Morgunblaðið - 27.08.1998, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1998 9
FRÉTTIR
Gistirými fullbókuð
vegna komu Keikós
GISTIRYMI í Vestmannaeyjum eru
fullbókuð vegna komu háhymingsins
Keikós hinn 10. september en hefð-
bundin gistirými eru milli 250 og
300. Endanlegar tölur um þátttöku
fjölmiðla liggja þó ekki fyrir fyiT en í
vikulokin, að sögn Guðlaugs Sigur-
geirssonar, upplýsingafulltrúa Keiks
ehf. sem sér um að undirbúa komu
Keikós fyrir hönd Vestmannaeyja-
bæjar.
„Samtök evrópskra sjónvarps-
stöðva hafa komið til Vestmanna-
eyja í vettvangsrannsókn og verða
undir það búin að senda beint út frá
Eyjum eftir pöntunum frá evrópsk-
um sjónvarpsstöðvum. Mér skilst að
bæði Ríkissjónvarpið og Stöð 2
verði með beinar útsendingar og
töluverðan viðbúnað. Stöð 2 hefur
sett sig í samband við eitt lunda-
veiðifélag og óskað eftir aðgengi að
húsi þess, en það er mjög vel stað-
sett og úr því sést beint ofan í
Klettsvíkina þar sem kvíin er,“ seg-
ir Guðlaugur.
Hann segir mikinn undirbúning
standa yfir og að mörgu að huga.
„Við erum að undirbúa aðstöðu fyrir
fjölmiðlamenn, finnum pláss og hent-
uga staði og útvegum gæslu, við
reynum að liðka hér fyrir svo þetta
geti gengið vel fyrir sig,“ sagði Guð-
laugur í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Að sögn Halls Hallssonar, tals-
manns Free Willy-Keikó samtak-
anna, gengur allur undirbúningur
samkvæmt áætlun. „Sjókviin er tO-
búin, einungis er eftir að setja hús á
hana fyrir starfsfólk, það verður gert
fyrir mánaðamót en hús verður flutt
hingað frá Svíþjóð. í húsinu er gert
ráð fyrir rými fyrir tvo til fjóra
starfsmenn. Undirbúningur í Banda-
ríkjunum gengur vel og ekkert
óvænt hefur komið upp,“ sagði Hall-
ur í samtali við Morgunblaðið.
Frestur fjölmiðla til að skrá sig
hjá Free Willy-Keikó samtökunum
til að fylgjast með brottfór Keikós
frá Bandaríkjunum og komu hans til
Vestmannaeyja rann út í gær, mið-
vikudag.
Full búð
af nyjiini haustvörum
Opið til kl. 9 í kvöld
Dimmalimm
Skólavörðustíg 10, síini 551 1222
Breiðir og með góðu innleggi
Einir bestu „fyrstu" skórnir
STEINAR WAAGE
Domus Medica 551 8519
Kringlunni 568 9212
Toppskórinn 552 1212
Verð frá: 3.995,-
Tegund: Jip 623
Hvítt, rautt, blátt, svart, bleikt og
brúnt leður í stærðum 18-24
Brúðhjón
Allur boröbúnaóur - Glæsileg gjafavara - Brúóhjönalistar
VERSLUNIN
Laiigavegi 52, s. 562 4244.
SKÓLASKIPIÐ Sæbjörg er kom-
ið til hafnar í Reykjavík að lokn-
um umfangsmiklum breytingum
sem gerðar voru á skipinu í
Slippstöðinni á Akureyri undan-
farnar fimm vikur.
Að sögn Hilmars Snorrasonar,
skólastjóra Sæbjargar, var skip-
inu breytt úr ferju í skóla. „Þetta
er gjörbylting á aðstöðu skólans.
Má fyrst og fremst segja að það
sé rýmra um alla starfsemi og
aðstaða er gjörbreytt fyrir nem-
endur. I gamla skipinu voru
nemendur á hrakhólum," sagði
Hilmar í samtali við Morgunblað-
ið.
Akraborg breytt
í Sæbjörgu
Efri farþegasal var breytt í
skólastofu og þar sem áður var
veitingasala var komið fyrir
skrifstofum fyrir skólann. Bfla-
þilfari skipsins var einnig gjör-
breytt til þess að koma þar fyr-
ir búningaaðstöðu fyrir nem-
endur og æfingarými fyrir sjó-
björgun og reykköfun. Einnig
var skipið málað frá sjólínu og
uppúr.
Breytingum á skipinu er þó
ekki alveg lokið því eftir er að
koma fyrir í því krana sem nota
á til að hífa búnað um borð og
við æfingar á sjó. Hilmar segir
að þegar breytingum ljúki muni
kostnaður við þær nema um 20
milljónum króna.
Sex manns starfa um borð í
Sæbjörgu en 8 manns eru í
áhöfn þegar skipið er á sigling-
um. Rekstur nýja skipsins verð-
ur með sama hætti og hins
gamla, það verður á ferð um-
hverfis landið frá vori og fram í
september en námskeiðshald
fyrir nemendur sjómanna- og
vélskóla verður stundað yfír
veturinn.
Allt að 12,6% hækkun á fasteignaverði frá áramótum
Aukin eftirspurn eftir sérbýli
FRÁ áramótum hefur fasteignaverð
hækkað um allt að 12,6% fyrir
110-150 fermetra sérbýli hér á landi
og er þá miðað við staðgreiðslu.
Magnús Ólafsson, forstjóri Fast-
eignamats ríkisins, segir að hækk-
unina megi meðal annars rekja til
þess að fólk leiti eftir stærri íbúðum
í sérbýli þegar efnahagur batnar.
Útreikningar á fasteignaverði
byggjast á völdu úrtaki á kaup-
samningum, sem berast Fasteigna-
mati ríkisins, og benti Magnús á að
tölur fyrir júlímánuð væru ekki
endanlegar og gæfu því ekki alveg
rétta mynd af þeim mánuði. Sam-
kvæmt útreikningum Fasteigna-
matsins hefur verð á 70-110 fer-
metra íbúðum í fjölbýli hækkað um
5,1% frá áramótum, verð á 110-150
fermetra íbúðum í fjölbýli hefur
hækkað um 7,7% og verð á 150-210
fermetra íbúðum í fjölbýli hefur
hækkað um 3,7%. Verð á 110-150
fermetra íbúðum í sérbýli hefur á
sama tíma hækkað um 12,6% en
verð á 150-210 fermetra sérbýli hef-
ur hækkað um 3,8% og verð á
210-270 fermetra sérbýli hefur
hækkað um 5,2%.
Magnús sagði að útreikningarnir
væru miðaðir við staðgreiðslu en
ekki það verð sem komi fram í kaup-
samningum. „Þegar ávöxtunarkrafa
húsbréfa lækkar hækkar stað-
greiðsluverð meira en söluverðið,"
sagði hann. „Þetta skýrir hluta
hækkunarinnar og við sjáum ekki
annað en að verðið hafi verið á upp-
leið. Ég held að þegar uppsveifla er í
þjóðfélaginu og efnahagur batnar
kaupi fólk stærri íbúðir og þá verður
meiri eftirspurn eftir þeim, sem
skýrir meðal annars hækkun á íbúð-
um í sérbýli."
Ný sending af prjónadressum og jakkapeysum
f™ CtlOISF _
fyfötmtMr
Gullbrá
Einnig glæsilegt úrval
af velúrgöllum
■ snyrtivöruverslun
Nóatúni 17, sími 562 4217
Sendum t póstkröfu
VIÐ ERUM FLUTT!
t dag kl. 13.00 opnum við nýja
verslun á Laugaveigi $6
Mikið úrval aS Sallegum
haustvörum £rá
OBÉODI mn DKNV <|
- i ii / Hmbotand
KENZO r....
JUK61E Cacao
0NAF NAF
: N F A N T
.
TEENO
ENGIABÖRNÍN
Laugavegi 56,
sími 552 2201.
Nýjar
VÖRUR
www.mbl.is