Morgunblaðið - 04.02.1997, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 04.02.1997, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 3 Hafbu eftirfarandi í huga þegar þú ráhstafar sparifé þínu: OAllar tölur um ávöxtun veröbréfasjóöa em byggöar á fortíöinni. Ávöxtun í fortíö gefur engin fyrirheit um ávöxtun í framtíö. Því geta þessir aðilar ekki boöið ákveöna framtíðar ávöxtun. Sú ávöxtun, sem verðbréfasjóðir bjóöa nú, er reiknuð þannig að miöaö er viö þaö tímabil þegar ávöxtunin var sem hæst, hvort sem það em síðustu 3 mánuðir, 6 mánuðir eöa ár. Bankabækur bera breytilega vexti. Bestu kjörin, sem bankarnir bjóða nú, eru á þeim innlánsreikningum sem hafa lengsta binditímann. Auk þess geta bankarnir breytt vöxtunum einhliða hvenær sem er. Samt sem áður er innstæðan áfram bundin út lánstímann. OÞær vaxtatölur, sem nú eru mest kynntar, miða án efa við það að innlausn spariskírteina ríkissjóðs stendur nú yfir. En hvað gerist svo? Gerðu skýran greinarmun á verðtryggðum og óverðtryggðum vöxtum, eða raunvöxtum annars vegar og nafnvöxtum hins vegar. í tölum um ávöxmn innlánsstofnana og verðbréfasjóða eru tveir breytilegir þættir, annars vegar vextirnir sjálfir og svo verðtryggingin. Þetta gerir fyrirheitin um ávöxmn í framtíðinni enn óvissari. OÞað teljast ekki góð vísindi að fjárfesta í verðbréfum þegar verð þeirra er í hámarki, eins og nú virðist vera, sé tekið mið af auglýsingum ýmissa aðila á markaðnum. Meginreglan er sú að menn kaupa þegar gengið er lágt og selja þegar það er hátt! OSpariskírteini ríkissjóbs bera fasta vexti umfram verbtryggingu, allt til lokagjalddaga. Þau eru auk þess aubseljanleg hvenær sem er á lánstímanum. Tryggbu þér öryggi og góba ávöxtun. Fjárfestu í verbtryggbum spariskírteinum ríkissjóbs. Þegar tekin er ákvörðun um ávöxtun sparifjár er einnig nauðsynlegt að hafa atriði ^ í huga. O

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.