um menningu þess fólks,
sém hafði þrótt til að nema nýtt
land upp um fjöll og heiðar og
skapa sjer sögu.
Kristján hamast við að moka. —
Hann hefur fundið dyrnar, sem
hann leitaði að. Á morgun fáum
vjer að vita meira um hvað er inn-
an við þær dyr.
Odd Nordland,
cand. philol.
V ^ ^
STEFÁN FILIPPUSSON frá Kálfa
fellskoti kom til mín hjerna um
daginn og segir við mig:
„Nú verð jeg að biðja þig að
skreppa heim með mjer. Jeg þarf
endilega að sýna þjer herbergið
mitt.“
„Jeg hef sjeð það oft áður,“ sagði
jeg, „og jeg man vel hvernig það
er. Hefurðu látið breyta því?“
„Nei, en mig langar til þess að
þú komir og lítir á .það og sjáir
með eigin augum hvernig þar er
umhorfs inni.“
Stefán var svo áfjáður og íbygg-
inn, að jeg vissi þegar að eitthvað
meira bjó undir þessu en að han'n
vildi aðeins sýna mjer herbergið
sitt. Jeg fór því með honum.
Stefán á heima í kjallara á Rán-
argötu 9. Þar er fyrst gengið af
götunni í gegn um yfirbygðan gang
inn í portið, og þar eru dyrnar að
íbúð Stefáns. Er fyrst komið inn
í forstofu og gengið úr henni til
vinstri handar inn í eldhús og úr
því inn í stofu, sem er bæði svefn-
herbergi og dagstofa Stefáns. —
Gluggar á eldhúsi og stofu vita mót
suðri út að portinu, og er stofan í
suðvesturhorni hússins. Á henni
eru engar aðrar dyr en þær, sem
gengið er um fram í eldhúsið.
Stefán bað mig nú að skygnast
vel um í stofunni og setja á mig
hvernig húsgögnum væri þar fyrir
komið. Er best að jeg lýsi því nú
þegar:
Stofan er jöfn á alla vegu, um
4 metrar. Dyrnar eru sunnar en á
miðjum vegg, en undir suður-
veggnum er fyrst hægindastóll og
borð undir glugganum. Þá kemur
kassi um 20 cm hár og seinast úti
í horninu kringlótt borð á einum
fæti og á því stendur útvarpstæki.
Undir vesturgafli er fyrst legu-
Stofa Stefáns. x sýnii' hvar glasið stóð,
xx stólinn, sem Stefán sat á.
bekkur og gengur hann fast upp að
kassanum og útvarpsborðinu, þann
ig að bekkfóturinn fellur að kass-
anum og er því útvarpsborðið
þarna í aflokuðu skoti. ‘ Undir
legubekknum er sængurfatakassi
og hrákadallur við bekkfótinn. Aft-
ur af bekknum er svo koffort og
síðan stór klæðaskápur í norðvest-
urhorninu. Undir norðurvegg er
annar legubekkur og í næsta horni
miðstöðvarofn. Á miðju gólfi er
allstórt matborð og yfir því hangir
rafljósakróna. Tveir stólar standa
við borðið, annar við enda þess
skamt frá dyrunum og til hliðar
við þær, en hinn fyrir miðju borði
og gegnt innganginum.
„Nú ætla jeg að segja þjer sögu,“
segir Stefán. „Það var seinni hluta
dags, nú fyrir skemstu, að jeg sat
hjerna á stólnum fyrir miðju borð-
inu og var að lesa í blaði við birt-
una af ljósakrónunni. Tóbaksglasið
mitt hafði jeg sett hjerna á borðs-
hornið til hægri handar (sem að
dyrum veit). Af einhverri óaðgætni
varð mjer það á að reka alnbog-
ann í það, svo að það fell niður
á gólf við fætur mínar, og varð af
mikill smellur. Jeg gat ekki heyrt