Morgunblaðið - 27.08.1998, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Kvótahæstu útgerðarfélögin 1998-1999
^ ^ Hlutfallaf Hlutfall af Breyting á
•0v •öv' heildarkvðta, heildarkvóta, hlutfalli milii
‘3' (-) = ekki meðal 25 efstu í fyrra 1998-99 1997-98 kvótaára
1. (1) Samherji hf Akureyri 5,56% 5,69% -2,35%
2. (5) Haraldur Böðvarsson hf Akranes 4,61% 2,93% 57,46%
3. (3) Útg.félag Akureyringa hf Akureyri 3,90% 3,47% 12,48%
4. (2) Þorm. rammi - Sæberg hf Siglufj/OlafsfJ. 3,87% 3,71% 4,38%
5. (4) Grandi hf Reykjavík 3,17% 3,22% -1,53%
6. (6) Síldarvinnslan hf Neskaupstaður 2,53% 2,28% 11,08%
.7. (8) Fiskiðjan Skagfiröingur hf. Sauðárkrókur 2,27% 1,82% 24,79%
8. (21 )Þorbjörn hf Grindavík 2,26% 1,06% 113,26%
9. (9) ísfélag Vestmannaeyja hf Veslmannaeyjar 2,14% 1,79% 19,38%
10. (7) Hraðfrystihús Eskifjaröar hf Esklfjörður 1,91% 1,85% 3,43%
11. {-) Snæfell hf Dalvík 1,77% -
12. (-) Hraðfrystihúsið hf Hnífsdalur 1,66% -
13.(10)Skagstrendingur hf Skagaströnd 1,59% 1,72% -7,51%
14. (11) Básafell hf ísafjörður 1,56% 1,67% -6,73%
15. (-) Ljósavík hf Þorlákshöfn 1,41% -
16.(18)Fiskanes hf Grindavík 1,31% 1,17% 12,29%
17. {-) Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga Fáskrúðsfjörður 1,27%
18.(17)Ögurvík hf Reykjavík 1,15% 1,17% -1,90%
19. (19)Gjögur ehf.Grenívík Grenivík 1,15% 1,14% 0,44%
20. (-) Stálskip ehf Hafnarfjörður 1,03% -
21. (22) Kristján Guðmundsson h/f Rif 0,91% 0,98% -6,65%
22. (-) Raufi ehf Raufarhöfn 0,89% -
23. (20}Fiskiðjusamlag Húsav. hf Húsavík 0,86% 1,08% -20,53%
24. (-) Njáll ehf Garður 0,85% -
25.(12)Vinnslustöðin hf Vestmannaeyjar 0,82% 1,54% -46,91%
Meðal 25 efstu í fyrra:
27.(25) Ingimundur hf Reykjavik 0,73% 0,89% -18,40%
31423) Pétur Stefánsson Kópavogur 0,71% 0,94% -24,76%
63424) Jökull hf Raufarhöfn 0,38% 0,91% -58,38%
74415) Frosti ehf SÚðavík Sameinaðist Hraðfr.h. í Hnífsdal 0,33% 1,30% -74,56%
(l3)Miðnesehf Sandgerði, SameinaðistHBá áhnu 1,54%
(14) Útgerðarfélag Dalvíkinga hf Dalvík Sameinaðist öðrum útg.fél. 1,41%
(16) Bakki Bolungarvík hf Bolungarvík Samehaðisi Þortwrí í Grindavlí 1,28%
Kvótaeign stærstu útgerðanna
Eiga um helming
heildarkvótans
©588 55 30
Einbýlishús
VIÐ REYKI MOS. Vorum að
fá í einkasölu 133 fm einbýl-
ishús ásamt 28 fm bílskúr og
30 fm gróðurhúsi á 5.200 fm
eignarlóð. Heitavatnsréttur.
fbúðin skiptist í 5 svefnh.,
eldhús, stofu, baðh., þvotta-
hús og geymslu. Góð eign
með mikla möguleika.
V.15,5 M 070238
Raðhús - Parhús
BREKKUTANGI - MOS. Höf-
um í sölu 228 fm raðhús með
26 fm bílskúr. Parket, stórar
yfirbyggðar svalir, fallegur
suðurgarður. EIGN MEÐ
MÖGULEIKA Á AUKAI'BÚÐ Á
JARÐHÆÐ. V. 12,9 M. 060190
GRENIBYGGÐ - MOS. Höfum
í einkasölu nýlegt parhús 138
fm ásamt 26 fm bílskúr.
Fjögur svefnh., parket og
flísar. Sérsuðurgarður með
verönd ÁHV. 4,3 M. V. 12,5
M. 060188
25 STÆRSTU sjávarútvegsfyrir-
taeki landsins eiga, eftir fiskveiðiára-
mótin hinn 1. september nk., saman-
lagt meira en helming heildarkvóta
landsmanna. Samanlögð kvótaeign
fyrirtækjanna nemur nú 231.721
þorskígildistonni eða 50,45% af
heildarkvótanum. Á síðasta físk-
veiðiári áttu 25 stærstu sjávarút-
vegsfyrirtækin 46,45% af heildar-
kvótanum.
Ekki verða gagngerar breytingar
á kvótaeign stærstu útgerðarfyrir-
tækjanna um fiskveiðiáramótin. Hjá
flestum fyrirtækjunum hefur hlut-
fall af heildarkvóta aukist lítilshátt-
ar sem rekja má til aukinna afla-
heimilda í þorski. Þá hafa á fisk-
veiðiárinu sem senn er liðið orðið til
öflug sjávarútvegsfyrirtæki með
sameiningum.
Margar stórar sameiningar
Ein helsta breytingin sem hefur
orðið á kvótaeign stærstu útgerðar-
fyrirtækjanna er sameining Harald-
ar Böðvarsonar hf. á Akranesi og
Miðnes hf. í Sandgerði. Heildarkvóti
Haraldar Böðvarssonar hefur með
sameiningunni aukist um nálega
helming, er nú 21.189
þorskígildistonn sem skipar fyrh'-
tækinu í annað sæti stærstu útgerð-
arfyrirtækjanna.
Þorbjörn hf. í Grindavík hefur á
næsta fiskveiðiári yfir að ráða
10.382 tonna þorskígildiskvóta sam-
anborið við 4.690 tonn á þessu ári.
Þorbjörn hf. sameinaðist á síðasta
ári Bakka í Bolungarvík og í sumar
sameinaðist Þorbjörn hf. auk þess
þremur minni útgerðum; Hælisvík í
Grindavík, Sæunni í Keflavík og
Markhóli sem gerði út bát frá Pat-
reksfirði.
Þá hefur sameinað fyrirtæki Út-
gerðarfélags Dalvíkinga hf., Snæ-
fellings hf. í Ólafsvík og Gunn-
arstinds hf. á Stöðvarfirði, Snæfell
hf., skipað sér í hóp stærstu sjávar-
útvegsfyrirtækja landsins með um
8.138 tonna þorskígildiskvóta. Snæ-
fell hf. keypti einnig aflaheimildir í
loðnu og rækju af Nirði hf. í Sand-
gerði á síðasta ári. Útgerðarfélag
Dalvíkinga hf. var meðal 25 stærstu
sjávarútvegsfyrirtækjanna á síðasta
ári með um 6.211 tonna
þorskígildiskvóta.
Ennfremur hefur hlutdeild Hrað-
frystihússins hf. í Hnífsdal aukist
töluvert frá síðasta ári eftir samein-
ingu dótturfélagsins Miðfells hf. og
Frosta hf. í Súðavík. Enn eru auk
þess skráð um 1.516 þors-
kígildistonn á Frosta hf. Hraðfrysti-
húsið hf. sameinaðist auk þess út-
gerðarfélaginu Króknesi ehf.
Njall hf. í Garði í
hóp þeirra stóru
Þá hefur Njáll hf. í Garði bæst í
hóp stærstu sjávarútvegsfyrirtækja
landsins en fyrirtækið hefur að und-
anförnu keypt skip og aflaheimildir,
nú síðast Berglínu GK.
Hlutdeild Vinnslustöðvarinnai' hf.
í Vestmannaeyjum hefur á hinn bóg-
inn minnkað um nánast helming frá
fyrra ári samkvæmt úthlutun Fiski-
stofu. Fyrirtækið hefur nú um 3.755
þorskígildistonna kvóta en hafði í
fyrra um 6.804 tonn. Þó ber að at-
huga að enn á eftir að færa um 2.600
tonna kvóta togarans Jóns Vfldalíns,
sem keyptur var af Kaupfélagi Fá-
skrúðsfirðinga, yfir á nafn Vinnslu-
stöðvarinnar og minnkar þá hlut-
deild kaupfélagsins sem því nemur.
Skipulagsbreytingar
hjá Jökli hf.
Fyrirtæki sem voru á lista yfir 25
stærstu kvótahafana á síðasta ári, en
eru þar ekki nú, eru t.d. Jökull hf. á
Raufarhöfn. Vegna skipulagsbreyt-
inga innan fyrirtældsins hefur dótt-
urfélagið Raufi ehf. yfir um yfir
4.099 þorskígildistonna kvóta að
ráða. Jafnframt ery um 1.745
þorskígildistonn enn skráð á Jökul
hf. Ingimundur hf. í Reykjavík var í
hópi stærstu útgerðanna á síðasta
ári en þá átti eftir að færa aflaheim-
ildir af fyrirtækinu vegna sölu á Þor-
steini EA. Þá hefur útgerð Péturs
Jónssonar RE, Pétur Stefánsson,
færst niður í 31. sæti yfir stærstu
kvótahafana en fyrirtækið á nú 3.261
þorskígildistonna kvóta.
Tveir létust og 27 slösuðust í sprengju-
tilræði í Höfðaborg
Ekkert fullyrt
um ábyrgð
Höfðaborg. Reuters.
SÉRFRÆÐINGAR frá bandarísku
Alríkislögreglunni, FBI, sem að-
stoðuðu við rannsókn sprengjutil-
ræðanna við sendiráð Bandaríkj-
anna í Kenýa og Tansaníu fyrr í
mánuðinum, héldu í gær til Höfða-
borgar í Suður-Afríku til að aðstoða
yfirvöld þar við að leita uppi þá sem
stóðu að baki sprengjutilræði í veit-
ingastaðnum „Planet Hollywood" í
fyrrakvöld. Tveir létust og 27 slös-
uðust.
í yfirlýsingu frá bandaríska
sendiráðinu í Pretóríu í gær, var
sagt of snemmt að slá því föstu að
beint samhengi væri milli tilræðis-
ins í Höfðaborg og stýriflaugaárása
Bandaríkjamanna á bækistöðvar
hryðjuverkamanna í Afganistan og
Súdan. í yfirlýsingunni voru Banda-
ríkjamenn þó á ný hvattir til að
sýna aðgæzlu hvar sem þeir væru
staddir í heiminum.
Ilringf í útvarpsstöð
Tveir menn, sem hringdu nafn-
laust í útvarpsstöð í Höfðaborg í
gær, sögðu að tilræðið hefði verið í
hefndarskyni fyrir árásir Banda-
ríkjamanna í Súdan og Afganistan í
síðustu viku.
John Sterrenberg, talsmaður lög-
regluyfirvalda í Höfðaborg, tjáði
fréttamönnum að menn gæfu sér
ekki að neinn tiltekinn aðili bæri
ábyrgð á tilræðinu, en staðfesti að
menn frá FBI myndu aðstoða við að
kanna rústir veitingastaðarins, sem
var fullur af fólki þegar sprengja
sprakk þar um kl. 19.20 að staðar-
tíma í fyrrakvöld.
„Við viljum ekki stimpla einhvem
einstakling eða hóp ábyrgan fyrir
þessu án sannana. Sllkt væri mjög
óábyrgt,“ sagði Sterrenberg.
Ferðamenn felmtri slegnir
Erlendir ferðamenn í Höfðaborg
voru í gær felmtri slegnir vegna til-
ræðisins en það átti sér stað í miðju
veitingahúsahverfi við ströndina
sem kallast Waterfront og er mjög
fjölsótt af ferðamönnum.
Þýzka lögreglan greindi ennfrem-
ur frá því í gær að öryggisgæzla við
veitingastaði sem tengdust Banda-
ríkjunum hefði verið efld í Þýzka-
landi, í kjölfar tilræðisins í Höfða-
borg. Svipaða sögu var að segja frá
fleiri löndum, þar sem bandarískar
veitingahúsakeðjur hafa mikil um-
svif.
Reuters
SUÐUR-afrískir múslimar báðust fyrir á vettvangi við tilræðisstaðinn
í Höfðaborg í gær.
Olíuráðherrar Færeyja
og Bretlands funda
Þórshöfn. Morgunblaðið.
FÆREYINGAR og Bretar héldu í
gær fund um olíumál, þar sem
hvorir tveggja eiga mikilla hags-
muna að gæta, og var þetta í fyrsta
sinn sem æðstu ráðamenn þjóð-
anna í þessum málaflokki hittast.
Boðaði John Battle, olíumálaráð-
herra Bretlands, Eyðun Elttor, ol-
íumálaráðheira Færeyja, á sinn
fund í tengslum við olíumálaráð-
stefnu sem haldin er í Stafangri í
Noregi.
Skammt er síðan ný stór olíulind
fannst undir hafsbotninum skammt
frá landhelgismörkum Færeyja og
Bretlands, líkt og hinar lindimar
tvær sem Bretar hafa fundið á
þessum slóðum. Talið er að úr nýju
lindinni megi fá allt að 400 milljón-
um tunna af hráolíu og undirstrikar
fundur lindarinnar mikilvægi þess
að samkomulag finnist um stað-
setningu miðlínu milli landanna.
Komist Færeyingar og Bretar
ekki að samkomulagi um legu mið-
línunnar fer málið fyrir Alþjóða-
dómstólinn í Haag. Færeyingar
hafa lítinn áhuga á þeim málalykt-
um því það gæti tekið dómstólinn
mörg ár að komast að niðurstöðu.