Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.1946, Síða 14
106
4 ] LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
- B R I D G E -
Fjórar sagnir í þrílit!
í LUNDÚNAKEPNINNI 1938
spiliðu þessi lið til úrslita: annars-
vegar Whitby, Flores, Naughton,
L. Spills og Ellison, en hinsveg-
ar: Harrison-Grey, Simon, Marx,
Macleold, Reese og Evans. Þeir
áttu að spila 64 spil, ven eftir það
63. var staðan hnífjöfn! í seinasta
spilinu sögðu bæði liðin þrjú-
grönd. Whitly vann fjögur með
ágætu lokaspili, en Evans gat að
eins unnið þrjú, enda fjekk hann
annað og örðugra útspil. Lið
Whitby vann því kepnina með
þeim þrjátíu, er hann fjekk fyrir
yfirslaglnn. Þetta mun einhver
jafnasta kepni er sögur fara af.
Hjer er skemtilegt og lærdóms-
ríkf spil úr kepninni.
Gjafari — Austur.
Austur — Vestur á hættu.
pass pass pass
Vestur spilaði út hjarta kong,
og Grey komst ekki hjá að gefa
slag á spaða og tígul, eða tapa
sögninni einn niður. Sagnirnar
ganga alveg eftir sagnkerfi þeirra
Norður—Suður. Þriggja granda
sögnin krafði um litarsögn. Þegar
Simon sagði fjögur hjörtu, hjelt
Grey að hann vildi fá spaða eða
tígul, og vildi fremur segja fjóra
spaða en fimm tígla. Simon gat
ekki staðist að segja sex lauf, en
þrátt fyrir góðar vonir var ekki
hægt að vinna sögnina.
Sagnir á borði II:
Austur: Suður: Vestur: Norður:
Marx, Whitby, Reese, Naughton
pass pass 3 hjörtu doble
pass 3 spaða pass 4 hjörtu
pass 4 spaðar pass 4 grönd
pass 5 spaða pass 5 grönd
Spaði: Á S 3 2
Hjarta: Á
Tígull: Á D 5
Lauf: Á K D G 8
Spaði: —
Hjarta: K D G 10 8 7
Tígull: K G 8 3
Lauf: 7 4
Spaði: G 8 5
Hjarta: 9 4
Tígull: 10 9 4 2
Lauf: 10 6 5 2
N.
V. A.
/ S.
Spaði: D 10 9 7 6 4
Hjarta: 6 5 2
Tígull: 7 6
Lauf: 9 3
Sagnir á borði I:
A: S: V: N:
L. Phillips, Grey, Ellison, Simon
pass pass 3 hjörtu 3 grönd
pass 4 lauf pass 4 hjörtu
pass 4 spaði pass 6 lauf
pass 6 spaðar pass pass
pass
Vestur spilaði út hjarta kong og
Whitby tapaði sögn sinni fjóra nið-
ur. Það mun vera næstum eins-
dæmi, að sami spilari segl fjórum
sinnum á þrílit. Doble Norðurs
þýddi, að Suður gæti ráðið, hvort
hann ljeti hana standa eða tæki
hana út.
Suður þorði ekki að láta sögn-
ina standa, af ótta við, að gefa and
stæðingunum game á hættu. Hann
hefði átt að segja fjögur lauf og
vona síðan það besta, en hann
hætti sjer út á þann hála ís, að
segja á þrílit. Naughton sá fyrir
sjer sjö spaða og notaði þrjár
spurnar sagnir, en Suður varð að
svara. Hann gat hinsvegar ekki
annað gert, en að vísa stöðugt frá,
og segja stöðugt sama þrílitinn.
Það sem gerði spilið hvað ó-
gleymanlegast á borði tvö var
hversu kaldur og rólegur Whitby
bæði sagði og spilaði spilið. Þegar
Reese sagði frá spili þessu í .,The
British Bridge World“, gat hann
þess sjerstaklega, að hann hefði
fram yfir mitt spil, ekki haft hug-
mynd um annað, en að Whitby
væri með öruggt spil. Max dobl-
aði ekki, því að hann sá að þeir
voru að villast, en hinsvegar gat
hæglega verið, ao þeir gætu unnið
sex grönd.
Sveit Harrison—Grey vann þó
að eins 250 samtals á bæði borð,
því að þeir fengu 50 á borði eitt
vegna honoranna.
Bóndi nokkur í Kanada auglýsti
eftir eiginkonu handa sjer. Hann
fjekk 100 tilboð. Hann tók þá
handa sjer, það tilboðið, sem hon-
um leist best á; hin seldi hann á
uppboði.