Morgunblaðið - 04.02.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.02.1997, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Rekstrarhalli ríkissjóðs tæplega tveir milljarðar króna 1996 Minnsti halli í tólf ár SAMKVÆMT bráðabirgðatölum sem nú liggja fyrir nam halli ríkis- sjóðs árið 1996 að frátöldum vaxta- greiðslum vegna sérstakrar inn- lausnar spariskírteina tæplega tveim milljörðum króna. Þetta svar- ar til 0,4% af landsframleiðslu, og er helmingi minni halli en fjárlög ársins gerðu ráð fyrir. Þá er þetta innan við fjórðungur þess halla sem varð á árinu 1995, og besta rekstr- arniðurstaða ríkissjóðs síðan 1984 þegar ríkissjóður var síðast rekinn með afgangi. Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra sagði á blaðamannafundi, þar sem afkoma ríkissjóðs á síðasta ári var kynnt, að í bráðabirgðatölunum væru afkomutölumar bomar saman við fjárlagatölur og sömu forsendur og Qárlög byggjast á. Að öðmm kosti væri hallinn 10,1 milljarði króna meiri, en ástæða þess væri sú að á síðastliðnu ári var gripið til þess ráðs að innkalla þijá mjög vaxtaháa flokka spariskírteina frá ámnum 1984 og 1986, sem endur- íjármagnaðir vom á lægri vöxtum. Heildarfjárhæð innlausnarinnar nam rúmlega 17 miHjörðum króna og þar af vom vaxtagreiðslur 10,1 milljarður, en talið er að þessi að- gerð muni leiða til um tveggja millj- arða króna spamaðar í vaxtagreiðsl- um til ársins 2000. Meiri tekjur Friðrik sagði að ástæða þess að afkoma ríkissjóðs batnaði vemlega á síðasta ári væri árangursríkari hagstjóm og um leið traustari staða íslensks efnahagslífs heldur en ver- ið hefur. Hann sagði að tekjur ríkis- sjóðs hefðu orðið mun meiri en gert hefði verið ráð fyrir, og þann- ig hefðu tekjumar hækkað um 6,9 milljarða króna en útgjöldin um 4,9 milljarða. Heildarútgjöld ríkissjóðs árið 1996 námu 129,7 milljörðum króna, eða 26,2% af landsfram- leiðslu. Þetta er tæplega 1% lægra en árið 1995 og þarf að fara aftur til ársins 1987 til að finna lægra hlutfall. Vegna vaxandi landsfram- leiðslu hækka útgjöldin nokkuð að raungildi milli ára, eða um 2%, og er það einkum vegna framlaga til mennta- og heilbrigðismála. Heildartekjur ríkissjóðs á síðasta ári vora 127,7 milljarðar króna, eða um 25,8% af landsframleiðslu, og hefur hlutfall heildartekna og skatttekna af landsframleiðslu hækkað um 0,7% frá árinu 1995. Hækkunin er alfarið rakin til áhrifa aukins kaupmáttar heimilanna og almennra umsvifa í efnahagslífínu. Lánsíjárþörf A-hluta ríkissjóðs nam um 2,7 milljörðum króna árið 1996, að frátöldum áðumefndum vaxtagreiðslum vegna sérstakrar innlausnar spariskírteina, og svarar þetta til 0,5% af landsframleiðslu. Friðrik sagði að afkoma ríkis- sjóðs 1996 væri ekki mjög frá- bmgðin því sem búist hefði verið við síðustu mánuðina, en um mitt árið og við fjárlagagerð hefði verið talið að hallinn yrði nærri þremur milljörðum króna. Síðari hluti árs- ins hefði því komið betur út en búist var við og einkum hefði virðis- aukaskattur skilað sér betur í síð- ustu greiðslum ársins en gert var ráð fyrir. Afkoma ríkissjóðs 1995-96 (milljónum króna á verðlagi hvers árs Frávik Fjárlög 1996 Frávik frá fjárlögum 1995 1996 frá fyrra ári Tekjur 114.413 127.735 13.322 120.865 6.870 Gjöld -123.344 -139.729 -16.385 -124.816 -14.913 Gjöld án vaxtagjalda v. innköllunar * 129.716 -6.372 - -4.900 Rekstrarafkoma -8.931 -11.994 -3.063 -3.951 -8.043 Hlutfall af landsframleiðslu (%) -2,0 -2,4 -0,4 Rekstrarafkoma án innlausnar -8.931 -1.981 6.950 -3.951 1.970 Hlutfall án vaxtagjaldav. innköllunar -2,0 -0,4 1,4 Lánveitingar, nettó -9.659 -713 8.946 -150 -563 Hrein lánsfjárþörf 18.590 12.707 -5.883 4.101 8.606 Afborganir lána -17.780 -28.740 -10.960 -21.160 -7.580 Lánsfjárþörf, brúttó -36.370 -41.447 -5.077 -25.261 -16.186 Lántökur 35.587 41.495 5.908 25.300 16.195 Greiðsluafkoma -783 49 832 39 10 -16 milljarðar kr. án áhrifa innköllunar spariskirteina á vaxtagjöld Hafís rekur að Grímsey Grimsey. Morgunblaðið. HAFIS rekur nú hratt í átt að landi og má búast við því að Grímseyingar sjái til hans í dag eða á morgun. Grímseyingar virðast vera þokkalega birgir af olíu og vonast til að geta bjargað sér með vistir. Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SYN fór í ískönnunarflug í gær og var ísjaðarinn þá næstur landi 48 sjómflur norður af Grímsey, við Kolbeinsey, 32 sjó- mflur norðnorðvestur af Ska- gatá, 18 sjómflur norðaustur af Horni, 12 sjómflur norður af Kögri, 44 sjómflur norðvestur af Barða og 94 sjómílur vestur af Bjargtöngum. Frá meginísjaðr- inum lágu þéttar ísspangir inn á Hælavík og er siglingaleiðin va- rasöm. Spáð er norðlægum áttum á næstunni og færist ísjaðarinn þá enn nær landinu. Ekki áður séð svo mikinn ís Davíð Oddsson í umræðum á Alþingi um kjarasamninga Aldraðir og öryrkjar njóti aukningar kaupmáttar DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði við umræður á Alþingi í gær að kaupmáttaraukning sú sem samið verður um í kjarasamningum eigi einnig að ganga til öryrkja og aldr- aðra. í framhaldi af því spurði Mar- grét Frímannsdóttir, formaður Al- þýðubandalagsins, hvort þessir hópar fengju að semja um sín kjör eins og launafólk. Ríkisstjómin var harðlega gagn- rýnd í utandagskráramræðum á Al- þingi í gær um undirbúning kjara- samninga og áhrif nýrra vinnumark- aðslaga. Stjómarandstæðingar sögðu það hafa sýnt sig að nýju lögin sem þvinguð hefðu verið í gegn þvert á vilja verkalýðshreyfingarinnar hefðu orðið til þess eins að gera samninga erfíðari. Ráðherrar og stjómarþing- menn vísuðu til þess að þegar hefðu náðst samningar við starfsfólk í loðnuverksmiðjum og að of snemmt væri að dæma um annan árangur. Þingmenn stjómarandstöðu sögðu ríkisstjómina líta framhjá og neita að viðurkenna að fátækt fyrirfýndist á íslandi. Þeir bentu á að tölur um kaupmáttaraukningu væm meðal- talstölur og segðu ekkert um vax- andi tekjumismun. Davíð Oddsson svaraði því til að hvergi í heiminum væri jöfnuður meiri en hér á landi og vísaði til þess að meðaltalstekju- aukning hér á landi samkvæmt nýj- ustu tölum hefði orðið 8-9 prósent. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra spáði því að kaupmáttur fjöl- skyldna ykist um 15-20 prósent fram til aldamóta, eða meira en hjá nokk- urri nágrannaþjóð. Hann sagði bestu aðferðina til að bæta Iífskjör og auka kaupmátt vera að halda atvinnuleysi lágu. Hann gagnrýndi stjómarand- stöðuna þess vegna fyrir að einblína á neikvæða þætti þess að reist yrði álver á Gmndartanga. „Stjómarandstæðingar eins og aðrir verða að velja og hafna í þessu efni. Einhveiju verður til að kosta til að bæta lífskjör í landinu." Afvopnaði ræningja og rakádyr PILTUR með hettu fýrir andlit- inu kom inn á myndbandaleig- una Videóhöllina við Lágmúla rétt fyrir lokun á sunnudags- kvöld. Hann ógnaði starfsstúlku með kúbeini og heimtaði peninga úr afgreiðslukassa. „Stúlkan brást hin versta við, enda sagði hún eftir á að hún sætti sig ekki við að láta ein- hveija aumingja skipa sér fyrir verkum,“ sagði Þóroddur Stef- ánsson, eigandi Videóhallarinn- ar. „Hún sagði honum því að hypja sig út, eða hann hefði verra af. Pilturinn mundaði þá kúbeinið og gerði sig líklegan til að ráðast á hana, en hún varð fyrri til og reif af honum kúbeinið. Það var því heldur lúpulegur ræningi sem tók til fótanna og hvarf út í myrkrið." Þóroddur sagði að eftirlits- myndavélar væm Videóhöllinni. „Við eigum því kauða á mynd- bandi. Lögreglan leitaði að hon- um hér í nágrenninu um nóttina, en hann hefur sjálfsagt hypjað sig heim eftir sneypuförina.“ Bifreiðaskoð- unskipt BIFREIÐASKOÐUN fslands hf. var lögð niður á aðalfundi fyrir- tækisins í gær og því skipt ann- ars vegar í Bifreiðaskoðun hf. og Skráningarstofuna hf. hins vegar. Bifreiðaskoðun hf. fer því frá og með deginum í dag inn á samkeppnismarkaðinn í bíla- skoðunum en Skráningarstofan hf. annast ein allar bifreiða- skráningar hér á landi. Karl Ragnars, sem var fram- kvæmdastjóri bifreiðaskoðunar íslands hf., verður fram- kvæmdastjóri Skráningarstof- unnar hf. og Óskar Eyjólfsson, sem var fjármálastjóri Bifreiða- skoðunar fslands hf., verður framkvæmdastjóri Bifreiðaskoð- unar hf. Fyrirtækin verða fyrst um sinn bæði til húsa að Hest- hálsi 6-8, en stefnt er að því að Skráningarstofan hf. flytji í annað húsnæði. Þýzki kvótinn lítið breyttur ÞORSKKVÓTI Þýskalands í Bar- entshafí eykst um tvö þúsund tonn frá fyrra ári og skiptist við- bótarúthlutunin jafnt á milli þýsk-íslensku útgerðarfyrirtækj- anna Mecklenburger Hochsee- físcherei, MHF, og Deutsche Fischfang Union, DFFU. Að öðm leyti er skipting kvótans í megin- dráttum sú sama og í fýrra. Viðbót af þorski/18 Samstarf bankanna og sparisjóðanna um yfirtöku fjárfestingalánasjóðanna Stefán Ingvarsson, skipstjóri á Margréti E A, sagði í samtali við fréttaritara blaðsins í Grfms- ey að á sunnudagskvöld hefði ísspöng farið hjá Kolbeinsey og um sjöleytið í gærmorgun er þeir voru staddir um 38 sjómílur norður af Grímsey hefði tvær stórar ísspangir rekið hratt í átt að eynni. „Það er mikið kast á honum, svona ein og hálf sjómíla á klukkustund, beint í suður. Hann svifar svona til eftir því hvort hann er meira í norðvestri eða norðaustri. Það fer að verða tvísýnt með Eyjafjarðarálinn." Stefán hefur verið sextán ár á sjó og segist ekki fyrr hafa séð svona mikinn ís. Aðspurður um aflabrögð sagði hann þau i raun- inni ágæt. „Maður er bara að flýja undan ísnum, ætli maður endi ekki fyrir austan.“ Islandsbanki tekur ekki þátt BANKARÁÐ íslandsbanka hefur ákveðið að taka ekki þátt f samstarfí um yfirtöku bankanna og sparisjóðanna á fjárfestingalánasjóðunum. Sigurð- ur Hafstein, framkvæmdastjóri Sambands ís- lenskra sparisjóða, segir hins vegar að sparisjóð- imir styðji hugmyndina og að það hafí engin áhrif á fyrirætlanimir þótt íslandsbanki verði ekki með. Að sögn Kristjáns Ragnarssonar, formanns bankaráðs íslandsbanka var ákveðið á fundi síð- astiiðinn þriðjudag að hafna þeim fyrirætlunum sem Landsbankinn hefur haft frumkvæði að, að bankarnir og sparisjóðirnir taki yfír Fiskveiða- sjóðt Iðnlána- og Iðnþróunarsjóð. „Áform ríkisstjórnarinnar um að steypa saman sjóðunum og að ríkið eigi meirihluta í þeim virð- ist vera það sem er ofan á og við ætlum okkur ekki að reyna að koma í veg fyrir það, enda er það ekki okkar hlutverk," segir Kristján. „Ég tel sjálfur eðlilegra að sjóðunum verði breytt í hluta- félag hveijum fyrir sig og síðan verði þeir seldir hveijum þeim sem kaupa vill. Ég ætla að banka- ráð Islandsbanka sé mér sammála um það, þótt til þess hafi ekki verið tekin nein afstaða." Lítill munur á ríki og ríkisbönkum Kristján segist ekki sjá mikinn mun á því hvort ríkið eða ríkisbankar eigi sjóðina. „Við emm hluta- félag og bemm ábyrgð gagnvart hluthöfum okk- ar. Það er margt sem kemur inn í mat á því hvort þetta sé hagkvæmt, til dæmis það að verulegt eigið fé verður tekið úr sjóðunum til stofnunar Nýsköpunarsjóðs. Það er spurning um rekstrarlega hagkvæmni þess fjár sem eftir yrði í sjóðnum." Kristján segir að nú líti út fyrir að lögfest verði að ríkið skuli eiga meirihluta í fyrirhuguðum Fj'ár- festingabanka sem myndaður verði úr sjóðunum þremur. Hann spáir því að þá verði erfitt að selja hlutabréf í bankanum, því ekki sé vænlegur kost- ur að eiga minnihluta í fyrirtæki þar sem ríkið er ráðandi. Kristjáni finnst að menn ættu að minn- j ast þess hversu vel hafí tekist til þegar Útvegs- bankanum var breytt í hlutafélag og hann allur | seldur. Upp úr því varð íslandsbanki til og telur | Kristján að þar hafi verið stigið mikið framfara- spor í bankamálum hérlendis. Sigurður Hafstein segir að sparisjóðimir hafi undanfarið átt í viðræðum við ríkisbankana. „Við emm sammála hugmyndum þeirra og viljum taka þátt í þessu samstarfi. Það er tímaskekkja að stofna ríkisbanka á sama tíma og stefnt er að því að breyta þeim sem fyrir em í hlutafélögi væntanlega með það í huga að ríkið losi sig út , úr þeim rekstri. Við teljum að ríkið eigi ekki að j vera í rekstri á fjármálamarkaði." Sigurður telur j þá aðgreiningu sem gerð er milli fjárfestingalána | og annarra lána ranga, enda sinni bankakerfið nú þegar fjárfestingalánum eins og öðra. j
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.