Morgunblaðið - 04.02.1997, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 04.02.1997, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 AÐSEIVIDAR GREIIMAR MORGUNBLAÐIÐ SIB býr ekki við rýmri löggjöf I FORYSTUGREIN Morgunblaðsins föstudaginn 31. jan- úar 1997 er fjallað um sérstöðu Sambands íslenskra banka- manna (SÍB) varðandi löggjöf um skipan kjarasamningamála. Tilefniðj er, að SÍB hefur aflað sér verk- fallsheimildar. I forystugreininni segir réttilega að SÍB hafi þá sérstöðu með- al stéttarfélaga að hvorki lögin um Vilhelm G. stéttarfélög og vinnu- Kristinsson deilur né um kjarasamninga opin- berra starfsmanna nái til þeirra, heldur séu í gildi lög frá 1977 um kjarasamninga starfsmanna banka í eigu ríkisins. Aðrir bank- ar, sparisjóðir og fjármálastofnan- ir eru síðan aðilar að því fyrir- komulagi kjarasamninga sem lög- in gera ráð fyrir, samkvæmt sér- stöku samkomulagi sem kveðið er á um í lögunum. Morgunblaðið fullyrðir í for- ystugrein sinni að bankarnir og Samband íslenskra bankamanna Hins vegar getur vinnustöðvun ekki hafist fyrr en félags- menn hafa fellt sáttat- illögu sem ríkissátta- semjara ber laga- skylda til að leggja fram og um þá tillögu verður að fara fram leynileg allsheijarat- kvæðagreiðsla, þar sem krafist er þátt- töku a.m.k. helmings félagsmanna SIB og ræður meirihluti þeirra úrslitum. Því þarf atkvæði 25,01% félagsmanna SIB til þess að vinnustöðvun geti hafíst. Hjá þeim verkalýðsfélögum sem falla undir lögin um stéttarfélög og vinnudeilur geta hins vegar Kjarni málsins er sá, segir Vilhelm G. Kristinsson, að til þess að vinnustöðvun hefjist þurfa hlutfallslega “rmð WÍSÖSS' miklu fleiri félagsmenn SÍB að vera henni samþykkir en félags- efnum. Þetta er ekki allskostar rétt. Lítum á nokkur dæmii ' I lögunum um stéttarfélög og vinnudeilur kveður á um almenna leynilega atkvæðagreiðslu um boðun vinnustöðvunar. í atkvæða- greiðslunni þarf a.m.k fimmtung- ur atkvæðisbærra félagsmanna að taka þátt svo verkfallsboðun sé gild og þarf verkfallsboðun að hljóta samþykki helmings greiddra atkvæða. menn þeirra verkalýðs- félaga sem falla undir lögin um stéttarfélög og vinnudeilur. Rétt er, að í lögunum nr. 34/1977 sem gilda um banka- menn, er ekkert slíkt ákvæði. Þeir aðilar, sem samkvæmt samþykkt- um SIB er heimilt að boða til verk- falls, geta gert það án þess að bera ákvörðun sína undir félags- menn í allsheijaratkvæðagreiðslu. 10,01% félagsmanna tekið ákvörð- un um vinnustöðvun. Af þessu er ljóst, að til þess að vinnustöðvun geti hafist þurfa hlutfallslega miklu fleiri félags- menn SÍB að ljá henni samþykki sitt en félagsmenn þeirra verka- lýðsfélaga sem lögin um stéttarfé- lög og vinnudeilur ná til. Sátta- semjara ber að leggja fram sáttat- illögu eigi síðar en fímm sólar- hringum áður en vinnustöðvun skal hefjast og eftir að sáttatillaga hefur verið lögð fram getur ríkis- sáttasemjari frestað boðaðri vinnustöðvun í allt að 15 daga. Slíkum fresti er ekki til að dreifa samkvæmt lögunum um stéttarfé- lög og vinnudeilur. Ennfremur er þess að geta, að samkvæmt lögunum um stéttarfé- lög og vinnudeilur ber þeim verka- lýðsfélögum sem undir þau lög falla að tilkynna ákvörðun um vinnustöðvun til sáttasemjara sjö dögum áður en hún skal heijast, en í lögunum nr. 34/1977, sem gilda um félagsmenn SÍB, er þessi frestur fimmtán dagar. Til viðbót- ar kemur síðan heimilaður frestur ríkissáttasemjara um aðra fimmt- án daga eins og áður sagði. Þá er þess einnig að geta, að samkvæmt kjarasamningalögum bankamanna skal ríkissáttasemj- ari taka kjaradeilu bankamanna og bankanna til meðferðar hafi samningar ekki tekist á fyrstu 60 dögum uppsagnarfrests, en í lög- unum um stéttarfélög og vinnu- deilur er einungis kveðið á um að samningsaðilar geti óskað milli- göngu sáttasemjara um samnin- gaumleitanir. í lögununum um stéttarfélög og vinnudeilur er sáttasemjara heimilt að leggja fram miðlunartil- lögu til lausnar vinnudeilu. í lög- unum nr. 34/1977 er sáttasemjara skylt að leggja fram sáttatillögu, hafi vinnustöðvun verið boðuð. Af framanrituðu er ljóst, að lög- in nr. 34/1977 um kjarasamninga bankamanna ganga að ýmsu leyti lengra en lögin um stéttarfélög og vinnudeilur. Kjarni málsins er sá, að til þess að vinnustöðvun hefjist þurfa hlutfallslega miklu fleiri félagsmenn SÍB að vera henni samþykkir en félagsmenn þeirra verkalýðsfélaga sem falla undir lögin um stéttarfélög og vinnudeilur. Því er það misskiln- ingur hjá höfundi forystugreinar Morgunblaðsins að Samband ís- lenskra bankamanna búi við „mun rýmri löggjöf í þessum efnum.“ Höfundur er framkvæmdasljóri Sambands íslenskra bankamanna. Skólastefna í molum í MÖRG ár hefur undirrituð gagnrýnt ríkjandi skólastefnu og bent á nauðsyn þess að rannsaka með opn- um huga upphaf stefn- unnar, inntak hennar og þróun í aldarfjórð- ung. Skemmst er frá að segja að daufheyrst hefur verið við tilmæl- unum. En hver eru helstu .P gagnrýnisatriðin? Hér skulu þau rifjuð upp í örstuttu máli: Kennslu- aðferðir eru um of mið- aðar við svokallað leit- arnám og hópvinnu, samþætting námsgreina er trúar- atriði, ekki má skerða „frelsi" nem- enda með þeim afleiðingum að aga og heilbrigt aðhald skortir, ein- strengingsleg innræting á þroska- kenningum Jeans Piagets hefur haft í för með sér vanmat á vits- munum bama, of litil áhersla er ^ lögð á gildi endurtekningar, blátt bann er lagt við hvers konar utan- bókarlærdómi, bein fyrirmæli má ekki nota, latir nemendur og hyskn- ir fá of mikla athygli en duglegir nemendur og samviskusamir fá hvorki nægilega uppörvun né viður- kenningu fyrir vel unnin störf. Þungamiðjan í gagnrýninni hefur t þó snúist um kennslu þeirra barna sem þurfa langan tíma til að ná tökum á bók- legu námi. Úrræðin, sem áttu að duga þess- um börnum, voru byggð á vanþekkingu á orsökum námserfíð- leika og vanmati á vits- munum bamanna. Þessi böm vom van- metin í gamla skólan- um, nýja uppeldisfræð- in vanmetur þau líka. Rök: Starf mitt við uppbyggingu og þróun fomámsdeildar Menntaskólans í Kópa- vogi, þekking á sér- kennslu í mörgum gmnnskólum, niðurstöður á greind- arprófum svokallaðra seinfærra barna og kennsla þessara sömu barna með góðum árangri eftir að breytt var um stefnu. I greinaflokki, sem birtist í Les- bók Morgunblaðsins í febrúar og mars 1993, sýndi ég fram á að vel skipulagður hópur manna undir for- ystu dr. Wolfgangs Edelstein og Andra ísakssonar hafí um miðjan 7. áratuginn hafið markvissan áróð- ur fyrir nýju skólastefnunni. Gamli skólinn var veginn og léttvægur fundinn og kenningar í kennslu- og uppeldismálum boðaðar starfandi kennurum og öðmm skólamönnum sem vísindalega sannaðar stað- Fráhvarf okkar frá gamla skólanum hefur, að mati Helgu Sigurjónsdóttur, haft víðtækar afleiðingar. reyndir. Loksins hefðu kennarar í höndunum tæki sem dygði þeim vel, ekki aðeins til að kenna náms- greinarnar heldur einnig til að móta nýtt fólk. Þungamiðja skólastarfs- ins átti að verða kennsla í lifnaðar- háttum. Á máli uppeldisfræðinnar heitir það viðhorfamótun og sam- skiptakennsla. Þess vegna hafa skólarnir, sem mennta kennara í kennslufræðum, lagt svo litla áherslu sem raun ber vitni á færni kennaraefna í námsgreinunum sem þeir eiga að kenna. Við þessa um- pólun í kennslumálum færðist vald kennarans til einstaklinga og hópa sem eiga mikið undir því að þessi fræði haldi velli. Kennarinn var ekki lengur fræðarinn, sem hafði víðtæka þekkingu á fræðasviði sínu heldur varð hann þjónn uppeldis- fræðinnar. Þessi hugsun er grunn- urinn að réttindanámi fyrir kennara í framhaldsskólum, sem hófst í upp- hafi áttunda_ áratugarins undir stjórn Andra ísakssonar. Uppeldis- Helga Siguijónsdóttir Oryrkjar eru afgangsstærð ÞAÐ var ekki upp- örvandi jóla- og nýárs- boðskapur, sem öryrkj- ar fengu frá ijármála- og forsætisráðherra landsins fyrir og um nýliðin áramót. Við lok þingstarfa rétt fyrir jól var haft útvarpsviðtal við fjár- málaráðherra um nið- urstöður á afgreiðslu fjárlaga og kom þar m.a. til tals sú tveggja prósenta hækkun sem samþykkt hafði verið á örorkulífeyri. Þá sagði fjjármalaráðherra eitt- hvað á þá leið að það yrði athugað eftir áramótin hvort meira svigrúm verði til hækkunar á örorkubótum. Það á sem sagt að athuga hvort svigrúm verður til hækkunar. Ég held að flestum í landinu sé það ljóst, nema þá ríkisstjórninni, að öryrkjar og margt annað láglaunafólk hefur ekki fjárhagslegt svigrúm til þess að komast af við núverandi kringum- stæður. Þessi ummæli fjármálaráðherra sýna greinilega að hann lítur á þessa þjóðfélagsþegna sem afgangsstærð í samfélaginu, sem kannski komi til greina að sletta einhveiju í síðar, ef svigrúm gefst að hans dómi. Það má minna ráðherrann á, að öryrkjar eiga innstæðu hjá ríkis- sjóði. Meðal annars vangreiddar bætur frá árinu 1995, þar sem í kjarasamningum var samið um ákveðna krónutöluhækkun en ör- yrkjar fengu þær greiðslur umreikn- aðar í prósentuhækkun, sem reynd- ust frá 36-56 prósentum lægri en krónutöluhækkunin, eftir því hvort um var að ræða einstaklinga eða sambúðarfólk. Þetta hefur ekki fengist leiðrétt. Arið 1996 átti að spara 90 millj- ónir með niðurskurði á einum þætti bóta, en þar var ekki látið staðar numið heldur haldið áfram, svo að nú er sú upphæð orðin tvöföld. Þar eiga öryrkjar því til góða 90 milljón- skóli skyldi það vera, en því miður miðaði lengi seint að dómi félaga hans, dr. Wolfgangs Edelstein. í bókinni Skóli - nám - samfélag harmar hann að framhaldsskólinn hafí ekki orðið sá uppeldisskóli sem hann að réttu lagi ætti að vera. (1988: 111 - 116. Greinin sem hér er vitnað til heitir Námsverksmiðja eða uppeldisskóli? Hún var skrifuð 1983). Ég hef tekið saman nokkrar greinar mínar um skólamál og gef- ið þær út á bók sem heitir Þjóð í hættu. Titillinn er ekki valinn út í bláinn, hann er heiti einnar greinar- innar, en i henni eru bornir saman bandarískir skólar og asískir. Sam- anburðurinn er þeim asísku í vil. Þó að ekki megi alhæfa út frá einni rannsókn er Ijóst að skyndilegt frá- hvarf okkar frá gamla skólanum, sem byggði starf sitt á menntahefð vestrænna lýðræðisríkja, gildum kristinnar menningar, uppeldis- stefnu sem var í samræmi við reynsluvísindi kynslóðanna og þeirri bjargföstu trú að fullorðnir ættu að hafa vit fyrir börnum, hefur haft víðtækar afleiðingar. Sumar þeirra rek ég í áðumefndri bók minni. En nú er mál að taka til hend- inni og leggja grunninn að nýrri stefnu, skólastefnu sem tekur mið af hvoru tveggja: traustri og heiðar- legri fræðimennsku og þaulprófuð- um reynsluvísindum. Höfundur er kennari og námsráðgjafi. ir og því til viðbótar kemur svo fjárhæðin sem höfð var af öryrkj- um áramótin 1995/1996, þegar rofín voru tengsl milli öror- kulífeyris og almennrar launaþróunar í landinu, þannig að svigrúmið fyrir ráðherrann er umtalsvert. Ekki batnar það þeg- ar forsætisráðherrann tekur til máls. Ára- mótaræða hans hefur sem betur fer orðið mörgum tilefni til um- ræðu á ýmsum vett- vangi, en í henni kemur svo berlega fram að ráðherrann hef- ur ekki hugmynd um fátæktina, sem er í landinu. „Engar haldbærar tölur staðfesta slíkt,“ segir hann. En hvað skýrir þá hina gífurlegu aukningu á þeim fjölda sem leitar eftir fjárhagsaðstoð hjá félagsmála- stofnunum, verkalýðsfélögum, Launþegahreyfingin hefur lýst því yfir, segir Ólöf Ríkarðsdóttir, að ekki verði gengið til samninga án þess að öryrkjar fái sinn rétt- mæta skerf. mæðrastyrksnefndum og öðrum samtökum sem veita aðstoð í neyð- artilvikum? Svarið er augljóst. Það er einmitt neyðin, sem knýr fólk til þess. Það væri hollt fyrir ráðamenn þjóðarinnar að fara í vettvangskönn- un og kynnast þannig kjörum ör- yrkja af eigin raun, en taka ekki góða og gilda einhverja útreikninga, sem eru í engu samræmi við raun- veruleikann. Um næstsíðustu áramót voru, að mínum dómi, brotin mannréttindi á örorkulífeyrisþegum, þegar rofin voru tengslin milli launaþróunar í landinu og örorkulífeyris. Ríkisstjórn og fylgismenn hennar á Alþingi vita að þau hafa ráð og kjör þessa fólks í hendi sér og notfæra sér það blygð- unarlaust. Þessi þjóðfélagshópur hefur engan samningsrétt og því er ákaflega auðvelt að fara með hann að vild. Skyldi það samt ekki snerta sam- visku einhverra að eiga þátt í því að rýra kjör hans án afláts? Öryrkjasamtökin hafa sem betur fer náið samstarf við launþegahreyf- inguna um launakjör og réttinda- mál. Stuðningur hennar um síðust áramót skipti sköpum, þegar band- ormurinn herti svo takið á öryrkjum að nærri lá köfnun. Launþegahreyfingin hefur einnig lýst því yfir nú, að ekki verði geng- ið til kjarasamninga án þess að ör- yrkjar fái þar sinn réttmæta skerf. Launþegahreyfingin er sá bak- hjarl, sem öryrkjar setja allt sitt traust á. Við viljum einnig skírskota til rétt- lætiskenndar og samvisku þeirra sem eru við stjórnvölinn og áhersla er lögð á þá kröfu að launakjör öror- kulífeyrisþega fylgi samningsbundn- um launakjörum annarra launþega í landinu. Enginn skal heldur álíta að öryrkjar taki því þegjandi að fá tveggja prósenta launahækkun, þeg- ar fyrirsjáanlegt er og sjálfsagt að almennar launahækkanir í landinu verða mun meiri í komandi kjara- samningum. Höfundur er formaður Öryrkjabandalags íslands. Ólöf Ríkarðsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.