Frjáls verslun - 01.04.1960, Blaðsíða 26
Sigurður Líndal, lögír.:
Prófastshús, Prestaskólahús
og Landfógetahús
Elzta gatan í Reykjavík er Aðalstræti. Senni-
lega hefur hún verið til frá fyrstu öldum Islands-
byggðar. Þegar þorp tók að myndast í Reykja-
vík, varð hún fyrsta þorpsgatan, því að við hana
stóðu Innréttingar Skúla Magnússonar, svo sem
kunnugt er. Því næst færðist byggðin til aust-
urs, og sú gata tók að myndast, sem fyrst var
kölluð Strandgata, en heitir nú Hafnarstræti.
Fram til ársins 1800 var naumast um aðrar göt-
ur að ræða í Reykjavík.
En einmitt þetta síðasta ár 18. aldar, eða
nánar tiltekið 18. apríl árið 1800, var mælinga-
bréf gefið út fyrir fyrsta húsinu, sem stóð við
götu þá, er síðar nefndist Austurstræti. Var
húsið reist árið eftir, eða 1801, og stóð að
byggingu þess Jón Laxdal, kaupmaður. IIús
þetta stóð þar, sem nú er Austurstræti 4. Var
það rifið árið 1887, og húsið, sem nú stendur
þar, byggt í þess stað.
Aður en lengra er haldið, er rétt að geta þess,
að í upphafi báru götur í Reykjavík ekki nöfn
og lítt var hugsað um gatnagerð. Austurstræti
var fyrsta gatan, sem gerð var af mannahönd-
um og var það einkum í því fólgið að leggja
stétt að sunnanverðu við götuna og síðar einnig
að norðan. Var rennusteinn gerður fyrir framan.
Þetta var 1820. Fékk gatan af þessu nafn og
var kölluð fyrst í stað Langastétt (Lange For-
toug), en árið 1848 var hún skírð Austurstræti
og hefur borið það nafn síðan.
Ekki leið nú að löngu áður en húsum fjölg-
aði við Austurstræti. Árið 1802 reisti Isleifur
Einarsson dómari í Landsyfirréttinum hús það,
sem enn stendur og er nú nr. 22 við Austurstræti
(Verzlun Haralds Árnasonar). Isleifur hafði orð-
ið dómari í Landsyfirréttinum við stofnun hans
árið 1800. Bjó hann í húsi þessu til ársins 1805,
en þá fluttist hann að Brekku á Alftanesi, og bjó
þar síðan. Hús sitt seldi hann Frederik Trampe
greifa, stiftamtmanni á Islandi 1806—1810. Bjó
Trampe þarna og hafði skrifstofur sínar til árs-
ins 1810.
Á búsetuárum Trampes varð bylting Jörundar
hundadagakonungs. Bar svo við sunnudaginn
25. júní árið 1809, um það bil kl. 2 e. h., að 13
menn vopnaðir byssum og korðum fóru að hús-
inu og slógu skilvagt fyrir utan dyr. Trampe
sat í skrifstofu sinni í vesturenda hússins og
lýstu komumenn hann umsvifalaust fanga sinn.
Foringi sveitar þessarar var Jörgen Jörgensen
dósir og varkassa, gluggajárn o. fl.
í verksmiðjunni eru smíðaðir all-
ir þeir stansar og mót, sem notuð
eru við fjöldaframleiðsluna, enda
er margt þrykkt með einu höggi
í stórum pressum.
Hin nýja framleiðsla varð til
þess, að miklu fleiri aðilum þurfti
að selja en áður. Átti það mestan
þátt í því, að fyrirtækið opnaði
nýja afgreiðslu og verzlun í gamla
húsinu að Ægisgötu 4, sem sér-
staklega var innréttað í þessu
skyni. — Að lokum má geta þess,
að Kristinn Pétursson hefur, auk
þess sem hann hefur haft verk-
stjórn með höndum, jafnan geng-
ið til verka með mönnum sín-
um og átt langan vinnudag.
Kristinn er kvæntur Guðrúnu
Ottadóttur, Guðmundssonar
skipasmiðs. Börn þeirra eru: Pét-
ur, blikksmiður, Jón Bjarni, for-
stjóri, Helga, gift Sveinbirni Sig-
urðssyni byggingarmeistara, Guð-
mundur Kristinn, arkitekt og
Anna Kristjana, bankagjaldkeri.
26
FRJÁLS VERZLUN