Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1947, Blaðsíða 30
410
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
GOBANTAFL
Þetta tafl er að minsta kosti 3000
ára gamalt og er fundið upp í Japan.
Til þess að tefla það þarf í rauninni
ekki annað en spjald eða blað með
hæfilega mörgum reitum. Það er t. d.
ágætt að hafa reitana jafnmarga og á
skákborði, en þeir mega vera færri.
Japanar bjuggu til reitana fyrst í stað
á þann hátt að marka stryk í sand.
Tveir menn tefla og merkja reitana
með blýant eða penna, einn og einn í
senn. Annar velur sjer merkið o, en
hinn merkið x. Sá, sem fyr getur
merkt 5 reiti samstæða í röð hefur
sigrað. Það er sama hvort röðin er
þvert yfir borðið, upp og ofan, eða á
ská. Ef allir reitar eru merktir og
hvorugum hefur tekist að setja 5
merki í röð, þá er jafntefli.
RBCDEFGHJ
x leikur, vinnur í 4. leik.
SEXSTRYKA MYNDIR
Margir gera það að gamni sínu aS teikna myndir með sem fæstum strykum.
Hjer eru þrjár myndir og hver þcirra teiknuð með sex strykum. Fremst er
golfleikari. f miðið er drengur að renna sjer niður handrið. Seinast er
rnynd af veitingaþjóni. — Viljið þið reyna að teikna nokkrar myndír með
sex strykum? Til þess þarf talsverða hugkvæmni og glöggt auga fyrir
„líflínu“.
Þetta er einfaldasta aðferðin og þá
er altaf hægt að tefla ef menn hafa
blað og blýant. En svo má einnig tefla
það á skákborði með nógu mörgum
peðum, eða þá með töflum, sem eru
með tveimur litum (þá kemur t. d.
hvítt í staðinn fyrir o og svart í stað-
inn fyrir x). Líka má nota einseyr-
inga og tíeyringa, hvítar tölur og
svartar tölur, hvít glerbrot og mislit
glerbrot, þorskkvarnir og brendar
kaffibaunir, eða eitthvað annað. En
hvor taflmaður ætti að byrja með 12
töflur.
Þetta er einfalt, en skemtilegt tafl
og hefur nú á seinustu árum farið
sigurför um allan heim. Það barst frá
Japan til Bandaríkjanna og varð brátt
aðalskemtun æskunnar í tómstund-
um. En það er eigi aðeins skemtun
fyrir æskufólk, heldur jafnt fyrir alla,
unga og gamla.
Til þess að vekja áhuga manna hjer
fyrir þessári skemtilegu og saklausu
dægrastyttingu, eru birtar hjer tvær
taflþrautir. Með því að athuga þær
geta menn betur sjeð hvernig taflið
er og um leið spreytt sig á því að ráða
hvernig hægt er að sigra í hinum
sýndu taflstöðum.
Suör ól?á n
ÓLFlS
EINU SINNI sendi eitthvert blað
sænska skáldinu August Strindberg
nokkrar spurningar og bað hann að
svara þeim hreinskilningslega Strind-
berg gerði það, og hjer eru nokkrar
spurningar og svör hans:
1. Hvað metið þjer mest í fari
manns?
— Að hann sje ekki smásmuglegur.
2. Hvað metið þjer mest í fari konu?
— Móðurástina.
3. Hvað munduð þjer helst vilja
eignast?
— Lausnina á ráðgátu lífsins.
4. Hvað teljið þjer stærsta bölið?
— Að missa sálar- og samviskufrið.
5. hvers óskið þjer mannkyninu
helst ?
— Afvopnunar.
6. Hvern fyrirlítið þjer mest af
öllum mönnum, sem uppi hafa verið?
— Maður hefur engan rjett til að
fyrirlíta r.einn.