Eimreiðin - 01.09.1900, Blaðsíða 63
223
og samgöngurnar yfirleitt. Alt frá því að reglulegar póstferðir
milli Danmerkur og íslands fyrst hófust seint á 18. öldinni (1776)
og þangað til um miðbik 19. aldarinnar fór »póstduggan« eina
ferð á ári, og enn þá 1875 vóru póstferðirnar ekki orðar nema 7
og komið að eins við á 1—2 stöðum á íslandi (Rvík og Djúpa-
vogi). En nú eru mestan hluta ársins reglulegar póstferðir til út-
landa á hverjum hálfum mánuði og oft í hverri viku. Ferðum
landpóstanna hefir og verið fjölgað um meira en helming síðasta
aldarfjórðunginn, því 1875 vóru þær ekki nema 7 á ári, en nú
eru þær 15. En milclu meira munar þó sjálfsagt um þær stór-
kostlegu umbætur á póstsambandinu innanlands, sem strandferð-
irnar hafa gert. Hve miklar framfarirnar hafa verið í þessu efni,
má bezt sjá af því, að á 15 ára tímabilinu 1879—1894 hafði al-
mennum póstbréfum fjölgað um 309,1 °/o, peningabréfum og
ábyrgðarbréfum um i6o°/o og böggulsendingum um 137,5 °/o- Ef
til væru skýrslur fyrir 6 síðustu árin, mundu þær þó sýna enn
stórkostlegri framfarir, því mest hafa samgöngurnar verið bættar
einmitt þessi árin. Einn hinn tilfinnanlegasti galli á fyrirkomulagi
póstmálanna nú er sá, að ekki er hægt að senda póstávísanir
innanlands, né heldur til útlanda frá öðrum stað en Rvík einni.
Slíkt viðgengst ekki í nokkru siðuðu landi Allar peningasend-
ingar verður því að senda í lokuðum bréfum, sem geta tapast
nlgerlega í ár og vötn á leiðinni, þar sem landið biði ekkert tap,
þó póstávísanir færust á þann hátt, því þær eru aldrei nema
pappír, sem bæta mætti upp með nýjum póstávísunum. En þegar
gullið fer í árnar, þá verður það ekki bætt nema með nýju gulli úr
póstsjóðnum, sem þá tapar því, sem því svarar, og þar með landið alt.
Stjórn póstmálanna er nú undir yfirumsjón landshöfðingja falin
póstmeistara í Rvík, sem hefir undir sér 25 póstafgreiðslumenn og
um 130 bréfhirðingamenn víðsvegar um land.
Raddsímum hefir á hinum síðustu árum verið komið upp á
stuttum köflum við alla fjóra kaupstaði landsins, en milli húsa í þeim
að eins á einurn stað (milli stiftsyfirvaldanna, amtsmanns og biskups,
í Rvík). Pó þetta sé lítið, þá eru það þó framfarir og vísir til
annars meira. Ritsími er að vísu enn enginn til í landinu né til
útlanda, en hin síðustu árin hefir verið unnið að því af kappi, að koma
honum upp og mikil von um, að það takist bráðlega. Bæði íslend-
ingar, Danir og Svíar hafa þegar veitt stórfé til þess, og nokkurn-
veginn vís von um styrk til hans frá fleirum öðrum þjóðum.